Morgunblaðið - 17.01.2002, Page 51

Morgunblaðið - 17.01.2002, Page 51
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 51 - er þekkt fyrir rannsóknir á snyrtivörum og rannsóknirnar halda áfram með frábærum árangri. PROFUTURA 2000 byltingarkennda kremið kemur núna léttara í gel form PROFUTURA 2000 Gel með bylting- arkenndum eiginleikum. NANOPART 2000 flytur ceramidið dýpra í epiderm- is lög húðarinnar, það er fullt af A og E vítamínum og áhrifarik virknin dregur úr hrukkum og fínum línum. Á sama tíma kemur hið áhrifaríka Anti A.G.E Comp- le og hægir á öldrun húðarinnar. Ár- angurinn verður einstakur með notkun PROFUTURA 2000 krem eða gel, húðin verður yngri, mýkri, teygjanlegri og stinnari. - Og fyrir nóttina PROFUTURA 2000 Late Performance næturkrem. Yfir daginn verður húðin fyrir gífurlegu áreiti, stress, níkótin og önnur utanað- komandi efni sitja á húðinni og ganga inn í hana. Afleiðingin er sú að húðin verður föl og þreytuleg. Að auki verður húðin þrútin vegna þess að hún nær ekki að endur- nýja sig og losa sig við úrgangsefnin. Þegar þetta heldur áfram verður húðin slöpp og hrukkótt. Þennan úrgang verðum við ákveðið að losa okkur við, þannig að húðin endur- nýist og ljómi aftur þegar að við vökn- um. GLÆSILEG TASKA AÐ GJÖF ÞEGAR KEYPT ERU TVÖ KREM FRÁ MARBERT Kynning fimmtud. 17. og föstud. 18. janúar Aðrir útsölustaðir Libia Mjódd, Nana, Hólagarði, Laugarnes Apótek, Snyrtivörudeild Hagkaups Kringlunni, Skeifunni, Smáratorgi, Spönginni, Snyrtistofa Hönnu Kristínar, Zitas Hafnafirði, Árnes Apótek, Selfossi, Apótek Vestmannaeyja, Gallery Förðun, Keflavík, Húsavíkurapótek. Snyrtivörudeild Hagkaups, Akureyri, Silfurtorg, Ísafirði. www.forval.is MARBERT Mjödd, sími 587 0203 ÚTSALA - ÚTSALA 35-50% afsláttur efni í allan fatnað                      Laugavegi 71, sími 551 0424 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Ragnari Kristni Kristjánssyni sveppabónda, f.h. Flúðasveppa ehf.: „Vegna fréttaflutnings í fjölmiðlum um að brotið hafi verið á réttindum verkafólks hjá Flúðasveppum er rétt að eftirfarandi staðreyndir komi fram: Frá því Flúðasveppir tóku til starfa fyrir 18 árum hefur sveppatínslufólk fengið greitt tímakaup fyrir vinnu sína. Sveppatínsla er uppskeruvinna sem fer eftir magni og uppskerutíma hverju sinni. Unnið er 4 til 11 tíma á dag. Yfirleitt er mest að gera við sveppatínslu um miðja vikuna en minnst á mánudögum og föstudögum. Þar til í desember síðastliðnum höfðu engar athugasemdir verið gerðar af hálfu verkalýðsfélagsins við fyrirkomulag sveppatínslunnar þau 18 ár sem Flúðasveppir hafa starfað. Flúðasveppum barst bréf frá Verkalýðsfélaginu Bárunni Þór á Sel- fossi hinn 20. desember 2001. Þar var bent á að núverandi fyrirkomulag á ráðningum starfsmanna kynni að stangast á við lög um ráðningarsamn- inga. Flúðasveppir lýstu þegar yfir vilja sínum um úrbætur. Samdægurs var haft samband við ráðgjafa til að vinna að lausn málsins í samvinnu við verkalýðsfélagið. Misskilningur Haft