Morgunblaðið - 23.06.2001, Qupperneq 57
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JÚNÍ 2001 57
Kringlunni 4 - 6, sími 588 0800
EINA BÍÓIÐ MEÐ
THX DIGITAL Í
ÖLLUM SÖLUM
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 8 og 10. B. i. 16. Vit nr 238.
www.sambioin.is
Sýnd kl. 2 og 4. Ísl tal. Vit nr. 231 Sýnd kl. 2, 4 og 6. Vit nr 236.
B E N A F F L E C K
Sýnd kl. 6 og 9.30. B.i. 12 ára. Vit nr 235.
PEARL HARBOR
7 desember 1941, skyndiárás sem breytti lífi þeirra að eilífu.
HEIMS
FRUMS
ÝNING
Læknirinn er mættur aftur. Tvöfalt betri. Tvöfalt fyndnari.
VALENTINE
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Vit nr 246
EÓT Kvikm
yndir.is
Snorrabraut 37, sími 551 1384
FYRIR
1090 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
www.sambioin.is
Strik.i
s
Sýnd kl. 6 og 8.30. B. i. 16. Vit nr. 201. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i.14. Vit nr 220.
B E N A F F L E C K
7 desember 1941, skyndiárás sem
breytti lífi þeirra að eilífu.
Sýnd kl. 6.30 og 10. Vit nr 235. B.i. 12 ára
HL.MB
L
Stórkostleg mynd sem endurskapar einn magnaðasta atburð seinni
heimsstyrjaldarinnar á raunsæjan hátt. Frábær upplifun fyrir augu
og eyru sem er í senn spennandi og góð ástarsaga. Ef þú ferð bara
tvisvar í bíó á ári, þá sérðu þessa tvisvar!
Kvikmyndir.com
Blóðrauðu fljótin
Sýnd kl. 8, 10 og 12. Bi 16
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 12.
3 vikur á
toppnum í USA
Sannir spæjarar...bara aðeins minni
Frábær fjölskyldu og ævintýramynd
„Bond mynd fyrir
fjölskylduna“
HK DV
AI MBL
ÓHT Rás2
Kvikmyndir.is
Get
Over It
Sýnd kl. 2, 4 og 6.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 12.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 og 12 á miðnætti.
HEIM
SFRU
MSÝN
ING
Someone
Like You
e e
i e
Læknirinn er mættur aftur. Tvöfalt betri. Tvöfalt fyndnari.
EÓT Kvikmyndir.is
BLÚSARINN John Lee Hooker lést
í svefni á heimili sínu í San Franc-
isco á fimmtudaginn, 83 ára að
aldri. Hooker var einn áhrifamesti
blústónlistarmaður 20. aldarinnar
og í fámennum hópi frumkvöðla
sem breiddi út Missisippi Delta
blúsinn til fjöldans. Hafa og tónlist-
armenn allt frá Carlos Santana til
Rolling Stones nefnt hann sem einn
af sínum helstu áhrifavöldum.
Þrátt fyrir háan aldur var Hook-
er enn í fullu fjöri þegar hann dó
og til marks um það lék hann á tón-
leikum um síðustu helgi fyrir fullu
húsi gesta sem fögnuðu honum
innilega að loknum flutningi.
Á ríflega hálfrar aldar ferli lék
Hooker inn á vel yfir 100 plötur og
var boðinn velkominn í Frægð-
arhöll rokksins árið 1991. Hann
ólst upp í hópi 11 systkina í Miss-
isippi og lærði sín fyrstu gítargrip
hjá stjúpföður sínum. 14 ára gam-
all flúði hann að heiman í leit að
frægð og frama sem söngvari og
gítarleikari og lá leið hans til
Memphis og Detroit.
Eftir að hafa áunnið sér sess sem
einn færast blúsarinn á svæðinu
öðlaðist hann fyrst almenna frægð
árið 1948 þegar hljóðritun hans á
laginu „Boogie Chillen“ náði tals-
verðum vinsældum. Stíllinn þótti
líka allsérstakur. Hrár gítarleikur,
taktslag með fætinum og seiðandi
strigaröddin voru hans sér-
einkenni, sem síðar voru kennd við
„boogie“.
Hooker náði mestri hylli á 7. ára-
tugnum eftir að hljómsveitir á borð
við Rolling Stones höfðu hamrað á
snilli hans og mikilvægi. Í kjölfarið
urðu vinsæl lög á borð við „Boom
Boom“ og „Dimples“.
Árið 1989 var hann enn „upp-
götvaður“ þegar gefin var út plat-
an The Healer þar sem Hooker
naut aðstoðar listamanna á borð
við Santana, Bonnie Raitt og Ro-
bert Cray. Sankaði platan og
Hooker að sér verðlaunum, þ.á m.
Grammy-verðlaunum, en hann
hlaut alls fern slík verðlaun á ferl-
inum og sérstök heiðursverðlaun á
hátíðinni í fyrra, fyrir ævistarf sitt.
Carlos Santana segir í frétta-
tilkynningu sem hann sendi frá sér
eftir fráfall Hookers: „Það eru ekki
til lýsingarorð sem fá lýst þeim
áhrifum sem John Lee hefur haft á
hjörtu okkar. Við tónlistarmenn og
almenningur erum honum eilíflega
þakklát og bæði virðum hann og
dáum.“
Það er mál manna sem blús-
tónlist þekkja að með Hooker hafi
horfið af braut síðasti stóri blús-
arinn úr hópi brautryðjendanna.
Í viðtali við L.A. Times í tilefni af
útkomu The Healer fyrir rúmum
áratug gerði Hooker grein fyrir
ævistarfi sínu. „Það má vel vera að
ég sé ekkert sérstaklega góður í að
skrifa tónlist. En þegar skapa á lag
héðan frá,“ sagði hann og benti á
hjartað, „og héðan“, og síðan á höf-
uðið, „þá kemst enginn með tærnar
þar sem ég hef hælana.“
Áhrifamikill brautryðjandi
Reuters
Hooker var ávallt svalur á sviði.
Blúsgoðsögnin John Lee Hooker látin