Morgunblaðið - 23.06.2001, Page 28
28 LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ALLT fram á þessa öld var Eyja-
fjallajökull hliðarjökull út úr Mýr-
dalsjökli. Þegar hlýnaði og jöklar
tóku að hopa hvarf íshellan að mestu á
milli þessara jökla. Eftir eru stórar
fannir sem sjaldan leysir alveg sum-
arlangt. Þetta er Fimmvörðuháls sem
í dag er ein af vinsælustu gönguleið-
um á Íslandi. Svo margir ganga þar
um á hverju sumri að gestabókin í
Baldvinsskála, sem stendur syðst á
Hálsinum, endist varla sumarið út.
Nafnið kemur af því að norðan í
Hornfellsnípu í Skógaheiðinni er
klapparsker með fimm vörðum sem
kallað er Fimmvörðusker.
Sá sem hér heldur á penna var
lengi þeirrar skoðunar að betra væri
að hefja gönguna að norðanverðu, á
Goðalandi og studdi það þeim rökum
að betra væri að taka hæðina í einum
áfanga og ganga síðan undan fæti
stærstan hluta leiðarinnar. Auk þess
getur veður verið þannig að erfitt sé
að finna leiðina niður af Hálsinum og
inn á Morrisheiði. Sá sem reynir að
fara annarstaðar niður en yfir Helj-
arkamb segir ekki frá ferðum sínum.
Það er hins vegar vinsælla að hefja
gönguna frá Skógum og því verður sú
leið valin hér.
Það hefur áður komið fram að um
er að ræða eina allra vinsælustu
gönguleið á Íslandi. Hitt er líka jafn
ljóst að hún er e.t.v. sú viðsjárverð-
asta sakir snöggra breytinga sem þar
geta orðið á veðri á hvaða árstíma
sem er. Það getur verið blítt og stillt á
láglendi beggja vegna en þegar komið
er upp á há-hálsinn er hugsanlega
svarta þoka svo ekki sér handa skil.
Því miður hafa orðið þar alvarleg slys
sakir þess að menn hafa verið van-
búnir undir veðurbreytingar. Segja
má að á göngu yfir Fimmvörðuháls
fái maður þverskurðinn af íslenskri
náttúru á einum degi. Skóg, grænar
grundir, há fjöll, jökla, sand, grjót og
ár sem ýmist eru tærar eða kolmó-
rauðar.
Gróft má skipta leiðinni upp í fjóra
hluta.
Frá Skógafossi og inn að göngu-
brúnni á Skógá 3 klst.
Frá göngubrúnni og upp að Bald-
vinsskála 2 klst.
Frá Baldvinskála yfir sjálfan
Fimmvörðuhálsinn og inn á Morris-
heiði 2 klst.
Ofan af Morrisheiði og niður í Bása
á Goðalandi 1-1,5 klst.
Við hefjum gönguna neðan við
Skógafoss austan árinnar. Fossinn er
60 m hár, mjög stílhreinn
og formfagur, af mörgum
talinn einhver fegursti foss
landsins. Til er þjóðsaga
þar sem sagt er frá því að
Þrasi landnámsmaður hafi
falið gullkistu sína í helli
bak við fossinn eins og
fram kemur í gamalli vísu:
Þrasa kista auðug er
undir fossi Skóga,
hver sem þangað fyrstur fer
finnur auðlegð nóga.
Leiðin liggur upp bratta brekku við
hliðina á fossinum. Síðan er Skógánni
fylgt þar til farið er yfir hana á göngu-
brú rétt sunnan við þar sem bílveg-
urinn liggur yfir ána. Í gilinu sem áin
rennur í er fjöldinn allur af fossum, af
öllum mögulegum stærðum og gerð-
um. Sá sem fyrst verður á
vegi okkar heitir Hesta-
vaðsfoss. Neðan hans eru
skógi vaxnir hólmar sem
bærinn dregur nafn sitt af.
Þetta er eini náttúrulegi
skógarbletturinn á svæð-
inu sem skýrist af því að
þangað nær ekki sauðfé. Munnmæli
herma að ekki megi hrófla við gróðri
þar, annars hljótist illt af. Næsti foss
sem á vegi okkar verður er Fosstorfu-
foss og síðan Steinbogafoss. Þar er
eini staðurinn sem hægt er að ganga
þurrum fótum yfir ána. Þar lá fyrrum
kirkjuvegur ábúenda á austustu bæj-
um í Austur-Eyjafjallahreppi (Skarðs-
hlíð og Drangshlíð), á þeim tíma er
þeir áttu kirkjusókn í Skógum.
Útsýni til suðurs og austurs er líka
stórkostlegt. Dyrhóla- og Pétursey og
Fimmvörðuháls
Ferðafélag Íslands
gengst fyrir göngu-
ferð um Fimmvörðu-
háls nú á Jónsmess-
unni. Leifur Þor-
steinsson segir frá
þessari vinsælu
gönguleið.
!"
#" $
% &
'
!
"#$%
!
!
#
()
$
!
"
!
#$% ''''''''''''( !
*
"
(+
+
%
%
(
%
(
*
)(
#*
,((
-
% +.
!
+
"
!
!!%&
%'(
!'()
!'*&
!'$*
"&&
)
%
(
# $
#"'
*#(
*
(/
%
")
. 5
'. )2!
'. &(!!$
$
6
(!
$! $
,7
8!'
"!'
('"
#(
&
'')
Heljarkambur
Ljósmynd/Ólafur Sigurgeirsson
SMS FRÉTTIR mbl.is