Morgunblaðið - 17.01.2002, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MIKIÐ fjölmenni var á hinni ár-
legu þrettándahátíð á Selfossi sem
fram fór á laugardagskvöld. Hátíð-
inni var frestað á þrettándanum
vegna slæms veðurútlits og óhag-
stæðrar vindáttar. Hátíðin hófst
með blysför frá Tryggvaskála í
miðbæ Selfoss og var gengið til
íþróttavallarins þar sem kveikt var
í myndarlegum bálkesti. Að vanda
báru jólasveinar kyndla í göngunni
en fyrir henni fór skreyttur vagn
með fylgiliði jólasveinanna.
Fjöldi fólks tók þátt í göngunni
og fylgdist með brennunni og flug-
eldasýningunni á íþróttavellinum.
Flugeldasýningin fékk mjög góðar
viðtökur gesta enda tignarleg sem
fyrr. Jólasveinarnir kveiktu í bál-
kestinum og fóru síðan um meðal
gesta til þess að kasta kveðju á
börnin eins og jólasveinar úr Ing-
ólfsfjalli gera en þeir fara ekki til
fjalla fyrr en að lokinni þrett-
ándagleðinni á Selfossi.
Þrettándagleðin er eitt af sam-
starfsverkefnum Ungmennafélags
Selfoss og sveitarfélagsins Árborg-
ar.
Morgunblaðið/Sig. Jónss.
Jólasveinalið Selfoss í þann mund sem sveinarnir kveiktu í bálkestinum.
Fjölmenn
síðbúin
þrettánda-
hátíð
Selfoss
KAFFI- og veitingahúsið Vivaldi var
opnað á þrettándanum, í húsnæði við
Brúartorg sem áður hýsti verslunina
Borgarsport. Eigendur eru hjónin
Hafsteinn Sævarsson og Halldóra
Bergsdóttir en þau eru aðflutt í
Borgarnes. Tildrög þess að þau fóru
út í reksturinn var að Hafsteinn út-
skrifaðist sl. vor sem rekstrarfræð-
ingur frá Bifröst og hefur ekki geng-
ið nógu vel að fá vinnu á Vesturlandi.
„Þar sem okkur líkar svo vel að
búa í Borgarnesi vildum við reyna til
þrautar að fá vinnu og ákváðum að
opna kaffihús, því okkur fannst það
vanta. Svona rekstur er líka það sem
við þekkjum best því Hafsteinn er
framreiðslumaður og ég hef unnið
við þjónustu í mörg ár,“ segir Hall-
dóra en hún er jafnframt í rekstr-
arnámi á Bifröst.
„Þegar húsnæðið þarna losnaði
stukkum við um leið til og fengum
leigt. Þetta er alveg kjörið húsnæði á
frábærum stað, en það þurfti samt
sem áður að gera ýmislegt, svo sem
að útbúa eldhús, bæta við snyrtingu,
mála o.fl. Þetta hefði ekki verið hægt
nema af því að við vorum með hóp af
frábærum iðnaðarmönnum og kunn-
um við þeim bestu þakkir fyrir.“
Í Vivaldi er lögð áhersla á létta
rétti, dálítið í mexíkanskri línu, í
bland við alvöru hamborgara (150 g)
og pastarétti. Kaffi og meðlæti er á
boðstólum auk áfengis. Reynt er að
stilla verði í hóf en ekkert á matseðl-
inum kostar yfir þúsund krónur. Op-
ið er frá kl. 11 til 23 og til 1 á föstu-
dags- og laugardagskvöldum.
Aðspurð sagði Halldóra að viðtök-
urnar væru frábærar og framar
þeirra björtustu vonum, en Borgnes-
ingar og nærsveitamenn hafa fjöl-
mennt þessa fyrstu daga sem sýnir
kannski þörfina fyrir kaffihús í
Borgarnesi. ,,Ef framtíðin verður
eins og viðtökurnar hafa verið þá er
engu að kvíða.“
Halldóra vill ennfremur hvetja
listamenn sem vilja koma sér á fram-
færi, t.d. tónlistarmenn eða mynd-
listarmenn, að hafa samband því að
þeir eru velkomnir að hafa uppákom-
ur. Heimasíða Vivaldi verður opnuð
á næstunni og slóðin er http://
www.vivaldi.is.
