Morgunblaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 08.03.2002, Blaðsíða 22
ERLENT 22 FÖSTUDAGUR 8. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ tók áratugi að reisa Búdda- líkneskin miklu í Bamian í Afgan- istan. Það tók talibanana hátt í mánuð að eyðileggja þau. Það var gífurlegt verk að rústa stytturnar og vinnan var svo flókin að fá þurfti erlenda sprengjusérfræð- inga og nokkrir innfæddir Afganar tóku að sér að hanga í köðlum yfir bjargbrún á meðan þeir hjuggu holur fyrir sprengiefni. Að sögn sjónarvotta og þátttak- enda rembdust talibanarnir við kaðla og talíur, eldflaugar, járn- karla, loftpressur, skotvopn og skriðdreka áður en gríðarlegar sprengingar náðu loks að jafna stytturnar við jörðu. „Dag eftir dag reyndu talibanarnir að eyðileggja Búddana, og dag eftir dag stóðu Búddarnir óhaggaðir, sama hvað talibanarnir reyndu,“ sagði Ahmad Hussein, 55 ára, sem búið hefur í Bamian alla sína tíð. Hann kvaðst hafa fylgst með því hvernig stytt- urnar urðu smám saman að engu á 26 dögum í febrúar og mars í fyrra. Höfðu staðið í 1.600 ár Þorpsbúarnir í grennd við stytt- urnar urðu vitni að niðurrifinu og voru neyddir til að vinna við það. Þeir hafa sagt frá því hvernig Búddastytturnar, sem höfðu staðið þarna í um 1.600 ár, létu lengi vel lítið á sjá þrátt fyrir harðar atlögur talibananna. Fyrst voru stytturnar gataðar lítillega með skotum úr fallbyssum og skriðdrekabyssum, en það hafði í raun lítil áhrif. Þá settu talibanarnir röð af sprengjum við fætur stærri styttunnar, sem var um 60 metra há og kölluð Sol- sol, sem þýðir „ár eftir ár“. Spreng- ingarnar tóku bara part af fótunum á líkneskinu, segja þorpsbúar, en eyðilögðu mosku sem byggð hafði verið úr leir og timbri við rætur sandsteinsbjargsins sem líkneskin voru höggvin út úr. Er hér var komið gerðu talib- anarnir sér grein fyrir því að þeir þurftu á hjálp sérfræðinga að halda og kölluðu til tvo pakistanska og tvo arabíska sprengjusérfræðinga sem þorpsbúar segja að al-Qaeda- samtök Osama bin Ladens hafi út- vegað. Það var þá sem nokkrir þorpsbúar voru neyddir til að hanga í köðlum utan í bjarginu við að grafa holur í stytturnar til að koma sprengiefni fyrir. Fólkið sem býr í Bamian-sýslu er af þjóðflokki Hazara og er shíta-múslímir. Það sætti ofsóknum og morðum þegar talibanar, sem eru súnní-múslímir, voru við völd í Afganistan. Kröfðust skilvirkari aðferða Ali Agha, mjósleginn, 28 ára karlmaður, sagðist hafa unnið fyrir hóp talibana er létu hann hanga í köðlum utan í bjargveggnum á meðan hann reyndi að nota felgu- járn, meitla og beitt kúbein til að höggva holu í styttuna. „Mann svimaði í þessari hæð og þeir tos- uðu mann upp og lömdu mann með byssuskeftunum,“ sagði Agha. Honum tókst að gera holu í vinstri öxl minni styttunnar eftir átta klukkustunda vinnu. Pakistanskur sprengjusérfræðingur var látinn síga niður í vönduðu talíukerfi með miklum öryggisbúnaði og kom sprengiefni fyrir í holunni. Allan tímann kom háttsettur embættismaður í talibanastjórninni á staðinn á nokkurra daga fresti. Flogið var með hann þangað í þyrlu. Hann fylgdist með niðurrif- inu og krafðist þess, að taliban- arnir sem stjórnuðu verkinu fyndu skilvirkari leiðir til að rústa stytt- urnar. Sumir þorpsbúar segja að embættismaðurinn hafi verið varn- armálaráðherra talibanastjórn- arinnar, múllann Obaidullah. Segja þeir að hann hafi verið einn af