Morgunblaðið - 15.12.2001, Síða 51
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 51
✝ Erlendur Kon-ráðsson fæddist
á Geirbjarnarstöð-
um í Köldukinn í S-
Þing. 22. maí 1916.
Hann lést 5. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Konráð Er-
lendsson kennari á
Laugum í Þingeyj-
arsýslu, f. 11. jan.
1885, d. 2. júlí 1957,
og kona hans,
Helga Arngríms-
dóttir, f. 22. nóvem-
ber 1890, d. 20.
nóv. 1964. Systkini Erlends eru:
Arngrímur, f . 21. ágúst 1929,
og Jónína, f. 4. september 1921,
d. 21. maí 1932.
Erlendur kvæntist 12. júní
1947 Kristjönu Nönnu Jónsdótt-
ur frá Mýri í Bárðardal, f. 6.
febrúar 1924. Foreldrar hennar
voru Jón Karlsson bóndi á Mýri,
f. 25. júní 1877, d. 13. apríl 1937,
og kona hans, Aðalbjörg Jóns-
dóttir, f. 7. ágúst 1882, d. 13.
okt. 1943. Börn Erlends og
Kristjönu eru: 1) Konráð, f. 9.
janúar 1948, kona Gréta Ás-
geirsdóttir, börn þeirra eru Er-
lendur, Sigrún og Arngrímur. 2)
Karl, f. 1. september 1949, fyrri
kona Ragnhildur Skjaldardóttir,
synir þeirra eru
Jón Skjöldur og
Karl Emil. Seinni
kona Eyrún Skúla-
dóttir, börn þeirra
eru Sveinn Helgi
og Þóra Kristín. 3)
Jón, f. 4. desember
1951, kona Sóley
Sturludóttir, börn
þeirra eru Krist-
jana Nanna, Jón
Sturla og Andri
Már. 4) Aðalbjörg,
f. 28.júlí 1958,
maður Stefán Að-
alsteinsson, synir
þeirra eru Steinn og Tryggvi. 5)
Helgi Arngrímur, f. 22. nóvem-
ber 1965, kona Steinunn Krist-
jánsdóttir, börn þeirra Unnur og
Kristján. Barnabarnabörnin eru
orðin sex.
Erlendur varð stúdent frá MA
1937, nam tvö ár við háskólann í
Kaupmannahöfn en kom heim í
stríðsbyrjun haustið 1939 og hóf
nám við læknadeild Háskóla Ís-
lands. Cand. med. þaðan 1947.
Erlendur var héraðslæknir á
Kópaskeri 1949–1955 og síðan
starfandi heimilislæknir á Ak-
ureyri frá 1956–1986.
Útför Erlends fór fram frá
Glerárkirkju á Akureyri 14. des-
ember.
Í dag er kvaddur Erlendur Kon-
ráðsson, heimilislæknir. Kynni okk-
ar hófust árið 1974, er við fórum að
vinna saman á Læknamiðstöðinni á
Akureyri. Þetta voru nokkur tíma-
mót hjá okkur báðum, ég var að
hefja störf sem heilsugæslulæknir,
en hann var að flytja úr einyrkjap-
raksis yfir í miðstöð heimilislækna.
Upphafsárin á Læknamiðstöðinni
voru litrík og skemmtileg. Starfið
var í örri þróun og þá var gott fyrir
mig, ungan lækninn, að geta leitað
til reynds kollega eins og Erlendar,
sem um áratugaskeið hafði sinnt
vandasömum störfum í Kópaskers-
héraði og á Akureyri.
Erlendur var afskaplega hógvær,
dulur og hafði sig ekki mikið í
frammi dags daglega. En á
skemmtistundum, þegar starfsfólkið
leit upp úr önn dagsins, leystist úr
læðingi hjá honum sprellikarlinn
Erlendur, sem sagði sögur á svo
myndrænan og lifandi hátt að fólk
veltist um af hlátri.
