Morgunblaðið - 15.12.2001, Page 2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isÍR í annað sætið eftir sigur
á Fram / B2
Kolbrún tvíbætti Íslandsmetið
í flugsundi / B1
4 SÍÐUR16 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á LAUGARDÖGUM
FRÉTTIR
2 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Morgun-
blaðinu í dag
fylgir kynning-
arefni frá
Smáralind
sem dreift er
um allt land.
STERKIR söngtónar bárust blaða-
manni og ljósmyndara þegar þeir
nálguðust heimili Sigurðar Demetz
Franzsonar söngkennara í Reykja-
vík síðdegis í gær. Þegar inn var
komið reyndust þar vera á ferðinni
gamall nemandi Sigurðar, Kristján
Jóhannsson tenórsöngvari, og Carlo
Maria Cantoni, ítalskur barí-
tonsöngvari, en þeir voru að æfa sig
fyrir tónleikana, sem Kristján stend-
ur fyrir, í Háskólabíói í kvöld. Auk
þeirra Kristjáns og Cantoni mun
ítalski píanóleikarinn Marino Nicol-
ini leika á tónleikunum. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 19.30 og eru enn nokkr-
ir miðar lausir að sögn Kristjáns.
Meðal þess sem verður á efnis-
skránni eru óperudúettar úr Il
Trovatore, Óþelló og Don Carlos en
auk þess verða nokkrir konsertar
„sem eru kirkjulegs eðlis“, segir
Kristján, „en þeir eiga að koma Ís-
lendingum í jólaskapið,“ bætir hann
hressilega við. Auk þess mun Cant-
oni taka nokkrar aríur.
Kristján, Cantoni og Nicolini
komu til landsins í fyrradag en
munu standa stutt við því þeir halda
af landi brott á morgun. Kristján
kemur aftur að viku liðinni til þess
að halda jól á Íslandi með fjölskyldu
sinni. Cantoni og Nicolini segjast
þakklátir fyrir að fá tækifæri til að
syngja og leika fyrir Íslendinga.
Þeir hafa ekki áður komið hingað til
lands. „Það er nú heitara hér en ég
bjóst við,“ segir Cantoni og kveðst
aðspurður örugglega koma aftur til
landsins. Nicolini tekur undir það.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Á heimili Sigurðar Demetz Franzsonar söngkennara. Með honum eru Kristján, Carlo Maria Cantoni barítonsöngvari og Marino Nicolini píanóleikari.
Kristján Jóhannsson heldur tónleika í kvöld
RÍKISSAKSÓKNARI tók ekki af-
stöðu til þess hvort Jakob Ásmunds-
son, sem ákærður var fyrir innflutn-
ing á e-töflum, ætti að njóta góðs af
því að hafa greint frá þætti annarra í
málinu þrátt fyrir að dómari hefði
sérstaklega leitað eftir því við sækj-
andann. Jakob var í gær dæmdur í
2½ árs fangelsi fyrir smygl á 1.333 e-
töflum og 187,4 g af e-töflumulningi.
Samtals er magnið samsvarandi
2.000 e-töflum.
Eftir breytingar á almennum
hegningarlögum sem gengu í gildi í
fyrra getur það leitt til lækkunar á
refsingu ef sakborningur greinir frá
samverkamönnum sínum og tók
Héraðsdómur Reykjavíkur m.a. tillit
til þess við ákvörðun refsingar.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
þetta ákvæði kemur til álita dóm-
stóla.
Tollgæslan handtók Jakob á
Keflavíkurflugvelli í mars þegar
hann kom til landsins frá Amster-
dam. Hluti af fíkniefnunum fannst í
farangri og greindi hann frá því að
hann væri með fleiri e-töflur í
buxnastreng sínum og innvortis.
Sagt að ákæruvaldið myndi
óska vægari refsingar
Hjá lögreglu var honum kynnt
ákvæði hegningarlaga um að ef hann
greindi frá hlut annarra í brotinu
gæti hann átt von á vægari refsingu.
Hann var hvattur til þess og þess
jafnframt getið að ef hann gerði það
myndi ákæruvaldið gera grein fyrir
því við meðferð málsins fyrir dómi
og láta það koma fram að það væri
vilji ákæruvaldsins að hann fengi
vægari refsingu fyrir vikið. Í fram-
haldinu greindi hann frá samverka-
mönnum sínum en fram kom þó í
málinu að hann hafði þá sýnt merki
þess að hann hygðist skýra frá fleiru
en hann hafði gert fram að því.
