Morgunblaðið - 06.10.2001, Blaðsíða 16
AKUREYRI
16 LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ENSKUSKÓLI
Enskuskóli á Suður-Englandi.
Frábært tækifæri að læra ensku.
Viðurkenndur skóli,
100 kennslustundir á mánuði,
fæði og húsnæði innifalið.
Uppl. í síma 862 6825
Jóna María, eftir kl. 17.
FYRSTU grísirnir af innfluttu sæði
frá Hamar í Noregi fæddust í Ein-
angrunarstöðinni í Hrísey í vikunni.
Gotið gekk vel og lifa 14 grísir af 17 og
dafna vel, að sögn Kristins Árnasonar
bústjóra. Gyltan heitir Lukka og er
einnig móðir Eyrúnar sem er í Húsa-
dýragarðinum í Reykjavík.
Árið 1999 voru 25 gyltur með fangi
fluttar inn frá Noregi, ásamt fjórum
göltum og á síðasta ári var sæði tekið
úr göltunum og gylturnar sæddar
með því. Í júní sl. voru fyrstu sæð-
isskammtarnir svo fluttir inn frá Nor-
egi og var það í fyrsta skipti sem
erfðaefni svína voru flutt til landsins í
þessu formi. Í vikunni var annar sæð-
isskammtur fluttur til landsins og
voru þær gyltur sem eftir voru sædd-
ar með því. Kristinn sagði að sæði
sem tekið væri úr göltum í Noregi í
dag væri komið í gyltur í Hrísey dag-
inn eftir, en það er flutt inn ófrosið.
Þeir grísir sem fæðast í Hrísey eru
seldir til íslenskra bænda til kynbóta.
Kristinn sagði að þegar allir grísirnir
væru farnir úr húsi, yrði sæði flutt inn
að nýju og ræktunarstarfinu þannig
haldið áfram með besta fáanlega
erfðaefni frá Norsvin í Noregi.
Hann sagði svínaræktunina hafa
skilað bændum miklum bata og lægri
framleiðslukostnaði. Vegna meiri
vaxtarhraða norska kynsins slátruðu
bændur allt að tveimur mánuðum
fyrr en áður. Þá væri kjötprósenta í
norska kyninu mun hærri en í ís-
lenska kyninu og einnig minni fita.
Morgunblaðið/Kristinn Árnason
Fyrstu grísirnir af innfluttu sæði fæddust í Hrísey í vikunni og hér fá
þeir sér sopa hjá móður sinni, gyltunni Lukku.
Fyrstu grísirnir af
innfluttu sæði fæddir
Ræktunarstarf Svínaræktarfélags
Íslands í Hrísey gengur vel
AKUREYRARKIRKJA: Messa kl.
11 á morgun, sunnudag. Sunnu-
dagaskóli kl. 11, fyrst í kirkju en
síðan í safnaðarheimili.
Fundur í Bræðrafélagi kirkjunn-
ar eftir messu í safnaðarheimili.
Ingunn Björk Jónsdóttir æskulýðs-
fulltrúi flytur erindi. Fyrsti fundur
vetrarins hjá Æskulýðsfélagi Akur-
eyrarkirkju kl. 17 í kapellu. Boðið
upp á pizzu frá Greifanum. Sjálfs-
hjálparhópur foreldra unglinga á
Akureyri og nágrenni kl. 20.30 á
mánudagskvöld í safnaðarheimili.
Ath.! Breyttan fundardag!
Morgunsöngur kl. 9. á þriðjudag.
Mömmumorgunn kl. 10-12 á mið-
vikudag í safnaðarheimili.
Biblíulestur kl. 20.30 um kvöldið í
safnaðarheimili. Trúarleg stef í
myndlist, fjögurra kvölda námskeið.
Fimmtudagur 11. október.
Kyrrðar- og fyrirbænastund kl.
12 á fimmtudag.
GLERÁRKIRKJA: Barnasamvera
og guðsþjónusta kl. 11 á morgun.
Sameiginlegt upphaf. Foreldrar
hvattir til að mæta með börnum sín-
um. Kyrrðar- og tilbeiðslustund kl.
18 á þriðjudag. Hádegissamvera í
kirkjunni kl. 12 til 13 á miðvikudag.
Léttar veitingar á vægu verði í
safnaðarsal að helgistund lokinni.
Opið hús fyrir foreldra og börn á
fimmtudag frá kl. 10 til 12. Æfing
barnakórsins kl. 17.30 á fimmtudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 á morgun, sunnu-
dag. Bæn kl. 19.30 og almenn sam-
koma kl. 20. Heimilasamband kl. 15
á mánudag. Örkin hans Nóa kl. 17
fyrir 6-9 ára börn.
KFUM og K: Biblíu- og bænastund
kl. 17 á sunnudag. Fundur í TTT-
deild kl. 17 á mánudag fyrir drengi
og stúlkur 10 til 12 ára.
Kirkjustarf
SAMNINGAR hafa verið undirrit-
aðir milli Akureyrarbæjar og
þriggja íþróttafélaga í bænum,
Golfklúbbs Akureyrar, KA og
Þórs, en í þeim felst að Akureyr-
arbær leggur félögunum til fjár-
magn til að reka mannvirki og
íþróttavelli sem og skrifstofur, en
tekur við eignum félaganna á móti.
Þannig mun Akureyrarbær
kaupa íbúð í golfskála GA sem og
véla- og verkfærahús golfsvæðis-
ins á 13 milljónir króna, kjallara í
félagsheimili Þórs á 37 milljónir
króna og íþróttahús KA á 95 millj-
ónir króna. Kaupverði verður varið
til að greiða niður skuldir félag-
anna. Að loknum þessum aðgerð-
um nema skuldir Golfklúbbs Ak-
ureyrar 17 milljónum króna, Þórs
um 20 milljónum og KA 25 millj-
ónum.
