Morgunblaðið - 17.01.2002, Blaðsíða 26
ERLENT
26 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSALA
20-70%
afsláttur
Ný og góð tilboð!
Kringlan ● 533 5150
PER Kristian Orderud, einn
fjögurra sakborninga í einu
mest umtalaða morðmáli í
sögu Noregs, var yfirheyrður
fyrir áfrýjunarrétti í Lille-
strøm í gær og fyrradag og
viðurkenndi að hafa borið
ljúgvitni og falsað undirskrift
föður síns á þrjú mikilvæg
skjöl.
Per Orderud, eiginkona
hans, Veronica, og systir
hennar, Kristin Kirkemo
Haukeland, voru dæmd í 21
árs fangelsi í júní í fyrra fyrir
að hafa myrt foreldra og syst-
ur Pers í maí 1999. Fjórði
sakborningurinn, Lars
Grønnerød, var dæmdur í
tveggja og hálfs árs fangelsi
fyrir aðild að morðunum.
Þau voru einnig sökuð um
að hafa reynt að ráða systur
Pers, Anne Orderud Paust, af
dögum með því að koma fyrir
sprengju undir bíl hennar
sumarið 1998. Hún var einka-
ritari þáverandi varnarmála-
ráðherra Noregs og var í
fyrstu talið að sprengjutilræð-
ið og morðin væru pólitísks
eðlis. Héraðsdómur taldi hins
vegar sannað að morðin hefðu
verið framin vegna deilu um
framtíð búgarðs föður Pers,
Kristians Orderuds, sem var
81 árs að aldri þegar hann
var myrtur á Orderud-býlinu,
skammt fyrir norðan Ósló.
Per vildi eignast búgarðinn
og allar byggingar hans en
faðir hans mun hafa viljað
skipta eigninni milli sonar
síns og dóttur. Per viður-
kenndi við yfirheyrslu fyrir
áfrýjunarréttinum í fyrradag,
þegar saksóknarar þjörmuðu
að honum, að hann hefði borið
ljúgvitni fyrir héraðsdómi og
falsað undirskrift föður síns á
kaupsamning og tvö önnur
skjöl sem tengdust kaupum
hans á búgarðinum. Per og
eiginkona hans höfðu haldið
því fram við fyrri réttarhöldin
að faðir hans hefði undirritað
kaupsamninginn.
Per Orderud hélt því enn
fram fyrir áfrýjunarréttinum
í gær að faðir sinn hefði und-
irritað afsalsbréf vegna söl-
unnar á búgarðinum í júlí
1996. Faðirinn hafði hins veg-
ar neitað því að hann hefði
undirritað skjalið.
Fær ekki að vitna um
trúverðugleika
Gísli Guðjónsson réttarsál-
fræðingur hlýddi á framburð
Pers Orderuds fyrir áfrýjun-
arréttinum. Verjandi Veron-
icu Orderud hafði fengið Gísla
til að leggja mat á trúverð-
ugleika hjónanna og hefur
stefnt honum fyrir réttinn
sem vitni. Gísli fær þó aðeins
að ræða almennt um persónu-
einkenni sakborninga sem
ljúga eða segja satt og má
ekki tjá sig sérstaklega um
trúverðugleika framburðar
hjónanna.
Verjendur annarra sak-
borninga höfðu lagst gegn því
að Gísli fengi að vitna um
framburð hjónanna. Norski
fréttavefurinn Nettavisen
hafði í gær eftir Gísla að hann
skildi ekki hvers vegna vitn-
isburður sinn væri svo um-
deildur í Noregi og hann
hefði aldrei staðið frammi fyr-
ir slíku vandamáli í öðrum
löndum.
Gert er ráð fyrir því að
réttarhöldunum ljúki í lok
mars. Norskir fjölmiðlar
fylgjast grannt með réttar-
höldunum og verjandi Veron-
icu Orderud sakaði þá um að
hafa dregið upp ranga mynd
af málinu og dæmt hjónin sek
fyrirfram.
Norskir saksóknarar þjarma að sakborningi í Orderud-morðmálinu
Játar að hafa borið
ljúgvitni og falsað skjöl
Veronica Orderud, til hægri, yfirgefur dómshúsið í fylgd lögfræðings síns eftir að
hafa verið dæmd í tuttugu og eins árs fangelsi í júní í fyrra.
Reuters
ÝMSIR hagfræðingar hafa að undan-
förnu lagt að stjórnvöldum í Hong
Kong að hætta að binda gengi Hong
Kong-dollarans við gengi Bandaríkja-
dollara en aðrir vara við afleiðingun-
um, til dæmis miklum fjármagns-
flótta. Í Egyptalandi er nú verið að
kanna hvort rétt sé að afnema teng-
ingu egypska pundsins við Banda-
ríkjadollara og miða gengið heldur við
svokallaða gjaldmiðlakörfu.
Í kjölfar þjóðargjaldþrotsins í Arg-
entínu hafa verið miklar umræður um
bindingu eins gjaldmiðils við annan,
oftast nær við Bandaríkjadollara, en
þannig hefur það verið í Hong Kong í
18 ár. Ein af afleiðingunum er sú, að
samkeppnisstaða fyrirtækja þar hef-
ur versnað mikið eftir því sem gengi
dollarans hefur hækkað og það hefur
aftur leitt til vaxandi flótta fram-
leiðslufyrirtækja yfir til Suður-Kína.
