Morgunblaðið - 15.12.2001, Page 92
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
"
EF verðlagshækkanir á næstu
mánuðum verða meiri en sem
nemur rauða strikinu í vísitölu
neysluverðs, sem samkomulag
náðist um á milli ASÍ og Sam-
taka atvinnulífsins, munu
stjórnir og trúnaðarmannaráð
einstakra stéttarfélaga taka
ákvarðanir um hvort launaliðum
kjarasamninga verður sagt upp.
Endurskoðunarnefnd ASÍ og
SA mun hins vegar ekki koma
að málinu í maí til að meta
samningsforsendurnar, skv.
upplýsingum sem fengust hjá
Alþýðusambandinu.
Skýrt viðmið sem fastsetur
uppsagnarheimild
Samhliða samkomulagi því
sem náðist á milli aðila vinnu-
markaðarins á fimmtudag und-
irrituðu fulltrúar í endurskoð-
unarnefndum ASÍ og SA
yfirlýsingar þar sem fram kem-
ur að ekki verði um frekara mat
á samningsforsendum að ræða á
árinu 2002 af hálfu nefndanna.
Full og endanleg
niðurstaða
,,Samningur ASÍ og SA kveð-
ur á um skýrt viðmið sem fast-
setur uppsagnarheimild vegna
verðbólguforsendna m.v. maí
2002. Í framangreindu felst því
full og endanleg niðurstaða
vegna starfa nefndarinnar
vegna ársins 2002,“ segir í yf-
irlýsingu endurskoðunarnefndar
samningsaðilanna.
Samkomulag ASÍ og SA um kjaramál
Einstök
félög ákveða
uppsagnir
Trúa/46
ALÞINGI er komið í jólaleyfi en
þingfundum var í gær frestað til 22.
janúar. Las Davíð Oddsson for-
sætisráðherra forsetabréf þess efn-
is um kl. 16.30 í gær en áður hafði
Halldór Blöndal, forseti Alþingis,
óskað þingmönnum gleðilegra jóla
og fært starfsfólki Alþingis þakkir
fyrir vel unnin störf. Glatt var á
hjalla við fundarslit í gær skv.
venju enda miklar annir verið und-
anfarna daga á Alþingi.
Morgunblaðið/Sverrir
Alþingi í jólafrí
Ráðstafanir/10
FJÖLSKIPAÐUR dómur Héraðs-
dóms Reykjavíkur dæmdi í gær 25
ára karlmann í 12 mánaða fangelsi
fyrir kynferðisbrot gegn tveimur
stúlkum; önnur er fædd árið 1986 en
hin árið 1993. Í niðurstöðu dómsins
segir að þar sem maðurinn hafi ekki
áður sætt refsingu og hefur nú
stofnað fjölskyldu, sé rétt að níu
mánuðir af refsingunni verði skil-
orðsbundnir til þriggja ára.
Rannsókn á brotinu gegn eldri
stúlkunni hófst eftir að grunur vakn-
aði um að hann hefði framið kynferð-
isbrot gagnvart henni þegar hún lá á
barnadeild Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss í Fossvogi vegna alvar-
legra veikinda, depurðar og sjálfs-
vígshugleiðinga.
Maðurinn játaði að hafa átt kyn-
mök við stúlkuna inni á salerni spít-
alans í tvö skipti og einu sinni í bif-
reið sinni í Öskjuhlíð, en neitaði að
hafa í einu tilvikanna hótað henni of-
beldi að öðrum kosti, eins og hann
var ákærður fyrir. Maðurinn kvaðst
hafa kynnst stúlkunni í gegnum
spjallrásir á Netinu en hann hefði
hitt hana í fyrsta skipti þegar hún lá
á barnadeild. Lögð voru fram gögn
sem sýndu að maðurinn hafði sent
stúlkunni rúmlega 800 sms-skilaboð
á skömmum tíma. Vegna veikinda
stúlkunnar telst hún barnaleg í vexti
og hegðun eftir aldri og taldi dóm-
urinn víst að maðurinn hefði vitað að
hún var einungis 13 ára gömul þegar
hann hafði kynmök við hana í fyrsta
skipti. Framburður hans um þetta
atriði var nokkuð á reiki en hann ját-
aði að hafa vitað það í seinni skiptin
tvö.
Móðir stúlkunnar sagði hana hafa
breyst talsvert eftir að hún fermdist.
Hún hefði þá eignast tölvu og komist
á Netið og eftir það „orðið skrýtin og
meira inn í sig“. Systir stúlkunnar
sagðist fyrst hafa séð manninn þeg-
ar hann lá í rúminu hjá henni á
Landspítalanum.
Félagsráðgjafi taldi að stúlkan
hefði verið vinalaus þegar hún
komst á Netið og hefði þráð vináttu.
Persónuleiki stúlkunnar einkenndist
af þunglyndi, kvíða og vantrausti á
fólki. Taldi félagsráðgjafinn að
þunglyndi hennar mætti að hluta
rekja til sambands hennar við mann-
inn.
Dómurinn taldi bersýnilegt að
maðurinn hefði verið ýtinn við stúlk-
una, en hann væri talsvert eldri og
þroskaðri en hún. Hann var sýkn-
aður af ákæru um nauðgun en sak-
felldur fyrir að hafa þrívegis haft
samræði við barn yngra en 14 ára.
