Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 16

Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 16
SUÐURNES 16 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSTAK hf. mun byggja sýningarskála Saltfisk- seturs Íslands í Grindavík. Samningur þess efnis var undirritaður í gær. Bygging skálans mun kosta rúmar 100 milljónir. Jafnframt voru kynnt drög að saltfisksýningu í húsinu. Ístak var lægstbjóðandi í alútboði Saltfiskset- urs Íslands og ákvað stjórn félagsins að fela fyr- irtækinu verkið. Sýningarskálinn verður 650 fer- metrar að grunnflatarmáli og sýningarsvæði á tveimur gólfum, alls liðlega 500 ferm. Hönnuðir skálans eru Yrki sf. arkitektar, Ásdís H. Ágústs- dóttir og Sólveig Berg Björnsdóttir. Áætluð verklok eru í ágúst á næsta ári. Kostar 150 milljónir Kostnaðarverð skálans, samkvæmt verksamn- ingi við Ístak, er liðlega 106 milljónir kr. Heild- arkostnaður við fyrsta áfanga verkefnisins, sýn- ingarskála og uppsetningu sýningar, er 126 milljónir kr. og áætlað er að kostnaður við veit- ingaaðstöðu, tilbúna undir tréverk, er talinn geta orðið 25 milljónir til viðbótar, að því er fram hefur komið í bæjarráði Grindavíkurbæjar. Við undirritun samninganna í gær kom fram að Grindavíkurbær mun hafa forystu við fram- kvæmd verkefnisins í samstarfi við aðra stofn- endur Saltfiskseturs Íslands, sem eru fimmtán fyrirtæki og einstaklingar, og aðra styrktaraðila. Sparisjóðurinn í Keflavík verður bakhjarl við fjármögnun verkefnisins. Einstæð sýning Björn G. Björnsson sýningahönnuður hefur verið fenginn til að hanna saltfisksýningu sem opnuð verður um leið og húsið. Kynnti hann fyrstu drög að skipulagi sýningarinnar við at- höfnina í gær. „Ég vona að sami stórhugur muni sjást á sýningunni sem fylla mun húsið,“ sagði hann um leið og hann dreifði fyrstu mátun sýn- ingarinnar, eins og hann tók til orða. Markmið saltfisksýningarinnar er að safna saman og varðveita muni og myndir sem segja sögu saltfisksins, í þeim tilgangi að kynna fyrir al- menningi og ferðamönnum mikilvægi atvinnu- greinarinnar fyrir íslenskt samfélag. Einnig að sinna fræðslustarfi fyrir skóla og aðrar mennta- stofnanir. Þá hefur sýningin það hlutverk að veita ferðafólki afþreyingu, kynna saltfisk fyrir gest- um, bragð hans og gæði. „Sýning af þessu tagi er einsdæmi á Íslandi. Hér er á ferðinni mjög merkilegt og að mörgu leyti einstakt menningarlegt framtak. Í því felst ekki bara uppbygging atvinnumála og styrking ferðaþjónustu, heldur er hér haldið á lofti römm- um þætti í sögu Íslands og lífsbaráttu þjóðarinnar. Gestir munu koma út af þessari sýningu með brim- roða á hvarmi og saltbragð í munni,“ segir Einar Njálsson, bæjarstjóri og stjórnarformaður Salt- fisksetursins, í samantekt í tilefni af undirritun samninganna í gær. Spilað með Grindavík Bæjarstjóri bar gestum kveðjur frá Árna Math- iesen sjávarútvegsráðherra sem ekki komst til að vera viðstaddur athöfnina eins og áformað hafði verið. Einar gaf aðkomnum gestum að gjöf spila- stokk sem meistaraflokkur kvenna hjá UMFG hef- ur gefið út í fjáröflunarskyni. Á spilunum eru myndir af íþróttafólki í Grindavík. Bað bæjarstjóri gestina að spila með Grindavík. Samið við fyrirtækið Ístak hf. um byggingu sýningarskála Saltfiskseturs Íslands Með brimroða á hvarmi og salt- bragð í munni Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson Jónas Frímannsson, aðstoðarforstjóri Ístaks, og Einar Njálsson, stjórnarformaður Saltfiskseturs Íslands, takast í hendur að lokinni undirritun verksamnings um bygg- ingu sýningarskála, að viðstöddum Ómari Jónssyni, forseta bæjarstjórnar. Grindavík Formaður Þroskahjálpar á Suðurnesjum, Sæmundur Pétursson, tekur við gjöfinni frá eigendum Kósý, húsgagnaverslunar. Það eru Skúli Rósantsson og Guðrún Lára Brynjarsdóttir ásamt börn- um sínum, Rut sem afhenti Sæmundi gjöfina, Rósanti og Soffíu Rún. Framlag til þjálfunarlaugar Reykjanesbær ÞROSKAHJÁLP á Suðurnesjum hefur fengið 600 þúsund króna gjöf sem varið verður til þjálfunarsundlaugar. Skúli Rósantsson, Guðrún Lára Brynj- arsdóttir, börn þeirra og fyrirtæki þeirra, Kósý-húsgagnaverslun í Síðumúla 24 í Reykjavík, höfðu ákveðið að gefa Þroska- hjálp á Suðurnesjum 500 þúsund kr. á ári í fimm ár. Fyrsta gjöfin var afhent 1. desem- ber á síðasta ári. Að þessu sinni afhenti fjöl- skyldan 600 þúsund kr. gjöf vegna þjálf- unarlaugarinnar. Var hún afhent í kaffisamsæti í höfuðstöðvum