Morgunblaðið - 08.11.2001, Page 2

Morgunblaðið - 08.11.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isVíkingar komnir á blað í handboltanum/B3 Birgir Leifur Hafþórsson lék á sex undir pari/B1 4 SÍÐUR16 SÍÐUR Sérblöð í dag VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Ís- lands lýsti í gær stuðningi sínum við áform um byggingu álvers við Reyðarfjörð og virkjanafram- kvæmdir á Austurlandi. Í ályktun, sem samþykkt var samhljóða á fundi miðstjórnar ASÍ á Egilsstöð- um, er lögð áhersla á, að þessi framkvæmd sé afar mikilvæg fyrir uppbyggingu atvinnu og lífskjara launafólks bæði á Austurlandi og um land allt. Er þetta í fyrsta skipti sem ASÍ ályktar um fyrirhugaðar stóriðju- framkvæmdir á Austurlandi. Að sögn Grétars Þorsteinssonar, for- seta ASÍ, hefur þetta mál verið í undirbúningi um skeið í atvinnu- málanefnd sambandsins. ,,Við göngum líka út frá því að ákvörðun, verði hún tekin, byggist á gildandi lögum og leikreglum um málið. Það er lykilatriði. Við bend- um einnig á að verði af þessari framkvæmd, þurfi menn að gæta sín í sambandi við stöðu atvinnulífs- ins að öðru leyti og hvernig haldið verður á efnahagsmálunum,“ segir Grétar. Ákvörðun byggist á gildandi lögum og leikreglum Í ályktun miðstjórnar segir m.a. að forsendur aukins hagvaxtar og bættra lífskjara á næstu árum séu stöðug og viðvarandi aukning út- flutningstekna. ,,Til þess að svo megi verða telur miðstjórn ASÍ mikilvægt að nýta allar auðlindir til lands og sjávar með skynsamlegum hætti. Í samræmi við þessa grund- vallarskoðun er mikilvægt að nýta þá orku sem landsmenn búa að til uppbyggingar á samkeppnishæfu atvinnulífi.“ ,,Miðstjórn ASÍ telur, að við mat á umhverfisáhrifum virkjana- og stóriðjukosta sé mikilvægt að fara að lögum og leikreglum sem gilda um slíkt mat. Augljóst er að allir slíkir kostir munu með einum eða öðrum hætti hafa áhrif á nátt- úrufar, mannlíf og efnahagslíf. Því er afar mikilvægt við undirbúning slíkra framkvæmda að unnið sé með opnum, faglegum og lýðræð- islegum hætti að mati á þessum þáttum, þar sem leitast sé við að draga fram sem heildstæðasta mynd af áhrifunum. Aðeins með þeim hætti er hægt að leggja grunn að sem víðtækastri sátt um nið- urstöðuna.“ Afköst virkjana séu 10–15% meiri en þarf vegna stóriðju Í ályktuninni er einnig lögð áhersla á að samhliða uppbyggingu stóriðju á Austurlandi verði gert ráð fyrir því við skipulagningu virkjanakosta að afkastageta orku- veranna sé 10–15% meiri en bein þörf viðkomandi stóriðju. Þessari viðbótarorku verði ráðstafað á al- þjóðlega samkeppnishæfu verði til uppbyggingar atvinnulífsins. Miðstjórn ASÍ lýsir stuðningi við álver og virkjanir á Austurlandi Mikilvæg framkvæmd fyrir atvinnu og lífskjör launafólks HÉR byrjaði vetur með vetri. Sums staðar er snjór, en þó lítill. Suðvest- anrok með krapahryðjum og eld- ingum var hér á þriðja sólarhring, nú eftir veturnætur. Ekki kom það öllum á óvart að veturinn kæmi samkvæmt alman- akinu. Loðir enn nokkur forneskja við hér í Skaftárhreppi, sem von er til. Héraðið um langan aldur hið af- skekktasta á Íslandi. Hér er víða sendið land og mink- urinn grefur upp músarholurnar, svo músin verður að fela þær það vel að þær eru varla finnanlegar. Því er erfitt að spá eftir músarhol- unum. Fóru þar með í súginn þau einu hlunnindi sem hafa mátti af músinni. En garnaspádóma má þó enn fremja og samkvæmt þeim verður fyrri partur þessa vetrar slæmur, en seinni hlutinn góður. Bót er í máli að hversu sem til tekst munu hey verða nóg. Vetur byrj- aði með vetri Hnausum, Meðallandi. Morgunblaðið. TILLÖGUR um að lengja kandíd- atsár læknanema um þrjá til sex mánuði, m.a. til að auðvelda ráðn- ingu aðstoðarlækna á heilsugæslu- stöðvum, eru nú til umræðu innan læknadeildar Háskóla Íslands. Læknanemar hafa nokkrar áhyggj- ur af þessum tillögum en engar ákvarðanir