Erlendur naut trausts sjúklinga
sinna, sem hann þekkti náið eftir
áratuga þjónustu. Enn upplifði
hann breytingar, þegar Heilsu-
gæslustöðin á Akureyri var stofnuð
árið 1985. Miklar breytingar urðu á
þessum tímamótum. Sérgreina-
læknar, sem höfðu verið heimilis-
læknar á Læknamiðstöðinni, hurfu
til fullra starfa á Fjórðungssjúkra-
húsinu, en ungir læknar komu heim
frá Svíþjóð eftir nám í heimilis-
lækningum og öðrum sérgreinum.
Öllum þessum breytingum, nýju
samstarfsfólki og nýju umhverfi tók
Erlendur með jafnaðargeði. Hann
lagaði sig að breyttum tímum og
var virkur með starfsfólkinu í starfi
og leik. Árið 1986 lét hann af störf-
um vegna aldurs, en sem betur fer
nutum við á heilsugæslustöðinni
áfram samvista við Erlend og Krist-
jönu konu hans við hin ýmsu tæki-
færi.
Að leiðarlokum vil ég fyrir hönd
okkar Kristínar og okkar allra á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri
þakka fyrir samverustundirnar á
liðnum árum og sendum við fjöl-
skyldunni innilegar samúðarkveðj-
ur. Minningin um góðan dreng lifir.
Ólafur Hergill Oddsson.
Haustfölva slær á hlíðarvangann rjóða,
hjartsláttur dvín, og liðin sumarganga.
Voðin er unnin, vafin upp í stranga.
Vefarinn hefur lokið sinni skyldu.
Næst mun sér annar nema þarna spildu.
(Jón Jónsson.)
Hann Erlendur hefur kvatt okk-
ur. Frændi og vinur, maðurinn
hennar Kristjönu föðursystur og
frændi móður minnar. Læknir –
fyrst héraðslæknir og síðan heim-
ilislæknir á Akureyri í mörg ár.
Mér þótti þau þau mjög eftirtekt-
arverð hjón – hún kát, fjörug og
hláturmild, Erlendur hár og glæsi-
legur, hægur í fasi og stutt í kímn-
ina. Unglingur varð ég heimagangur
á heimili þeirra á Akureyri, síðast í
Rauðumýri 7. Erlendur las með mér
algebru undir gagnfræðapróf sem
ég tók utan skóla og studdi mig með
ráðum og dáð á þeim árum. Raunar
var ég ekki ein um að njóta tilsagnar
hans í próflestri. Hæst rís þó minn-
ingin um ferðirnar með þeim hjón-
um og elstu drengjunum þeirra um
landið okkar. Þá var tekið til nesti og
sest upp í Land-Roverinn og haldið
til fjalla – inn á öræfi. Og þar var Er-
lendur í essinu sínu. Hann bjó yfir
ótæmandi fróðleik um landið. Hann
kunni að segja sögu hverrar þúfu
sem farið var hjá og þekkti nöfn
fjalla og vatna. Ásbyrgi, Hljóða-
klettar, Hólmatungur, Sprengisand-
ur; þessir staðir lifnuðu við í sam-
fylgd Kristjönu og Erlendar. Hann
sýndi mér hvar toppurinn á Herðu-
breið stakk sér fram undan Mý-
vatnsfjöllum og sást á vissum stað á
gamla veginum yfir Fljótsheiði.
Áhugasvið hans var geysilega breitt
– hann sökkti sér niður í frásagnir
og lýsingar af fjallgöngum, heim-
skautaferðum, dýralífi. Þegar for-
vitni hans um viðfangsefni var sval-
að var næsta tekið fyrir. Ferðalög
voru líf hans og yndi. Hann hafði
líka unun af góðri tónlist. Mörg
kvöld var setið og hlustað á perlur
tónbókmenntanna í úrvals flutningi
listafólks. Mér fannst hann vera
alæta á músík – hann var svo forvit-
inn um allt sem vakti áhuga hans.