Nýtt kaffi-
og veitinga-
hús opnað
Morgunblaðið/Guðrún Vala
Halldóra Bergsdóttir og Hafsteinn Sævarsson.
Borgarnes
FUNDUR var haldinn í Félagslundi
á Reyðarfirði, laugardaginn 12. jan-
úar, að frumkvæði SSA, STAR og
Þróunarstofu Austurlands. Þar
kynnti umhverfisráðherra Siv Frið-
leifsdóttir og fylgdarlið úr ráðuneyt-
inu úrskurð vegna Kárahnjúkavirkj-
unar. Sýndar voru myndir og farið
yfir úrskurðinn og þau 20 skilyrði
sem sett voru. Að kynningu lokinni
voru fyrirspurnir úr sal.
Fyrirspurnir komu um hreindýr
og afdrif þeirra, hækkun yfirborðs
Lagarfljóts, jarðvegsrof við Hálslón,
framkvæmdir almennt, hvar yrði
tekin sú orka sem ekki fæst með
smáveitunum sem bannaðar voru,
lögbann, málssóknir o.fl. Fengu
fundarmenn greinargóð svör við
öllu sem þeim lá á hjarta. Rúmlega
100 manns sátu fundinn og var al-
menn ánægja með framsögu um-
hverfisráðherra og málefnalegar
umræður.
Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir
Spurt um hreindýr
og afdrif þeirra
Reyðarfjörður
Úrskurður vegna Kárahnjúka-
virkjunar kynntur
Í BYRJUN þessa árs var undirrit-
aður samningur um leigu á félags-
heimilinu á Skildi í Helgafellsveit.
Það er Agnar Jónasson í Stykkis-
hólmi sem leigir húsið til næstu 5 ára
af sveitarfélaginu. Agnar er ekki
ókunnugur á þessu svæði, því hann
er alinn upp á Kóngsbakka í sömu
sveit.
Agnar ætlar að vera með ferða-
þjónustu á Skildi yfir sumartímann
og leigja húsið út til skemmtana-
halds á vetrum. Hann hefur látið út-
búa tjaldsvæði sem verður tilbúið í
sumar. Boðið verður upp á svefn-
pokapláss í félagsheimilinu og morg-
unmat.
Núverandi félagsheimili á Skildi
var tekið í notkun árið 1980. Þaðan
er um 10 kílómetra leið niður í
Stykkishólm. Agnar segir að aðstað-
an bjóði upp á góða kosti til að
mynda fyrir afmæli, starfsmanna-
ferðir og ættarmót. Hann er bjart-
sýnn á reksturinn komi til með að
standa undir sér og í sumar má búast
við mikilli umferð ferðamanna. Ung-
lingalandsmót UMFÍ verður haldið í
Stykkishólmi um verslunarmanna-
helgina og ef Keikó kemur í Hólminn
mun margir leggja leið sína til að
skoða hann.
Agnar hefur rekið tjaldvagnaleigu
í tvö sumur og gengið vel. Í fyrra-
sumar var hann með 6 vagna til leigu
og það dugði ekki til svo að hann
fjölgar um 2 næsta sumar.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Agnar Jónasson og Brynjar Hildibrandsson, oddviti Helgafellssveitar,
fyrir framan félagsheimilið á Skildi sem Agnar hefur tekið á leigu.
Félagsheimilið
Skjöldur leigt
Stykkishólmur
ÍRIS Sæmundsdóttir
var kjörin íþróttamað-
ur ársins 2001 í Vest-
mannaeyjum.
Íris er vel að kjörinu
komin en hún er einn af
máttarstólpum ÍBV-
liðsins í kvennaknatt-
spyrnu sem kom svo
skemmtilega á óvart sl.
keppninstímabil með
glæsilegum árangri. Þá
er hún einnig fasta-
maður í kvennalands-
liðinu í knattspyrnu.
Íþróttamaður
ársins valinn
Vestmannaeyjar
Morgunblaðið/Sigurgeir