Morgunblaðið - 06.10.2001, Síða 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
KRAFTAKEPPNI, fótbolti, leiklist,
tónlist og pulsuát eru meðal þess
sem var á dagskrá Stúdentadagsins
sem haldinn var annað árið í röð í
gær. Stúdentadagurinn var liður í
afmælisdagskrá vegna 90 ára af-
mælis Háskóla Íslands á þessu ári.
Mælst var til þess að kennarar gæfu
nemendum frí eftir hádegi og naut
fjöldi stúdenta góða veðursins í gær
þegar Morgunblaðið kom við.
Alls voru 40 fótboltalið skráð í
HM 2001, Happdrættismótið í
knattspyrnu, sem fór fram á gras-
flötinni fyrir framan aðalbyggingu
Háskólans. Ómar, Björn, Haukur
Ingi og Júlíus úr liðinu Áreiti, sem
var lið sálfræðinema og vina þeirra,
sleiktu sólina undir styttu Ásmund-
ar Sveinssonar af Sæmundi og seln-
um og slökuðu á eftir leik á móti
verkfræðinemum þar sem þeir
duttu úr keppni. Þeir komust í 16
liða úrslit og sögðu dómarann hafa
haldið með hinu liðinu, en hann var
verkfræðinemi. Aðspurðir hvort
þeir hefðu ekki getað tekið hitt lið-
ið á sálfræðinni sögðust þeir ætla
að gera það á næsta ári, en þeir eru
á fyrsta ári og eiga því margt ólært.
Lið viðskiptafræðinema, Mágus,
bar sigur úr býtum í HM 2001.
Stúdentar öttu einnig kappi á móti
kennurum í knattspyrnu. Stúdentar
höfðu harma að hefna frá því árið
áður og sigruðu 3-2 í víta-
spyrnukeppni.
„Þetta er örugglega versta leiðin
til að kynnast fólki, þetta er svo
mikill æsingur og fólk að rífa
kjaft,“ sagði Ómar. Hann sagði þó
að allt yrði örugglega fyrirgefið um
kvöldið, en þá höfðu flest nemenda-
félög skipulagt vísindaferðir og
partý.
Alberto Martin frá Spáni, sem
tekur jarðfræði, líffræði og ensku-
námskeið við HÍ, sagðist ánægður
með Stúdentadaginn. „Það er gott
að fá ókeypis mat,“ sagði Alberto
hlæjandi. „Svona dagur gefur nem-
endum einnig tækifæri til að tala
við aðra nemendur sem maður er
með í tímum,“ sagði Alberto.
Morgunblaðið/Þorkell
Nemendur með krafta í kögglum létu sig ekki muna um að taka arm-
beygjur með sex tveggja lítra kókflöskur á bakinu.
Veðrið lék við stúdenta á stúdentadeginum í gær og mættu fjölmargir á flötina fyrir framan aðalbyggingu
Háskólans til að taka þátt í dagskránni.
Fótbolti,
pulsur og
krafta-
keppni
Stúdentadagurinn
haldinn í annað sinn
Á HÁSKÓLAHÁTÍÐ Háskóla Ís-
lands, sem haldin var í gær í tilefni af
90 ára afmæli skólans, afhenti formað-
ur Stúdentaráðs menntamálaráðherra
undirskriftir rúmlega 3000 nemenda,
þar sem þeir mótmæla 40% hækkun
innritunargjalda sem gert er ráð fyrir í
nýju fjárlagafrumvarpi. Menntamála-
ráðherra sagði nauðsynlegt að efla
kennslu í raungreinum og sagði rektor
Háskóla Íslands mikilvægt að háskól-
ar standi sig betur í að axla ábyrgð
sína á gangi mála í heiminum.
Þorvarður Tjörvi Ólafsson, formað-
ur Stúdentaráðs Háskóla Íslands,
sagði íslenska stúdenta alltaf hafa
haft hugsjónina um jafnrétti til náms
að leiðarljósi. Hann sagði að afmæl-
ishátíðin ætti að vera vettvangur
fagnaðar, stolts og bjartsýni, en þess í
stað væri hún haldin í skugga skóla-
gjalda. „Það er afmælisgjöf mennta-
málaráðherra til Háskólans. Stúdent-
ar munu aldrei taka við gjöf af þessu
tagi, við ætlum ekki að víkja frá hug-
sjónum okkar um jafnrétti til náms.
