Morgunblaðið - 23.06.2001, Blaðsíða 21
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 21
Á FUNDI í gær urðu bankastjórn
Seðlabanka Íslands og forsvars-
menn viðskiptavaka á gjaldeyris-
markaði sammála um að gera
breytingu á innlendum gjaldeyr-
ismarkaði sem taka mun gildi 1.
júlí nk. Viðskiptavakarnir eru Ís-
landsbanki hf., Landsbanki Ís-
lands hf., Búnaðarbanki Íslands
hf. og Kaupþing hf. Breytingin fel-
ur í sér að Seðlabankinn mun til
loka árs greiða viðskiptavökunum
umbun eftir vissum reglum fyrir
að sinna hlutverki sínu en á þeim
hvíla ríkar skyldur.
Breytingin er gerð í framhaldi af
vinnu starfshóps sem settur var á
laggirnar fyrir skömmu. Í honum
sátu fulltrúar viðskiptavaka á inn-
lendum gjaldeyrismarkaði undir
forystu Seðlabanka Íslands. Hópn-
um var ætlað að að setja fram til-
lögur um umbætur á gjaldeyris-
markaði sem hefðu það að
markmiði að auka dýpt hans, gera
viðskiptavakahlutverkið aðlaðandi,
draga úr sveiflum, koma í veg fyr-
ir óþarfa spíralmyndun og stuðla
að hagkvæmum viðskiptakostnaði.
Starfshópurinn skilaði tillögum
fyrir fáeinum dögum. Breytingin
sem gerð verður nú er í samræmi
við eina tillagna hópsins. Við-
skiptavakarnir á markaði telja
breytinguna afar mikilvæga og til
þess að fallna að stuðla að mark-
miðunum sem lýst er að framan.
Áfram verður unnið að útfærslu
annarra tillagna hópsins segir í
frétt frá Seðlabankanum.
Erlend staða Seðlabanka
efld með lántöku
Fjármálaráðuneytið sendi frá
sér tilkynningu í gær þar sem
fram kemur að ákveðið hefur verið
að ríkissjóður taki erlent lán að
fjárhæð 25 milljarðar króna. And-
virði þess verður varið til að efla
erlenda stöðu Seðlabankans. Í
frétt frá fjármálaráðuneytinu kem-
ur fram að stefnt sé að því að hluti
af andvirði hins nýja láns verði
eiginfjárframlag til bankans í ljósi
nýrra laga um Seðlabanka Íslands
sem gera ráð fyrir eflingu eig-
infjárstöðu hans. Þessi aðgerð
styrkir erlenda stöðu bankans til
mikilla muna, segir í fréttinni.
Starfshópur aðila á gjaldeyrismarkaði skilar tillögum um breytt fyrirkomulag
Markmiðið að draga úr sveiflum
Húsasmiðjan
Tap á fyrri
hluta ársins
VERÐBRÉFAÞING Íslands hf. birti
í gær afkomuviðvörun frá Húsasmiðj-
unni hf. þar sem fram kom að sam-
kvæmt óendurskoðuðu uppgjöri fyrir
fyrstu fimm mánuði ársins hafi tekjur
félagsins verið rúmlega 7% umfram
rekstraráætlun og að hagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði hafi verið
um 14% umfram rekstraráætlun.
Í tilkynningunni kom einnig fram
að gengistap vegna skulda félagsins í
erlendum myntum hafi á tímabilinu
verið um 370 milljónir króna umfram
rekstraráætlun og að vegna þess sé
fyrirsjáanlegt að tap verði á rekstr-
inum á fyrri helmingi ársins.