Þroskahjálpar að Suðurvöllum 9 í Keflavík 1. desember síð- astliðinn. Þjálfunarlaugin var vígð 14. október á síð- asta ári og hefur hún komið sér vel í þjálfun og endurhæfingu fyrir fatlaða einstaklinga á Suðurnesjum. Framlag eigenda Kósý- húsgagna og fjölskyldunnar hefur stuðlað að því að haldið verður áfram með bygginguna og henni lokið, segir í frétt frá Þroskahjálp á Suðurnesjum. TÆPLEGA 5 milljóna króna greiðsluafgangur verður hjá Vatnsleysustrandarhreppi á næsta ári, samkvæmt fjárhagsáætlun sem hreppsnefndin hefur sam- þykkt. Áhersla er lögð á greiðslu skulda á næstu árum vegna þeirra miklu framkvæmda sem unnið hef- ur verið að undanfarin ár. Vatnsleysustrandarhreppur hef- ur undanfarin tvö ár unnið eftir markaðsáætlun um stækkun byggðarinnar. Markmiðið er að fjölga íbúunum upp í 1.100. Ráðist var í landakaup og gert átak í uppbyggingu gatna og lagfæringu umhverfis, auk stækkunar leikskóla og grunn- skóla. Var þetta unnið að miklu leyti fyrir lánsfé. Skuldir í landsmeðaltal Í fjárhagsáætlun fyrir næstu fimm ár sem samþykkt hefur verið í hreppsnefndinni er gert ráð fyrir lágmarksframkvæmdum og öll áherslan lögð á að reksturinn skili afgangi svo hægt verði að greiða skuldir hratt niður. Þó er gert ráð fyrir að framkvæmdum við nýtt iðnaðarsvæði verði lokið á næsta ári. Hreppsnefndin nýtir sér heimild til að leggja á hámarksútsvar, 13,03% til þess að unnt verði að ná markmiðum um niðurgreiðslu skulda. Fram kemur í greinargerð með fjárhagsáætluninni að í lok tímabilsins er gert ráð fyrir að skuldir verði komnar niður í lands- meðaltal. Þar er einnig boðaður niðurskurður framkvæmda- og rekstrarkostnaðar, ef áætlanir um íbúafjölgun á næstu árum ganga ekki eftir. Ný vinnubrögð Jóhanna Reynisdóttir sveitar- stjóri segir að hreppsnefnd sé að taka upp ný vinnubrögð við árang- ursmælingar. Þær snúa fyrst og fremst að því að ná fram hag- kvæmari rekstri og betri þjónustu. Gert er ráð fyrir að mælingar hefj- ist í febrúar. Jóhanna segir að áhersla verði lögð á að fylgja vel eftir fjárhagsáætlun. Skuldir verða greiddar hratt niður Vatnsleysustrandarhreppur LIÐLEGA 43% foreldra barna á leikskólum í Reykjanesbæ kjósa að hafa leikskólana opna á sumrin. Næststærsti hópur- inn, tæplega þriðjungur, er samþykkur 4–5 vikna lokun yf- ir sumarið, eins og nú er. Skólaskrifstofa Reykjanes- bæjar gerði skoðanakönnun um sumarlokun og opnunar- tíma leikskólanna meðal for- eldra barnanna. Aðeins rúm- lega þriðjungur foreldra svaraði spurningum, að því er fram kemur á heimasíðu Reykjanesbæjar. Meirihluti foreldra vill rúm- an opnunartíma. Liðlega 38% kjósa að leikskólar séu opnir frá hálf átta á morgnana til kortér yfir sex á kvöldin, eins og nú er á mörgum skólanna. Tæp 9% vilja enn legri opnun, eða frá sjö að morgni til kortér yfir sjö að kvöldi. Margir vilja hafa opið á sumrin Reykjanesbær ÁKVEÐIÐ hefur verið að endurtaka jólasveiflutónleika á aðventu. Tónleikarnir verða haldnir í Keflavíkurkirkju á morgun, sunnudag, kl. 20.30. Eins og á fyrri tónleikun- um sem haldnir voru fyrir viku koma fram þrír kunnir dægurlagasöngvarar af Suð- urnesjum, þau Rúnar Júl- íusson, Birta Sigurjónsdóttir og Guðmundur Her- mannsson. Þeim til fulltingis er hljómsveit sem skipuð er þeim Þóri Baldurssyni hljóm- borðsleikara, Júlíusi Rúnars- syni trommuleikara og Baldri Rúnarssyni hljómborðsleik- ara. Á tónleikunum syngur einnig Kirkjukór Keflavíkur- kirkju undir stjórn Hákonar Leifssonar. Á tónleikunum er flutt jóla- og helgitónlist í léttari kant- inum en einnig getur að heyra lag Rúnars Júlíussonar af nýrri plötu hans, Leið yfir. Þá gefst kirkjugestum kostur á samsöng nokkurra jóla- söngva og sóknarprestur, séra Ólafur Oddur Ólafsson, mun flytja hugvekju. Jólasveifla endurtekin Keflavík STJÓRNIR Hitaveitu Suður- nesja og Bæjarveitna Vest- mannaeyja munu halda áfram samningaviðræðum um samein- ingu þótt Selfossveitur hafi dregið sig út úr sameiningarvið- ræðnunum. Unnið hefur verið að undir- búningi sameiningar veitufyrir- tækjanna þriggja frá því að und- irrituð var viljayfirlýsing þess efnis í lok ágúst. Í fréttabréfi Hitaveitu Suðurnesja kemur fram að fyrir liggja tillögur MP- verðbréfa um skiptahlutföll og embættismenn fyrirtækjanna hafa lagt fram hugmyndir um starfsstöðvar og verkaskiptingu auk grófra hugmynda um sam- legðaráhrif samrunans. Halda áfram við- ræðum Reykjanes
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.