Morgunblaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 55
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 55
X
Y
Z
E
T
A
/
S
ÍA
Við minnum á áður auglýstan aðalfund Bakkavör
Group hf. vegna starfsársins 2001 sem verður
haldinn í Salnum Tónlistarhúsi Kópavogi,
Hamraborg 6, í dag kl. 17.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til kaupa félagsins á eigin
hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Önnur mál löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur
félagsins ásamt skýrslu stjórnar og endur-
skoðenda mun liggja frammi á skrifstofu
félagsins að Hamraborg 10, 200 Kópavogi,
7 dögum fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent við upphaf fundar.
Atkvæðaréttur hluthafa miðast við stöðu
hluthafaskrár að morgni 8. mars 2002.
Að loknum aðalfundarstörfum verður hluthöfum
boðið upp á léttar veitingar.
Stjórn Bakkavör Group hf.
Bakkavör Group hf. 2002
Aðalfundur
ALLIR kennarar leik- og grunn-
skóla Húnaþings mættu til fræðslu-
fundar að Laugarbakka í Miðfirði
síðasta dag febrúarmánaðar til að
fræðast af Rögnu Freyju Karls-
dóttur, sérkennara um kennslu
barna með ofvirkni.
Fræðslufundurinn er einn af
mörgum í námskeiði sem nefnist
„aukin færni“ og varir fram á sum-
ar. Markmið námskeiðsins er, eins
og nafnið ber með sér, að gera
kennara betur í stakk búna að
mæta misjöfnum þörfum nemenda,
segir í fréttatilkynningu.
Kennarar í
Húnaþingi á
fræðslufundi
Kennarar að loknum árangursríkum degi ásamt leiðbeinanda í anddyri
Laugarbakkaskóla í Miðfirði.
STARFSMANNAFÉLAG Íslenskra
aðalverktaka hf., SÍAV, styrkir
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna, SKB, um 400.000 kr. úr
minningarsjóði Margrétar Haralds-
dóttur, fyrrverandi starfsmanns
bókahaldsdeildar Íslenskra að-
alverktaka. Margrét fæddist 28.
febrúar 1944 en lést af völdum
krabbameins 31. desember 1996.
Styrkir krabbameinssjúk
börn um 400 þúsund krónur
Morgunblaðið/Sverrir
Styrktarfélagi Krabbameinssjúkra barna afhent gjöf frá Íslenskum
aðalverktökum: Bóas Jónsson, Árni Ingi Stefánsson, Rósa Guðbjarts-
dóttir og Þórður Þorbjörnsson.
NÁMSKEIÐ um virðisstjórnun
verður haldið hjá Endurmenntun HÍ
mánudaginn 11. og þriðjudaginn 12.
mars kl. 8.30–12.30.
Farið verður yfir helstu þætti í
rekstri fyrirtækja og athyglinni
beint að því hvernig ná megi raun-
hagnaði með markvissri stjórnun.
Unnið verður með svokölluð virð-
istré til að greina áhrif einstakra
ákvarðana á rekstrarniðurstöðu ein-
inga og heildarinnar. Þá verður farið
í stefnumótun, verðmætasköpun og
samræmingu á stefnu, kerfum og
ferlum í rekstri með það að ná sett-
um markmiðum. Kennari er Hrann-
ar Hólm, ráðgjafi hjá KPMG.
Skráning og frekari upplýsingar
eru á vefsíðunni www.endurmennt-
un.is, segir í fréttatilkynningu.
Námskeið um
virðisstjórnun
GIGTARFÉLAG Íslands stendur
fyrir gönguferð um Laugardalinn
laugardaginn 9. mars kl. 11 og verð-
ur gengið frá húsakynnum félagsins
að Ármúla 5.
Gönguferð um
Laugardalinn
FLÓAMARKAÐUR Lionsklúbbs-
ins Engeyjar verður haldinn laugar-
daginn 9. mars kl. 13–16, í Lions-
heimilinu Sóltúni 20 í Reykjavík.
Öllum ágóða verður varið til líkn-
ar- og menningarmála.
Flóamarkaður
Engeyjar
Opið bréf
Til að fyrirbyggja misskilning vill
Gunnar Guðmundsson frá Heiðar-
brún taka fram, að bréfið sem hann
ritaði í Morgunblaðið sl. miðvikudag,
átti að vera Opið bréf til sveitarstjórn-
ar Rangárvallahrepps og sjálfstæðis-
flokksmanna í Rangárvallasýslu.
LEIÐRÉTT
KOMIN er á markað fjölvítamín-
og steinefnablanda frá Vitabiotics
sem er sérstaklega hönnuð með
þarfir karlmanna í huga.
„Wellman® færir líkamanum öll
helstu vítamín og steinefni sem
hann hefur þörf fyrir auk viðbót-
armagns af ginsengi, amínósýrum,
P vítamíni (bioflavonoids), hvítlauk
o.fl. Magn bætiefnanna hefur verið
hámarkað og sum þeirra er að
finna í stærri skömmtum en ráð-
lagðir dagskammtar gera ráð fyrir
til að stuðla að heilbrigði og við-
halda orkubúskap karlmanna.
