Morgunblaðið - 26.08.2001, Side 54

Morgunblaðið - 26.08.2001, Side 54
HEDWIG, Lofkastalinn, KL. 20.30 lau 25/8 örfá sæti laus, lau 1/9, 8/9 RÚM FYRIR EINN, Iðnó, KL. 12 fös 31/8, súpa og brauð innifalið Miðsala kl. 11—16, sími 552 3000                FÓLK Í FRÉTTUM 54 SUNNUDAGUR 26. ÁGÚST 2001 MORGUNBLAÐIÐ MEÐ VÍFIÐ Í LÚKUNUM e. Ray Cooney Sýningar hefjast að nýju að loknu sumarleyfi Lau 1. sept. kl. 20 - LAUS SÆTI Fö 7. sept. kl 20 - LAUS SÆTI Lau 8. sept. kl. 20 - LAUS SÆTI WAKE ME UP e. Hallgrím Helgason Stórsöngleikur Leikfélagsins WMU Aukasýning: Í kvöld kl. 20 - Örfá sæti ATH: ALLRA SÍÐASTA SÝNING Miðasala: 568 8000 Miðasalan er opin kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnar kl. 10 virka daga. Fax 5680383 midasala@borgarleikhus.is Stóra svið DISKÓPAKK e. Enda Walsh Sun. 26/08 kl. 20:00 - Þri. 28/08 kl. 20:00 - Mið. 29/08 kl. 20:00 - Fim. 30/08 kl. 20:00 - LAUS SÆTI Fös. 31/08 kl. 20:00 - LAUS SÆTI ÖRFÁ SÆTI LAUS ÖRFÁ SÆTI LAUS ÖRFÁ SÆTI LAUS Miðaverð: 1.500 Sími: 511 2500 Nýtt Leikhús Vesturgötu 18                          ! " # $%   &     '  #( )   * +    ,   (   (       (  -   " . (                                                         ! "#  $ % !  "   &     '# " #   (  ) # ) # "  *  +    )       ,  &  - ...   !         "  # $%  &'   &  /  0 1  "   " 2    %   " #  2  "     3   0   4    ,  &  ...56.. ( $ )  !     *       &  0  "   1  , "   7  "  " & )     ) &"2 ! " '   2  ,  &  6..5... Stranglega bönnuð börnum / Rated X  Fullmikill Boogie Nights-þefur hér en stórt framfaraskref hjá bræðr- unum Sheen,og Estevez. Wonder Boys Svört og húmorísk mynd um há- skólaprófessor og nemanda hans sem læra ýmislegt hvor af öðrum um skáldskap og lífið. Einstaklega svöl og smekkleg mynd með frábær- um leik. (H.L.) Crouching Tiger, Hidden Dragon  Mögnuð ástarsaga frá Ang Lee úr gamla Kína, sem sigrast á þyngd- arlögmálinu í glæsilegum bardaga- atriðum.(A.I.) Hraðbrautin 2/Freeway 2  Óvægin, hömlulaus og grótesk kvik- mynd með stingandi samfélags- gagnrýni. Svona kvikmynd hefði Tarantino líklega gert hefði hann fæðst sem kona. Brúin/ Un pont entre deux rives  Frönsk ástarsaga, í leikstjórn Gér- ard Depardieu og Frédéric Auburt- in, sem fer sínar eigin leiðir og er áhugaverð fyrir vikið. Hinsta kvöldið/ Last Night Djúp og eftirminnileg kanadísk kvikmynd sem fjallar um hvers- dagsleikann andspænis heimsenda. Saga Arturo Sandoval /For Love or Country: The Arturo Sandoval Story  Pola X  Fyrsta kvikmynd franska leikstjór- ans Leos Carax síðan hann gerði Elskendurna á Pont-Neuf brúnni. Flott, frönsk og framúrstefnuleg en dálítið hæg. Hraðbrautin 2 / Freeway 2  Mjög hrottaleg en um leið áhuga- verð mynd um vitfirringu handan landamæranna. Hentar þó aðeins þeim allra sjóuðustu í sótsvörtum kvikmyndum. Oh Brother, Where Art Thou?  Coen-bræður endursegja lauslega Odysseifskviðu í gegnum þrjá strokufanga á þriðja áratugnum. Myndin er býsna góð á köflum, ekk- ert meira eða dýpra en það. (H.L.) Dónamyndir / Dirty Pictures  Virkilega áhugaverð mynd um minnisstæð málaferli út af sýningu á ljósmyndum Roberts Mapplethor- pes sem velti upp spurningunum um tjáningarfrelsi í listum. Meet the Parents  Oft meinfyndin, byggð á seinheppni og afkáralegum uppákomum í við- skiptum Stiller við tilvonandi tendgapabba, sem De Niro leikur af ýktum sannfæringarkrafti. (S.V.) Fjölskyldumaðurinn / Family Man  Cage heldur uppi amerískri jólasögu um einstæðing sem fyrir töfra fær að kynnast dásemd fjölskyldulífsins. (A.I.) Trúverðug og átakanleg sönn saga af kúbverska trompetleikaranum Arturo Sandoval og baráttu hans fyrir