Morgunblaðið - 17.01.2002, Blaðsíða 16
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
16 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Netsalan ehf.
Garðatorgi 3, Garðabæ,
símar 565 6241 og 893 7333,
fax 544 4211
JEEP GRAND CHEROKEE
árg. 2002
Eigum til afgreiðslu í febrúar örfáa Laredo
og Limited bíla. Tökum einnig sérpantanir.
Eigum einnig til
JEEP LIBERTY
Limited, þann
nýjasta frá
CHRYSLER
KONUNGUR JEPPANNA
Rammen om et godt liv...
ELDASKÁLINN
Invita sérverslun
Brautarholti 3, 105 Reykjavík
Sími: 562 1420 - Netfang: eldask@itn.is
Umgjörð u gott líf...
Persónulega eldhúsið
Upp kom bilun í tölvukerfi Borg-
arskipulags á meðan deiliskipulag-
stillagan var auglýst í haust. Er
frestur til athugasemda við tillöguna
var runninn út og búið var að sam-
þykkja tillöguna, fyrst í skipulags-
nefnd í september og þá í borgar-
ráði í október, kom í ljós að
athugasemdir sem skilað var í gegn-
um Netið komust ekki til skila. Því
var gripið til þess ráðs, að sögn
Árna Þórs, til að taka af allan vafa,
að gefa þeim sem ekki komu athuga-
semdum sínum til skila færi á því.
Deiliskipulagstillagan var því lögð
Óformlegar viðræð-
ur við lóðareigendur
Geta farið fram á skaðabætur, segir for-
maður skipulags- og bygginganefndar
LÓÐAREIGENDUR Suðurhlíð-
ar 38, er hafa í hyggju að byggja á
lóðinni fjölbýlishús sem íbúar Suðurhlíða hafa mótmælt, geta farið í
skaðabótamál við Reykjavíkurborg verði deiliskipulagstillaga að lóð-
arreitnum ekki samþykkt þar sem þegar liggur fyrir samþykkt deili-
skipulag frá því í september. Þetta segir Árni Þór Sigurðsson, for-
maður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur.
ÚTITAFLIÐ við Lækj-
argötu minnti meira á tjörn
en taflborð á dögunum þeg-
ar ljósmyndari Morg-
unblaðsins átti þar leið um.
Að sögn Höskulds
Tryggvasonar, tæknifræð-
ings hjá Gatnamálastjóra,
gerist það af og til að nið-
urfall í botni taflborðsins
stíflist og það fyllist í rign-
ingum á borð við þær sem
verið hafa undanfarna daga.
Taflmennirnir sjálfir eru
sjaldan hafðir uppi við nú-
orðið heldur geymdir í
geymslu á vegum Kjarvals-
staða.
Morgunblaðið/Þorkell
Taflið orð-
ið að tjörn
Miðborg
Suðurhlíðar
að nýju fyrir skipulags- og bygg-
inganefnd, en hefur ekki enn verið
samþykkt.
Breyting á aðal-
skipulagi samþykkt
Á fundi nefndarinnar í gær var
hins vegar samþykkt breyting á að-
alskipulagi sem felur í sér að lóð-
arreiturinn verður skipulagður und-
ir íbúðarbyggð en ekki stofnanir
eins og eldra aðalskipulag sýndi.
„Staða lóðareigendanna er sterk,
þar sem þeir eru með staðfest deili-
skipulag í höndunum,“ segir Árni
Þór. Hann segir eigendurna því geta
farið í skaðabótamál verði deili-
skipulagstillagan ekki samþykkt.
„Núna hef ég verið að fara yfir
þær athugasemdir sem bárust með
lóðareigendum og sjá hvort hægt sé
að koma til móts við sjónarmið
þeirra sem lögðu fram athugasemd-
ir. Í þessar viðræður er ekki komin
niðurstaða ennþá.“
Árni Þór segist ekki þekkja til
þess að fordæmi séu fyrir skaða-
bótamáli í þessa veru í Reykjavík.