Um leið og ég afhendi menntamála-
ráðherra undirskriftirnar þá segi fyr-
ir hönd stúdenta við Háskóla Íslands:
Við mótmælum öll,“ sagði Þorvarður
Tjörvi og gekk niður til Björns
Bjarnasonar menntamálaráðherra,
þar sem hann afhenti honum undir-
skriftirnar sem bundin hafði verði á
rauð slaufa.
„Enginn vill vera án
Háskóla Íslands“
Menntamálaráðherra sagði í ræðu
sinni, sem haldinn var á undan ræðu
formanns Stúdentaráðs, að Háskól-
inn, sjálfstæðisþrá og sjálfsmynd
þjóðarinnar væru samofin. Hann
sagðist telja það skoðun alls þorra
þjóðarinnar að skólinn væri ein helsta
máttarstoð þess þjóðlífs. „Enginn vill
vera án Háskóla Íslands, þvert á móti
er það stolt okkar að vegur hans sé
sem mestur,“ sagði ráðherra.
„Ítreka ég þá skoðun, að í tilefni
100 ára afmælis Stjórnarráðs Íslands,
árið 2004, skuli tekin ákvörðun um að
reisa hús hér á háskólalóðinni í
tengslum við Þjóðarbókhlöðuna, sem
hýsi handritin og stofnanir íslenskrar
tungu og fræða.“ Björn sagði að slíkt
hús mætti hæglega taka í notkun á
aldarafmæli skólans eftir tíu ár og að
þegar hafi frumdrög að því verið unn-
in undir forystu ráðuneytisins.
Ráðherra sagði að frá íslenskum
háskólum komi hlutfallslega færri
raungreinamenntaðir kandidatar en
hjá nokkurri annarri þjóð á sambæri-
legu menntunarstigi. Hann sagði
mikilvægt að ráðin yrði bót á þessu.
„Er enginn betur til forystu fallinn en
Háskóli Íslands, þegar rætt er um
nauðsyn þess að efla raungreina-
kennslu innan íslenska skólakerfisins.
Hvet ég til þess, að skólinn nýti yf-
irburði sína á þessum fræðasviðum til
að snúa vörn í sókn. Heiti ég liðsinni
mínu eftir því sem þess er óskað.“
Menning barátta gegn öllu því
sem spillir eða tortímir lífinu
Sjö rektorar og vararektorar frá
erlendum háskólum voru viðstaddir
hátíðina í gær og var hnattvæðing
Páli Skúlasyni rektor ofarlega í huga
og sagði hann helstu þjóðfélagskerfi
veraldar vera að taka breytingum
undir áhrifum hennar. Páll sagði
stofnanir á borð við ríki eða ríkja-
bandalög hafa áhrif á þessa samhæf-
ingu þjóðfélagskerfa og að háskólarn-
ir gegni þar einnig lykilhlutverki. Þeir
vinni allir að því að mennta einstak-
linga sem eiga að vera hæfir til að
stýra málefnum þjóða sinna og
byggja upp fyrirtæki sem skapa at-
vinnu og móta lífsskilyrði alls þorra
almennings um heim allan. Rektor
sagðist sannfærður um að háskólar
heimsins gætu staðið sig betur í að
axla þessa ábyrgð.
„Hér hafa háskólar heimsins verk
að vinna. Siðferðileg viska kemur
ekki til okkar af sjálfsdáðum, heldur
með yfirvegun og rannsóknum á því
hvernig mannkynið hefur frá önd-
verðu leitast við að sigrast á ranglæti,
böli og glæpum sem markað hafa
sögu þess. Menning er barátta gegn
öllu því sem spillir eða tortímir lífinu.“
Rektor sagði háskóla heimsins eig að
leggja sig fram í þessari baráttu með
gagnrýninni greiningu á siðferðileg-
um kjarna hverrar menningar og rök-
ræðu um hann. „Háskóli Íslands vill
leggja sitt af mörkum í þessu skyni.
Stofnun hans fyrir 90 árum var einn
mikilvægasti áfangi íslensku þjóðar-
innar í því að tryggja menningarlegt,
stjórnmálalegt og efnahagslegt sjálf-
stæði sitt,“ sagði Páll.
90 ára afmæli Háskóla Íslands fagnað á Háskólahátíð
Háskólinn ein helsta
máttarstoð þjóðlífsins
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
SEX heiðursnafnbætur voru veittar
á Háskólahátíð í gær.