hafa verið teknar og til- lögurnar eru ekki ennþá komnar til kasta heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytisins, sem tekur ákvörðun í málinu að fenginni ráðgjöf land- læknisembættisins. Bjarni Þjóðleifsson, formaður framhaldsmenntunarráðs lækna- deildar, sem hefur tillögurnar til umfjöllunar, segir að rætt sé um þann möguleika að lengja kandíd- atsárið um þrjá til sex mánuði, en tillagan er komin frá framkvæmda- stjóra kennslu og fræða á Landspít- alanum sem skipuleggur stöður að- stoðarlækna á Landspítalanum. Mjög erfitt hefur reynst undanfarið að ráða í stöður aðstoðarlækna og var m.a. lýst yfir neyðarástandi sl. vor vegna vöntunar á kandídötum og aðstoðarlæknum til að fylla stöð- ur. Að sögn Bjarna útskrifast of fáir læknar á meðan stöðunum hefur fjölgað, frítökuréttur hafi aukist og margt geri að verkum að erfiðara er að halda uppi þessum þætti þjónustunnar en áður. „Þess vegna komu þessi hugmynd og þessi til- laga fram,“ segir Bjarni. Hann segir tillöguna einnig komna fram til þess að auka vægi verklegs náms hjá læknanemum, enda hafi þungaviktin í læknanám- inu færst meira yfir í nám á spítöl- um og heilsugæslustöðvum. „Það er því talið réttlætanlegt líka af menntunarástæðum, að lengja tím- ann.“ Gísli Engilbert Haraldsson, for- maður Félags læknanema, segir að læknanemar séu búnir að sjá þess- ar tillögur og þeir hafi nokkrar áhyggjur af málinu. Að sögn Gísla er málið hins vegar ekki komið eins langt og læknanemar hafi óttast í fyrstu og þeir hafi fengið þær upp- lýsingar í heilbrigðis- og trygginga- ráðuneytinu að tillögurnar væru ekki komnar til kasta ráðuneytisins. „Sem stendur er hægt að segja að við höfum miklar áhyggjur af þessu. Læknanemar hafa komið til mín og lýst yfir áhyggjum af því að verið sé að lengja kandídatsnámið og fyrir þá sem hafa áhuga á að fara beint út eftir kandídatsárið gæti þetta líklega tafið einhverja um eitt ár í viðbót,“ segir Gísli. Tillögur um að lengja kandídats- ár læknanema VERÐ á ýsu hefur verið mjög hátt að undanförnu. Í gær voru alls seld á öllum fiskmörkuðum landsins 45 tonn af ýsu fyrir ríf- lega 13 milljónir króna og var meðalverð 261 króna, en lægsta verð 134. Hæst fór ýsuverðið á Fiskmarkaði Suðurnesja í Sandgerði, 630 krónur, og voru ríflega 800 kíló að baki þeirrar sölu. Hátt verð var einnig á fisk- markaði Breiðafjarðar, 536 krónur hæst. Á Dalvík fór ýsan hæst á 400 krónur kílóið, sömu- leiðis á Fiskmarkaði Suður- lands og í Vestmannaeyjum. Það eru yfirleitt þeir sem vinna ýsu fyrir flug, sem greiða hæsta verðið fyrir fiskinn og þurfa stundum að fara hátt til að fá það sem þeir þurfa til að standa við gerða samninga. Einnig getur komið til að fiskbúðir og veitingahús borgi mjög hátt verð, þegar þau bráð- vantar soðninguna. Í sam- keppni tveggja fiskbúða um ýsu á Fiskmarkaði Vestfjarða endaði verðið á einni ýsu í 895 krónum og er það Íslandsmet á fiskmarkaði, jafnvel hærra en ýsan kostar út úr búð. Hátt verð á ýsunni  Fiskmarkaðir/40 ÞAÐ VAR ævintýralegt um að litast yfir Mýrdalnum í fyrrakvöld þegar græn og blá norðurljósin æddu um himinhvolfið í trylltum dansi við tunglskinið og stjörnurnar. Er óhætt að segja að mannskepnan finni fyrir smæð sinni gagnvart slíku sjónarspili náttúrunnar. Norður- ljósadans Morgunblaðið/Jónas Erlendsson FUNDUR sem haldinn var í kjaradeilu Félags flugumferð- arstjóra við ríkið hjá ríkissátta- semjara í gær var árangurslaus og hefur nýr fundur verið boð- aður á morgun, föstudag. Að sögn Þóris Einarssonar ríkissáttasemjara þokaðist lítt í samkomulagsátt á fundinum og ennþá ber mikið á milli deilu- aðila. Árangurslaus fundur með flugumferð- arstjórum ♦ ♦ ♦  Fjárfrekir gagnaflutningar? / C8 Saga Línu.Nets  Bjartari teikn á lofti / C13 Halldór Árnason um rækjusölu frá Kanada

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.