NÝTT stjórnskipulag á sviði umhverfis- og
tæknimála og skipulags- og byggingarmála
tók gildi hjá Reykjavíkurborg um áramótin.
Morgunblaðið greindi frá nýju skipuriti
skipulags- og byggingarsviðs á laugardag og
kom þar fram að undir það fellur embætti
byggingarfulltrúa. Að öðru leyti munu þær
deildir sem áður féllu undir embætti borg-
arverkfræðings falla undir hið nýja umhverf-
is- og tæknisvið en sviðsstjóri þess er Stefán
Hermannsson borgarverkfræðingur.
Þrjár stofur starfa á umhverfis- og tækni-
sviði eftir breytingarnar. Gatnamálastofa,
Fasteignastofa og Umhverfis- og heilbrigð-
isstofa. Gatnamálastofa hefur með höndum
þau verkefni sem gatnadeild hafði áður að
undanskilinni sorphirðu. Sigurður I. Skarp-
héðinsson gatnamálastjóri veitir stofunni
forstöðu.
Fasteignastofa mun sjá um nýbyggingu
húsa vegna starfsemi borgarinnar, breyting-
ar og endurbætur auk þess sem hún tekur á
árinu að sér rekstur fasteigna borgarinnar.
Það er Guðmundur Pálmi Kristinsson verk-
fræðingur sem er forstöðumaður Fasteigna-
stofu.
Umhverfis- og heilbrigðisstofa mun ann-
ast umhverfismál, náttúruvernd og Staðar-
dagskrá 21 en forverar stofunnar eru garð-
yrkjudeild, hreinsunardeild og
Heilbrigðiseftirlitið. Ellý K. Guðmundsdóttir
lögfræðingur er forstöðumaður stofunnar.
Þá er stofnuð Verkfræðistofa innan um-
hverfis- og tæknisviðs auk þess sem stofn-
aður hefur verið sérstakur sjóður, Skipulags-
sjóður sem mun annast kaup og sölu
fasteigna, lóða og landa af skipulagsástæð-
um.
Nýtt stjórn-
skipulag um-
hverfis- og
tæknimála
Reykjavík BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
úthluta Sambíóunum byggingar-
rétti fyrir kvikmyndahús í Spöng-
inni.
Stærð lóðarinnar er um það bil
9.000 fermetrar og er söluverð
byggingarréttarins áætlað rúmar
32,4 milljónir króna.
Í bréfi skrifstofustjóra borgar-
verkfræðings er athygli vakin á því
að stærð og lega lóðarinnar geti
breyst og verður endanlega útlistuð
á mæliblaði. Þá er gerð sérstök
krafa um snyrtilega umgengni um
lóðina vegna staðsetningar hennar.
Sambíóin
fá lóð við
Spöngina
Grafarvogur
BORGARRÁÐ samþykkti í vikunni
að taka tilboði Barnasmiðjunnar ehf.
í leiktæki sem sett verða upp í borg-
inni á árunum 2002-2004. Leiktækin
á að setja upp á leikskólalóðum, við
grunnskóla og á opnum leiksvæðum
borgarinnar.
Tíu tilboð bárust í útboðinu og var
tilboð Barnasmiðjunnar næstlægst.
Hljóðaði það upp á 33,4 milljónir
króna eða um 98 prósent af kostn-
aðaráætlun. Lægsta tilboðið átti
Barnagaman ehf. og nam það 29,6
milljónum króna sem var um 87 pró-
sent af kostnaðaráætlun.
Í bréfi gatnamálastjóra til stjórn-
ar Innkaupastofnunar segir að við
skoðun hafi komið í ljós að þau leik-
tæki, sem Barnagaman býður,
standist ekki þær kröfur sem út-
boðsgögn gerðu ráð fyrir. Þá hafi
ekki verið sýnt fram á að framleiðsla
fyrirtækisins muni standast þær
kröfur.
Leiktæki fyrir 33 milljónir
Reykjavík