Morgunblaðið - 17.01.2002, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JANÚAR 2002 59
Kl. 8. Vit 326Sýnd kl. 8 og 10.
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
Sýnd kl. 10.15. Vit 319
1/2
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
strik.is
MBL
Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 8. Vit327
Sýnd kl. 6. Ísl tal Vit 320
Sýnd kl. 5. Íslenskt tal Vit 307
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit 329
betra en nýtt
Sýnd kl.10.Síðasta sýning
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
Ævintýrið lifnar við
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
Nýr og glæsilegur salur
Sýnd kl. 5.45 og 9.
Sýnd kl. 6
HJ MBL ÓHT Rás 2
DV
Forsýnd kl. 8.
FORSÝNING
Dúndrandi gott
snakk með
dúndrandi góðri
gamanmynd
MAGNAÐ
BÍÓ
Sýnd kl. 8 og 10.10.Sýnd kl. 8.
Ævintýrið lifnar við
„Besta mynd ársins“ SV. MBL.
„Þvílík bíóveisla“ HVS Fbl
DV
Mbl
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
Stórverslun á netinu www.skifan.is
Sýnd kl. 4 og 6.
www.laugarasbio.is
„Þvílík bíóveisla“
HVS Fbl
HK. DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
„Besta mynd ársins“
SV Mbl
i ir.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i 12 ára Forsýnd kl. 8.
HJ. MBL.
FORSÝNING
Dúndrandi gott
snakk með
dúndrandi góðri
gamanmynd
ÁKVEÐIÐ hefur verið að hætta sýning-
um á söngleiknum Cats eftir Andrew
Lloyd Webber í maí en þá hefur söng-
leikurinn verið á fjölunum í West End í
Lundúnum í 21 ár samfellt. Alls hafa 8
milljónir manna séð söngleikinn í borg-
inni og tekjur af aðgöngumiðasölu nema
um 20 milljörðum króna. Söngleikurinn
hefur verið sýndur í yfir 300 borgum í 26
löndum og talið er að um 50 milljónir
manna um allan heim hafi séð hann.
Cats var á Broadway í New York í tæpa
tvo áratugi áður en sýningum var hætt í
september árið 2000. Kunnasta lagið úr
söngleiknum er „Memory“, sem hefur
verið leikið rúmlega 2 milljón sinnum í
bandarískum útvarpsstöðvum.
Söngleikir Lloyds Webbers hafa notið
gífurlegra vinsælda og t.d. var sýningum
á söngleik hans Starlight Express hætt
á laugardag eftir að hann hafði verið sýndur í
Lundúnum í 18 ár. Langlífasta sýning sögunnar
er hinsvegar The Fantasticks en sýningum á
honum lauk einmitt á dögunum eftir 42 ár og
urðu sýningar alls 17.162.
Aðsókn að West End-leikhúsunum ku hafa
dregist mjög saman í kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum.
Reuters
Kattakveðjur
S
jó
na
rs
vi
pt
ir
í
sö
ng
le
ik
ja
he
im
in
u
m Cats kveður
West End
GAMLI sjóræningjarokkarinn Adam Ant var
færður með valdi inn á spítala eftir að hafa
verið handtekinn af lögreglu í annað sinn á
tveimur dögum.
Um helgina hirtu
verðir laganna hann
eftir að hann hafði
ógnað gestum og
gangandi með skot-
vopni en slepptu hon-
um úr haldi. Nú á
mánudagskvöldið
hafði lögreglan síðan
aftur hendur í hári
Adams, þar sem
hann var staddur í
Camden Town í
Lundúnum, eftir að
hafa fengið veður af
manni sem gæti hæglega valdið sjálfum sér og
öðrum skaða með hegðan sinni.
Hinn 47 ára gamli „maur“, sem heitir réttu
nafni Stuart Goddard, var fluttur í snarhasti á
nærliggjandi spítala þar sem hann var vist-
aður með valdi og getur skv. lögum verið í
haldi í 28 daga á meðan læknar rannsaka líð-
an hans.
