Morgunblaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 1
56. TBL. 90. ÁRG. FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 8. MARS 2002
STJÓRN George W. Bush Banda-
ríkjaforseta kynnti í gær drög að
reglum sem auka eiga persónulega
ábyrgð stjórnenda í fyrirtækjum og
tryggja hluthöfum betri upplýsingar
um stöðu rekstrarins. „Ráðamenn í
fyrirtækjum ættu ekki að hafa leyfi
til að eiga leynileg viðskipti með
hlutabréf í fyrirtækjum sínum,“
sagði forsetinn. Bush leggur til að
reglur verði skýrari og refsingar við
brotum á þeim hertar og vill að
stjórnendur verði látnir endurgreiða
fé sem þeir hafa fengið vegna samn-
inga um afkomutengdar auka-
greiðslur ef í ljós komi að greiðsl-
urnar hafi byggst á villandi upp-
lýsingum þeirra um afkomuna.
Forsetinn hyggst, að sögn Harvey
Pitts, yfirmanns bandaríska fjár-
málaeftirlitsins (SEC), sjá til þess að
ráðamenn fyrirtækja taki sjálfir á
sig ábyrgð á því að upplýsingar sem
veittar eru um fjármálalega stöðu
fyrirtækisins séu sannleikanum
samkvæmar. Ef hugmyndirnar
verða samþykktar verður stjórnend-
um gert skylt að skýra fjármálaeft-
irlitinu frá kaupum á hlutafé í eigin
fyrirtækjum „til að hagnast sjálfir“
ekki síðar en tveim dögum eftir að
þau eru gerð en fresturinn er nú 40
dagar. Forsetinn vill að ráðamenn
sem „augljóst er að hafa misnotað“
valdastöðu sína í fyrirtæki fái ekki
oftar að gegna slíku starfi.
Ekki er ljóst hvort nýju reglurnar
myndu hafa áhrif á mál stjórnenda
orkufyrirtækisins Enron en gjald-
þrot þess fyrir skömmu er hið
stærsta í sögu landsins. Ráðamenn
Enron fengu samanlagt hundruð
milljóna dollara í aukagreiðslur í
fyrra en fyrirtækið hrundi í desem-
ber. Stjórn Bush fékk á sínum tíma
ráðgjöf hjá ráðamönnum Enron við
að móta stefnu sína í orkumálum en
neitar að birta opinberlega upplýs-
ingar um viðræðurnar.
„Kröfur samviskunnar“
Um er að ræða áætlun í tíu liðum
og meðal annars kveðið á um að sett
verði á laggirnar sérstök stofnun
undir yfirstjórn SEC til að þróa
staðla um fagleg vinnubrögð í við-
skiptum, skilgreina verksvið og refsa
þeim sem brjóta gegn siðareglum.
Reglur um endurskoðendur verða
hertar og heimild þeirra til að sjá um
endurskoðun og annast ráðgjöf hjá
sama fyrirtæki takmarkaðar.
„Öll hugmyndin að baki frjálsu
markaðshagkerfi byggist á því að
frjálsir menn taki ábyrgð á gerðum
sínum,“ sagði Bush. „Kaupsýslu-
menn mega ekki einvörðungu láta
kröfur markaðarins eða eigin hags-
muni ráða heldur einnig kröfur sam-
viskunnar.“
Bush vill auka
ábyrgð forstjóra
Washington. AP, AFP.
Stjórnendur
endurgreiði
illa fengnar
aukagreiðslur
FIMMTÁN ára gamall Palest-
ínudrengur, Saed Speih, sem ísr-
aelskir hermenn skutu til bana í
þorpinu Al Khader skammt frá
Betlehem í vikunni, var jarðsettur í
gær. Sést líkfylgdin hér við sund-
urskotnar stöðvar öryggissveita
Palestínustjórnar í Betlehem.
Að minnsta kosti 13 Palest-
ínumenn féllu í átökum við Ísraela í
gær og hafa nú alls tæplega 1.400
manns, aðallega Palestínumenn,
fallið síðan uppreisnin hófst haustið
2000. George W. Bush Bandaríkja-
forseti ákvað í gærkvöldi að senda
sáttasemjara sinn, Anthony Zinni, á
ný til Miðausturlanda í næstu viku
til að reyna að stöðva ofbeldið og
koma á friðarviðræðum. Forsetinn
skýrði frá þessu á blaðamannafundi
í Hvíta húsinu í gær og voru þeir
Dick Cheney varaforseti og Colin
Powell utanríkisráðherra með hon-
um á fundinum.