Og svo var gott bara að sitja og
spjalla – hann var svo mikill fróð-
leikssjór – en hann hlustaði líka. Síð-
ustu árin urðu honum erfið, heilsan
léleg orðin, þrekið farið. Seinast hitti
ég hann nú síðsumars. Hann var fá-
talaður en heilsaði mér hlýlega að
vanda. Ég er þakklát fyrir að hafa
þekkt hann Erlend og að eiga góðar
minningar um mætan mann.
Elsku Kristjana mín, ég og börnin
mín sendum ykkur öllum innilegar
samúðarkveðjur.
Ásdís Jónsdóttir.
ERLENDUR
KONRÁÐSSON
lega á leiðinni í englakórinn þar sem
hún getur tekið undir í jólasálm-
unum sem henni þótti svo gaman að
syngja. Og kannski verður allt aftur
eins og var í gömlu kirkjunni henn-
ar með sveitungana í sparifötunum
og Lárus dottandi upp við altarið.
Minningarnar eru margar og góð-
ar og þær hlýja okkur öllum þótt
Svava sé búin að sinna sínum jarð-
nesku skyldustörfum. Elsku Sigrún,
Siggi, Svava, Inga Lára og fjöl-
skyldur.
Um leið og við sendum okkar
innilegustu samúðarkveðjur biðjum
við góðan Guð að blessa minningu
Svövu Steinsdóttur.
Rögnvaldur og Guðlaug,
Steinn, Jón, Jóhann, Gunnar
og fjölskyldur þeirra.
Hún amma í Nesi er dáin. Þessi
hlédræga en sterka kona, sem verið
hefur eins og klettur í lífi okkar
systra frá byrjun, er nú ekki lengur
til staðar. Þó svo að við vissum að
hverju stefndi, var fráfall ömmu
mikið áfall fyrir fjölskylduna. Við
söknum hennar, en erum jafnframt
þakklát fyrir að hún fékk hvíldina
sem hún þráði.
Allt frá því að við munum fyrst
eftir okkur og fram til 16 ára aldurs,
eyddum við systurnar öllum sumr-
um hjá ömmu og afa í Nesi. Við
komum strax og snjóa leysti og
dvöldum fram yfir réttir. Það var
alltaf svo gaman að koma í Nes. Um
leið og bíllinn stoppaði stukkum við
út og upp um hálsinn á afa og ömmu
sem jafnan biðu okkar á hlaðinu.
Þrátt fyrir það annríki sem fylgdi
búskapnum gáfu þau sér ævinlega
tíma fyrir barnabörnin og höfðu
okkur með í öll verk. Sjálfsagt hefur
verið lítið gagn af okkur, sérstak-
lega fyrstu árin, en aldrei heyrðum
við annað en hrósyrði frá ömmu.
Amma var besta og hjartahlýj-
asta manneskja sem við höfum
nokkru sinni kynnst. Við heyrðum
hana aldrei, hvorki fyrr né síðar,
tala illa um nokkurn mann og hún
átti afar auðvelt með að sjá það
besta í fari fólks. Þrátt fyrir lítil efni
gaf hún af rausn þeim sem hún taldi
minna mega sín og var ætíð
reiðubúin að rétta fólki hjálparhönd
ef á þurfti að halda.
Amma fór ávallt fyrst á fætur á
morgnana og síðust að sofa á kvöld-
in.
Þegar við vöknuðum var hún búin
að vera lengi á fótum, búin að leggja
í eldinn, hella upp á kaffi og smyrja
brauð. Þar var alltaf jafn notalegt
að koma með morgunhrollinn inn í
funheitt eldhúsið til ömmu, það var
hjarta heimilisins og þar áttum við
margar okkar bestu stundir.
Ógleymanlegar eru sögustundirnar
hennar ömmu, flatbrauðsbaksturinn
og smjörgerðin sem allt fór fram í
eldhúsinu, svo og hin eftirminnilegu
þvottabalaböð. Þá er kattastríðið
okkur í fersku minni en amma stóð í
ströngu við að koma köttunum út úr
eldhúsinu á meðan afi og við stelp-
urnar hleyptum þeim jafnharðan
inn aftur. Kettirnir áttu sér öruggt
hæli undir viðareldavélinni og þaðan
mátti oft heyra malið í þeim þar
sem þeir kúrðu í hlýjunni á kvöldin.
