Morgunblaðið - 06.10.2001, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 06.10.2001, Qupperneq 25
ÁRÁSIN Á BANDARÍKIN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. OKTÓBER 2001 25 LÍTIL stúlka fylgist með bæna- stund múslima í London í gær en þeir minntust þá fórnarlamba hryðjuverkanna í Bandaríkjunum. Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, var á fimmtudag sökuð um að hafa alið á hatri á múslímum með ummæl- um um að leiðtogar þeirra hefðu ekki fordæmt hryðjuverkin í Bandaríkjunum nægilega. „Satt að segja er erfitt fyrir mig að finna orð til að lýsa við- bjóði mínum á því sem ég sá,“ sagði íhaldsmaðurinn Michael Heseltine, fyrrverandi aðstoð- arforsætisráðherra, þegar hann var spurður um ummælin. Hann sagði þau aðeins til þess fallin að kynda undir hatri á múslímum. Leiðtogar múslíma sögðu um- mælin „svívirðileg“ þar sem þeir hefðu verið á meðal þeirra fyrstu sem fordæmdu hryðjuverkin. Reuters Thatcher sögð kynda undir hatri London. AP. RÍKISSTJÓRN Junichiro Koizumi í Japan lagði í gær fram tvö lagafrum- vörp sem gera ráð fyrir að japanska hernum verði gert kleift að taka þátt í hugsanlegum hernaðaraðgerðum Bandaríkjamanna gegn hryðju- verkamönnum. Breytingarnar marka tímamót því allt frá stríðslok- um hefur stjórnarskrá Japans haft að geyma ákvæði sem banna þátt- töku landsins í öðrum hernaði en þeim sem telst beinlínis sjálfsvörn. Lagafrumvörp ríkisstjórnarinnar fela í sér að japanska hernum yrði heimilt að taka við vörnum banda- rískra herstöðva, sem eru í Japan, og ferja vopn og vistir til bandarískra sveita sem tækju þátt í hugsanlegum hernaðaraðgerðum gegn hryðju- verkamönnum. „Þessi lagasetning er afar mikil- væg því hún felur í sér að við ætlum að taka höndum saman með þjóðum heims í því verki að útrýma hryðju- verkum,“ sagði Koizumi eftir ríkis- stjórnarfund í gær. Er það vilji stjórnarinnar að þingið afgreiði lögin frá sér fyrir lok þessa mánaðar. Þess má hins vegar vænta að stjórnarand- staðan, einkum og sér í lagi litlir flokkar á vinstri væng stjórnmál- anna, berjist hatrammlega gegn samþykkt frumvarpanna á þingi. Máttu þola gagnrýni 1991 Japanir máttu þola nokkra gagn- rýni þegar þeir kusu að taka ekki beinan þátt í Persaflóastríðinu 1991, heldur leggja aðeins til fjárframlög í baráttunni gegn Írökum. Minnugur þeirrar gagnrýni hafði Koizumi þeg- ar lýst því yfir að Japanir vildu fylkja liði með Bandaríkjamönnum í þeirri baráttu sem Bandaríkjaforseti hefur efnt til gegn hryðjuverkamönnum. Lýsti Howard H. Baker, sendiherra Bandaríkjanna í Japan, yfir mikilli ánægju sinni með frumkvæðið í gær. Átak Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum Japanar boða þátt- töku sína um stjórnarerindreka að upplýsingarnar, sem leyniþjónustan bandaríska hefur undir höndum, séu kannski ekki algerlega nákvæmar, en að hættan sé samt til staðar. Annar heimildarmaður sagði hins vegar „100 prósent“ líkur á frekari árásum. „Þú getur verið alveg handviss um að til frek- ari árása myndi koma. Maður verður einfaldlega að gera ráð fyrir því,“ hafði blaðið eftir Richard Shelby, sem situr í þingnefnd öldungadeildarinn- ar sem fer með málefni leyniþjónustunnar. Gögnin sem alríkislögreglan, FBI, og leyni- LEYNIÞJÓNUSTAN bandaríska hefur greint fulltrúum á þinginu í Washington frá því að það sé „næsta öruggt“ að Osama bin Laden og bandamenn hans muni efna til nýrra hryðju- verkaárása gegn Bandaríkjunum ef ráðist verður í hernaðaraðgerðir gegn Afganistan. Þetta kom fram í The Washington Post í gær en blaðið segir leyniþjónustuna hafa áreiðanleg- ar upplýsingar undir höndum, sem benda til að bin Laden sé við öllu búinn. Bandaríkjaþingi var greint frá þessum gögnum á fimmtudag. The Washington Post hafði eftir ónafngreind- þjónustan, CIA, búa yfir koma frá breskum og þýskum stjórnvöldum, frá Afganistan og frá Pakistan. Þau veita hins vegar engar upplýs- ingar um hvar hryðjuverkamennirnir myndu hugsanlega láta til skarar skríða. Kom fram að stjórnvöld í Bandaríkjunum veltu nú vöngum yfir því hvernig þau gætu varað borgara í landinu við hættunni án þess að valda hjá þeim ofsahræðslu. Yfirvöld hafa einkum ótt- ast eiturefnaárás þar sem hryðjuverkamennirnir myndu dreifa lífshættulegum efnum út í and- rúmsloftið. Frekari morðárásir taldar afar líklegar Washington. AFP. ♦ ♦ ♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.