Morgunblaðið - 17.01.2002, Blaðsíða 54
DAGBÓK
54 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Tapað/fundið
Sundbolur og
tölvuúr töpuðust
NÝR Speedo-sundbolur,
dökkblár, nr. 128, tapað-
ist í Hafnarfirði í lok des-
ember 2001.
Nike-tölvuúr, svart,
tapaðist sunnudaginn 6.
janúar sl. í eða við Há-
skólabíó eða í eða við
Kentucky Fried Chicken í
Faxafeni.
Fundarlaun.
Þeir sem geta veitt ein-
hverjar upplýsingar um
framangreint vinsamleg-
ast hafið samband við
Hildi í síma 899-0415.
Paul og Shark-
trefill tapaðist
STÓR svartur Paul og
Shark-trefill tapaðist fyr-
ir um það bil viku á Vest-
urgötu eða í Hafnar-
stræti. Skilvís finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 552-
0064 eða 862-8215. Trefill-
inn er eigandanum mikils
virði.
Dýrahald
Lítill gári í óskilum
MÁNUDAGINN 14. jan-
úar sl. flaug lítill gulur og
grænn gári inn um glugga
í Ástúni í Kópavogi. Eig-
andi getur vitjað hans í
síma 567-4730.
Víkverji skrifar...
Á MÁNUDAGINN kom í ljós aðneysluverðsvísitala hækkaði
mun meira í síðasta mánuði en vonast
hafði verið eftir. Verðbólga á síðasta
ári var tæplega 10% sem er mesta
verðbólga sem mælst hefur í meira en
áratug. Víkverji finnur það eins og
aðrir að verðlag hefur verið að
hækka. Ekki fer t.d. milli mála að
matarreikningur fjölskyldunnar hef-
ur hækkað um þúsundir króna á mán-
uði að undanförnu. Ekki fer heldur
milli mála að ýmis opinber þjónusta
hefur hækkað í verði. Afborganir af
húsnæðislánum hafa einnig hækkað
umtalsvert. Víkverji vonar að þeim
sem stýra efnahagsmálum þjóðarinn-
ar auðnist að halda verðbólgunni í
skefjum.
x x x
FJÁRMÁLARÁÐHERRA sagði ífjölmiðlum að það vekti athygli
sína hvað hátt verð á vínberjum ætti
stóran þátt í hækkun á neysluverðs-
vísitölu í janúar. Víkverji fjallaði um
vínberjaverð fyrir nokkrum dögum,
en verslanir hafa verið að bjóða vín-
ber á 1.300 kr. kílóið. Þetta verð er
ótrúlegt, en vínber voru lengst af síð-
asta árs seld á um 600 krónur kílóið í
meðaldýrum verslunum.
Nýlega heyrði Víkverji frá konu
sem dvelst í Ungverjalandi og hún
upplýsti hann um að vínberjakílóið í
Ungverjalandi kostaði 59 krónur.
Verðlag í Ungverjalandi er lágt, en
þessi verðmunur getur samt ekki tal-
ist eðlilegur.
Víkverji borðar að jafnaði mikið af
vínberjum enda eru vínber einstak-
lega bragðgóð fæða, en fyrir nokkr-
um vikum þurrkaði hann þau alger-
lega út af innkaupalista sínum. Það
eru viss takmörk fyrir því hvað hægt
er að láta yfir sig ganga.
