Morgunblaðið - 06.10.2001, Side 47

Morgunblaðið - 06.10.2001, Side 47
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 47 ✝ Jónína Gests-dóttir fæddist í Flatey á Breiðafirði 17. desember 1940. Hún lést 30. septem- ber síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jakobína Helga Jak- obsdóttir húsfreyja, f. 5. marz 1902, d. 24. september 1987, og Arelius Gestur Sólbjartsson, útvegs- bóndi í Hrappsey, f. 6. júní 1901, d. 13. apríl 1991. Hún var yngst 9 systkina sem voru þessi, talin eftir aldri: Jak- ob Kristinn, f. í Stykkishólmi 27.6. 1926, d. 1. nóvember 2000; Bryndís Margrét, f. í Stykkis- hólmi 29.8. 1927; Bergljót Guð- björg, f. í Stykkishólmi 9.8. 1928; d. 11. nóvember 1999; Ólafur Helgi, f. í Stykkishólmi 1. desember 1929; Ingibjörg Charlotta, f. í Stykkishólmi 14.8. 1931; Jósef Berrent, f. í Reykja- vík 30.12. 1932; Sól- björt Sigríður, f. í Flatey 11.2. 1934; Bergsveinn Eyland, f. í Svefneyjum 2.1. 1937. Einnig ætt- leiddu foreldrar hennar dótturson sinn Helga Hafnar, auk þess ólu þau upp frá blautu barnsbeini annan dótturson sinn, Gest Má Gunnarsson. Útför Jónínu fer fram frá Grundarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar Jóna fæðist búa foreldrar hennar í Bjarneyjum á Breiðafirði en 1944 flytja þau í Hrappsey, Jóna er heima meðan búið er í Hrappsey eða til 1958, þá er flutt í Stykkishólm. Undirritaður var þá sjö ára gamall, og man aðeins eftir þessum tíma, þó tíu ár væru á milli okkar Jónu var með ólíkindum hvað hún nennti að leika við strákorminn a tarna. Ým- islegt afrekuðum við, þó ég væri ekki hár í loftinu en ég hafði eitt lykilhlut- verk, því ef okkur vantaði spýtu eða nagla var nauðsynlegt að senda mig til afa gamla og nafna því í flestum til- fellum bar það árangur. Nú, eins og aðrir krakkar til sveita í þá tíð var snemma farið að taka til hendinni og láta að sér kveða við ýmis verk sem þó jukust með aldrinum og urðu um- fangsmeiri. Skólaganga hennar var með þeim hætti að hún var send frá Hrappsey upp á Fellsströnd, þar var börnunum safnað á einhvern bæ og farandkennari sá um kennsluna, til að dreifa kostnaði voru krakkarnir svo færðir til milli bæja. Eins og áður segir var flutt úr Hrappsey til Stykkishólms haustið 1958, hún vann um tíma hjá Hrað- frystihúsi Kaupfélags Stykkishólms en í lok árs 1958 fer hún út í Eyr- arsveit til Hallgríms Péturssonar og Stellu systir sinnar að Naustum og er þar við venjubundin störf fram á sumar 1959, er hún tekur sig upp og fer í vinnu til Áslaugar Pétursdóttur og Sigurðar Helgasonar í Lárkoti og er þar til 1960. Þarna á næsta bæ var þú maður sem hún fann fljótt frið og traust hjá. Anton Finnson fæddur 8.4. ’26, dáinn 9.3. ’96. Toni eins og hann var alltaf kall- aður og Jóna, hófu svo búskap saman fyrst um stundarsakir í Grundarfirði en seinna sama ár fluttu þau að Bú- landshöfða og þar hefur hún verið síð- an. Þau voru með hefðbundinn bú- skap, kindur, nokkra hesta og kú. Jóna var um margt mjög sérstæð kona, hún ræktaði vel barnið í sjálfri sér og naut þess, og því var líka oft glatt á hjalla á Höfða, allmörg sumrin voru krakkar hjá henni í sveit og flestir komu þeir aftur og aftur þann- ig að þeim leið greinilega vel þarna. Guðlaug biður um kveðju til Jónu, einnig synir hennar Tryggvi og Ómar og frændinn Valur og þakka alla