Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 28
ERLENT
28 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
EINSTÖK MYNDLIST — ÍSLENSK MYNDLIST
Rauðarárstíg 14,
sími 551 0400
Kringlunni,
sími 568 0400
Smáralind,
535 0400
www.myndlist.is
— Louisa Matthíasdóttir —
meistar inn. is
GULL ER GJÖFIN
Höfundur
byggir sö
guna m.a.
á dagbók
um
skipbrots
mannann
a og legg
ur sig fra
m
um að seg
ja ógleym
anlega sög
u og skap
a
einstæðar
persónur.
Þetta er fy
rst og frem
st
glæs i leg
t sköpu
narverk
höfunda
r,
sem lætur
mann san
narlega ek
ki ósnortin
n.
Áhrifam
ikil saga
skipbrot
smanna
Örlygur
Steinn Si
gurjónsso
n
FÖSTUD
AGUR 14
. DESEMB
ER 2001MOR
GUNB
LAÐI
Ð
Í Ísherranum er það Vilhjálmur Stefánsson
sem er skúrkurinn og er fátt tínt honum
til varnar. Ef marka má bókina var hann
athyglissjúkur og með mikilmennsku-
brjálæði. Hann yfirgaf leiðangurinn
fljótlega ásamt þeim sem hann þurfti
á að halda en setti hina á guð og gaddinn.
Feigðarför
DVMÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2001
Guðmundur J. Guðmundsson
Íslensk þýðing
Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur.
ÍSHERRANN
Þessi kynngimagnaða
mannraunasaga
lætur engan ósnortinn.
Hver urðu örlög
mannanna sem fylgdu
Vilhjálmi Stefánssyni
landkönnuði
norður í Íshaf
árið 1913 ?
HANN hlustaði á myndbandið aftur
og aftur. Stundum lét hann hægja á
því, reyndi að einangra raddirnar,
velti fyrir sér hverju orði og gerði
sitt besta til að láta ekki hóstakjölt-
ur, hvísl og þungan andardrátt í bak-
grunninum trufla sig. Í nærri 13
klukkustundir samfleytt hlustaði
þýðandinn á raddirnar á bandinu.
„Mér fannst ég vera augliti til aug-
litis við hið illa,“ sagði George Mich-
ael, sem fenginn var til að fara yfir
þýðingu Bandaríkjastjórnar á mynd-
bandinu með Osama bin Laden.
„Þetta myndband hefur áunnið sér
sess í sögunni og ég var með þeim
fyrstu, sem sáu það. Mér bauð við
því.“
Michael átti að sjálfsögðu ekki von
á því að verða fenginn til að flytja
umheiminum yfirlýsingar hryðju-
verkamannsins en hann gerði hvað
hann gat og einbeitti sér að fyrsta
boðorði góðs þýðanda, hlutlægninni.
Vildu forðast ásakanir
um hlutdrægni
Það getur samt verið erfitt að
festa hendur á merkingu orða, að
baki þeim getur búið eitthvað annað
en virðist við fyrstu sýn. Michael,
sem er egypskur að ætt og uppruna,
var til dæmis ekki alltaf sammála út-
leggingu annars þýðanda, dr. Kass-
em M. Wahba, sérfræðings í arab-
ísku við Johns Hopkins-háskólann.
Samt hlustuðu þeir saman á mynd-
bandið til að tryggja, að ekkert færi
fram hjá þeim.
„Ef við vorum í einhverjum vafa,
auðkenndum við það með „óskiljan-
legt“,“ segir Michael. „Við vildum, að
allt, sem frá okkur færi, væri rétt.“
George Michael er 43 ára, fæddur
í Kairó en fluttist til Bandaríkjanna
um miðjan níunda áratuginn. Tók
hann upp nýtt nafn er hann fékk
bandarískan borgararétt fyrir ára-
tug. Er hann útskrifaður lyfjafræð-
ingur frá Kairóháskóla og hefur sú
menntun hans nýst vel við þýðingar
á skjölum og bókum um tæknileg
efni. Var hann fenginn til að fara yfir
þýðinguna á myndbandinu til að
bandarísk stjórnvöld yrðu ekki sök-
uð um ónákvæmni og hlutdrægni.
Michael segir, að þótt myndbandið
sé lélegt og mikið af aukahljóðum á
því, þá hafi það hjálpað, að þegar bin
Laden opni munninn, þagni aðrir.
Segir hann, að það hafi líka komið
sér vel, að bin Laden sé búinn að
tapa miklu af sádi-arabísku mállýsk-
unni og noti nú meira þá arabísku,
sem algengust er, til dæmis í fjöl-
miðlum.
Engu öðru líkt
Michael starfar hjá þýðingarþjón-
ustu og hefur áður unnið fyrir banda-
ríska varnarmála- og utanríkisráðu-
neytið, til dæmis í réttarhöldunum
yfir Omar Abdel Rahman, sem var
dæmdur fyrir áætlanir um sprengi-
tilræði í New York, þar á meðal við
aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna.