Fjárveitingar til að
reka aðstöðuna
Íþróttafélögin munu samkvæmt
samningnum greiða rekstrarkostn-
að vegna aðstöðunnar og fá til
þess fjáveitingar frá Akureyrarbæ.
GA fær 1,1 milljón króna til að
reka fasteignir, 4 milljónir vegna
reksturs golfvallarins og 800 þús-
und vegna skrifstofuhalds. Þór
verður úthlutað 1,2 milljónum
króna vegna reksturs fasteigna og
KA 13,5 milljónum króna. Bæði fé-
lögin fá fjárveitingu upp á 2 millj-
ónir vegna íþróttavalla og 5,5
milljónir vegna skrifstofuhalds og
bókhaldsvinnu.
Ýmis skilyrði eru sett af hálfu
bæjarins varðandi rekstrarstyrk-
ina sem lúta m.a. að ábyrgri fjár-
málastjórn, en samkvæmt samn-
ingnum er bænum heimilt að hafa
eftirlit með bókhaldi félaganna auk
þess sem skila þarf ársfjórðungs-
lega uppgjöri til fjármálastjóra
ÍBA.
Kristján Þór Júlíusson bæjar-
stjóri sagði að vilji forsvarsmanna
bæjarins með þessum samningum
væri sá að félögunum væri gert
kleift að sinna íþróttastarfsemi,
sem ekki væri rekin í formi at-
vinnustarfsemi, og vísaði þar til
meistaraflokka þar sem launa-
greiðslur eða ígildi þeirra viðgang-
ast. Sú krafa er því gerð að slíkum
rekstri verði haldið utan við samn-
inginn, t.d. með því að stofna
hlutafélög svo að tryggt sé að bær-
inn styrki ekki starfsemi af því
tagi.
Félögin verði rekin
með hagnaði
Við undirritun samningsins í
vikunni skuldbundu félögin sig til
að reka starf sitt með hagnaði frá
gildistöku samningsins sem er 1.
janúar á næsta ári en þeir gilda til
loka árs 2007. Þá er þeim einnig
skylt að ráðstafa hagnaði ein-
stakra deilda til að mæta tapi ann-
arra en verði það ekki gert er
bænum heimilt að draga úr fjár-
framlögum sínum.
Samningur Akureyrarbæjar við GA, KA og Þór
Morgunblaðið/Kristján
Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri á Akureyri, var kampakátur við
undirskrift samninga við íþróttafélögin. Með honum á myndinni eru Jón
Heiðar Árnason, formaður Þórs, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, for-
maður KA, og Þórhallur Sigtryggsson, formaður GA.
Bærinn kaupir eignir
og greiðir niður skuldir
BLÁSARAKVINTETT Reykjavík-
ur ásamt gesti sínum, Philip Jenkins
píanóleikara, heldur tónleika í
Laugaborg í Eyjafjarðarsveit kl. 20
á sunnudagskvöld. Fyrr um daginn
eða kl. 15 verða tónleikar í Dalvík-
urkirkju en í dag, laugardag, verða
tónleikar á sal Borgarhólsskóla á
Húsavík og hefjast þeir kl. 16.
Þrennir
tónleikar
„ÞAÐ fylgir því góð tilfinning að
láta gott af sér leiða,“ sagði Anna
Dögg Sigurjónsdóttir, en hún og eig-
inmaður hennar, Þóroddur Hjalta-
lín, ákváðu þegar þau giftu sig síð-
astliðið sumar að afþakka
brúðargjafir en bentu þeim sem
vildu gleðja þau á brúðkaupsdaginn
á söfnunarkassa. Upp úr kassanum
komu 103.500 krónur sem þau hjón-
in afhentu Hetjunum, félagi aðstand-
enda langveikra barna á Akureyri
og nágrenni. Peningarnir fara í sjóð
sem ætlaður er til að styrkja fjöl-
skyldur sem lent hafa í erfiðleikum
vegna veikinda barna sinna og mun
gjöfin án efa nýtast vel.
Anna Dögg sagði að hugmyndin
hefði kviknað fyrir nokkrum árum
þegar frændi Þórodds gifti sig en
hann og kona hans hefðu þá safnað
fé í stað brúðargjafa og afhent félagi
krabbameinssjúkra barna. „Við
ákváðum þá að ef við myndum ein-
hvern tíma gifta okkur ætluðum við
að gera þetta líka. Svo kom að því að
við giftum okkur í ágúst og það var
alveg yndislegur dagur. Við erum
alsæl með að geta á þennan hátt lát-
ið langveik börn njóta hans með
okkur,“ sagði Anna Dögg. Hún sagði
að þau söknuðu þess alls ekki að fá
hefðbundnar brúðkaupsgjafir.
„Okkur þykir betra að geta á þenn-
an hátt orðið öðrum að liði fremur
en að eiga flott matarstell.“
Styrktu langveik börn með andvirði brúðargjafanna
Góð tilfinning að láta gott af sér leiða
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Brúðhjónin, Þóroddur Hjaltalín og Anna Dögg Sigurjónsdóttir, afhenda
stjórn Hetjanna, Bergþóru Stefánsdóttur, Maríu Stefánsdóttur og Ingu
Lóu Birgisdóttur, f.h. félags langveikra barna á Akureyri og nágrenni,
gjafabréf með andvirði brúðargjafa sinna.
♦ ♦ ♦