x x x
ALLTAF verður Víkverji jafnpirraður á því þegar ferðaskrif-
stofur eru að auglýsa verð á utan-
landsferðum sem er miklu lægra en
það sem raunverulega er í boði. Í vik-
unni auglýsti ferðaskrifstofa ferðir til
Alicante á Spáni og í auglýsingunni
kom fram að hjón með tvö börn á
aldrinum 2–11 ára þyrftu að borga
27.400 krónur fyrir manninn. Í smá-
letrinu kom reyndar fram að til við-
bótar þyrfti að borga 2.950 krónur í
skatta þannig að verðið var í raun
30.350 krónur fyrir manninn. Vík-
verja fannst ekki ósanngjarnt að
borga 120 þúsund krónur fyrir fjöl-
skylduferð til Spánar og hringdi fimm
dögum eftir að auglýsingin birtist í
ferðaskrifstofuna. Þá kom hins vegar
í ljós að ferðin til Alicante kostaði
182.020 fyrir fjölskylduna, eða 45.000
krónur fyrir manninn. Sölumaðurinn
gaf þá skýringu á þessum mikla mun
frá auglýstu verði að uppselt væri í
flugvélina og að ekki hefðu náðst jafn-
hagstæðir samningar um sölu í nýja
vél. Víkverja fannst ótrúlegt að þessi
skýring ein og sér gæti skýrt þennan
mikla mun frá auglýstu verði.
Víkverji vorkennir sölumönnum
ferðaskrifstofanna að þurfa að út-
skýra fyrir viðskiptavinum að þeir
geti ekki fengið keyptar ferðir á aug-
lýstu verði, en ákvörðun um þessar
auglýsingar er augljóslega tekin af
stjórnendum fyrirtækjanna sem ekki
þurfa að mæta viðskiptavinunum
dagsdaglega. Víkverji lærði í barn-
æsku að það væri ljótt að plata, en
það er augljóst að stjórnendur sumra
ferðaskrifstofanna hafa aldrei lært
þessa speki til fulls.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
LÁRÉTT:
1 peningur, 4 bál, 7 spak-
ur, 8 virtum, 9 sár, 11
dýrs, 13 skordýr, 14
lokka, 15 stæk, 17 nöldur,
20 op, 22 kaka, 23 viður-
kennir, 24 byggja, 25
hími.
LÓÐRÉTT:
1 koma auga á, 2 skottið,
3 mögru, 4 volæði, 5
blunda, 6 kveðskapur, 10
starfsvilji, 12 beita, 13
ambátt, 15 biskupshúfa,
16 ómerkileg manneskja,
18 endurtakið, 19 girð-
ing, 20 vegur, 21 skaði.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 fastsetja, 8 endar, 9 illur, 10 afl, 11 Spánn, 13
laust, 15 flots, 18 hregg, 21 kýr, 22 ómaga, 23 örðug, 24
harðindin.
Lóðrétt: 2 andrá, 3 tæran, 4 Egill, 5 jullu, 6 meis, 7 hrút,
12 nýt, 14 aur, 15 Frón, 16 okana, 17 skarð, 18 hrönn, 19
eyðni, 20 gegn.
K r o s s g á t a
MEÐ grein þessari viljum
við koma á framfæri til
fólks sem eiga ungbörn
sem hafa átt við svefn-
vandamál að etja, jafnvel
allt frá fæðingu, að til er
lækning við þessu vanda-
máli. Í maí sl. eignuðumst
við litla prinsessu. Fljót-
lega eftir að hún fæddist
kom í ljós að hún var
mjög ákveðin og vildi
ráða ferðinni. Fyrstu þrír
mánuðirnir voru eins og
til er ætlast af litlum
börnum. Hún svaf á milli
gjafa og allt var eðlilegt.
En á fjórða mánuði fór að
bera á stuttum svefni hjá
henni sem lýsti sér þann-
ig að hún sofnaði eftir
kvöldmat fyrir nóttina en
vaknaði síðan eftir einn
og hálfan til tvo tíma og
var að því alla nóttina.
