Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 27
brátt kom í ljós að hann var afbragðs penni og tekið var eftir skrifum hans. Hann varð dálkahöfundur, gagnrýn- andi og skrifaði um mat og drykk í mörg blöð og tímarit, þar má nefna Private Eye, The Spectator, The Times, The New Statesman og The Daily Mail. Auberon var fátt óviðkomandi í bresku þjóðlífi, stjórnmálamenn fengu sinn skammt, honum fannst menn ekki kunna almenna mannasiði lengur, væru illa uppfræddir og mál- fari fannst honum fara hrakandi. Skyndibitamenningu kunni hann ekki að meta og mataðist sjálfur að heldri manna sið. Hann dró ekki dul á að honum féll betur samneyti við menntamenn og yfirstéttarmenn. Hann skrifaði fyrstu skáldsögu sína „The Foxglove Saga“ árið 1960, fjórar fylgdu á eftir en hann sneri sér alfarið að blaðamennsku aftur eftir 1970. Árið 1986 stofnaði Auberon mán- aðarritið Literary Review, mönnum kom saman um að þar hafi hann náð lengst í skrifum sínum. Til liðs við hann kom ungt, vel menntað fólk sem tilbúið var að vinna hjá honum fyrir lægri laun en það gat fengið annars staðar. Starfsemin var inni í miðju Sohohverfi í London. Auberon kvæntist stúlku af aðals- ætt, Teresu dóttur Onslow lávarðar, þau eignuðust fjögur börn, tvær stúlkur og tvo drengi. Hann var sagð- ur góður faðir. Samstarfsmenn Auberon og fleiri skrifuðu um hann látinn. Þeim bar saman um að blaðamaðurinn og per- sónan sjálf hefðu verið gjörólík, hann hefði verið afar kurteis, velviljaður og hlýlegur í samskiptum, gagnstætt því sem halda mætti af skrifum hans. Einn orðaði það svo að hann hefði skipt um ham þegar hann settist nið- ur með auða pappírsörk fyrir framan sig. Dáði föður sinn og hræddist Þegar Auberon fæddist skrifaði faðir hans í dagbókina sína: „Laura hamingjusamari en hún er líkleg til að verða aftur.“ Eins og þá tíðkaðist meðal yfirstéttar í Bretlandi voru ungbörn fengin barnfóstrum til umönnunar fyrstu árin. Auberon sagði frá því sjálfur að hann hefði ekki þekkt móður sína úr þeim hópi kvenna sem á heimilinu voru fyrsta árið. Drengurinn var bráðger og þótti mikill fyrir sér. Hvorugu foreldranna var sýnt um að veita ástúð. Þekkt eru ummæli föðurins þegar hann sagði son sinn barnungan leiðindasegg og fleira í þeim dúr. Auberon var aðeins rétt orðinn 6 ára gamall þegar hann fór á heimavistarskóla. Hann dáði föður sinn en hræddist um leið, allar tilraunir hans til að vinna hylli hans voru unnar fyrir gýg. Evelyn Waugh var ekki mikið fyrir börn, hann skrifaði einu sinni í dag- bók sína, þegar hann kom heim frá London: „Bron ekki farinn eins og mér hafði verið lofað.“ Á meðan börn- in voru heima í jólafríi árið 1945 sat heimilisfaðirinn ekki til borðs með fjölskyldunni heldur mataðist á skrif- stofu sinni. Á nýársdag 1946 skrifar hann í dagbók sína: „Kaldur nýárs- dagur, börnin mín þreyta mig. Ég lít á þau sem ófullkomna fullorðna ein- staklinga, þau eru framtakslaus, nið- urdrepandi, léttúðug, gefin fyrir sæl- lífi og gjörsneydd kímnigáfu.“ Auberon skrifaði sjálfsævisögu sína „Will This Do?“ sem kom út árið 1991. Þar segir hann að hann hafi átt hamingjuríka æsku, segir frá ýmsum strákapörum sínum í skóla, m.a. þeg- ar hann átti met og var hegnt 14 sinn- um á einni önn vegna óhlýðni. En hann segir líka frá atviki sem gerðist í lok heimstyrjaldarinnar. Allt var skammtað í Bretlandi, ávextir og annað ófáanlegt. Stjórnin tók þá ákvörðun að gefa hverju bresku barni einn banana. Auberon og tvær litlar systur hans biðu óþreyjufull eftir að móðir þeirra kæmi heim með þeirra skammt. En bananarnir þrír lentu á diski föður þeirra, hann stráði sykri á, hellti rjóma yfir og borðaði með bestu lyst fyrir framan angistarfull börnin! Evelyn Waugh á ungum aldri. Laura og Evelyn á brúðkaupsdaginn árið 1937. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 27 Andi Alheimsins og Heilun Sálar Langar þig til að finna aukna hamingju, auð, byggja upp líkama og sál og öðlast góða heilsu. Þá er tækifærið núna. Tækifærið þitt. Rahul Patel, einn fremsti kennari, heilari og meistari á sínu sviði, mun halda fjölbreytt helgarnámskeið dagana 22.–23. september. Námskeiðið verður þýtt á íslensku. Hver námskeiðsgestur fær litla gjöf frá Rahul Patel. Hver námskeiðsgestur getur sótt um bás og kynnt sínar vörur og þjónustu. Rahul Patel tekur á móti fólki í einkatíma. Örfáir tímar lausir.Hringið í Ragnhildi 896 3615. Knarrarvogi 4 • S. 568 6755 Þúsundir fermetra af fl ísum á lækkuðu verði Gegnheilar útiflísar frá kr. 990.- m Afgangar frá kr. 600.- m Verðdæmi: 2 2 ÚTSALA Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433. Rýmum fyrir nýjum vörum Bolir frá kr. 500 Buxur frá kr. 1.790 Dragtir frá kr. 7.900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.