Morgunblaðið - 15.12.2001, Page 26
ERLENT
26 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Afgreiðslutími
á Laugaveginum
Opið alla daga til jóla til
kl.22
Þorláksmessu til kl. 23
BANDARÍKJAHER hefur sent sérsveitir á
hellasvæðið í Tora Bora í austurhluta Afganist-
ans til að aðstoða afganska herflokka við að
vega eða handtaka Osama bin Laden og aðra
leiðtoga hryðjuverkasamtakanna al-Qaeda, að
sögn embættismanna bandaríska varnarmála-
ráðuneytisins. Koma sérsveitanna bendir til
þess að yfirmenn hersins telji að bin Laden og
nánustu samstarfsmenn hans séu enn á svæð-
inu og hafi verið afkróaðir í hellum og göngum
Tora Bora.
Hermt var að tveir sérsveitarmenn hefðu
særst lítillega í vélbyssuárás liðsmanna al-
Qaeda í gær.
Hátt settur embættismaður í varnarmála-
ráðuneytinu í Washington sagði að þeir sem
skipulegðu aðgerðirnar væru bjartsýnni en áð-
ur á að bin Laden hefði ekki flúið af svæðinu.
Hann sagði þrennt benda til þess að bin Laden
væri í Tora Bora: liðsmenn al-Qaeda hefðu veitt
mjög harða mótspyrnu „eins og þeir væru að
verja leiðtoga sinn“; afganskir hermenn teldu
sig hafa séð bin Laden á svæðinu nýlega; og
leyniþjónustan hefði fengið upplýsingar sem
bentu til þess að hann hefði ekki flúið.
„Enginn þessara þriggja þátta er sérlega
sannfærandi einn og sér, en þegar þetta þrennt
er lagt saman gæti það haft mikla þýðingu,“
sagði embættismaðurinn.
Hann bætti við að sérsveitarmennirnir væru
vel þjálfaðir og færir um að vega eða handtaka
leiðtoga al-Qaeda. „Og þeim hefur verið heim-
ilað að gera það.“
Hátt settur embættismaður í Hvíta húsinu í
Washington sagði að bandaríska leyniþjónutan
CIA teldi að bin Laden væri í Tora Bora þótt
ekki væri vitað nákvæmlega hvar hann leynd-
ist.
„Við heyjum harða orrustu“
Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í fyrradag að herinn hefði
fjölgað sérsveitarmönnum sínum í austurhluta
Afganistans. Talið er að á meðal sérsveitanna
séu Delta Force, sem hefur fengið sérþjálfun í
handtöku hryðjuverkamanna, björgun gísla og
eftirlits- og njósnaferðum á mjög hættulegum
svæðum.
Bandarísku hermennirnir í Afganistan hafa
hingað til einkum gegnt því hlutverki að und-
irbúa loftárásir og veita afgönskum herflokkum
ráðgjöf.
„Ég tel mjög líklegt að þeir geri eitthvað
annað en að sinna samhæfingarverkefnum,“
sagði Rumsfeld. „Við heyjum harða orrustu
þarna. Harðir bardagar geisa á svæðinu, marg-
ir berjast með stórskotavopnum og menn sær-
ast.“ Rumsfeld sagði þó að bandaríski herinn
vildi handtaka bin Laden og aðra leiðtoga al-
Qaeda fremur en vega þá. „Ég vildi frekar að
þeir gæfust upp,“ sagði varnarmálaráðherrann.
„Ég vil að við náum þeim til að geta yfirheyrt
þá og flett ofan af starfsemi al-Qaeda út um all-
an heim. Þessir menn búa yfir mikilli vitneskju.
Og ég vil komast að því sem þeir vita.“
Rumsfeld skýrði ennfremur frá því að
Bandaríkjastjórn hygðist bjóða 10 milljónir
dala, andvirði rúms milljarðs króna, fyrir upp-
lýsingar sem leiddu til handtöku leiðtoga talib-
ana, múllans Mohammeds Omars. Stjórnin hef-
ur þegar lofað andvirði 2,5 milljarða króna í
verðlaun fyrir handtöku bin Ladens.
Rumsfeld neitaði því að Bandaríkjaher hefði
komið í veg fyrir að afganskir herforingjar
semdu við liðsmenn al-Qaeda um að þeir gæfust
upp og sagði að bandarísk stjórnvöld stefndu
ekki að því að „tortíma“ öllum félögum í hryðju-
verkasamtökunum.
„Þetta er ekki tortímingarstríð,“ sagði Rich-
ard Myers, forseti bandaríska herráðsins.
Nær öllum flugvélunum
beitt á einn stað
Nær öllum tiltækum flugvélum Bandaríkja-
hers hefur verið beitt í árásunum á hellasvæðið
í Tora Bora síðustu daga, að sögn hátt setts
embættismanns í bandaríska varnarmálaráðu-
neytinu. „Þær fara ekki annað – þær eru allar
sendar þangað,“ sagði hann.
Beitt hefur verið tíu langdrægum sprengju-
vélum, tólf orrustuþotum og fjórum eða fimm
árásarvélum af gerðinni AC-130, sem eru bún-
ar vél- og fallbyssum og hefur verið lýst sem
„fljúgandi skotpöllum“.