Wellman er þróað af læknum og
lyfjafræðingum Vitabiotics en
nefna má að yfirmaður deildarinn-
ar, dr. Arnold Beckett sat í al-
þjóðaólympíunefndinni í rúman
aldarfjórðung.
Wellman® hentar öllum karl-
mönnum frá 16 ára aldri og er fá-
anlegt í 30 daga skömmtum og
fæst í lyfjaverslunum um land allt.
Wellman® er auðvelt í meðförum,
aðeins 1 hylki á dag með máltíð,“
segir í fréttatilkynningu.
Fjölvítamínblanda
fyrir karlmenn
KJÖRDÆMAFÉLAG Samfylking-
arinnar í Reykjavík fjallar um einka-
væðingarferli og stjórnendaábyrgð
laugardag 9. mars kl. 17 í Húsi mál-
arans, Bankastræti 7, 2. hæð. Frum-
mælendur eru Flosi Eiríksson og Jó-
hanna Sigurðardóttir. Umræðuefnið
er einkavæðingin, áform og fram-
gangur, ábyrgð stjórnenda, stjórnar
og stjórnvalda, einkum í tengslum
við Símamálið. Fundurinn er öllum
opinn, segir í fréttatilkynningu.
Einkavæðing og
stjórnenda-
ábyrgð
STAÐLARÁÐ Íslands heldur nám-
skeiðið CE-merking lækningatækja –
Þýðing og mikilvægi CE-merkisins
14. og 15. mars. Námskeiðið er liður í
að auka þekkingu og vitund um CE-
merkið í íslensku viðskiptalífi og
stjórnsýslu, ætlað innflytjendum og
framleiðendum lækningatækja ásamt
starfsfólki í heilbrigðisþjónustu.
Markmið námskeiðsins er að þátt-
takendur þekki grundvallarhug-
myndina að baki CE-merkinu, geti
greint hvort tilteknar vörur til nota á
heilbrigðissviði eigi að bera merkið og
skilji þýðingu CE-merkisins fyrir
lækningatæki sérstaklega.
Námskeiðið hefst 14. mars kl. 13:00
og lýkur um hádegi þann 15. Nám-
skeiðið er haldið hjá Staðlaráði Ís-
lands, Laugavegi 178, Reykjavík.
Nánari upplýsingar og skráning á
heimasíðu Staðlaráðs www.stadlar.is
Verð kr. 28.000. Allt innifalið. Há-
marksfjöldi þátttakenda er 12 manns.
Námskeið um
CE-merkingu
lækningatækja
UNGLINGAMEISTARAMÓT
Reykjavíkur í skák verður laugar-
daginn 9. mars kl. 13 – 17, í Taflfélagi
Reykjavíkur að Faxafeni 12.
Tefldar verða sjö umferðir eftir
Monrad-kerfi með umhugsunartím-
anum 15 mín. á skák. Verðlaun verða
veitt og einnig farandbikar.
Þátttökugjald er kr. 300 fyrir fé-
lagsmenn í Reykjavíkurfélögunum
Taflfélagi Reykjavíkur og Taflfélag-
inu Helli, en kr. 500 fyrir aðra. Mótið
er opið öllum skákmönnum 14 ára og
yngri, segir í fréttatilkynningu.
Unglingameist-
aramót Reykja-
víkur í skák
FÉLAG hjartasjúklinga á Norður-
landi vestra býður gestum og gang-
andi í mælingu á blóðfitu- og blóð-
þrýstingi í Sjálfstæðishúsinu að
Húnabraut 13 á Blönduósi laugar-
daginn 9. mars frá kl 10 – 14 í tilefni
aðalfundar félagsins. Aðalfundur fé-
lagsins hefst síðan sama dag og á
sama stað kl 14.
Auk venjulegra aðalfundarstarfa
mun Helgi Hróðmarsson félags-
málafulltrúi SÍBS kynna SÍBS og
starfsemi þess. Auk þess flytur Þor-
kell Guðbrandsson yfirlæknir erindi
um lífshætti og hjartasjúkdóma, seg-
ir í fréttatilkynningu.
Félag hjartasjúklinga
á Norðurlandi vestra
Aðalfundur á
Blönduósi
Í SAMRÁÐI við sóknarprestinn á
Þingeyri hefur verið stofnaður söfn-
unarreikningur til styrktar fjöl-
skyldu Sófusar Odds Guðmundsson-
ar, sem lést í hörmulegu slysi á
Gemlufallsheiði 1. febrúar sl. Sófus
Oddur lét eftir sig eiginkonu og þrjú
börn á aldrinum sex ára til tvítugs.
Reikningurinn er hjá Sparisjóði
Vestfirðinga, nr. 1128-05-8000, kt.
090960-2969.
Söfnun vegna
banaslyss á
Gemlufallsheiði UNGIR sósíalistar og Vináttufélag
Íslands og Kúbu halda opinn fund
laugardaginn 9. mars kl. 14, á efri
hæð veitingahússins Lækjarbrekku.
Kynning verður á bókinni Í hvirfil-
byl kúbönsku byltingarinnar og frá-
sögn þátttakanda í bókastefnunni í
Havana á Kúbu.
Ræða málefni
Kúbu