Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 26.08.2001, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. NÚ ER liðið nokkuð á annað ár síðan forsætisráðherra boðaði að greiðslur almannatrygginga ættu að hækka í takt við laun, eins og það var orðað í 3. grein yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga á árinu 2000. Orðrétt segir í yfirlýsingunni: Ríkistjórnin mun tryggja að greiðslur almannatrygginga hækki í takt við umsamdar almennar launa- hækkanir á samningstímabilinu. Hækkunin á árinu 2000 verður þó nokkru meiri. En hver hefur launaþróun verið síðan launasamningalotan hófst í byrjun síðasta árs þegar Flóabanda- lagið samdi í apríl um 12 til 30% launahækkanir og hefur samninga- lotan staðið fram til þessa. Hafa hin ýmsu stéttarfélög verið að semja um miklar launahækkanir og hefur heyrst talað um 130 til 180 þúsund króna byrjunarlaun. Það vekur at- hygli að samninganefnd ríkisins hef- ur gefið út að búið sé að semja við alla nema sjúkraliða. Hvernig hefur ríkistjórnin staðið við að tryggja að greiðslur almanna- trygginga hækki í takt við umsamdar launahækkanir eins og lofað var? Ellilífeyrir var 1. janúar 2000 kr. 17.435, en hinn 1. apríl 2000 hækkaði hann í kr. 17.592 eða um 157 krónur, hinn 1. september fengum við aðra hækkun, ellilífeyrir fór í kr. 17.715 eða hækkaði um 123 krónur og hinn 1. janúar í ár hækkaði hann í 18.424 krónur og er óbreyttur í dag. Samtals höfum við ellilífeyrisfólk fengið 989 kr. hækkun á ellilífeyri síðustu 20 mánuði. Er þetta ekki stórkostlegt á sama tíma og stéttarfélög eru að semja um mörg þúsund króna hækkanir og kjaranefnd úrskurðar þingmönnum, ráðherrum og öðrum æðstu embætt- ismönnum þjóðarinnar, hækkanir sem nema 25 til 50 þúsundum króna á mánuði, en kjaranefnd tilkynnti að laun hefðu hækkað almennt um 6,9% og hækkuðu laun æðstu manna sam- kvæmt því. Á sama tíma hefur ellilíf- eyrir hækkað um ca. 5%. Ríkisstjórnin gerði, að eigin sögn, mikið átak til að bæta kjör hinna verst settu og setti lög um minnkandi skerðingar hjá sumu af ellilífeyris- fólki og hækkaði bætur til sumra þeirra allra lægstu. Það er til þeirra sem höfðu um 60 þúsund krónur á mánuði eða minna og þeirra sem voru í sambýli eða í hjónabandi og báðir lifa á ellilífeyri, en aðrir fengu ekkert. En varla voru lögin komin til fram- kvæmda þegar hinn nýi heilbrigðis- ráðherra gaf út reglugerð, sem skerti mjög kjör aldraðra í formi hækkaðs lækna- og lyfjakostnaðar, sem kemur harðast við aldraða og öryrkja, en þetta eru þeir hópar, sem mest þurfa á læknum og lyfjum að halda. Þetta eru skrítnar aðferðir til að tryggja að bætur almannatrygginga fylgi launaþróun í landinu. Þá vekur það athygli að eina stétt- arfélagið, sem ekki er búið að semja við og varla er talað við, eru sjúkralið- ar. Hvers vegna? Það mætti halda að ástæðan sé sú, að það eru sjúkraliðar, sem starfa mest með og annast aldr- aða, sjúka og öryrkja. Því þarf ekki að semja við sjúkraliða og gera þá ánægðari, því þeir eru að vinna fyrir þá hópa sem stjórnvöld virðast telja óþarfa í þjóðfélaginu og því þurfi ekk- ert að sinna þeim, þeir mega þræla áfram á sínum lágu launum. Þar er alveg ljóst að stór hluti okk- ar, ellilífeyrisfólks, fékk engar hækk- anir vegna nýju laganna, en urðu fyr- ir skerðingum vegna nýju reglugerðarinnar, eins og aðrir, og þannig hefur kaupmáttur hjá stórum hluta af okkar félögum minnkað á þessu ári, þegar allir nema eftirlauna- fólk, öryrkjar og sjúkraliðar hafa ver- ið að stórbæta kjör sín. Það hefur mörgum sinnum verið bent á þá staðreynd að mikill meiri- hluti ellilífeyrisþega er með heildar- tekjur milli 50 og 100 þúsund krónur á mánuði, sem er nálægt eða undir fá- tækramörkum og nú eru sjúkraliðar að nálgast fátækramörkin því laun þeirra hafa ekki hækkað í samræmi við aðra launþega. Laun sjúkraliða eftir 30 ára starf við öldrunarþjón- ustu eru í dag rúmlega 113 þúsund krónur, en sjúkraliðar sem vinna við öldrunarþjónustu eru hærra launað- ir. Það er réttlætismál okkar ellilíf- eyrisfólks að laun okkar hækki í sam- ræmi við launaþróunina í landinu og að samið verði strax við sjúkraliða, svo við fáum notið starfskrafta þeirra áfram, en margir þeirra hafa sagt upp störfum. Það er full ástæða til að benda ráðamönnum á að það fer að styttast í kosningar og eftirlaunafólk er tölu- vert fjölmennt. KARL GÚSTAF ÁSGRÍMSSON, formaður Félags eldri borgara, Kópavogi. Launabarátta aldr- aðra og sjúkraliða Frá Karli Gústafi Ásgrímssyni: OFT er það svo að við hugsum ekki um öryggisþætti, fyrr en eftir slys. Þannig þurfti að verða hörmulegt slys til þess að vekja menn til um- hugsunar um loftræstingu í fjalla- skálum. Mér finnst það með ólíkindum að skálar eða sumarbústaðir skuli vera byggðir án þess að á þeim séu loft- ventlar. Slíkir loftventlar hafa marga kosti ef þeir eru rétt staðsettir. Loft- ventlar sitt á hvorum stafni, upp undir risi, með vindhlíf yfir svo ekki snjói eða rigni inn um þá, hafa marga kosti. Þeir fyrst og fremst tryggja stöðugt loftstreymi inn í húsið, halda eðlilegu rakastigi í timbrinu, hindra að heita loftið stöðvist í risinu, heldur halda stöðugu loftstreymi og hindra myglumyndun. Lofttúður upp úr þaki gera ekki sama gagn og loftventlar í stöfnum, því þær draga heita loftið beint út og gera það að verkum að upphitun nýt- ist verr. Það verður líka að vera loft- ventill neðar í húsinu til þess að loft- streymi myndist. Ég myndi því leggja til að settir yrðu loftventlar á öll þessi hús sem eru loftventlalaus, því það er lítið mál og lítill kostnaður sem því fylgir. GUÐVARÐUR JÓNSSON, Hamrabergi 5, Reykjavík. Fjallaskálar og sumarhús Frá Guðvarði Jónssyni:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.