Úti- legumannaleikina og allt hitt. Þarna leið þeim mjög vel. Ég var samtíma þessum strákum þarna á Höfða því ég var þarna hluta úr nokkrum sumr- um við smalamennsku og rúningu, einnig við heyskap. Mikið er mér minnisstætt sumarið þegar Toni gleymdi að láta gera við sturtarann á Hannómakinum og það varð að bíða til kl. hálf eitt þegar Fíi Hjartar kom framhjá á mjólkurbílnum, þá var spottinn klár í Hannó til að draga í gang, og hægt að fara að heyja, á eftir var farið í Útilegumannaleik því það lá ekkert á að vakna í fyrramálið. Samt sem áður gekk heyskapurinn mjög vel því vinnuaflið var nóg, og hratt unnið meðan verið var að. Þetta þótti okkur krökkunum mjög gaman og stundum komu krakkar gangandi innan úr Grundarfirði til að taka þátt í þessu, þarna var margt allt öðruvísi en maður hafði kynnst annars staðar, m.ö.o. ákveðinn Höfða stíll. Þau Jóna og Toni giftu sig 1995. Þá ættleiddu þau drenginn Róbert ,það var mikill kærleikur með þeim, eftir að Toni dó var Róbert henni allt. Hann var mikið hjá mömmu sinni nú síðast eftir að hún veiktist og til loka. Alla tíð ræktaði Jóna vel sitt sam- band við foreldra sína meðan þau voru á lífi og átti margar ferðir inn í Hólm eftir að þau Toni eignuðust bíl. Eftir að Toni dó breyttust margir hlutir á Höfða, Jóna hætti hefð- bundnum búskap og sneri sér að því að yrkja, einnig var hún að reyna fyr- ir sér með ýmsu móti t.d. saumastofu, sjoppurekstur og skemmtidagskrána Halló Höfði sem hún hélt árvisst nú síðustu árin ásamt mörgu fleiru sem hún hafði brennandi áhuga á og vildi gera að veruleika. Hún var ötul við að gleðja og hjálpa gamla fólkinu í Fella- skjóli og tel ég víst að þeir hafi misst mikinn vin þar sem Jóna var. Á systk- inamótunum var Jóna hrókur alls fagnaðar og var meðal annars í næstu skemmtinefnd og hlakkaði mikið til. Vilja öll systkinin koma hér þakklæti til hennar. Á svona stundu reikar margt um hugann og ósjálfrátt fer maður að hugsa um fyrri samverustundir. Þá kemur eitt öðru fremur upp í hugann, hún Ingibjörg langamma mín, amma Jónu, var henni mikil stoð og stytta meðan hennar naut við og ég veit ekki hvað Jóna hefði ekki gert fyrir ömmu sína. Elsku Jóna mín, svona endar þetta víst hjá okkur öllum, þetta ráðum við ekki við. Ég vil hér með þessum fá- tæklegu orðum kveðja frænku bless- aða sem nú er farin yfir móðuna miklu. Að leiðarlokum kveðjum við fjölskyldan Lágholti 16 hana Jónu frænku með virðingu og þökk og árn- um henni heilla á nýrri vegferð. Ég veit að hún skilur eftir bjarta og fagra minningu í huga allra sem þekktu hana og áttu með henni samleið. Elsku Róbert, við sendum þér ein- lægar samúðarkveðjur og biðjum góðan guð að styrkja þig á stund sorgar og saknaðar. Blessuð sé minning þín, Jóna mín. Gestur Már Gunnarsson og fjölskylda, Lágholti 16. Núna þegar elsku Jónína mín er farin, eru það ljúfar og innilegar minningar frá uppvaxtarárum okkar heima í Hrappsey sem uppúr standa. Við heiðan og bjartan himininn og fagurt sólarlag lékum við okkur öll í grasinu og hólunum þar í kring. Þar var margt við að vera og skemmti- legt. Seinna þegar Jónína var flutt út á Búlandshöfða með honum Tona sín- um, eins og Anton var ævinlega kall- aður, lá leið okkar þangað. Þar áttum við öll ljúfar og skemmtilegar stundir saman innan um dýrin úti í nátt- úrunni, fjöllin