Morgunblaðið - 06.10.2001, Qupperneq 18
Morgunblaðið/RAX
EFTIR því sem Morgunblaðið
kemst næst tóku tæplega 15 manns
þátt í óspektunum um síðustu helgi.
Um er að ræða unga menn á aldr-
inum 18–25 ára en flestir eru þeir um
tvítugt. Upphaf óspektanna má rekja
til þess að á fimmtudag mættu
nokkrir þeirra hjá sýslumanninum á
Patreksfirði, ýmist sem sakborning-
ar eða vitni vegna atviks sem varð í
bænum um verslunarmannahelgina í
fyrra. Um tugur félaga þeirra slóst
með í för vestur. Eins og kunnugt er
stóð þessi hópur fyrir talsverðum
óspektum í bænum um helgina,
braut m.a. nokkur umferðarskilti og
mölvaði rúður í bifreið. Í kjölfarið var
boðað til almenns borgarafundar en
á hann mættu um 200 manns, tæp-
lega þriðjungur bæjarbúa.
Flestir þeirra sem tóku til máls á
fundinum voru sammála um að for-
varnir við slíkum atburðum byrjuðu
á heimilinu. Nauðsynlegt væri að for-
eldrar sæju til þess að börn og ung-
lingar virtu útivistarreglur en á því
hefði verið talsverður misbrestur.
Nokkrir töldu að of mikið væri
gert úr atburðum síðustu helgar.
Aðrir bentuá að hin mikla mæting á
borgarafundinn, um 200 manns, væri
til marks um að bæjarbúar teldu fulla
þörf á að ræða málin til hlítar.
Viðvarandi vandamál
Jón B.G. Jónsson, bæjarfulltrúi
sagði að ástandið ætti sér ekki upp-
haf um síðustu helgi. Þetta hefði ver-
ið viðvarandi vandamál síðustu miss-
eri. Hann sagði að á Patreksfirði
væri tekið alltof létt á áfengisneyslu
en það væri reyndar vandamál víða.
„Það er ekkert náttúrulögmál að
unglingar séu farnir að neyta áfengis
löngu áður en sjálfræðisaldri er náð.
Áfengið á mjög stóran þátt í þeim
óspektum sem hér hafa verið síðustu
misseri. Það er mjög mikið á ábyrgð
okkar foreldranna. Forvarnastarfið
þarf að fara fram inni á heimilunum.“
Haukur Már Sigurðsson, forseti
bæjarstjórnar Vesturbyggðar, sagði
að umræðuefni fundarins væri vandi
nokkurra ungmenna sem því miður
hefðu farið út af sporinu en væru
ekki verr úr garði gerð en önnur ung-
menni. Gerðir þeirra hafi hins vegar
mikið verið ræddar og þung orð verið
látin falla. „Gerendur í þessu máli
eru í dag orðnir þolendur. Þeir eru
orðnir þolendur umræðu sem er
komin út fyrir eðlileg mörk. Við skul-
um líka hafa það hugfast að þessir
einstaklingar eiga sér aðstandendur
sem hafa legið undir ámæli fyrir að
eiga þessi börn.“ Haukur Már
greindi frá því að skömmu fyrir fund-
inn hafi einn þeirra sem tók þátt í
óspektunum hringt í sig og beðið sig
að koma á framfæri afsökunarbeiðni
til íbúa Patreksfjarðar. Gerðir hans
hafi verið óskiljanlegar og óafsakan-
legar og að félögum hans liði illa yfir
þessu.
„Menn verða að sjá hlutina í réttu
ljósi,“ sagði Þórólfur Halldórsson
sýslumaður á Patreksfirði. Hér væri
ekki um að ræða unglinga heldur
unga menn. Lög hefðu verið brotin
og eignir bæjarbúa skemmdar og
það væri eðlilegt að íbúarnir væru
uggandi yfir ástandinu. Varðandi af-
sökunarbeiðni eins gerendanna
sagðist hann fremur hafa kosið að
þeir hefðu hringt í lögregluna og gef-
ið sig fram og þannig hjálpað til við
að upplýsa málið.
Haukur Már sagði að sú staðreynd
að umræddur piltur hefði hringt í sig
en ekki lögregluna sýndi að trúnað-
arbrestur væri milli lögreglunnar og
þessara ungu manna.
Drykkjulæti raska svefnfriði
Á fundinum var því lýst hvernig
drykkjulæti hefðu ítrekað raskað ró
íbúanna og gesta á tjaldsvæðum bæj-
arins. Erla Hafliðadóttir, sem rekið
hefur gistihús í bænum í yfir tuttugu
ár, sagði að síðastliðin tvö ár hefði
það varla brugðist að um helgar væri
svefnfriði gesta sinna raskað vegna
drykkjuláta. Svefnfriður hefði verið
eitt af því fáa sem hún hefði getað
boðið gestum sínum upp á. Varðandi
atburði síðustu helgar sagði hún að
ekki dygði fyrir mennina að biðjast
afsökunar og fyrirgefningar. „Það
verður að komast inn hjá þeim að svo
lengi er hægt að biðjast fyrirgefning-
ar að hún missi gildi sitt,“ sagði hún.
Margir þeirra sem hér væri verið að
ræða um hefðu gerst margbrotlegir.
Leif Halldórsson tók undir með
Erlu og sagði að verið væri að ræða
stóralvarlegt mál. „Ég keypti hérna
lítið hús sem dóttir mín leigir fyrir
hárgreiðslustofu. Það er búið að
sparka þar niður hliði, rífa niður
skilti og brjóta rennu. Maður hefur
verið að reyna að skreyta bæinn fyrir
jól, það var rifið niður. Þetta er ákaf-
lega þreytandi og kemur að því að
bæjarbúar fái nóg,“ sagði Leif.