Bin Laden-verkefnið er þó engu
öðru líkt og Michael gefur hvorki
upp nafn konu sinnar né hvar hann
býr. Talsmaður Hopkins-háskóla
sagði einnig, að Wahba væri ekki til
viðtals.
„Eftir að hafa túlkað ummæli
mesta hryðjuverkamanns í heimi er
betra að fara að öllu með gát,“ sagði
Michael.
„Augliti til
auglitis
við hið illa“
Þýðendur myndbandsins með bin
Laden sagðir hafa unnið gott verk
Washington. Los Angeles Times.
RÍKISSTJÓRNIR er styðja hernað
Bandaríkjamanna í Afganistan
sögðu í gær, að myndbandið er sýn-
ir Osama bin Laden hreykja sér af
hermdarverkunum 11. september,
sannaði að hann hefði staðið að baki
tilræðunum, en víða í arabaheimin-
um var fullyrt að myndbandið væri
óekta.
Bretar, Pakistanar, Japanar og
Ástralar voru meðal þeirra sem
voru sammála Bandaríkjamönnum
um að myndbandið réttlætti herför-
ina, sem hafin var í Afganistan fyrir
tveim mánuðum. Breska blaðið The
Daily Telegraph sagði myndbandið
vera lykilsönnunargagn, og franska
blaðið Liberation tók í sama streng,
og sagði að myndbandið ætti að
sannfæra þá sem hefðu efast um
sekt bin Ladens.
En viðbrögð arabískra dagblaða
voru ekki eins eindregin. „Í stað
þess að leiða sannleikann í ljós mun
birting myndbandsins, með þessum
hætti, einungis gera málið allt enn
óljósara,“ sagði blaðið al-Sharq í
Qatar. Ad Diyar í Líbanon sagði að
Bandaríkjastjórn hefði birt myn-
bandið til þess eins „að réttlæta þá
fyrirætlan sína að drepa hann, og
gefa í skyn að endalokin séu
skammt undan.“ Kúveitska íhalds-
blaðið Siyassa var eitt fárra blaða í
arabaheiminum sem tóku undir
með Bandaríkjamönnum.
„Hollywood-farsi“
„Þetta er Hollywood-farsi. Þeir
eru með stúdíó þar sem er hægt að
líkja eftir jarðskjálftum og alls kon-
ar hlutum, þannig að það er ekkert
mál fyrir þá að finna tvífara bin
Ladens,“ sagði Munir Salem, aug-
lýsingamaður í Kaíró.
„Ef þeir geta búið til kvikmynd
með leikara sem tekur í höndina á
Bandaríkjaforseta, hvað kemur þá í
veg fyrir að þeir beiti slíkum brögð-
um til að falsa myndband? Jafnvel
þeir hlutar, sem eru óskiljanlegir,
eru með ráðum gerðir til þess að
þetta líti frekar út fyrir að vera
ekta,“ sagði arkitektinn Hend al-
Alfi, og skírskotaði til kvikmyndar-
innar Forrest Gump, þar sem
tæknibrellum var beitt til að láta
leikarann Tom Hanks taka í hönd-
ina á John F. Kennedy, fyrrverandi
Bandaríkjaforseta.
En þótt Bandaríkjaforseti líti á
myndbandið sem hreina og klára
játningu eru ekki allir bandarískir
lagasérfræðingar vissir um að
myndbandið yrði tækt við réttar-
höld. „Ég tel þetta vera mjög sterk
sönnunargögn sem saksóknarar
yrðu ánægðir með að fá í hendurn-
ar,“ sagði Richard Uviller, lagasér-
fræðingur við Columbiaháskóla í
New York. „Þetta eru orð sakborn-
ingsins sjálfs. Þetta eru mun áhrifa-
meiri sönnunargögn en handrit eða
frásögn annars aðila sem hefði
heyrt hvað sagt var.“
En samkvæmt bandarískum lög-
um um sönnunargögn verður að
sýna fram á, að gögn sem þessi séu
ekta. Það er að segja, saksóknarar
verða að sanna að það sé í raun og
veru bin Laden sem sést á bandinu,
og að ekki hafi verið krukkað í það.
Melanie Leslie, við Benjamin N.
Cardozo-lagaskólann, sagði að til
þess að slík sönnun teldist gild
þyrfti hún að fullnægja ákveðnum
kröfum í samræmi við fyrirfram
skilgreindan áreiðanleikastaðal.
Leslie telur að í þessu tilviki gæti
orðið erfitt að fullnægja slíkri
kröfu.
Myndbandið af Osama bin Laden
Efasemdir
í araba-
heiminum
París, New York. AFP.
AP
Fólk á götum New York-borgar fylgist með útsendingu á myndbandinu með Osama bin Laden.
GENGI GJALDMIÐLA
mbl.is