Söngvarinn hefur þegar látið skoðanir sín-
ar í ljós opinberlega vegna þessara aðgerða
lögregluyfirvalda og fullyrðir í samtali við
götublaðið The Sun að hann sé ekki genginn
af göflunum.
Blaðið segir að hann hafi haft samband frá
spítalanum og upplýst blaðamann um að hann
hafi verið lagður inn á „Lísu í Undralandi-
deildina“ því að „þeir“ haldi að hann sé veill á
geði. Hann kvaðst hins vegar vera „fórnar-
lamb í samsæri“ og hafa „enn og aftur verið
numinn á brott af lögreglunni“.
Það rennir þó stoðum undir réttmæti þess-
ara aðgerða lögreglunnar að Goddard við-
urkenndi ekki alls fyrir löngu að hann hefði
lengi háð harða og erfiða baráttu við geð-
hvarfasýki. Það kemur líka fram á opinberri
heimasíðu kappans, adam-ant.net, að það hafi
í reynd verið fjölskylda hans og nánir vinir
sem gerðu lögreglunni viðvart um ástand
hans og lögðu til að hann yrði sviptur frelsi
svo að hægt væri að koma honum undir lækn-
ishendur. Auk þess er fréttaflutningur The
Sun af málinu sagður rangur. Ant vilji koma á
framfæri að hann telji sig alls ekki hafa verið
beittan harðræði af lögreglunni og hann hafi
aldrei látið hafa eftir sér að um „samsæri“
væri að ræða.
Goddard á að mæta fyrir rétt á föstudaginn
vegna kærunnar sem lögð var fram í kjölfar
fyrri handtökunnar en læknar eiga eftir að
ákvarða hvort hann hefur heilsu til þess.
Nú er því alls óvíst hvort Adam Ant getur
framfylgt áformum sínum en þau voru að
koma tónlistarferli sínum á fullan skrið að
nýju og fara í tónleikaferð þar sem stefnan
var að dusta rykið af gömlum góðum lögum á
borð við „Stand and Deliver“, „Prince Charm-
ing“, „Ant Music“, „Goody Two Shoes“ o.fl.
Adam Ant andlega vanheill?
Adam Ant
MJAÐMASVEIFLARINN gamal-
kunni Shakin’ Stevens, sem söng sig
inn í hjörtu Elvis-þyrstra með lögum
á borð við Green Door, You Drive Me
Crazy og Oh Julie, hefur verið svipt-
ur ökuréttindum í tvö ár vegna ölv-
unaraksturs.
Stebbi hristingur, eins og hérlend-
ir gárungar áttu til að kalla hann, var
gripinn glóðvolgur á nýársdag er
lögreglan stöðvaði bifreið hans og
komst að raun um að þar sæti undir
stýri ofurölvi uppgjafa poppstjarna.
Stebbi, sem átti hvorki meira né
minna en 38 smelli á níunda áratugn-
um, var handtekinn samstundis og
síðan kærður eftir að hafa verið í
varðhaldi í nokkrar klukkustundir.
Shakin’ var færður til bókar undir
sínu rétta nafni, Michael Barratt.
Barratt fæddist í Cardiff í Wales
árið 1948 og er einhver allra sigur-
sælasti tónlistarmaður sem þaðan
hefur komið, en hann kom fjórum
lögum á topp breska vinsældalistans.
Shakin’ sneri aftur eftir alllanga
fjarveru árið 1999 og fór í tónleika-
ferð um Bandaríkin og Evrópu.
Hann söng síðan fyrir 100 þúsund
gesti í heimaborg sinni á útitónleik-
um sem haldnir voru á síðasta degi
liðinnar aldar.
Nei, þessi mynd var ekki tekin
umræddan nýársdag.
Stebbi hristingur
missir bílprófið