Morgunblaðið - 17.01.2002, Page 1
13. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 17. JANÚAR 2002
DONALD Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, skýrði í gær frá
því að yfir 200 bandarískir hermenn
tækju nú þátt í herferð filippseyskra
stjórnarhermanna gegn hryðjuverka-
mönnum sem talið er að tengist al-
Qaeda, hreyfingu Osama bin Ladens,
og væru fleiri á leiðinni. Sagði Rums-
feld hermennina meðal annars vera á
Basilan-eyju þar sem liðsmenn músl-
imasamtakanna Abu-Sayyaf hafa
bandarísk hjón og filippseyskan
hjúkrunarfræðing í gíslingu.
Rumsfeld sagði að aðgerðirnar
væru gott dæmi um að baráttan gegn
hryðjuverkum væri hnattræn en ekki
eingöngu háð í Afganistan. Aðspurð-
ur sagði hann enn berast misvísandi
fregnir af verustað bin Ladens og
múllans Mohammad Omars, leiðtoga
talibana, en sagðist álíta að þeir væru
enn einhvers staðar í Afganistan.
George W. Bush Bandaríkjaforseti
ítrekaði í gær andstöðu sína við að
bandarískir hermenn tækju þátt í
friðargæslunni í Afganistan sem
verður undir forystu breskra her-
manna. Sagði hann margar þjóðir
hafa boðist til að senda hermenn til
gæslustarfanna. „Ég hef sagt það
skýrt að okkar hermenn verða not-
aðir til að heyja stríð og vinna það,“
sagði forsetinn.
Sáttatónn í Indverjum
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, kom í gær til Pakist-
an sem er fyrsti áfangastaður hans á
ferð til Asíulanda. Hann hvatti Pak-
istana og Indverja til að forðast að
grípa til örþrifaráða í deilum þjóð-
anna sem hafa báðar safnað saman-
lagt nær milljón manna herliði við
landamærin vegna deilnanna um
Kasmír. Bæði ríkin ráða yfir kjarn-
orkuvopnum. Indverjar krefjast þess
að Pakistanar hætti öllum stuðningi
við hryðjuverkamenn úr röðum að-
skilnaðarsinna í þeim hluta héraðsins
sem Indverjar stýra.
Powell sagði styrjöld í Suður-Asíu
of hræðilega til að hægt væri að velta
henni fyrir sér og hrósaði gestgjafa
sínum, Pervez Musharraf forseta,
fyrir „dirfskufulla“ ræðu sem hann
hélt sl. laugardag, en þá fordæmdi
forsetinn öll hryðjuverk skilyrðis-
laust.
Náinn ráðgjafi Atal Bihari Vajp-
ayee, forsætisráðherra Indlands, seg-
ir að ræðan hafi lagt grundvöll að
sáttum og innanríkisráðherra lands-
ins, Lal. K. Advani, sagðist „aldrei
hafa heyrt nokkurn pakistanskan
leiðtoga fordæma klerkaveldi“ með
sama hætti og Musharraf. Pakistan-
stjórn hefur síðustu daga látið hand-
taka um 2.000 liðsmenn samtaka sem
grunuð eru um hryðjuverk. Einnig
hefur hann lagt til atlögu gegn skól-
um sem bókstafstrúaðir múslimar
reka, en skólarnir eru oft taldir vera
gróðrarstía ofstækis og hryðjuverka.
Þá hefur verið skýrt frá því að þegar
næst verði kosið muni kristnir og aðr-
ir trúflokkar en múslimar fá fullan
kosningarétt.
Hundruð Bandaríkjaher-
manna til Filippseyja
Aðstoða stjórnarherinn í stríð-
inu við hryðjuverkasveitir
Washington, Islamabad. AP, AFP.
Bandaríski/28
JAPÖNSK stúlka, Reiko Higuchi
frá Tókýó, á svölum dómkirkjunnar
í Mílanó á Ítalíu í gær. Mikil loft-
mengun er nú víða í landinu og hafa
stjórnvöld í mörgum borgum tak-
markað bílaumferð til að sporna við
menguninni. Higuchi notar grisju
eins og algengt er að íbúar stór-
borga í Austur-Asíu geri.
AP
Mengun í
Mílanó
Reuters
GÖTUSALAR í borginni Harbin í
norðurhluta Kína selja ferða-
mönnum litskrúðuga flugdreka á
bakka árinnar Songhua Jiang.
Víða er reynt að efla ferðaþjón-
ustu í kínverskum borgum og þá
sakar ekki að geta boðið til sölu
varning sem á sér mörg þúsund
ára hefð.
Kínverjar munu hafa fundið
upp flugdrekann.
Kínverskir
flugdrekar
á hagstæð-
um kjörum
Börnin stýra neyslunni
BÖRN eru orðnir sjálfstæðir og
meðvitandi neytendur frá 5–7 ára
aldri, segir í nýrri skýrslu sem
Berlingske Tidende greindi frá í
gær. Þau kunna góð skil á merkja-
vörum, hafa mikil áhrif á innkaup
foreldra og beina auglýsingafyr-
irtæki því athygli sinni í vaxandi
mæli að því að kanna viðbrögð
barna niður í fjögurra ára aldur.