pólitísku hæli í Bandaríkjun- um. Andy Garcia hefur aldrei leikið betur. Lifendur og liðnir / Waking the Dead  Óvenju trúverðug ástarsaga með al- varlegum pólitískum undirtón. Frá- bær leikur hins rísandi Billy Cudrup og örugg leikstjórn hins óuppgötv- aða leikstjóra Keiths Gordons. Unbreakable  Áhugaverð og þægileg kvikmynd sem veltir upp tilvistarspurningum á spennandi hátt. (H.L.) Villiljós  Djörf, oft bráðfyndin, annað veifið glimrandi vel skrifuð lýsing á ótta og tilvistarkreppu reykvísks æskufólks og leikurinn yfirleitt góður.(S.V.) The Contender  Býsna áhugaverð mynd um bak- tjaldamakk pólitíkusanna í Hvíta húsinu. Góðir leikarar og fín flétta. (H.L.) Tregi tryllta mannsins / Wild Man Blues  Fín „fluga á vegg“-heimildarmynd um sjaldgæfa Evrópureisu klarín- ettuleikarans Woodys Allens og djasssveitar þeirrar sem hann hefur leikið með á hverju mánudagskvöldi í áraraðir. Fortíðardraugar / The Yards  Þétt og gott spennudrama um vand- kvæði sem geta verið bundin því að reyna að snúa baki við vafasamri fortíð. Leikur Marks Wahlbergs er lágstemmdur en lúmskur. Billy Elliot  Einföld, falleg og fyndin mynd um baráttu 11 ára drengs að fá að vera hann sjálfur, og pabba hans við að finna einhverja von.(H.L.) Tígurland / Tigerland  Frábært drama um harðneskjuna sem ríkir í æfingabúðum fyrir unga hermenn sem bíða þess að verða sendir til Víetnam. Aðalleikarinn Colin Farrell ER næsta ofur- stjarnan. Dópsalinn / Drug Dealer  Lítil mynd gerð af vanefnum en aug- ljósri ástríðu. Lýsir eymdarlífi smá- krimmans á strætum New York- borgar. Svo hrá að blóðið drýpur úr. State And Main  Handritið er haganlega skrifað og er byggt upp á mjög klassískan hátt en vantar spennu. Kvikmyndin í heild er ein leikaraveisla og þeir eru hver öðrum skemmtilegri. Risaeðlurnar/Dinosaurs  Teikningarnar eru ótrúlega góðar en formúlan er tekin að þreytast. Risaeðlurnar eru fyrirtaks fjöl- skylduskemmtun. GÓÐ MYNDBÖND Strákarnir í hverfinu (Essex Boys) S p e n n u m y n d 1/2 Leikstjóri: Terry Winsor. Aðal- hlutverk: Sean Bean, Alex Kings- ton, Tom Wilkinson. (102 mín.) Bretland, 1999. Skífan. Bönnuð inn- an 16 ára. ÞESSI breska glæpamynd segir frá Jason Locke sem losnar úr fang- elsi eftir fimm ára vist. Félagarnir sem hann hélt hlífiskildi yfir meðan á fangelsisdvölinni stóð hafa allir stórefnast á með- an og brátt er Jason komin með ráðagerð um að snúa hlutföllun- um við. Í kjölfarið fylgja átök í und- irheimunum og hefðbundið blóðbað að hætti Tarant- inos nema hér er á ferðinni heldur litlaust innlegg í kvikmyndahefð þá sem óhætt er að kenna við leikstjór- ann unga. Svikular konur, svikulir karlar, flókið verkefni. Allt er að hætti hússins en þó nær kvikmyndin aldrei að fanga athygli áhorfandans að ráði. Þrátt fyrir nokkra króka og brögð í handriti er frásögnin fyr- irsjáanleg, persónur flatar og að myndinni lokinni situr áhorfandinn eftir og hefur keypt köttinn í sekkn- um eins og svo oft áður. Heiða Jóhannsdótt ir MYNDBÖND Þvæld glæpaflétta KRISTJÁN Hreinsson á sér tæplega 30 ára sögu í íslensku tónlistarlífi. Hann hefur komið að gerð ríflega 40 hljómplatna sem textasmiður og sjálfur gefið út 5 plötur þar sem textar og lög skrifast alfarið á hans reikning. Flestir af okkar helstu poppurum og rokkurum hafa notið liðsinnis hans í gegnum tíðina og því ekki að undra að forkólfar eins og Magnús Kjartanson, Rúnar Júlíus- son, Magga Stína og Rafn Jónsson skuli endurgjalda greiðann á fimmtu breiðskífu hans, Í stuði með Guði. Nafnaupptalningu er þó ekki lokið því ég tel einfaldast að lýsa þessari skífu með vísun í aðra tónlistarmenn; Bubba