Eitthvað að hjá yfirvaldinu
Gunnar Bjarnason gerði virðing-
arleysi sumra „stálpaðra skóla-
barna“ fyrir umhverfi sínu að um-
talsefni. Börnin kasti t.a.m. drasli í
næsta húsagarð fremur en að setja
það í ruslatunnu sem þó sé ekki langt
undan. Þegar börnin eldist verði það
bjórflöskurnar sem fljúgi út um bíl-
gluggann. Á þessu yrði að taka og
hann taldi lögregluna ekki alltaf hafa
sýnt gott fordæmi. „Ég varð fyrir því
í sumar að það var brotin rúða í bíln-
um hjá mér. En ég ætla líka að taka
það fram að það voru ekki þessir
ungu menn sem voru þar á ferð.
Þetta var einn einstaklingur, að-
komumaður hér í bænum. Konan
mín horfði á þetta gerast og hún
vakti mig um leið og ég hringdi í lög-
regluna og hún kom umsvifalaust á
staðinn. Það var ekki nóg með að
hann hefði brotið rúðu í bílnum hjá
mér heldur henti hann líka garðstaur
inn um elhúsgluggann á næsta húsi
sem var sem betur fer mannlaust. Ég
spurði af hverju þeir ætluðu ekki að
taka manninn fastan. „Nei, þá mynd-
um við ekki gera neitt annað í nótt,“
var svarið. Eru þetta lögin og reglan
sem verið er að tala um hérna?“ sagði
Gunnar og beindi spurningunni til
Þórólfs sýslumanns. „Þeir sögðust
ekki hafa mannskap í það. Þeir voru
tveir á vakt og þurftu að fara á
Tálknafjörð. Það vantaði einhvern til
að sitja yfir honum. Átti þessi maður
að halda áfram bara, brjóta fleiri rúð-
ur. Það var boðið upp á það þarna.“
Börnin sjái síðan að menn geti kom-
ist upp með afbrot.
Þórólfur vildi ekki ræða störf lög-
reglunnar í smáatriðum.
Iðrun dugir ekki ef
ólætin halda áfram
Ofneysla áfengis, löggæsla, forvarnir og gildi fyr-
irgefningarinnar var meðal þess sem bar á góma á
borgarafundi á Patreksfirði á fimmtudagskvöld. Um
200 manns, tæplega þriðjungur bæjarbúa, mættu á
fundinn og Rúnar Pálmason lagði við hlustir.
Ungir sem gamlir mættu á borgarafundinn og Félagsheimili Patreksfjarðar var þéttskipað.
runarp@mbl.is
LANDIÐ
18 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Málið á
sér langa
forsögu
Þórður Steinar Árnason er faðir
eins úr þeim hópi sem stóð fyrir ólát-
unum um síðustu helgi. Hann segir
að þessir piltar
séu allir öðling-
sdrengir en
nokkrir þeirra
verði erfiðir þeg-
ar þeir neyta
áfengis í óhófi.
Að sjálfsögðu
hefðu piltarnir
gengið alltof
langt um síðustu
helgi og svona hegðun gengi ekki.
Hann segir að atburðir helg-
arinnar eigi sér langa forsögu og
margt væri í kringum þetta. Málið
væri angi af leiðindamáli sem kom
upp í bænum um verslunarmanna-
helgina í fyrra. Þá hafi þeir, eins og
fleiri bæjarbúar, verið óánægðir
með að ein gata bæjarins hafi verið
gerð að einstefnugötu. Þess vegna
hefðu þeir líklega skeytt skapi sínu á
umferðarskiltunum.
Ingibjörg Guðmundsdóttir segir
mikilvægt að foreldrar hugi að
uppeldi barna sinna ef koma eigi í
veg fyrir að
svipaðir hlutir
og gerðust um
síðustu helgi á
Patreksfirði
endurtaki sig.
„Jafnvel ungum
krökkum hefur
liðist hér mjög
mikið að vera úti
langt fram eftir
nóttu og jafnvel hafa ungir krakk-
ar fengið að drekka áfengi án þess
að á því væri tekið,“ segir hún.
Það sé ábyrgðarleysi hjá mönn-
um að segja að hér hafi úlfaldi
verið gerður úr mýflugu. „Allur
þessi fjöldi hefði varla mætt á
þennan fund ef þetta væri skoðun
bæjarbúa,“ segir Ingibjörg. „Það
eru voðalega margir sem kenna
lögreglunni um ástandið á svæð-
inu. Það er auðvitað fáránlegt því
það er ekki lögreglan sem skapar
vandamálin.“
Ekki verið
að gera
úlfalda úr
mýflugu
Svipuð
vandamál
víða annars
staðar
Magnús Jónsson sagðist alls
ekki vilja gera lítið úr því hversu
alvarlegt þetta mál væri en
áþekk mál
hefðu komið
upp víða um
land án þess að
þau hefðu verið
blásin upp líkt
og hér hefði
gerst. Hann
spyr hvort svip-
aður atburður í
Reykjavík hefði
hlotið viðlíka athygli.
Sjálfur þekkir hann marga af
þeim sem tóku þátt í óspektunum
um síðustu helgi og þetta séu allt
góðir piltar. Sumir megi hins
vegar alls ekki smakka áfengi.
Hann sagðist viss um að fund-
urinn myndi skila árangri. „Þetta
snertir alla bæjarbúa og þeir
verða að taka á þessu líka og láta
þessa drengi finna fyrir því að
það sé ekki æskilegt að haga sér
svona,“ segir Magnús.