Morgunblaðið - 23.06.2001, Blaðsíða 26
SAMKVÆMT niðurstöðum könnun-
ar á notkun öryggisbúnaðar barna í
bílum sem Árverkni, Slysavarna-
félagið Landsbjörg og umferðarráð
stóðu fyrir víða um land í apríl sl. eru
8% barna á leikskólaaldri laus í bif-
reiðum. Ástandið í þessum efnum
hefur þó stórbatnað frá því sem áður
var, að sögn Margrétar Sæmunds-
dóttur hjá umferðarráði, en árið 1996
þegar fyrsta könnunin af þessu tagi
var gerð voru 30% barna laus í bílum.
Eingöngu bílbelti ekki nóg
Í ljós kom að börn á Akureyri,
Hofsósi og á Hólmavík njóta hvað
mests öryggis sem farþegar í bílum
en öll börnin á þessum þremur stöð-
um notuðu öryggisbúnað þegar þau
mættu í leikskólann. Í höfuðborginni
voru 94% barna með öryggisbúnað í
könnuninni en í nágrannasveitar-
félögunum, Garðabæ, Seltjarnar-
nesi, Kópavogi, Hafnarfirði og Mos-
fellsbæ voru það 93%. Á Norður-,
Austur- og Vesturlandi voru 90%
barna með öryggisbúnað, á Suður-
landi 92%, á Vestfjörðum 86% og á
Suðurnesjum 85%.
Í könnunni kom fram að aðeins
41,6% barna á leikskólaaldri nota
barnabílstól en þannig eru þau best
varin í bílnum, að sögn Margrétar.
„Næstbesta lausnin eru bílpúðar en
31% barna nota hann. 17% barna
hafa eingöngu bílbelti sem eru
óheppilegur öryggisbúnaður fyrir
börn á leikskólaaldri vegna þess að
þau eru hönnuð fyrir fólk sem er
a.m.k. 140 cm á hæð.“ Hún segir tak-
markið vera í fyrsta lagi að öll leik-
skólabörn noti öryggisbúnað í bíl og í
öðru lagi að þau noti annaðhvort
barnabílstól eða bílpúða.
„Við viljum einnig vekja athygli á
hættunni sem börnum stafar af ör-
yggispúðum ef þau eru látin sitja í
framsæti. Þeir blásast upp af tölu-
verðu afli ef árekstur verður og lendi
slíkur púði á höfði barns sem er
lægra en 140 cm og undir 40 kg getur
það haft mjög alvarlegar afleiðingar
og hefur leitt til dauða margra barna,
t.d. í Bandaríkjunum.“ Hún bendir á
að höfuð lítilla barna sé stórt í hlut-
falli við búkinn og sitji á veikbyggð-
um hálsliðum, því sé hættan á að
hálsbrotna við að fá á sig öryggis-
púða töluverð og því meiri sem barn-
ið er yngra. „Því miður virðast for-
eldrar hér á landi ekki gera sér grein
fyrir þessu því að í könnuninni voru
47 leikskólabörn sitjandi í framsæti í
bíl með öryggispúða.“
Margrét segir að takmarkið sé í
fyrsta lagi að öll leikskólabörn noti
öryggisbúnað í bíl og í öðru lagi að
þau noti annaðhvort barnabílstól eða
bílpúða.
Börn á leikskólaaldri eru best varin í bílstól. Hér er María Lovísa sem er
tveggja ára tilbúin í bílferð.
*%
"
2! *%
"
. ##
*''(/)00*
!
"
$
2! !""# !""$ !""% !""" &''' &''!
