Morgunblaðið - 15.12.2001, Qupperneq 34
NEYTENDUR
34 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ
DANÓL flytur nú inn
heilar Café Noir baunir
frá Merrild Kaffe A/S.
„Café Noir baunirnar
eru úr sérvöldum ara-
bica kaffibaunum frá
bestu kaffihéruðum
heims,“ segir í tilkynn-
ingu frá Danól. Baunirn-
ar eru í 500g pakka úr nýrri álþynnu
með lyktarloka og brenndar milli-
brennslu. Café Noir baunirnar eru
grófmalaðar og ætlaðar fyrir pressu-
könnur en þær má jafnframt nota í
hefðbundnar kaffikönnur.
Heilar baunir
frá Merrild
pera liggur við brennanlegt efni eins
og pappír er mikil hætta á íkveikju.
Logandi kerti eru vitaskuld alltaf
varasöm en komist þau í kynni við
rafmagn er hætta á ferðum. Því er
brýnt að láta kerti aldrei standa ofan
á raftækjum eins og sjónvarpi eða
hljómflutningstækjum. Kertið getur
brætt sér leið niður í tækið og kveikt í
því. Einnig getur kveikurinn fallið
logandi af kertinu ofan í tækið eða
vax lekið niður í það og valdið
íkveikju.
Notum ekki úr sér gengin ljós
Algengt er að fólk haldi upp á göm-
ul jólaljós sem eru úr sér gengin. Oft
endar þessi hirðusemi með íkveikju
eða slysi af völdum ljósanna. Réttast
er að henda gömlu ljósunum eða láta
fagmann yfirfara þau ef minnsti
grunur leikur á að þau séu í ólagi.
Þegar farið er yfir jólaljósin er ár-
íðandi að skipta tafarlaust um brotn-
ar klær og brotin perustæði. Göngum
einnig úr skugga um að allar raf-
magnsleiðslur séu heilar, að einangr-
un sé alls staðar í lagi og að ekki sjái í
bera víra.
Ekki er til eitt ráð við að ganga úr
skugga um að jólaljós séu af vandaðri
gerð. Vert er þó að hafa í huga að sér-
lega ódýr jólaljós eru yfirleitt ekki
eins vönduð og dýrari ljós af sömu
gerð. Gæði og öryggi fara saman í
þessu sem öðru.
Notum aldrei inniljós úti
Jólaljós utandyra eiga að vera sér-
staklega gerð til slíkrar notkunar. Á
öllum jólaljósum eða umbúðum
þeirra, sem seld eru hér á landi sem
inniljós, á að standa á íslensku að þau
séu eingöngu til notkunar innanhúss.
Að nota inniljós utandyra getur verið
lífshættulegt. Útiljósakeðjur sem
ekki eru tengdar við spennubreyti
(12V–24V) eiga að vera vatnsvarðar.
Brýnt er að perur útiljósa vísi ávallt
niður svo að ekki sé hætta á að vatn
safnist í perustæðin. Einnig er mik-
ilvægt að festa útiljós vandlega þann-
ig að perur geti ekki slegist við og
brotnað.
Á hverju ári verður fjöldi
eldsvoða sem eiga upptök
sín í rafbúnaði. Stundum
kviknar í vegna bilunar en
oftast er um að ræða, að
gáleysi í umgengni við raf-
magn valdi slysum eða
íkveikju. Jólin eru hátíð ljóssins og þá
er kveikt á fleiri ljósum og þau oft lát-
in loga lengur en aðra daga ársins.
Hluti af undirbúningi jólanna á að
vera að ganga úr skugga um að þau
ljós sem nota á séu í góðu lagi. Óvand-
aður, skemmdur og rangt notaður
ljósabúnaður getur valdið bruna og
slysum. Notum réttar perur og látum
ljósin ekki loga yfir nótt.
Engin jólaljós eru svo örugg að
hægt sé að útiloka íkveikju af þeirra
völdum. Varasamt er að láta loga á
jólaljósakeðjum (jólaseríum), sem og
öðrum jólaljósum innanhúss, yfir nótt
eða þegar við erum að heiman. Það á
ekki síst við um ljós á jólatrjám.
Flestar nýrri ljósakeðjur til notkunar
innandyra eru þannig gerðar að þeg-
ar ein pera „deyr“ logar áfram á hin-
um. Eftir því sem logar á færri per-
um eykst ljósstyrkur hverrar peru og
þar með hitinn. Ljós sem ofhitna geta
auðveldlega valdið bruna. Því ber að
skipta strax um bilaðar perur í ljósa-
keðjum og hafa í huga að nota rétta
gerð af peru. Röng gerð, stærð eða
styrkur getur valdið ofhitnun sem
leiðir til íkveikju. Til þess að fá örugg-
lega rétta ljósaperu í stað bilaðrar
peru í jólaljósi er best að taka ljósa-
búnaðinn með sér þegar ný er keypt.
