Morgunblaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 59
Guðni Ágústsson,
landbúnaðarráðherra,
boðar til opins fundar
um stöðu sauðfjárræktar
í félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli,
mánudaginn 11. mars kl. 20:30.
Landbúnaðarráðuneytið.
OPINN FUNDUR UM
SAUÐFJÁRRÆKT
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5
d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6.
Bd3 Rc6 7. O-O Be7 8. c4
Rb4 9. Be2 O-O 10. a3 Rc6
11. cxd5 Dxd5 12. Rc3
Rxc3 13. bxc3 Bf5 14. He1
Hfe8 15. Bf4 Hac8 16. c4
De4 17. Be3 Bf6 18. Ha2
b6 19. h3 Ra5 20. g4 Bg6
21. g5 Be7 22. Re5 Bd6 23.
Rxg6 hxg6 24. c5
Bf8 25. Bg4 Hcd8
26. Hae2 Dd5 27.
Bf4 Hxe2 28. Dxe2
c6 29. Bc7 Ha8 30.
De5 Dxe5 31.
Hxe5 Rc4
Staðan kom upp
á ofurmótinu í
Linares. Garry
Kasparov (2838),
hvítt, sýndi klærn-
ar sínar gegn
Michael Adams
(2742). 32. d5!!
Rxe5 33. Bxe5
cxd5 34. c6 Þótt ótrúlegt
megi virðast þá fær ekkert
stöðvað c-peð hvíts. 34...f5
35. gxf6 gxf6 36. Be6+
Kg7 37. Bg3 Bxa3 38.
Bxd5 Hc8 39. c7 Bc5 40.
Bb7 Hxc7 41. Bxc7 a5 42.
Bc6 g5 43. Kf1 Kg6 44. f3
Kh5 45. Be8+ Kh6 46. Ke2
f5 47. Bd8 og svartur gafst
upp. 2. umferð Reykjavík-
urmótsins hefst kl. 17.00 í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Áhorfendur eru velkomnir.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 59
DAGBÓK
LJÓÐABROT
STÖKUR
Enn þá Kári óður hvín,
æðir sjár á löndin,
ógnar bára yfir gín,
er í sárum ströndin.
Sortinn bægir sólu frá,
saman snæinn rekur.
Út á sæinn ýtar gá,
ef að lægja tekur.
Alt er hljótt um svalan sjó,
senn er nóttin liðin.
Út við Gróttu gjálpin þó
glepur óttufriðinn.
Karl H. Bjarnason
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú hefur verulegt aðdrátt-
arafl og nýtur vinsælda fyrir
vikið. Innsæið er gott en við-
kvæmnin mikil. Vísindi
heilla þig.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Forðastu rifrildi um stjórnmál
eða heimspekileg málefni því
allir eru nokkuð ofsafengnir í
skoðunum sínum í dag.
Freistaðu fremur að stilla til
friðar.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Eftirgjöf er eitthvað sem ætl-
ast er til af þér í dag, líklega
vegna einhvers sem þú deilir
með öðrum.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Togstreita við valdhafana er
nánast óumflýjanleg í dag. Því
skaltu forðast erfið mál og
halda þig frá viðkvæmum að-
ilum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Yfirmaður kann að reyna að
taka spón úr aski þínum í dag.
Þér finnst sem verið sé að ræna
þig en það er ekkert við því að
gera.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Átök um peninga og sameigin-
lega hluti við börn eða ástmann
eða -konu gætu átt sér stað í
dag. Víktu til hliðar, dragðu
djúpt andann og hafðu í huga
að þetta snýst ekki um að
„sigra“.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Til átaka getur komið milli þín
og fjölskyldumeðlims í dag.
Reiði hefur þó engan annan til-
gang en gera alla leiða og
flækja málin enn frekar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Sýndu sérstaka varúð í um-
ferðinni, hvort sem þú ekur,
gengur eða hjólar. Einhver
slysahætta vofir yfir en hún
verður ekki að veruleika nema
vegna flýtis, gremju eða hvat-
vísi.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ágreiningur um peninga kann
að rísa í dag. Ef til vill eru fjár-
munir ekki kjarni málsins held-
ur hver geti knúið sitt fram.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Einhver kann að fleygja ein-
hverju sem þú átt. Auðvitað
gleður það þig ekki, en reyndu
fyrst og fremst að komast að
ástæðunni fyrir því að það var
gert.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Sýndu þolinmæði í umgengni
við aðra því þér hættir til að
vera borginmannlegur í dag.
Frekjan fær engu áorkað nema
að minna menn á hvar hún
blundar.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Einhver reynir að fá þig ofan af
því að verja peningunum eins
og þér finnst best að gera.