umhverfis, huldustein- arnir og hafið. Á jólunum spiluðum við öll vist langt fram á nótt, þetta eru ljúfar og sætar minningar. Við söknum hennar Jónínu öll, blessuð sé minning hennar. Helgi Gestsson. Hún Jónína Gestsdóttir, eða Jóna eins og hún var kölluð, hefur kvatt þetta jarðlíf eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Fyrir fjörutíu árum hófu þau Jóna og Gunnlaugur Anton Finnsson búskap á Höfða, ysta bæ hér í Eyrarsveit. Þar undu þau glöð við sitt með sínar kindur og önnur húsdýr enda miklir dýravinir. Fóst- ursonur þeirra er Róbert Antonsson. Jóna tók virkan þátt í félagsstarfi eldri borgara í Grundarfirði enda mikil félagsvera. Hún átti það til að semja vísur og flytja á fundum eða spilakvöldum eða vera með gaman- mál til að létta öðrum lundina. Hún sagði það einhverju sinni við mig að hún þyrfti sko engin hjálparmeðul þegar hún kæmi svona fram. Á þorra- blóti hjá félagi eldri borgara sl. vetur söng hún vísur sem hún hafði samið af þessu tilefni við góðar undirtektir. Í nokkur ár stóð hún fyrir útifagn- aðinum „Halló Höfði“ þar bauð hún upp á skemmtiefni og veitti kaffi. Fyrir rúmu ári gladdist hún yfir nýj- um vegi yfir Búlandshöfða og 40 ára búsetu sinni að Höfða með því að bjóða til skemmtunar að Höfða. Hún Jóna var barngóð og talaði hlýlega til barna og um börn. Á sínum yngri ár- um átti hún það til að bregða sér í gervi jólasveins á aðfangadag og dreifa jólapökkum til barna fyrir þá sem það vildu. Þannig vildi hún koma fólki í jólaskap. Ég kom til Jónu á Sjúkrahúsið í Stykkishólmi daginn áður en hún lést, hún sagðist ætla að vinna bug á þessum veikindum. Þó gat hún ekki stigið í vinstri fótinn sem var stokk- bólginn. Hún ætlaði heim að Höfða sagði hún, sagðist ekki vera þar ein því tryggur rakki biði hennar þó gam- all væri. Hún fær að lifa svo lengi sem hún gefur ekki upp öndina, sagði hún. Ætli hundurinn hennar hún Dóra verði ekki hvíldinni fegin þegar hún fær ekki lengur klapp eða vinahót frá húsbónda sínum. Það er mín skoðun að margur hafi orðið ríkari af kynn- um sínum af Jónu. Ég votta Róbert og öðrum ættingj- um samúð mína. Blessuð sé minning hennar. Pálína Gísladóttir. JÓNÍNA GESTSDÓTTIR                                         ! "#" $      %  &     #   &    &   !  "   ## "$ %# ## & ! & "'! () ## ''*! '''* '$      $              & + ,  -  ./  !0    (         )  $        * $ 1 .* ! !  #           & 2&  ! # *#3      +     )    ,    * $       )     ! )    - $  -.//  4$ / ## /4 5 !  / / ! 1 5)  05   2 #"! 6 7  01    !  $      , $        89: .   ;81&< -  8#  =  >/ "/      !      $ 2      3       -/ $  -/*/   ! 2#"!##   ##  >!##  .*   ##     04 ! ''*! '''* 01    !  $      , $        1 8.  2 + -  $5! #? @ 5*0       - $       %$       -* $  -.// /2# !  5 2 ##   A2 ! ''*! '''* 4 1 #     #    &      &       , 1  $      $  "       B, @ 8+2 - + 0# 0!  * .  ! $!  ./   !   0&> 0 ##  @.* !     )/!#  &> 0  A A- MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinarnar í símbréfi (569 1115) og í tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/sendanda fylgi. Um hvern látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línu- lengd, - eða 2.200 slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu. Birting afmælis- og minningargreina

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.