Hún heimtaði brjóstið og/
eða að það yrði gengið
með sig um gólf þar til
hún sofnaði aftur. Því
öðruvísi var bara stans-
laus grátur. Svona gekk
þetta alla nóttina. Hún
vaknaði 3–5 sinnum á
nóttu og náði aldrei sín-
um djúpa svefni sem við
öll þurfum að fá. Svona
gekk þetta fyrir sig í þrjá
mánuði og sumir í fjöl-
skyldunni voru farnir að
snúa sólarhringnum við
og sofa á daginn til þess
að fá sína hvíld. Við sáum
að þetta gat ekki gengið
lengur svona. Fyrir eig-
um við tvö börn og áður
en maður vissi voru allir í
fjölskyldunni farnir að
sussa ef eitthvert hljóð
heyrðist eftir kl. 20 á
kvöldin til þess að raska
ekki svefni þeirrar
yngstu og ákváðum við að
gera eitthvað í þessu ef
hægt væri.
Mamman hafði af-
spurnir af grein sem
hafði birst í Morg-
unblaðinu um barnasvefn-
fræðing sem tæki á svona
málum og starfaði á
Borgarspítalanum. Við
komum okkur í samband
við Örnu Skúladóttur,
sem síðan breytti þessum
andvökunóttum okkar
svo um munaði. Hún gaf
okkur tíma á Borgarspít-
alanum í lok nóvember.
Þá var farið yfir stöðuna,
svefn barnsins og fleira
og hún setti okkur fyrir
hvað skyldi gera í fyrstu,
að kenna henni að sofa.
Vikan leið en engin
breyting varð á hennar
svefni. Sú litla hélt sínu
striki og var ekkert tilbú-
in að gera neinar breyt-
ingar. Í flestum tilfellum
átti að vera komið lag á
svefn hennar, en sú litla
sýndi óvenju mikla
þrjósku. Svo Arna setti
upp enn ákveðnara pró-
gramm, sem oftast, að
hennar sögn, gengur eft-
ir. Mamman svaf í öðru
herbergi og pabbinn tók
völdin. Svo leið önnur
vika og komið var fram í
desember og engin breyt-
ing. Við tókum þessu
mjög alvarlega, fylgdum
öllu eftir sem Arna hafði
sett okkur fyrir, en sú
litla hélt fast í þá þjón-
ustu sem hún hafði fengið
áður. Eftir þriðja tímann
hjá Örnu dró til tíðinda.
Þá var okkur ráðlagt að
setja hana í sérherbergi.
Fjórða vikan í okkar pró-
grammi skipti sköpum og
olli umskiptum á svefni
hennar. Í dag sefur hún
sína 10–12 tíma á nóttu
og uppskárum við árang-
ur erfiðis okkar. Vonumst
við til að aðrir sem eiga
við svipað vandamál að
glíma geti haft not af
þessari grein okkar.
Að lokum viljum við
hjónin og sú litla þakka
henni Örnu Skúladóttur
fyrir aðstoð hennar í
gegnum þennan feril því
að ef hennar hefði ekki
notið við teljum við að
svefninn væri enn að hrjá
okkur.
Þúsund þakkir,
Margrét og fjölskylda.
Ungbörn með svefnvandamál
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Mánafoss og Laugarnes
koma í dag. Arnarfell
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Brúarfoss fór í gær.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 10
vinnustofa og boccia,
vinnustofa og mynd-
mennt. Þorrablót verð-
ur haldið föstudaginn 1.
febrúar, húsið opnað kl.
18 með fordrykk, þorra-
hlaðborð, borðhald
hefst kl. 18.30 gestur
kvöldsins Ingibj. Sólrún
borgarstjóri. Flosi
Ólafsson flytur gaman-
mál. Karlakvartett
syngur, Hjördís Geirs
leikur fyrir dansi, að-
gangsmiði gildir sem
happdrætti. Skráning í
Aflagranda s. 562-2571,
fyrir miðvikudaginn 30.
janúar. Allir velkomnir.
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta, opin
handavinnustofan, bók-
band og öskjugerð, kl.
9.45–10 helgistund, kl.