Sölumenn eiga að vita hvaða perur
henta best.
Ljós og brennanleg efni eru
hættuleg blanda
Vegna hitans sem stafar frá ljósa-
perum er mikilvægt að alltaf sé nægi-
leg fjarlægð frá ljósi í brennanlegt
efni. Rafljós geta engu að síður
kveikt í gluggatjöldum en kertaljós.
Sýnum sérstaka varúð gagnvart jóla-
stjörnum og öðru pappírsskrauti sem
sett er utan um ljósaperur. Ef ljósa-
Þótt mikil
gleði fylgi há-
tíð ljóssins,
býður hún
líka hættunni
heim.
KVENFÉLAGASAMBAND Ís-
lands rekur Leiðbeiningastöð heim-
ilanna og hefur gefið út fræðslu-
spjald um mælieiningar í samstarfi
við Nóatúnsverslanirnar.
Hjördís Edda Broddadóttir, fram-
kvæmdastjóri Leiðbeiningastöðvar
heimilanna, segir að Leiðbeininga-
stöðin fái fjölda fyrirspurna um
bakstur og mælieiningar, einkum
fyrir jólin og því hafi verið tímabært
að gefa út aðgengilegt fræðsluefni
sem þetta.
Á spjaldinu eru leiðbeiningar um
hvernig mælieiningum er breytt úr
grömmum í desilítra, matskeiðar eða
teskeiðar. Auk þess er listi yfir er-
lendar mælieiningar þar sem finna
má finna út hver munurinn er á am-
erískum og breskum mælieiningum,
svo dæmi sé tekið. Þá eru upplýs-
ingar um ofnhita á Celsíus og Faren-
heit og ýmsar mælieiningar, gamlar
og nýjar. Einnig eru upplýsingar um
hvernig nota á olíu í staðinn fyrir
smjörlíki, sem er mjög vinsæl spurn-
ing segir hún jafnframt.
Hjördís Edda segir þreytandi til
lengdar að þurfa fletta upplýsingum
sem þarna er safnað saman upp í
mörgum mismunandi bókum og að
tilvalið sé að geyma mælieininga-
spjaldið á vísum stað innan á skáp-
hurð í eldhúsinu svo það týnist ekki.
Mælieiningaspjaldið er hægt að
nálgast í öllum Nóatúnsverslunum
og jafnframt hjá Leiðbeiningastöð
heimilanna, Túngötu 14.
Nýtt vegg-
spjald með
mæliein-
ingum
SÆLGÆTISGERÐIN Móna hefur
hafið framleiðslu á „íslenskum
myndlistarmolum“ segir í tilkynn-
ingu frá fyrirtækinu. Um er að ræða
konfektkassa í listrænum umbúðum
en kassarnir eru prýddir listaverk-
um eftir þjóðkunna íslenska mynd-
listarmenn. Verk eftir fjóra lista-
menn prýða kassana nú þegar, það
er Þórarin B. Þorláksson, Snorra
Arinbjarnar, Louisu Matthíasdóttur
og Huldu Hákon. Í kassanum sjálf-
um munu síðan vera molar af marg-
víslegri gerð.
NÝTT
Konfektmolar
með hátíðarsvip
Látum aldrei loga á ljósunum
á jólatrénu yfir nótt eða þeg-
ar við erum að heiman.
Hendum gömlum jólaljósum
sem eru úr sér gengin.
Notum ætíð ljósaperur af
réttri gerð, stærð og styrk-
leika.
Gætum þess að brennanleg
efni séu ekki nálægt jóla-
ljósum.
Óvarinn rafbúnaður getur
valdið raflosti.
Vörum okkur á óvönduðum
jólaljósum.
Inniljós má aldrei nota utan-
dyra.
Látum logandi kerti aldrei
standa ofan á raftæki.
Góður siður er að skipta um
rafhlöður í reykskynjurum
fyrir hver jól.
Heimasíða Löggildingarstofu:
www.ls.is
Atriði sem
vert er að
hafa í huga
Farið varlega
með rafmagn
yfir jólin
RAFMAGN er einn stórvirkasti brennuvargur
nútímans, segir Löggildingarstofa sem gefur
eftirfarandi ráðleggingar fyrir jólin.