3
#
#
#
3
1
3
34
#
1 #
3
Tæplega helmingur
barna í barnabílstólum
8% leikskólabarna án öryggisbúnaðar í bílum
LÍFRÆNT ræktað grænmeti er að
langmestu laust við sýkla sem valda
sjúkdómum í mönnum, skv. nýlegri
rannsókn breska heilbrigðiseftirlits-
ins. Tekin voru yfir 3.000 sýni af
hráu, lífrænu grænmeti til þess að
kanna hvort þau innihéldu sjúk-
dómsvaldandi örverur og í ljós kom
að gæðin eru mikil, í 99,5% sýna voru
þau óaðfinnanleg. Í engu sýnanna
fundust þeir sýklar sem líklegastir
eru til að valda sjúkdómum í mönn-
um: listería, salmónella, kamfýló-
bakter og E. coli 0157, samkvæmt
frétt á vef BBC.
Markaður fyrir lífrænan búskap
hefur aukist mikið í Bretlandi að því
er segir enn fremur í fréttinni en
rannsókn þessi er sú fyrsta sinnar
tegundar þar í landi.
Ekki vanþörf á rannsókn hér
Niðurstöðurnar eru mjög jákvæð-
ar fyrir lífræna ræktun grænmetis
en hingað til hefur því verið haldið
fram að meiri hætta væri á bakter-
íusmitun í lífrænum búskap þar sem
notast er við búfjáráburð, segir Ólaf-
ur Dýrmundsson ráðunautur í líf-
rænum búskap hjá Búnaðarfélagi Ís-
lands. „Ekki er vanþörf á að gera
sams konar rannsókn hér því um er
að ræða allt aðra búskaparhætti.“
Þróunina í lífrænum búskap segir
Ólafur hafa verið mjög hæga hér á
landi en markaður farið ört vaxandi,
meðal annars hefur innflutningur á
lífrænum vörum aukist mikið. Tilbú-
inn barnamatur er til dæmis mikið til
orðinn lífrænn og töluvert er flutt
inn af honum hingað til lands.
En til þess að auka framleiðslu líf-
ræns búskapar þurfa íslensk stjórn-
völd að marka stefnu í lífrænum bú-
skaparháttum. „Heildarstefnu
vantar, til dæmis þyrfti að bjóða
bændum aðlögunarstyrki í þrjú til
sex ár eins og tíðkast í flestöllum ná-
grannalöndum okkar.“
Halldór Runólfsson yfirdýralækn-
ir telur að ef álíka rannsókn yrði
framkvæmd hér á landi og í Bret-
landi yrðu niðurstöðurnar svipaðar,
eða jafnvel betri. „Löng hefð er fyrir
að nota húsdýraáburð í grænmetis-
garða hér á landi, svo sem á kart-
öflur, og ekki er vitað um sýkingar
sökum þess. Oft á tíðum á sér stað
niðurbrot í jarðveginum á bakteríum
úr húsdýrum og áburðurinn er bor-
inn á í upphafi ræktunartímans, oft-
ast á vorin en tekið er upp að haust-
in. Auk þess er eindregið mælt með
þvi að grænmetið sé skolað vel fyrir
neyslu til þess að koma í veg fyrir
hugsanlegar sýkingar.
Þróun í lífrænum búskap hæg hér á landi
Engir sjúkdómsvaldandi sýkl-
ar í lífrænt ræktuðu grænmeti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breska heilbrigðiseftirlitið tók um 3.000 sýni af lífrænt
ræktuðu grænmeti.
NEYTENDUR
26 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
LILJA Hjaltadóttir fiðlukennari
stendur fyrir fiðlunámskeiði fyrir
börn á aldrinum 5-17 ára í Skál-
holti og hefst það 25. júní.
Þetta er tíunda sumarið í röð
sem hún heldur slíkt námskeið í
Skálholti og mun af því tilefni fá
til liðs við sig þau Ragnhildi Pét-
ursdóttur fiðluleikara, Junah
Chung víóluleikara, Gyðu Hall-
dórsdóttur tónmennta- og píanó-
kennara og Kristin Örn Krist-
insson píanóleikara. Börnin sem
sækja námskeiðið hafa lært á
fiðlu eftir aðferð Shinichi Suzuki
og á námskeiðinu munu þau fá
einkaleiðsögn í hljóðfæraleik,
hóptíma í tónfræði og tækifæri til
samleiks. Á námskeiðum undan-
farin ár hafa þátttakendur oft
leikið við messur og aðrar sam-
komur í Skálholtsdómkirkju.