Sýndu þolinmæði og umburð-
arlyndi gagnvart þessu í dag,
það er fyrir bestu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er hætt við að þú bíðir
lægri hlut ef þú reynir að
standa uppi í hárinu á þeim
sem eru ofar settir. Bíttu frek-
ar á jaxlinn og bíddu eftir betra
tækifæri í framtíðinni til að ná
þínu fram.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnað heilla
80 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 8. mars,
er áttræð Valgerður Mar-
grét Valgeirsdóttir, Lauta-
smára 1, Kópavogi. Hún
verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
BRIDS var sýningaríþrótt
á vetrarólympíuleikunum í
Salt Lake City í síðasta
mánuði, en það er liður í
þeim áformum Alþjóða-
bridssambandsins að fá
spilið metið sem ólympíska
íþrótt. Keppt var í þremur
flokkum: karla, kvenna og
ungmenna. Kanadamenn
unnu karlaflokkinn, Frakk-
ar kvennaflokkinn, en sveit-
ir frá Evrópu og Bandaríkj-
unum urðu efstar og jafnar
í flokki ungmenna.
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ ÁDG
♥ 86
♦ 93
♣ÁKG1042
Vestur Austur
♠ 107532 ♠ K64
♥ G543 ♥ 102
♦ 1042 ♦ G87
♣8 ♣97653
Suður
♠ 98
♥ ÁKD97
♦ ÁKD65
♣D
Tíu þjóðir hófu þátttöku í
karla- og kvennaflokki.
Fyrst var spiluð einföld
umferð af stuttum leikjum,
en fjórar efstu sveitirnar úr
þeirri viðureign spiluðu síð-
an 48 spila útsláttarleiki. Í
karlaflokki unnu Kanada-
menn Pólverja í úrslita-
leiknum, en höfðu áður lagt
stórsveit Ítala. Ítalir end-
uðu í þriðja sæti eftir sigur
á Norðmönnum.
Spilið að ofan kom upp í
fyrsta áfanga keppninnar
og skóp stóra sveiflu í leik
Bandaríkjanna og Kanada.
Bandaríkjamennirnir Nick-
ell og Freeman sögðu sjö
lauf á spil NS. Suður var
sagnhafi eftir sterka opnun
á tveimur laufum og vestur
hitti á spaða út. Sagnhafi
tók með ásnum og lagði svo
niður laufás í þeirri von að
laufið skilaði sér. En svo
var ekki og slemman fór
einn niður.
Á hinu borðinu sögðu
Kanadamennirnir Silver og
Gitelman sjö grönd gegn
Bercowitc og Cohen:
Vestur Norður Austur Suður
Berkow. Silver Cohen Gitelman
– – Pass 2 lauf *
Pass 3 lauf Pass 3 hjörtu
Pass 4 lauf Pass 4 tíglar
Pass 4 spaðar Pass 5 lauf
Pass 5 spaðar Pass 5 grönd
Pass 7 grönd Allir pass
Opnunin á tveimur lauf-
um er sterk (alkrafa), en
aðrar sagnir eru nokkurn
veginn eðlilegar. Gitelman
fékk út spaða. Hann tók á
ásinn og fór strax í rauðu
litina, tók þrjá efstu í
hjarta og tígli. Þegar annar
liturinn brotnaði 3-3 var
nóg að fá fjóra slagi á lauf.
Spilið var á hættunni og gaf
því Kanadamönnum 20
IMPa.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
Með morgunkaffinu
Þetta kemur! Það tekur smá
æfingu að læra þetta.
Vaknaðu herra minn!!
Þeir frá skattinum vilja
tala við þig.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesend-
um sínum að kostnað-
arlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmæl-
istilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Garðatorgi, sími 565 6550
Nýkomnir
útijakkar
Fimm gerðir - Verð frá kr. 9.998
LÆKNALIND
Bæjarlind 12, 201 Kópavogur
Sími 520 3600
Almenn læknisþjónusta og heilsuvernd
Vaktþjónusta 08-18, virka daga
Sverrir Jónsson, heimilislæknir
50 ÁRA afmæli. Nk.mánudag, 11. mars,
er fimmtug Sólveig Péturs-
dóttir, dóms- og kirkju-
málaráðherra, Bjarmalandi
18, Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Kristinn Björns-
son, forstjóri Skeljungs hf.
Í tilefni af afmælinu verða
þau með móttöku í gamla
Sjálfstæðishúsinu við Aust-
urvöll á morgun, laugardag-
inn 9. mars, milli kl. 17 og 20.
Konan mín er
orðin einhvað
málhölt. Hún
dregur alltaf í
sig veðrið áð-
ur en hún opn-
ar munninn.