á Fingraför- um, korrandi Stormsker, hol- lensk-sænsku fylli- byttuna og þjóð- lagaværingjann Cornelis Wreeswijk, Magnús Þór að drafa um gamla sorrý Grána, Bellmann í glasi, Tom Waits á Swordfishtrombones, Geirmund í sveiflu og svo mætti áfram telja. Kristján sækir óspart í söngstíl og/ eða textastíl þessara manna. Hann bregður upp ólíkum persónum í hverju lagi og gefur sögumanni þá rödd sem honum þykir hæfa hverju sinni. Hugmyndin er ekki slæm. Kristján veit að hann hefur ekki ómþýðustu rödd sem völ er á og leggur því upp með stutta leikþætti þar sem röddin á að gefa textanum meiri fyllingu og dýpt. Framkvæmdin á hinn bóginn er ekki góð. Ætlun og athöfn samræm- ast ekki þar sem söngurinn verður oft ekki annað en pirrandi paródía af þeim fyrirmyndum sem áður var get- ið og nær ekki að skapa það andrúms- loft sem lagt var upp með. Á stundum verður manni jafnvel ekki um sel. Í titillaginu fer Kristján þvílíkum ham- förum í ofleiknum drykkjustælum að ég átti erfitt með að fylgja þeirri vinnureglu að hlusta á það lag þrisvar sinnum með fullri athygli áður en dómur var kveðinn. Eitt slíkt feilspor hefði verið í lagi en þegar lengra er haldið inn í diskinn kemur í ljós að ekki var um einsdæmi að ræða. Textar eru vel flestir haganlega ortir og er það vel þar sem þeir eru trompið á plötunni. Ég mundi þó ekki veðja á grand í þeim efnum frekar en öðrum sem plötunni viðkoma. Þetta eru dæmisögur úr þjóðlífinu og menn og málefni líðandi stundar fá á bauk- inn með kaldhæðnislegum glósum. Textarnir rista bara ekki nógu djúpt. Í annars nokkuð skemmtilegu lagi (Reiðvísu) þar sem Kristján syngur í rímnatón, kyrjar hann tvíræðan brandara þar sem niðurlagið er svo fyrirsjánlegt að það jaðrar við að vera pínlegt. Annað er eftir því. Pottor- malegar dægurmálavísur og fyllirís- kvæði sem hefðu kannski frekar sómt sér í ársuppgjöri áramótaskaupsins heldur en brennd á geisladisk. Ljóðin skilja mann eftir kaldan. Niðurstaðan er því sú að það sem helst vantar í tónlistarsköpun Krist- jáns á þessari plötu sé einlægni og al- úð. Einlægni er vandmeðfarin skepna og kannski ekki hlaupið að því fyrir leikarann (Kristján) að túlka persón- ur sínar án íróníu. Maður fær hins vegar á tilfinninguna að í velflestum lögunum hafi verið kastað til höndum til þess að höfundur geti firrt sig því að sköpunarverkið sé honum hjart- fólgið. Þetta er sárast í ljósi þeirra hæfileika sem hann virðist þó búa yfir og koma vel fram í laginu „Fljúga himins englar“ þar sem Kristján læt- ur glitta í sínar mýkri hliðar og nær samfara því verðskuldaðri athygli. Ég get því ekki spáð Í stuði með Guði langri og farsælli vegferð. Krist- ján þarf að gefa sér meiri tíma fyrir næstu útgáfu en umfram allt þarf hann að gefa meira af sjálfum sér. Tónlist Einleikur án einlægni Í STUÐI MEÐ GUÐI Í stuði með Guði. Nafn flytjanda: Kristján Hreinsson og hljómsveitin Hans. Lög, textar og söngur ásamt tilfallandi hljóð- færaleik: Kristján Hreinsson. Aðrir hljóð- færaleikarar eru: Vilhjálmur Guðjónsson, Egill Örn Hrafnsson, Símon Jakobsson, Ásgeir Óskarsson, Tryggvi Hübner, Birgir Bragason, Magnús Einarsson, Magnús Kjartansson, Júlíus Guðmundsson, Rúnar Júlíusson, Þórir Úlfarsson og Kjartan Már Kjartansson. Bakraddir: Halla S. Jón- atansdóttir og Margrét Kristín Blöndal. Hljóðblöndun: Vilhjálmur Guðjónsson, Þórir Úlfarsson og Júlíus Guðmundsson- .Útgáfa: Gutti Dreifing: Edda miðlun/ útgáfa. Lengd skífu: 57.13 Heimir Snorrason Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500. www.flis.is  netfang: flis@flis.is flísar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.