Fiðlunámskeið í Skálholti
Börn á fiðlunámskeiði í Skálholti.
SUMAR sýningar koma á óvart,
gerist þó æ sjaldnar er svo er komið á
tímum hraða og hrak-
andi handverks, er allt
virðist eiga að koma
sjálfkrafa og átakalaust.
Rýnirinn átti von á
allt öðru er hann leit inn
í Stöðlakot á dögunum,
að vísu íðum af hárri
gráðu eins og er von og
vísa frá hendi Kristínar
Schmidhauser Jónsdótt-
ur, en ekki þeim óheftu
listrænu tökum á efni-
viðnum er við blöstu. Á
neðri hæðinni var ekki
um hefðbundinn útsaum
að ræða, frekar að ort
væri með nál og þræði,
óháð lögmálum hefðum
og gildum eins og það
heitir í skrá. Þó glittir í
hefðina að baki þessara
frjálslegu vinnubragða í
ljósi vandaðs handverks
aga og upprunalegrar
sköpunargleði. Og sköpunargleðin er
einmitt vakinn að baki vinnubragð-
anna, sem eru næsta óvenjuleg í
myndlist dagsins, þótt hryn lita og
forma sé á kunnuglegum nótum. Um
að ræða myndræn stef af ýmsu tagi
sem einhverjir loftkenndir töfrar ein-
kenna, byggjast á samsetningu að-
skiljanlegra efnisbúta á stundum
gangsærra. Leiða hugann að ósjálf-
ráðum og skynrænum vinnubrögðum
þar sem litir og form samsamast
myndfletinum létt og leikandi. Minnir
á mjög tónræn ljóð með leikum og
léttum hrynjandi þar sem hver ljóð-
lína eins og hittir í mark og snertir
djúpa strengi hjá þeim er les. Til við-
bótar er þetta ein af þeim sýningum
sem falla inn í hið sérstaka rými eins
og það andi með því...
Á efri hæðinni getur að líta nokkur
útsaumsverk móður listakonunnar
Þórunnar Þorvarðardóttur sem kom-
in er á tíræðisaldurinn,
fædd 1910 að Þiljuvöllum
í Berufirði. Þessi verk
vann hún án tilsagnar á
árunum 1920–30 en
skólaganga hennar á
þeim tíma markaðist ein-
ungis af farkennslu. Um
fermingaraldur pantaði
hún útsaumsefni frá
Kaupmannahöfn í gegn-
um Nordisk Mönster –
Tidende og evrópska
pöntunarlista. Og eins og
gamla konan segir sjálf,
var hver stund nýtt, skot-
ist inn í bæ og gripið í út-
sauminn milli þess að
rekið var úr túninu eða
snúið í flekk.
Í þessum hefðbundnu
verkum sem unnin eru í
ýmsum tegundum út-
saums er falin mikil saga
frá fyrstu áratugum ald-
arinnar þá ungir fengu ekkert sjálf-
krafa upp í hendurnar. Urðu að koma
til vinnunar sem bar í sér óvægan aga
og hver frístund nýtt til hagnýtra at-
hafna, einkum þeirra er báru í sér kím
háleitra markmiða, líkt ljósbliki ofar
amstri dægranna.
Morgunblaðið/Bragi Ásgeirsson
Kristín Schmidhauser Jónsdóttir: Gengin spor, útsaumsverk 1996.
Þráðurinn langi
Þórunn Þorvarðar-
dóttir: Undirkjóll –
útsaumsverk, hedebo-
saumur, 1920–30.
Bragi Ásgeirsson
LIST OG
HÖNNUN
S t ö ð l a k o t
ÚSAUMUR
KRISTÍN SCHMID-
HAUSER JÓNSDÓTTIR
Opið alla daga frá kl. 14–18. Til 24.
júní. Aðgangur ókeypis.