Morgunblaðið - 15.12.2001, Qupperneq 14
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
14 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SKIPULAGS- og bygginga-
nefnd Reykjavíkur hefur sam-
þykkt að nýtt deiliskipulag
Grófarinnar í miðborg
Reykjavíkur verði auglýst.
Gert er ráð fyrir að nýbygg-
ingar rísi á öllum þeim hluta
skipulagsreitsins sem snýr að
Tryggvagötunni.
Grófarreitur afmarkast af
Grófinni, Tryggvagötu,
Naustinni og Hafnarstræti og
er hluti af deiliskipulagi Kvos-
arinnar frá 1996. Nokkur af
elstu húsum bæjarins eru á
reitnum, þeirra á meðal
Bryggjuhúsið frá árinu 1883,
Fálkahúsið frá 1868 og Bryde-
pakkhús frá árinu 1887.
Í greinargerð höfunda deili-
skipulagstillögunnar, Arki-
tektur.is, kemur fram að jarð-
hæðir allra húsanna á reitnum
eru nýttar undir veitinga-
starfsemi, að undanteknum
hluta jarðhæðar Hafnarstræt-
is 1–3 þar sem er verslun. Á
efri hæðum húsanna er ýmist
veitingarekstur eða skrif-
stofur. Samkvæmt aðalskipu-
lagi á nýting svæðisins að vera
miðborg – miðhverfi en að
sögn Jóhannesar Kjarvals,
deildarstjóra hjá Borgar-
skipulagi, er sú skilgreining
víð. Þannig geti verið á svæð-
inu þjónusta, verslun og íbúðir
– nánast allt nema verk-
smiðjustarfsemi eða flug-
völlur.
Port
opnað á ný
Þétt miðbæjarumferð er á
svæðinu og eru opinber stöðu-
mælastæði alls 42 talsins á
þremur lóðum. Á Vesturgötu
2a eru 25 bílastæði en tillagan
gerir ráð fyrir að í stað þeirra
verði reist nýbygging sem
væri þrjár hæðir og kjallari.
Sömuleiðis er gert ráð fyrir að
á Vesturgötu 2 og Tryggva-
götu 22 megi reisa þrjár hæðir
og kjallara en á þessum lóðum
eru nú meðal annars veitinga-
staðirnir Gaukur á Stöng og
Glaumbar. „Þessar nýbygg-
ingar ljúka uppbyggingu
reitsins og styrkja og fullgera
götumyndir hans,“ segir í
greinargerðinni en um er að
ræða alla þá hlið reitsins sem
snýr að Tryggvagötunni.
Lagt er til að port, sem opið
var í gegn um Bryggjuhúsið
til ársins 1929 og lá að höfn-
inni, verði opnað á ný og
sömuleiðis verði port í sömu
stefnu á nýbyggingunni á lóð-
inni við Vesturgötu 2. Þar
verði jafnframt gönguleið í
gegnum reitinn. Er vísað til
þess að við nýlega uppbygg-
ingu Listasafns Reykjavíkur
hafi slíkt port verið opnað.
Bólverk gert sýnilegra
Þá er lagt til að svokallað
bólverk, hlaðinn grjótgarður
sem reistur var um 1890 frá
vestri til austurs eftir endi-
löngum reitnum, verði gert
sýnilegra. Bólverk þetta er
elsta hafnarmannvirki í
Reykjavík og var reist til að
varna því að sjór gengi upp á
land. Tillagan gerir ráð fyrir
því að grafið verði frá bólverk-
inu og lóðirnar Vesturgata 2
og 2a mótaðar í samræmis við
það. „Komið verði upp vatns-
spegli norðan við bólverkið, og
„plankabryggju“ yfir hann í
gönguleiðinni gegnum reitinn
til minja um gömlu bryggjuna
og aðkomuna að Reykjavík,“
segir í greinargerðinni.
Telja hönnuðir að með
þessu náist góð göngutengsl
frá Ingólfstorgi og allt til
hafnarinnar, með tengingu við
minjar liðinnar tíðar og menn-
ingu nútímans.
Segir að nýbyggingar skuli
endurspegla nánasta um-
hverfi sitt og taka skuli mið af
sérkennum svæðisins. Hið
sama skuli gilda um viðbygg-
ingar en mælikvarði þeirra
skal að jafnaði ekki yfirgnæfa
upphaflega byggingu og gætt
skal samræmis við stíl og ald-
ur upphaflegu byggingarinn-
ar.
Ekki er stefnt að því að
fjölga langtímastæðum þar
sem svæðið er í nánd við góðar
almenningssamgöngur, bíla-
stæðahús og almenningsstæði
að því er kemur fram í grein-
argerðinni. „Gert er ráð fyrir
að bílaumferð á svæðinu verði
með sama sniði og núverandi
ástand, þ.e. einstefna á Naust-
inni og Hafnarstræti, en tví-
stefna á Vesturgötu, Tryggva-
götu og Grófinni.“
Morgunblaðið/RAX
Horft í átt að Grófarreit.
Teikning/arkitektur.is
Deiliskipulagstillaga Grófarreits þar sem sjá má hvernig gert er ráð fyrir nýbyggingum við Tryggvagötuna.
Byggt meðfram
Tryggvagötu
Grófin
KRAKKAR á öllum aldri
hafa í gegnum tíðina
heillast af ljósadýrðinni
sem einkennir aðventuna
og jólahátíðina enda ekki
að ástæðulausu að jólin
hafa verið nefnd hátíð ljóss-
ins. Rafmagn hefur svo sem
ekki alltaf komið við sögu
heldur muna afi og amma
kannski frekar eftir fal-
legum kertaljósum sem
vörpuðu glýju í barnsaugu
fyrir tugum ára.
Unglingar úr Breiðholti
og eldri borgarar frá fé-
lagsstarfi aldraðra í Gerðu-
bergi tóku sig saman í vik-
unni og fóru í rútuferð um
miðborgina til að virða
hana fyrir sér í jólaskrúð-
anum auk þess sem fræðst
var um miðborgarstarfsem-
ina. Með í för voru lög-
reglumenn frá umferð-
ardeild Lögreglunnar í
Reykjavík sem gjörþekkja
borgina. Á eftir var farið í
Dómkirkjuna þar sem hljóð-
færaleikarar úr félagi eldri
borgara spiluðu og ungir
og aldnir sungu saman.
Ungir og
aldnir í
miðborg-
arferð
Breiðholt
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Það var notalegt að setjast niður í Dómkirkjunni og njóta tónlistarinnar eftir ferðina.
MORGUNVERÐUR, jóla-
stemning og ljúfir tónar voru
í boði hjá Aðalskoðun hf. við
Helluhraun í Hafnarfirði á
fimmtudagsmorgun í tilefni
aðventunnar. Hefur það ver-
ið siður hjá fyrirtækinu að
bjóða viðskiptavinum til
morgunverðar á aðventunni
allt frá stofnun þess og var
þetta í 7. sinn sem gestir og
gangandi þáðu boðið.
Bílalyftan lék lykilhlutverk
þennan morgun sem aðra
morgna þar sem sjálft mat-
arhlaðborðið var til reiðu á
henni og kunnu gestir vel að
meta kræsingarnar sem þar
var að finna.
Á meðan heitir drykkir
hituðu upp kroppa við-
staddra í morgunsárið urðu
ljóðalestur, skáldskapur og
ljúfir tónar í flutningi KK til
þess að hlýja þeim um
hjartarætur.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
KK skemmtir morgunverðargestum.
Árbítur á bílalyftu
Hafnarfjörður