10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13–16.30 opin
smíðastofan. Allar upp-
lýsingar í s. 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
8.30–14.30 böðun, kl. 9–
9.45 leikfimi, kl. 9–12
myndlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 14 dans.
Þorrablót verður föstu-
daginn 1. febrúar.
Þorrahlaðborð hefst kl.
17, salurinn opnaður kl.
16.30. Skráning í s. 568-
5052 fyrir föstudaginn
1. febrúar.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi,
ætla að hittast í dag á
Korpúlfsstöðum kl. 10.
Kaffistofan er opin. All-
ir velkomnir. Nánari
upplýsingar veitir Þrá-
inn Hafsteinsson í s.
5454-500.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið
Hlaðhömrum er á
þriðju- og fimmtudög-
um kl. 13–16.30, spil og
föndur. Jóga á föstudög-
um kl. 13.30. Kóræfing-
ar hjá Vorboðum, kór
eldri borgara í Mos-
fellsbæ á Hlaðhömrum
fimmtudaga kl. 17–19.
Púttkennsla í íþrótta-
húsinu á sunnudögum
kl.11. Jóga hefst kl. 11
föstudaginn 18. janúar.
Uppl. hjá Svanhildi í s.
586-8014 kl. 13-16.
Félagsstarf aldraðra
Dalbraut 18–20. Kl. 9–
12 aðstoð við böðun, kl.
9–16.45 hárgreiðslustof-
an opin, kl. 9–13 handa-
vinnustofan opin, kl.
9.30 danskennsla, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna, kl. 15
bingó.
Félag eldri borgara
Kópavogi, bingó spilað í
Gullsmára 13, föstudag-
inn 19 janúar kl. 14.
Félag eldri borgara í
Garðabæ. Félagsfund-
ur verður í Kirkjuhvoli í
dag kl. 14. Formaður
flytur stutt yfirlit yfir
starf félagsins. Bene-
dikt Davíðsson formað-
ur Landssambands
eldri borgara ræðir um
greiðslur frá Trygg-
ingastofnun ríkisins og
skattlagningu lífeyris-
greiðslna. Guðmundur
H. Garðarsson fyrrv.
alþingismaður flytur
erindi um lífeyrissjóði.
Félagar eru hvattir til
að mæta á fundinn.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Fimmtud. kl.
9. vinnuhópur gler, kl.
9.45 boccia, kl. 12.15
spænska, kl. 13 postu-
línsmálun, kl. 14. málun
Fótaaðgerðarstofan er
opin kl 9-14. Föst. kl. 9
snyrtinámskeið kl. 11
dans. Nokkur pláss laus
í postulínsmálun og tré-
smíði. Skráning á
þorrablótið sem fyrst
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Pútt í Bæjarútgerð kl
10–11:30 og boccia kl.
13.30 Á morgun föstu-
dag . Myndlist kl 13 og
bridge kl. 13:30. Sælu-
dagar á Örkinni 3. - 8.
mars. Þorrablót félags-
ins verður í Hraunseli
laugard. 26. jan. kl 19.
Skráning í Hraunseli s.
555 0142. Sækja þarf
miðana mánud. 21.
jan.kl. 13–16.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Kaffistofan
opin virka daga frá kl.
10–13. Kaffi, blöðin og
matur í hádegi. Brids
kl. 13. Brids fyrir byrj-
endur hefst í febrúar.
Stjórn Ólafur Lárus-
son. Silfurlínan er opin
á mánu- og miðvikudög-
um kl. 10–12. Skrifstof-
an er flutt að Faxafeni
12 sama símanúmer og
áður. Félagsstarfið er
áfram í Ásgarði
Glæsibæ. Uppl. á skrif-
stofu FEB. kl. 10–16
s.588-2111.
Félagsstarfið Furu-
gerði 1. Kl. 9 aðstoð við
böðun, smíðar og út-
skurður, leirmunagerð
og glerskurðarnám-
skeið, kl. 9.45 verslun-
arferð í Austurver, kl.