Vegna þess hafa ýmsir hagfræðingar
í Hong Kong og í Suðaustur-Asíu
hvatt til, að gengisbindingunni við
Bandaríkjadollara verði hætt.
Frank Martin, formaður banda-
ríska verslunarráðsins í Hong Kong,
varaði hins vegar við afnámi gengis-
bindingarinnar í gær og sagði, að það
myndi leiða til vaxtahækkunar, að
minnsta kosti um tíma. Þá kvaðst
hann óttast, að það myndi leiða til
mikils fjármagnsflótta frá krúnuný-
lendunni fyrrverandi. Yfirvöld í Hong
Kong ítrekuðu líka í gær, að engin
breyting yrði á gengisfyrirkomulag-
inu og sögðu, að samanburður við
Argentínu væri út í hött. Þar væru
menn að kikna undir erlendum skuld-
um en í Hong Kong væru þær ekki
aðeins engar, heldur væru til um
30.000 milljarðar ísl. kr. í varasjóði.
Gjaldmiðlakarfa
Í Egyptalandi hefur gengi punds-
ins verið bundið dollaranum en þrátt
fyrir það hefur það verið fellt veru-
lega síðastliðið ár. Í janúar í fyrra
fengust 3,40 pund fyrir dollarann en
4,51 nú og á svarta markaðinum 5,25
pund. Vegna þessarar þróunar og
þrenginganna í efnahagslífinu eru
stjórnvöld nú að athuga hvort réttara
sé að miða gengið við meðalgengi
nokkurra annarra gjaldmiðla, svo-
kallaða gjaldmiðlakörfu. Er búist við
ákvörðun um það fljótlega.
Gengisstefn-
an í Hong
Kong óbreytt
Hong Kong, Kaíró. AFP.
GRÆNFRIÐUNGAR sökuðu Jap-
ani í gær um að hafa varið 320
milljónum dollara, rúmlega 32
milljörðum ísl. króna, til að kaupa
atkvæði í Alþjóðahvalveiðiráðinu í
því skyni að tryggja sér rétt til að
hefja aftur hvalveiðar í atvinnu-
skyni.
Fulltrúar Greenpeace lögðu
ásakanir sínar fram á frétta-
mannafundi sem þeir héldu um
borð í skipi sínu í Melbourne í
Ástralíu, en þangað komu þeir í
gær. Hafa þeir undanfarnar sex
vikur elt japanska hvalveiðiflotann
á ferðum hans um Suðurhöf.
„Á sama tíma og mikill vandi
steðjar að japönskum efnahag sól-
undar ríkisstjórn okkar milljörðum
jena til þess að fá umheiminn til að
samþykkja að hvalveiðar verði
hafnar að nýju,“ sagði Uko Hir-
ono, einn af fulltrúum Greenpeace.
„Japan ætti ekki að vera að beita
slíkum örþrifaráðum til að ná fram
vilja sínum. Hver einasti íbúi Jap-
ans borgar fyrir þessa baráttu en
veit ekki einu sinni af því,“ bætti
hann við.
Búnir að tryggja
sér 10 atkvæði
Grænfriðungar segja að eftir-
grennslan þeirra hafi leitt í ljós að
á síðasta ári einu og sér hafi Jap-
anir eytt meira en 47 milljónum
Bandaríkjadollara til að kaupa at-
kvæði sex landa og að staðan sé
nú sú að þeir hafi tryggt sér at-
kvæði tíu þjóða, er sæti eiga í Al-
þjóðahvalveiðiráðinu, við þá hug-
mynd að hvalveiðar verði hafnar
að nýju.
Segja þeir að yfirvöld sjávarút-
vegsmála lýsi greiðslunum sem
„styrkjum til sjávarútvegsmála“
en að forsætisráðherra Antigua og
Barbuda hafi viðurkennt að tekið
hafi verið við peningunum gegn
því að eyjarnar greiddu atkvæði
með Japönum í málum er varða
hvalveiðar.
Grænfriðungar saka Japani um mútur
Segja þá kaupa
sér stuðning
við hvalveiðar
Melbourne. AFP.
SKÓLUM í Englandi verða
veitt aukin völd til þess að grípa
til aðgerða gegn nemendum er
sífellt beita ofbeldi og nemend-
um sem bera hættuleg vopn.
Greint er frá þessu á vefsíðu
BBC í gær.
Nýjar viðmiðunarreglur sem
menntamálaráðherra Bret-
lands, Estelle Morris, mun
kynna í næstu viku eiga að gera
yfirkennurum auðveldara um
vik að bregðast fljótar við og
vísa umræddum nemendum úr
skóla, segir BBC. Samtök kenn-
ara hafi löngum kvartað yfir því,
að samkvæmt núverandi aga-
reglum sé of erfitt að reka nem-
endur og áfrýjunarnefndir
þvingi kennarana oft til að
hleypa aftur í skólann nemend-
um sem hafi verið reknir.
Doug McAvoy, framkvæmda-
stjóri Kennarasamtaka Bret-
lands, fagnaði fyrirhugaðri
breytingu, segir BBC ennfrem-
ur. Samtökin hafi nýverið gert
könnun er sýni að yfir 80%
kennara telji að slæm hegðun
nemenda sé mikið vandamál.
„Agaleysi er stór þáttur í því
hvers vegna mjög margir kenn-
arar hætta í faginu eftir skamm-
an tíma,“ sagði McAvoy.
Breskir skólar
Auðveld-
ara að reka
nemendur