Reuters
Líkfylgd í Betlehem
ÍRAR höfnuðu naumlega í þjóðarat-
kvæðagreiðslu breytingu á stjórnar-
skrá sem falið hefði í sér hertar regl-
ur um fóstureyðingar. 50,42% kjós-
enda voru breytingunni andsnúin en
49,58 henni hlynnt. Kosningaþátt-
taka var aðeins 43%.
Bertie Ahern, forsætisráðherra
Írlands, lýsti í gær vonbrigðum sín-
um með úrslitin en efnt var til at-
kvæðagreiðslunnar á miðvikudag að
frumkvæði stjórnar hans.
„Ég er vonsvikinn en ég er lýð-
ræðissinni. Þetta er niðurstaða þjóð-
arinnar,“ sagði Ahern við blaðamenn
í Dublin. Athygli vakti að mikill mun-
ur var á afstöðu í þéttbýli og dreif-
býli en íbúar Dublin og nágranna-
sveita – sem eru um þriðjungur íbúa
Írlands – voru eindregið á móti
breytingunni.
Þjóðaratkvæðagreiðslan átti ræt-
ur að rekja til umdeilds hæstarétt-
ardóms sem féll árið 1992. Þar heim-
ilaði dómstóllinn 14 ára gamalli
stúlku, sem nefnd var X, að ferðast
til Englands í því skyni að fara í fóst-
ureyðingu en hætta var talin á því að
hún myndi ella fremja sjálfsmorð.
Varð X þunguð eftir að hafa verið
nauðgað af vini fjölskyldunnar.
Stjórnarskrárbreytingin, sem nú
var lögð til, fól í sér að úrskurði
hæstaréttar frá 1992 hefði í raun
verið hnekkt, þ.e. sjálfsmorðshug-
leiðingar móður hefðu ekki talist við-
unandi réttlæting fóstureyðingar.
Fóstureyðingar
Írar
höfnuðu
hertri
löggjöf
Dublin. AP, AFP.
FRAMLEIÐNI í bandarískum
fyrirtækjum jókst um 5,2% á síð-
asta fjórðungi liðins árs. Kemur
það fram í endurskoðuðum hagtöl-
um, sem birtar voru í gær. Aukn-
ingin er sú mesta í hálft annað ár
og verulega meiri en spáð var. Með
framleiðni er átt við framleiðslu á
hverja unna stund.
Aukningin var 1,2% en vinnu-
stundum fækkaði hins vegar um
3,8%. Þá minnkaði vinnuaflskostn-
aður um 2,3%.
Alan Greenspan seðlabanka-
stjóri sagði að allt benti til, að nýtt
hagvaxtarskeið væri að hefjast, og
hefur hann ekki verið jafn bjart-
sýnn á framvinduna um alllangt
skeið. Hann varaði þó við óraun-
hæfum vonum og sagði almenning
ekki hafa mikið svigrúm til að auka
neysluna frá því, sem nú væri.
Vaxtarskeið á ný?
Washington. AFP.
NEFND, sem skipuð var af ríkis-
stjórninni og þjóðkirkjunni í Nor-
egi, hefur lagt til, að ríki og kirkja
verði aðskilin. Til þess þarf að
breyta stjórnarskrá og staðfesta
breytinguna. Af aðskilnaði gæti því
í fyrsta lagi orðið eftir nokkur ár.
Sextán af 17 mönnum í svokall-
aðri Bakkevig-nefnd lögðu til, að
ríki og kirkja, sem hafa verið í einni
sæng frá árinu 1537, yrðu aðskilin
og þjóðkirkjunni ekki gert hærra
undir höfði en öðrum trúfélögum.
Í áliti nefndarinnar segir, að fjár-
útvegun og allar ákvarðanir innan
kirkjunnar og annarra trúfélaga
eigi að vera í höndum safnaðarins
en á síðustu árum hefur stundum
slegið í brýnu milli kirkjunnar og
ríkisvaldsins. Það hefur borið allan
kostnað af rekstrinum og hefur
haft síðasta orðið um embættaveit-
ingar. Fyrir tveimur árum gekk
ríkisstjórnin til dæmis í berhögg við
vilja kirkjunnar og veitti samkyn-
hneigðum manni prestsembætti.
Ríki og
kirkja verði
aðskilin í
Noregi
Ósló. AP.