Embættismaðurinn bætti við að svo harðar
árásir á einn stað sýndu að yfirmenn Banda-
ríkjahers teldu að margir forystumanna al-
Qaeda væru enn á svæðinu. „Þegar litið er á
fjölda árásarferðanna, hvers konar árásir um
er að ræða og notkun AC-130-vélanna, hljótum
við að hafa gilda ástæðu til að telja að þeir séu
þarna uppi í fjöllunum,“ sagði embættismað-
urinn.
The Washington Post.
Sérsveitir send-
ar á hellasvæðið
Aðgerðir Bandaríkjahers benda til þess að
talið sé að bin Laden leynist í Tora Bora
AP
Afganskur hermaður skellihlær í skotgröf meðan félagi hans fylgist með árásum skrið-
dreka og bandarískra herflugvéla á liðsmenn al-Qaeda í Hvítufjöllum nálægt Tora Bora.
’ Ég vil að við náum þeimtil að geta yfirheyrt þá og
flett ofan af starfsemi al-
Qaeda um allan heim. ‘
EINN af foringjum afgönsku her-
sveitanna í austurhluta Afganistans
fullyrti í gær að menn sínir hefðu
umkringt helli sem talið væri að
Osama bin Laden kynni að leynast í.
Herforinginn, Hazrat Ali, sagði að
hermenn sínir hefðu einnig afkróað-
marga liðsmenn al-Qaeda, samtaka
bin Ladens, á fjallshrygg nálægt
hellinum.
Ali greindi ekki frá því hvers
vegna talið væri að bin Laden kynni
að vera í hellinum, einum af mörgum
hellum í gljúfri þar sem liðsmenn al-
Qaeda hafa barist við afganskar her-
sveitir síðustu daga. Bandarískar
herflugvélar hafa einnig gert harðar
árásir á svæðið.
Óstaðfestar fréttir um
að sést hafi til bin Ladens
Margir bandarískir embættis-
menn telja að bin Laden sé enn á
hellasvæðinu í Tora Bora en aðrir
hafa sagt að hann kunni að vera ann-
arsstaðar í Afganistan eða að hann
hafi flúið til Pakistans. Afganska
fréttastofan AIP í Pakistan hafði eft-
ir ónafngreindum heimildarmönnum
í Jalalabad, borg nálægt Tora Bora,
að bin Laden hefði farið af svæðinu
25. eða 26. nóvember og ekki væri
vitað hvar hann væri nú.
Borist hafa óstaðfestar fregnir um
að bin Laden hafi sést í Tora Bora á
síðustu dögum. Ali sagði að afgansk-
ir njósnarar teldu sig hafa séð bin
Laden á hellasvæðinu á mánudag.
Herforinginn fullyrti í gærmorg-
un að menn sínir hefðu náð meintu
fylgsni bin Ladens á sitt vald en
sagði síðar um daginn að þeir hefðu
aðeins fundið hellinn og umkringt
hann. „Ég tel að Osama sé á
ákveðnum stað í hellinum,“ sagði
hann.
„Þeir geta ekki sloppið“
Ali sagði að hermennirnir hefðu
einnig afkróað liðsmenn al-Qaeda í
lítilli lægð á fjallshryggnum. Enn
væri barist á staðnum og margir al-
Qaeda-liðar hefðu fallið eða særst.
„Þeir hafa verið umkringdir og geta
ekki sloppið.“
Said Mohammed Pahalawn, að-
stoðarmaður herforingja annarrar
fylkingar á svæðinu, sagði að um
100–120 liðsmenn al-Qaeda væru á
staðnum. „Bandarískar flugvélar
gera sprengjuárásir á svæðið en
sprengjurnar komast ekki í hellis-
munnann,“ sagði hann.
Erfitt að loka landamærunum
Fyrr í gær skýrðu nokkrir afg-
anskir herforingjar frá því að liðs-
menn al-Qaeda hefðu hörfað og skil-
ið eftir þungavopn sín eftir að hafa
orðið fyrir hörðum árásum afg-
anskra herflokka og bandarískra
flugvéla. Orrustuþotur flugu lágt yf-
ir vígvöllinn í gær og gerðu árásir á
fjöll milli Tora Bora og Milawa-dals.
Fjórir afganskir hermenn særðust
þegar sprengja frá einni flugvélanna
féll of nálægt þeim.
Haji Musa, foringi einnar af afg-
önsku fylkingunum sem berjast í
Tora Bora, sagði að nokkrir liðs-
menn al-Qaeda hefðu flúið í skóg-
lendi nálægt Tora Bora og Milawa-
dal. Líklegt er að þeir reyni að kom-
ast þaðan yfir Hvítufjöll til
Pakistans.
Stjórnvöld í Pakistan hafa sent
þúsundir hermanna að landamærun-
um til að loka flóttaleiðunum en
segja að mjög erfitt sé að halda uppi
eftirliti á svæðinu, sem er mjög snjó-
þungt og illt yfirferðar.
Telja sig hafa fundið
helli Osama bin Ladens
Meira en hundrað
liðsmenn al-
Qaeda afkróaðir
Tora Bora. AP, AFP.
AP
Hamid Karzai, forsætisráðherra bráðabirgðastjórnar Afganistans, sem
tekur við völdunum 22. desember, heilsar Afgönum á vegi frá Kabúl til
Jebal Saraj á leiðinni að gröf Ahmids Shah Massoods, fyrrverandi leið-
toga hers Norðurbandalagsins. Massood var myrtur tveimur dögum
fyrir hryðjuverkin í Bandaríkjunum 11. september.