er eftir formanni verkalýðs- félagsins á Selfossi í fjölmiðlum að svo virðist sem Flúðasveppir hafi ekki staðið við ákvæði kjarasamninga og ráðningarsamninga um samfellda vinnu og föst dagvinnulaun. Hér er um augljósan misskilning að ræða. Sveppatínsla býður ekki upp á sam- fellda vinnu frá 9 til 5, ekkert frekar en heyskapur eða fiskvinnsla. Verka- lýðsfélaginu er kunnugt um þetta, jafnt og sveppatínslufólkinu. Þeir sem ráðnir eru til starfa við sveppa- tínslu eru upplýstir fyrirfram um fyr- irkomulag vinnutímans. Starfsfólkið ræður sig upp á þau kjör að vinnutíminn getur verið mis- jafnlega langur eftir dögum vikunn- ar, en aldrei er unnið lengur en til kl. 20. Til að vega á móti breytilegum vinnutíma greiða Flúðasveppir um 30% hærri dagvinnulaun en tíðkast í almennum kjarasamningum verka- fólks. Meðalvinnutímafjöldi hvers starfsmanns við sveppatínslu var árið 2001 um 174 tímar á mánuði, eða um 40 tímar á viku. Samkvæmt skilgrein- ingu ASÍ er fullt starf 173 klukku- tímar á mánuði. Skáldskapur og dylgjur Vera má að það fyrirkomulag sem ríkt hefur milli Flúðasveppa og sveppatínslufólks síðastliðin 18 ár uppfylli ekki nýjar og strangar kröfur um orðalag kjarasamninga. Það rétt- lætir samt ekki þann ógeðfellda skáldskap og dylgjur sem fram hafa komið í fjölmiðlum í gær og í dag. Þar er sagt að svindlað sé á erlendu starfsfólki, grunur leiki á að brotið sé á því með alvarlegum hætti og það búi við slæman aðbúnað og háa húsa- leigu. Þá er einnig dylgjað um að ein- hverjir þessara verkamanna hafi ekki atvinnuleyfi. Ekkert er hæft í þessu. Erlendu starfsmennirnir hafa gengið inn í nákvæmlega sömu kjör og Íslendingar hafa búið við í tæpa tvo áratugi. Þeir eru í fullu starfi og hafa talsvert hærri laun en bjóðast með almennum kjarasamningum. Meðalmánaðarlaun sveppatínslufólks árið 2001 voru rúmlega 128 þús. kr. fyrir 40 stunda vinnuviku. Greiðslur fyrir innlenda sem erlenda starfs- menn Flúðasveppa á borð við orlof, desemberuppbót, veikindadaga, rauða daga og lífeyrisgreiðslur eru inntar af hendi í samræmi við al- menna kjarasamninga. Atvinnuleyfi hafa ávallt verið til staðar. Góður að- búnaður starfsfólks Á það má jafnframt benda að að- búnaður fyrir starfsfólk Flúðasveppa er til mikillar fyrirmyndar og á vart sinn líka hér á landi. Á vinnustað er öll hefðbundin að- staða. Til viðbótar er starfsmannahús Flúðasveppa ávallt opið starfsmönn- um og fjölskyldum þeirra. Þar er nuddpottur, gufubað, líkamsræktar- aðstaða og sólbekkur. Auk þess er þar rúmgóð arinstofa með heimabíói og öðrum þægindum. Þar stendur starfsfólki til boða að halda sam- kvæmi og hafa þar verið haldnar af- mælisveislur og brúðkaupsveislur. Erlenda starfsfólkið býr í vönduðu og rúmgóðu leiguhúsnæði á Flúðum. Húsaleiga er frá 10 til 15 þús. kr. á mánuði. Í leigunni er innifalin aðstaða til þvotta, öll húsgögn, eldhúsáhöld, rafmagn og hiti.“ Út í hött að brotið sé á erlendu starfsfólki ATVINNA mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.