Gísli Hannes Guðjónsson, prófess-
or í réttarsálfræði við Institute of
Psychiatry, geðlækningastofnun
Lundúnaháskóla, fékk heiðursdokt-
orsnafnbót í læknadeild fyrir störf
sín á sviði réttarsálfræði, afbrota-
fræða og réttargeðlæknisfræði.
Karl Tryggvason, prófessor í lækn-
isfræðilegri lífefnafræði við Karol-
inska Institutet í Stokkhólmi, fékk
heiðursdoktorsnafnbót, sömuleiðis í
læknadeild, fyrir störf sín innan
læknisfræði, sameindalíffræði og líf-
efnafræði.
Árni Vilhjálmsson cand. oecon. fékk
heiðursnafnbót í viðskipta- og hag-
fræðideild, en hann var prófessor í
viðskiptadeild HÍ til ársins 1998 og
starfaði m.a. áður hjá Alþjóðabank-
anum.
Jonna Louis-Jensen, fékk heiðurs-
nafnbót í heimspekideild, en hún hef-
ur starfað á Árnastofnun í Kaup-
mannahöfn frá árinu 1965 og verið
prófessor í íslenskum bókmenntum
og íslensku máli í þrjá áratugi við
Hafnarháskóla.
Preben Meulengracht Sørensen,
prófessor í norrænum bókmenntum
við Árósaháskóla, var sömuleiðis
sæmdur heiðursnafnbót í heimspeki-
deild. Hann hefur gefið út fjölda
bóka og ritgerða um íslenskar forn-
bókmenntir, samfélag og trúarbrögð
í bókum og fræðitímaritum.
Pétur M. Jónasson, prófessor í
vatnalíffræði, fékk heiðursnafnbót í
raunvísindadeild. Hann var prófess-
or í vatnalíffræði og forstöðumaður
Vatnalíffræðistofnunar HÍ þar til
hann varð sjötugur árið 1990. Hann
starfar þar enn við rannsóknir og rit-
stjórn bóka.
Starfsmenn HÍ fengu
viðurkenningu fyrir
lofsvert framlag í starfi
Sex starfsmenn Háskóla Íslands
fengu viðurkenningu fyrir lofsamleg-
an árangur í starfi.
Sigurður Ingvarsson, prófessor í
læknadeild og nýráðinn forstöðu-
maður tilraunastöðvar Háskóla Ís-
lands í meinafræðum á Keldum.
Hann þykir afburða vísindamaður
með yfirgripsmikla þekkingu á frum-
vísindum, frum- og sameindalíffræði.
Gísli Pálsson, prófessor í félagsvís-
indadeild, fékk einnig viðurkenningu
fyrir lofsvert framlag til rannsókna.
Viðamesta framlag hans til rann-
sókna er á sviði mannfræði sjávar-
útvegs.
Ólöf Ásta Ólafsdóttir, lektor í
hjúkrunarfræði og námsstjóri ljós-
móðurnáms, fékk viðurkenningu fyr-
ir lofsvert framlag til kennslu. Þykir
hún hafa af miklu kappi og með góð-
um árangri náð að vinna menntun í
ljósmóðurfræðum sess innan Há-
skólans.
Rannveig Traustadóttir, dósent í
félagsvísindadeild, fékk viðurkenn-
ingu fyrir lofsvert framlag til
kennslu. Hún hefur fengið góða við-
urkenningu frá nemendum og þótt
sýna góða viðleitni til fjölbreytilegra
kennsluhátta og verið öflug við upp-
byggingu nýrra námsleiða í deild-
inni.
Valdimar Örnólfsson, fimleika-
stjóri HÍ, fékk viðurkenningu fyrir
lofsvert framlag til íþróttamála Há-
skólans. Hann þykir hafa stóreflt
íþróttaiðkun og líkamsrækt meðal
stúdenta og starfsmanna skólans í
keppni og í leik.
Sigurður P. Gíslason, fékk viður-
kenningu fyrir lofsvert framlag til
sjóða Háskólans. Hann þykir hafa
ávaxtað sjóði skólans vel og tryggt
með virku eftirliti að þau gjöld sem
sjóðunum ber hafa skilað sér. Einnig
hafi hann sýnt frumkvæði í nýjum
tekjuöflunarleiðum.
Sex
fengu
heiðurs-
nafnbót