Hann skýrði svo frá að æskufélagi
sinn, sem væri þekktur afbrotamað-
ur og fíkniefnaneytandi, hefði verið
með í ráðum um innflutninginn. Fyr-
ir orð móður mannsins hefði hann
útvegað þessum félaga sínum vinnu
hjá byggingafyrirtæki. Síðar stofn-
aði Jakob sitt eigið fyrirtæki og
skrifaði móðir félaga hans upp á
skuldabréf vegna þess. Fyrir at-
beina félaga síns hefði hann leiðst út
í fíkniefnaneyslu og í kjölfarið tók að
halla undan fæti í atvinnurekstrin-
um og öllum fjármálum hans. Félagi
hans hefði síðan stungið upp á því að
flytja inn fíkniefni frá Hollandi og
selja þau hér. Fyrst fóru þeir saman
út en ekkert varð af kaupunum. Síð-
ar stakk félagi hans upp á því að
hann færi einn út til Hollands. Hann
hefði knúið fast á um það og jafnvel
látið skína í hótanir. Úr varð að Jak-
ob fór til Hollands, keypti fíkniefnin
og flutti inn.
Í dómnum segir að málið hafi sætt
talsverðri rannsókn og hefur hún
m.a. beinst að margnefndum félaga
Jakobs.
Sem fyrr segir var litið til þess við
ákvörðun refsingar að Jakob greindi
frá þætti annarra í málinu og var
samvinnufús við rannsóknina. Hann
hefur nú hætt allri fíkniefnaneyslu
og aftur tekið upp samband við fyrr-
verandi eiginkonu sína og barns-
móður.
Auk refsingarinnar var honum
gert að greiða allan sakarkostnað,
þ.m.t. laun verjanda síns, Péturs
Arnars Sverrissonar hdl., 220.000
krónur. Pétur Guðgeirsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn en Guðrún
Sesselja Arnardóttir sótti málið fyr-
ir hönd ákæruvaldsins.
Greindi frá samverkamönnum og var tjáð að hann myndi njóta góðs af
Saksóknari ófáanlegur
til að taka afstöðu
Á FRAMHALDSAÐALFUNDI
Verkalýðsfélags Akraness á fimmtu-
dagskvöld var samþykkt vantraust á
meirihluta stjórnar verkalýðsfélags-
ins. Einnig var samþykkt að senda
bókhald félagsins í opinbera rann-
sókn til ríkissaksóknara.
Vantrauststillagan var samþykkt
með 30 atkvæðum gegn 26. Fjórir
sátu hjá.
Flutningsmaður vantrauststil-
lögunnar, Vilhjálmur Birgisson, sem
situr í aðalstjórn félagsins, segir
vanrækslu af hálfu meirihlutans að-
alástæðuna fyrir tillöguflutningnum.
Segir hann hluta bókhalds félagsins,
Vinnumiðlun – stéttamiðlun, ekki
hafa verið endurskoðaðan í 10 ár. Þá
hafi útistandandi skuldir, sem nema
milljónum króna, ekki verið inn-
heimtar, auk þess sem ávöxtunar-
kjörum félagsins hafi verið verulega
ábótavant.
Vantrausts-
tillaga sam-
þykkt
Verkalýðsfélag
Akraness
KONAN sem lést eftir fall í stiga í
verslun í Keflavík á laugardag hét
Elínbjörg Ormsdóttir. Hún var 72
ára gömul, fædd þann 29. maí 1929.
Hún lætur eftir sig eiginmann og
uppkomna dóttur.
Lést eftir
fall í stiga
Elínbjörg
Ormsdóttir
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur
skipað þrjá nýja sýslumenn. Taka
skipanir þeirra gildi um næstu ára-
mót.
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á Ísafirði, hefur verið skip-
aður sýslumaður á Selfossi. Kjartan
Þorkelsson, sýslumaður á Blönduósi,
hefur verið skipaður sýslumaður á
Hvolsvelli. Anna Birna Þráinsdóttir,
fulltrúi sýslumannsins á Hvolsvelli,
hefur verið skipuð sýslumaður í Búð-
ardal.
Þrír nýir
sýslumenn
♦ ♦ ♦