Breytti framburði
við aðalmeðferð
Maðurinn var einnig ákærður fyr-
ir kynferðisbrot með því að strjúka
kynfæri stúlku, fæddrar árið 1993,
utan klæða. Hann neitaði frá upphafi
sakargiftum og var framburður hans
staðfastur allt fram til loka aðalmeð-
ferðar málsins. Þá kvaðst hann hafa
setið í sófanum við hlið stúlkunnar
nokkra stund, en fram að því hafði
hann ætíð borið að hann hefði setið á
stól við tölvu þar hjá. Framburður
stúlkunnar þótti á hinn bóginn skýr
og trúverðugur. Hún vildi ekki segja
upphátt hvað maðurinn hefði gert,
en skrifaði það niður, fyrst fyrir
móður sína og síðan á ný við skýrslu-
töku. „Dregur þessi aðferð hennar
ekki úr trúverðugleika hennar,“ seg-
ir í dómnum. Brot hans þótti alvar-
legra þar sem hann var að gæta
stúlkunnar á meðan móðir hennar
brá sér frá.
Fram kom að maðurinn hafði tví-
vegis áður verið kærður fyrir kyn-
ferðisbrot en málin höfðu verið látin
niður falla.
Auk refsingarinnar var mannin-
um gert að greiða eldri stúlkunni
300.000 í miskabætur en hinni yngri
200.000 krónur. Auk þess var honum
gert að greiða réttargæslumönnum
stúlknanna, Helgu Leifsdóttur hdl.
og Þórdísi Bjarnadóttur hdl., sam-
tals 160.000 og skipuðum verjanda
sínum, Erni Clausen hrl., 200.000
krónur. Héraðsdómararnir Jón
Finnbjörnsson, Sigurður Tómas
Magnússon og Sigurður Hallur Stef-
ánsson kváðu upp dóminn.
25 ára karlmaður dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum
Kynntist eldri stúlkunni
á spjallrásum á Netinu
LANDBÚNAÐARRÁÐUNEYTIÐ
hefur veitt Búri ehf. leyfi til að
flytja inn 10.000 rjúpur frá Græn-
landi, að því tilskildu að með fylgi
umbeðin vottorð, en enga rjúpu er
að fá á Grænlandi og er Búr að
kanna innflutning á rjúpu frá Nor-
egi fyrir jólin.
Guðmundur B. Helgason, ráðu-
neytisstjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, segir að óskað hafi verið eftir
innflutningi á rjúpum frá Græn-
landi. Yfirdýralæknisembættið
gjörþekki stöðu mála þar, hvað
varðar sjúkdóma og annað, og að
því tilskildu að nauðsynleg vottorð,
einkum og sér í lagi upprunavott-
orð, fylgi liggi fyrir að ekki verði
lagst gegn innflutningi á rjúpum
frá Grænlandi enda þurfi ekki að
óttast neina sjúkdóma þar.
Jóhann Ólason, verslunarstjóri í
Nóatúni við Hringbraut, segir að
sig vanti 10.000 rjúpur og því hafi
hann beðið Búr að kanna innflutn-
ing en staðan væri enn óljós. Hins
vegar væri ljóst að kaupendur
borguðu ekki hvað sem væri.
Athugar um rjúpur
frá Noregi
Sigurður Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Búr, segir að hann
hafi fengið leyfi frá landbúnaðar-
ráðuneytinu til að flytja inn rjúpur
frá Grænlandi en þar sé enga rjúpu
að fá. Í kjölfarið hafi hann kannað
stöðuna í Noregi en enn án árang-
urs.
Að sögn Sigurðar sótti hann um
leyfi til að flytja inn 10.000 rjúpur
fyrir Kaupás en alls óvíst væri
hvort það gengi. Spurður um verð
sagði hann það ekki hafa verið
rætt.
Leyfi veitt til innflutn-
ings á 10.000 rjúpum
Enga rjúpu
að fá á
Grænlandi
GEYSILEG þátttaka var í ljóðaþýð-
ingasamkeppni Lesbókar og Þýð-
ingaseturs Háskóla Íslands. Tæp tvö
hundruð bréf með þýðingum eftir
rúmlega hundrað höfunda bárust í
samkeppnina og segir dómnefnd í
áliti sínu að hún hafi verið sammála
um að þýðingarnar væru margar
mjög frambærilegar. Því hafi verið
úr vöndu að ráða þegar kom að því
að veita fjórum þýðendum sérstaka
viðurkenningu..
Viðurkenningu fyrir þýðingar á
erlendum ljóðum á íslensku hljóta
Árni Ibsen, Hjörtur Pálsson og Ög-
mundur Bjarnason.
Viðurkenningu fyrir þýðingu úr ís-
lensku á erlenda tungu hlýtur Hall-
berg Hallmundsson en hann þýðir á
ensku, meðal annars ljóð eftir
Bjarna Thorarensen, Grím Thomsen
og Hannes Sigfússon.
Mjótt á mununum í ljóðaþýðingasamkeppni
Yfir 100 þátttakendur
Ljóða.../Lesbók
♦ ♦ ♦
BIFREIÐ fór út af Landvegi, rétt
fyrir ofan Galtalæk, um sjöleytið í
gærkvöld, og valt. Að sögn lögregl-
unnar á Hvolsvelli komu sjúkrabif-
reið og læknir á vettvang en öku-
maður bifreiðarinnar, sem var einn í
bílnum, reyndist hafa sloppið með
minniháttar meiðsl. Bifreið hans
skemmdist hins vegar mikið.
Lenti utan
vegar