Morgunblaðið - 06.10.2001, Side 57
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 57
Reykjavik Collection
Valentiono Jeans
Helmut Lang
Day
Bruuns Bazaar
Calvin Klein
Base
Ahler
Whistles
Minus
Reiss
Jigsaw
pom’dap
fluxa
Útsölumarkaður
GK REYKJAVÍK
er í fullum gangi á Skúlagötu 32
útsölumarkaðurinn verður opinn
mánudaga til föstudaga frá kl. 12-18
laugardaga frá kl. 10-16
,,KERAMIK fyrir alla“ er eins árs
laugardaginn 6. október. Þá er lang-
ur laugardagur í Reykjavík og fólki
boðið sérstaklega að koma og kynna
sér staðinn frá kl. 13-17. ,,Keramik
fyrir alla“ var nýjung hér á landi í
fyrra, segir í fréttatilkynningu.
Staðurinn býður upp á allt sem
þarf til að mála keramik á staðnum
og persónulega ráðgjöf til að fólk
geti strax hafist handa við að mála.
Hægt er að líta inn hvenær sem er
á afgreiðslutíma og fá sér hlut að
mála. Hópar geta pantað aðstöðuna
fyrir sig á kvöldin og um helgar. Á
miðvikudagskvöldum er opið hús.
Boðið er upp á námskeið á þriðju-
dögum.
Hópabókanir þurfa að berast sem
fyrst, boðið er upp á 50% afslátt fyrir
þá einstaklinga sem bóka ,,sinn hóp“.
Keramik fyrir alla er opið mánu-
daga til föstudaga kl. 11-18, laugar-
daga kl. 13-17 og opið hús miðviku-
dagskvöld kl. 20.
Keramik fyrir
alla kynnir
þjónustuna
Bankastræti 3,
sími 551 3635
Póstkröfusendum
Lífrænar jurtasnyrtivörur
24 stunda dag- og næturkrem
BIODROGA
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, mun
opna formlega nýja World Class-
heilsuræktarstöð í Spönginni í Graf-
arvogi í dag, laugardag, kl. 14. Gefst
fólki þar kostur á að kynna sér það
sem í boði er.
Að auki verður undirritaður sam-
starfssamningur World Class og
Borgarholtsskóla, en öll íþrótta-
kennsla skólans mun fara fram í
hinni nýju heilsuræktarstöð.
Stöðin er rúmir 1.300 fm á stærð
og rúmar 3.000 meðlimi. Í nýju stöð-
inni verður boðið upp á margs konar
leiðir til að bæta heilsuna, allt frá
hlaupabrettum til kínverskra nála-
stungna.
„Það er fjölmargt sem mælir með
því að þessar tvær greinar, heilsu-
ræktin og læknisfræðin, vinni saman
og sem dæmi má nefna að það er tal-
ið ráðlegt fyrir fólk sem er að hefja
heilsurækt eftir langt hlé að fara í
góða læknisskoðun svo hægt sé að
meta allar aðstæður rétt áður en haf-
ist er handa,“ segir m.a. í fréttatil-
kynningu.
Ný heilsuræktarstöð
opnuð í Spönginni
ÚTIVIST fer sunnudaginn 7. októ-
ber í síðustu göngu af 10 sem farnar
hafa verið á árinu um Reykjaveginn,
gönguleið um Reykjanesskaga til
Þingvalla. Í þessum síðasta áfanga
verður gengið frá Heiðarbæ við
Þingvallavatn og vestan við vatnið til
Þingvalla. Reiknað er með um 5 tíma
göngu en brottför er frá BSÍ, miðar
eru seldir í farmiðasölu BSÍ, en verð
er kr. 1.500 fyrir félaga og kr. 1.700
fyrir aðra.
Síðasti áfangi í
göngu um
Reykjaveg
AÐ venju verður opið hús á Torginu,
Hafnarstræti 20, hjá Vinstri hreyf-
ingunni – grænu framboði nk. laug-
ardag, 6. október, kl. 11-13.
Ögmundur Jónasson formaður
þingflokks Vinstri hreyfingarinnar –
græns framboðs hefur framsögu og
situr fyrir svörum um þinghaldið
sem framundan er, helztu þingmál
sem flokkurinn hefur nú þegar lagt
fram og þau sem væntanleg eru.
Guðmundur Magnússon stjórnar-
maður í Reykjavíkurfélaginu stýrir
fundi. Allir eru velkomnir á laugar-
dagsfundina, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Opið hús hjá VG
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til
gönguferðar á Esjuna sunnudaginn
7. október. Að þessu sinni verður
gengið á Kistufell að austanverðu,
þaðan yfir á Hábungu, sem er hæsti
tindur Esju og síðan niður Gunn-
laugsskarð. Reiknað er með að gang-
an taki allt að 5–7 klst. Brottför er
frá BSÍ kl. 10.30 og komið við í
Mörkinni 6. Verð 1.300 en 1.000 fyrir
félaga FÍ. Fararstjóri verður Sigrún
Huld Þorgrímsdóttir.
Gengið á Esjuna
KJÖRDÆMISFÉLÖG Vinstri-
hreyfingarinnar-græns framboðs á
Norðurlandi eystra og Austurlandi
boða til aðalfunda sem haldnir verða
samhliða á Hótel Mývatni og Skútu-
stöðum í Mývatnssveit laugardaginn
6. október nk. kl. 13.
Á dagskrá fundarins verða venju-
leg aðalfundarstörf, kjör fulltrúa á
landsfund Vinstrihreyfingarinnar-
græns framboðs sem haldinn verður
í Reykjavík 19.-21. október nk. Til-
lögur um að félögin sameinist í nýju
kjördæmisráði Norðausturkjör-
dæmis.
Að afloknum fundum kjördæmis-
félaganna, um kl. 15.00-15.30, verður
haldinn stofnfundur kjördæmis-
félags eða kjördæmisráðs í hinu nýja
Norðausturkjördæmi. Á dagskrá
verður stofnun félagsins og síðan al-
mennar umræður.
Fundirnir eru opnir öllum fé-
lagsmönnum Vinstrihreyfingarinn-
ar-græns framboðs frá Siglufirði,
Norðurlandi eystra og Austurlandi
og nýir félagar eru boðnir velkomnir.
Alþingismennirnir Árni Steinar
Jóhannsson, Steingrímur J. Sigfús-
son og Þuríður Backman mæta á
fundina.
Nýtt kjördæm-
isfélag VG
stofnað
GENGI GJALDMIÐLA
mbl.is