13.30 boccia. Á morgun
föstudag verður messa,
prestur sr. Ólafur Jó-
hannsson, Furugerð-
iskórinn syngur undir
stjórn Ingunnar Guð-
mundsdóttur.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30
glerskurður, kl. 9–13
hárgreiðsla, kl. 9–16
böðun, kl. 10 leikfimi,
kl. 15.15 dans. Opið alla
sunnudaga frá kl. 14–
16, blöðin og kaffi.
Gerðuberg, félagsstarf.
Sund- og leikfimiæfing-
ar í Breiðholtslaug kl.
9.30, kl. 10.30 helgi-
stund umsjón Lilja G
Hallgrímsdóttir djákni í
Fella- og Hólakirkju,
súpa og salatbar í há-
deginu í veitingabúð, frá
hádegi, vinnustofur og
spilasalur opin. Upplýs-
ingar um starfsemina á
staðnum og í síma 575-
7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9–15 handavinnu-
stofan opin, leiðbeinandi
á staðnum, kl. 9.05 leik-
fimi 1, kl. 9.50 leikfimi 2,
kl. 9.30 klippimyndir, kl.
13 gler og postulínsmál-
un og rammavefnaður,
kl. 16.20 og kl. 17.15.
kínversk leikfimi, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans. Uppl. í síma
554-3400.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 og kl. 10 jóga,
kl. 9.15 postulínsmálun,
kl. 13 brids, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum,
kl. 17 línudans.
Hraunbær 105. Kl. 9 op-
in vinnustofa, búta-
saumur, kortagerð og
perlusaumur, kl. 9.45
boccia, kl. 14 félagsvist.
Lausir tímar í postulíns-
málun, skráning í síma
587-2888.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl. 13
handavinna, kl. 14 fé-
lagsvist. Hársnyrting
og fótsnyrting.
Norðurbrún 1. Kl. 9 tré-
skurður og opin vinnu-
stofa, kl. 10–11 ganga,
kl. 10–15 leirmunagerð.
Vesturgata 7. Kl. 9.15–
12 aðstoð við böðun, kl.
9.15–15.30 handavinna,
kl. 10 boccia, kl. 13–14
leikfimi, kl. 13–16 kór-
æfing, kl. 17–20 leirmót-
un. Þorrablót verður
fimmtud. 7. febrúar.
Húsið opnað kl. 17.
Skráning í s. 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smíði og
hárgr., kl. 9.30 gler-
skurður og morgun-
stund, kl. 10 fótaaðgerð-
ir og boccia, kl. 13
handmennt og spil, kl.
14 leikfimi.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digranes-
kirkju.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila að Gull-
smára 13 mánu- og
fimmtud. Skráning kl.
12,45. Spil hefst kl. 13.
Sjálfsbjörg, félagsheim-
ilið Hátúni 12. Kl. 19 tafl
í Rauða sal.
Sjálfboðamiðstöð
Rauða krossins, Hverf-
isgötu 105. Kl. 13-16
prjónað fyrir hjálpar-
þurfi erlendis. Efni á
staðnum.
Félag áhugafólks um
íþróttir aldraðra, leik-
fimi kl. 11 í Bláa salnum.
Kvenfélag Breiðholts,
Kvenfélag Seljasóknar
og Fjallkonurnar. Sam-
eiginlegur fundur allra
kvenfélaga í Breiðholti
verður í kvöld klukkan
20. Fundurinn verður
haldinn í Safnaðarsal
Breiðholtskirkju. Ath.
breyttan fundardag.
Í dag er fimmtudagur, 17. janúar,
17. dagur ársins 2002 Antóníus-
messa. Orð dagsins: Legg kapp á að
reynast hæfur fyrir Guði sem verka-
maður, er ekki þarf að skammast sín
og fer rétt með orð sannleikans.
(II.Tím. 2, 15.)