Amma var mjög söngelsk eins og
margt hennar fólk. Af henni lærðum
við fjöldann allan af lögum og ljóð-
um enda var hún ýmist syngjandi
eða raulandi.
Þó amma væri afskaplega feimin
og lítið fyrir að láta á sér bera,
stóðst hún oft ekki mátið að taka
undir þegar söngur var annars veg-
ar. Hún hafði einstaklega fallega og
bjarta söngrödd og þó hún héldi sig
til hlés skar röddin sig ævinlega úr
hópnum. Söngáhuginn entist henni
alla ævi og löngu eftir að líkams-
þrótturinn tók að þverra þá hélt
amma sinni skæru rödd.
Samfélagið á Skaganum er um
margt sérstakt og einkennist um-
fram allt af samstöðu og samhjálp
íbúanna. Amma og afi nutu þess alla
tíð, sér í lagi þó síðustu árin, að eiga
góða nágranna. Það gerði þeim
kleift að búa á jörðinni mun lengur
en ella hefði verið. Fyrir nokkrum
árum létu gömlu hjónin þó af bú-
skap og fluttust til Skagastrandar.
Þau héldu engu að síður góðu sam-
bandi við ættingja og vini af Skag-
anum, enda var hugurinn jafnan í
Nesi.
Umskiptin við að flytjast úr sveit-
inni á dvalarheimilið Sæborg reynd-
ust ömmu og afa ekki eins erfið og
við höfðum óttast. Fljótlega var afi
farinn að sinna áhugamálum sínum
af fullum krafti og amma tók til við
hannyrðir og bóklestur, nokkuð sem
hún hafði lítinn tíma fyrir í annrík-
inu í Nesi. Allt starfsfólk svo og
vistmenn á Sæborg reyndust þeim
afar vel og amma talaði jafnvel um
að þau yrðu ofdekruð ef þessu héldi
áfram. Þegar afi lést fyrir sex árum
fékk amma mikinn stuðning frá
þessu sama fólki og hún tengdist því
sterkum vináttuböndum. Sérstak-
lega urðu hún og Rósa föðuramma
okkar miklar vinkonur og bar hin
síðarnefnda velferð ömmu ávallt
fyrir brjósti.
Það er erfitt að kveðja. Erfitt að
horfa á eftir ömmu sem okkur þykir
svo ósköp vænt um og hefur verið
stór hluti af lífi okkar allt frá fyrstu
tíð. En við vitum líka að það er beð-
ið eftir henni hinumegin og þar
verður tekið vel á móti henni.
Guð geymi þig, elsku amma.
Stelpurnar þínar,
Svava og Inga Lára.
Mig langar að minn-
ast elskulegrar ömmu
minnar, Aðalbjargar,
sem fæddist að Völlum
í Þistilfirði 1. október 1916 og lést 9.
maí síðastliðinn eftir mikil og erfið
veikindi til fjölda ára.
Allar mínar minningar um ömmu
mína eru óendanlega góðar og mikil
birta hvílir yfir þeim öllum. Hún var
mér sem móðir alla tíð og leið mér
ætíð vel í návist hennar og afa míns,
Njáls Hólmgeirssonar frá Fossseli í
Reykjadal, en þau giftu sig árið
1962. Ég varð þess heiðurs aðnjót-
andi að vera samvistum við þau í
Víðum og á Narfastöðum í Reykja-
dal og svo í seinni tíð á Húsavík. Ég
var alltaf hjá þeim á sumrin í sveit-
AÐALBJÖRG
ÞORVALDSDÓTTIR
✝ Aðalbjörg Þor-valdsdóttir fædd-
ist 1. október 1916 á
Völlum í Þistilfirði í
Norður-Þingeyjar-
sýslu. Hún andaðist á
Sjúkrahúsinu á
Húsavík 9. maí síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá Ein-
arsstaðakirkju í
Reykjadal 19. maí.
inni og oftar ef þess
var nokkur kostur, því
ég vildi hvergi frekar
vera. Njáll, afi, er í dag
vistmaður í Hvammi á
Húsavík. Fyrri maður
ömmu var Ketill Sigur-
geirsson frá Stafni í
Reykjadal, en hann
lést langt fyrir aldur
fram
Amma var kvenskör-
ungur mikill. Hún
gekk til búverka innan-
húss og utan og sjaldan
féll henni verk úr
hendi. Hún vann verk
sín af natni og stakri útsjónarsemi.
Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór
að fylgja hennar leiðsögn, sem var
einstök og bý ég að henni í dag.
Amma var boðin og búin ef einhver
þurfti hjálpar með; ættingjar, vinir
og sveitungar. Hún hafði gaman af
öllum nýjungum og sem dæmi þá
horfði hún alltaf á nýjustu tækni og
vísindi. Það var það eina sem hún
vildi ekki missa af í sjónvarpinu,
man ég. Þá hafði hún mikinn áhuga
á ýmiskonar vélum og var fljót að
tileinka sér notkun þeirra, bæði
dráttarvéla og annarra vélknúinna
ökutækja. Þær voru ófáar snjósleða-
ferðirnar sem hún fór í upp um fjöll
og firnindi. Í einni slíkri slasaðist
hún, þegar hún datt niður um ís.
Hefði þar ekki komið til snarræði
hennar og eljusemi hefði getað farið
verr. Orð verða samt fátækleg þeg-
ar amma er annarsvegar og af svo
mörgu að taka úr minningasjóðnum.
Ég vil þakka henni af alhug fyrir
okkar dýrmætu samverustundir
fyrr og síðar. Ég veit að við munum
alltaf verða saman hvar sem við er-
um staddar.
Megi góður Guð og englarnir gefa
þér gleðileg jól og umvefja þig ást
sinni og umhyggju að eilífu.
Þín
Aðalbjörg Gréta.
að hún héldi sér frá öllu því sem
var óhreint eða sneiddi framhjá
þeim verkum. Það er alrangt, hún
gekk með öðru fólki til vinnu, hvort
heldur var þokkalegt verk eða
ekki. En hins vegar sást aldrei
neitt á fötum hennar, sama hvað á
gekk.
Bjarni og Jenný fluttu búferlum
frá Hvammi árið 1938 og keyptu
næstu jörð fyrir framan, Eyjólfs-
staði. Þegar Bjarni dró sig í hlé tók
Lillý þar við stjórninni ásamt
manni sínum, Ingvari Steingríms-
syni, vini hennar frá barnæsku sem
fæddur var og uppalinn við hlið
hennar á Hvammi. Bjuggu þau
hjónin þar allt til 1994 og eignuðust
fjögur börn, Heiðu, Jenný, Stein-
grím og Bjarna.
Sjötíu ár eru síðan ég fyrst kom í
þennan dal og þá í myrkvi. Tímans
tönn hefur rúið hann frá þeirri
glaðværð sem var á hverju heimili
og fólk svo margt sem húsrúm
leyfði. En þrátt fyrir það er dal-
urinn sá sami að útliti og fegurð.
Nú kveðjum við þig, eiginmað-
urinn og börnin fjögur og allir sem
nutu þess að þekkja þig, frændur
og vinir. Dalurinn kveður þig, Lillý
mín með söknuði og virðingu.
Sömu vættir og skópu þennan dal,
fylgja þér og lýsa inn í aðra heima.
Innilegar samúðarkveðjur til
Ingvars, barnanna og Hönnu syst-
ur þinnar. Í guðs friði.
Sigurgeir Magnússon.
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.
Minningarkort
Hjartaverndar
535 1825
Gíró- og greiðslukortaþjónusta
Davíð Osvaldsson
útfararstjóri
Sími 551 3485 • Fax 568 1129
Áratuga reynsla
í umsjón útfara
Önnumst alla þætti
Vaktsími allan sólarhringinn
896 8284