Sérfræðingar á vegum
Viðskiptaháskólans danska gerðu
könnun á neysluvenjum og
skýrslu um niðurstöðurnar. Lítil
börn eru oft látin sitja í innkaupa-
vagninum og þá benda þau á það
sem þau vilja helst, hvaða kart-
öfluflögur o.s.frv. Einnig geta þau
haft sitt fram með stanslausu relli
eða beinum samningaviðræðum
við foreldrana.
Að jafnaði er annað hvert barn
á aldrinum 8–10 ára í Danmörku
með sitt eigið sjónvarpstæki inni í
svefnherberginu. „Þetta merkir
að þau sitja sjálf með fjarstýr-
inguna og ákveða hvaða auglýs-
ingar og hvaða þætti þau vilja
sjá,“ segir Jens Carsten Nielsen,
stjórnandi stofnunarinnar sem
gerði skýrsluna. Í ljós kom að um
87% tíu ára barna eru með eigin
bankareiking sem vasapeningar
eru lagðir inn á mánaðarlega, síð-
ar bætast svo við tekjur sem þau
hafa af starfi utan skólatíma.
BANDARÍKJAMENN segja að
stjórn Yassers Arafats Palestínu-
leiðtoga hafi stigið skref í rétta átt er
hún handtók á þriðjudagskvöld
Ahmed Sadaat, leiðtoga Alþýðufylk-
ingarinnar fyrir frelsun Palestínu,
PFLP. Samtökin lýstu í fyrra morði
á ísraelska ráðherranum Rehavam
Zeevi á hendur sér. Philip Reeker,
talsmaður utanríkisráðuneytisins í
Washington, sagði þó að Arafat yrði
að grípa til róttækari aðgerða.
„Við væntum þess að hann gegni
skyldum sínum, bregðist skjótt við
og af ákveðni gegn þeim sem grafa
undan myndugleika hans og vonum
Palestínumanna með ofbeldi og
hryðjuverkum,“ sagði Reeker.
Ariel Sharon, forsætisráðherra
Ísraels, fullyrti að handtaka Sadaats
hefði verið sett á svið og væri dæmi
um óheilindi Arafats.
„Palestínustjórn hefur aldrei
handtekið neinn í alvöru,“ sagði ráð-
herrann. Shimon Peres, utanríkis-
ráðherra Ísraels, sagði í gær að
ferðafrelsi Arafats yrði heft þar til
hann hefði framselt alla sem stóðu að
morðinu á Zeevi. Er ísraelska sjón-
varpið ræddi við Arafat í gær sagðist
hann aðspurður enn telja að hægt
væri að semja um frið ef vilji væri
fyrir hendi. Hann sagðist vona að
Sadaat segði til þeirra sem myrt
hefðu Zeevi. Hefðu öryggissveitir
hans ekki fundið Sadaat fyrr en á
þriðjudag þar sem hann hefði dulbú-
ist með því að raka sig og breyta út-
liti sínu á fleiri vegu.
Að sögn liðsmanna Sadaats var
hann ginntur á fund Tawfiqs Tiraw-
is, yfirmanns leyniþjónustu Arafats,
í Ramallah og skyndilega handtek-
inn. Hundruð stuðningsmanna
PFLP í Ramallah, Nablus og á Gaza-
ströndinni mótmæltu handtökunni í
gær. „Tirawi, þú ert samverkamaður
CIA [bandarísku leyniþjónustunn-
ar],“ var hrópað. Ísraelar handtóku í
gær níu liðsmenn PFLP á Vestur-
bakkanum og sögðu þá hafa und-
irbúið árásir á landnema gyðinga.
Segja hand-
töku sviðsetta
Washington, Jerúsalem. AFP, AP.
Sharon lítt sáttfús en Arafat segist
enn vera vongóður um frið
STJÓRN Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
(IMF) veitti í gær Argentínumönn-
um frest í eitt ár til að greiða 933
milljóna dollara afborgun af skuld-
um sínum en gjalddaginn er í dag.
Argentínumenn skulda IMF nær
14 þúsund milljónir dollara en eru
nánast gjaldþrota.
Opinberar skuldir ríkisins nema
alls um 141 milljarði dollara. Ed-
uardo Duhalde, forseti Argentínu,
sagði á þriðjudag að hann vildi efla
mjög samstarf við önnur ríki Róm-
önsku-Ameríku. Að sögn The Wash-
ington Post hvatti hann til þess að
ríkin tækjust á við „ofurvald“ iðn-
ríkjanna og vill að Argentína og
Brasilía sameinist um gjaldmiðil.
Argentínumenn fá
aukinn lánsfrest
Washington. AFP, AP.