mörgum mikilvægum talib- anaforkólfum sem komu öðru hvoru til að fylgjast með niðurrif- inu og greina æðstu leiðtogum tal- ibanastjórnarinnar í Kabúl og Kandahar frá gangi mála. Það var æðsti trúarleiðtogi talib- ananna, múllann Mohammed Om- ar, sem gaf fyrirskipun um að stytt- urnar skyldu eyðilagðar í febrúar í fyrra. Hann sagði þær vera „skurð- goð“, „falsguði“ og „guði villu- trúarmannanna“, og skírskotaði þar til Hazaranna. Samkvæmt strangri túlkun talibananna á Kór- aninum voru allar myndir af lifandi verum bannaðar. Núna getur að líta tilvitnun í Kóraninn á klettaveggnum þar sem önnur Búddastyttan stóð: „Rétt- lætið kemur í stað óréttlætisins.“ Talibanarnir máluðu þetta á vegg- inn. Stytturnar voru reistar á tíma- bilinu frá þriðju öld til fimmtu ald- ar og voru dæmi um klassískan samruna búddískrar og grískrar listar. Þær voru byggðar áður en Hazarar snerust frá búddatrú til shíta-íslam um miðja níundu öld. Þær stóðu við Silkileiðina, þar sem úlfaldalestir fóru á milli Rómar og Kína, og Búddarnir höfðu staðið af sér atlögur Ghengis Khans og fleiri manna. Möguleikar á endurbyggingu Þorpsbúar í grenndinni segja að þegar talibönunum hafi loksins tekist að jafna stytturnar við jörðu með gífurlegum sprengingum hafi talibanarnir fagnað og strítt Hazörunum. „Þeir sögðu við okkur: Við erum búnir að drepa guðina ykkar,“ sagði öldungur í þorpi Hazara. En Hazararnir dýrkuðu ekki stytturnar eða litu á þá sem guði. Búddarnir voru ómetanleg tákn Hazaranna, og þeim þykir leitt að hafa ekki getað bjargað styttunum. Menningarmálastofnun Samein- uðu þjóðanna hefur kallað saman nefnd sem kanna á hvort hægt sé að verða við beiðni bráðabirgða- stjórnarinnar sem nú situr í Afgan- istan um að Búddastytturnar verði endurreistar eða eitthvað komi í þeirra stað. Meðal þess sem mögu- leiki er á, er að byggja sams konar styttur á sama stað eða svipaðar styttur skammt frá, að sögn tals- manns Sameinuðu þjóðanna í Bamian. Erlendir sprengju- sérfræðingar kallaðir til Bamian í Afganistan. Los Angeles Times. Þegar talibanar réðust til atlögu gegn stóru Búddastyttunum í Bamian gerðu þeir sér ekki grein fyrir því hversu erfitt það yrði að jafna þær við jörðu. Los Angeles Times Talibanar prentuðu þessa mynd, sem sýnir skriðdreka skjóta á aðra Búddastyttuna, á veggspjald til almennrar dreifingar. Washington Post/Marc Kaufman Í hellunum í grennd við hvilftina sem Búddastytturnar stóðu í hafa fjölskyldur úr héraðinu sest að, eftir að hafa neyðst til að flýja heimili sín vegna átakanna sem geisað hafa í Afganistan undanfarin misseri. ’ Við erum búnir að drepa guðina ykkar ‘ BANDARÍKJAHER sendi í gær mikinn liðstyrk til átakasvæða í Arma-fjöllum í austurhluta Afgan- istans en þar hafa Bandaríkja- menn og bandamenn þeirra átt í hörðum bardögum við liðsmenn al- Qaeda-hryðjuverkasamtakanna undanfarna daga. Sögðu talsmenn Bandaríkjahers að um eitt hundr- að al-Qaeda-liðar hefðu verið felld- ir í átökum á miðvikudag en dag- inn áður hafði Frank Hagenbeck hershöfðingi sagt að tekist hefði að ráða niðurlögum um helmings þeirra 600–700 al-Qaeda-manna sem hefðust við í fjöllunum. Mohammed Zahir Shah, fyrrver- andi konungur Afganistans, sagði í viðtali sem ítalska blaðið La Stampa birti í gær að áframhald- andi stríðsrekstur Bandaríkja- manna í Afganistan væri „heimskulegur og tilgangslaus“ og betra væri ef endi yrði bundinn á hann nú þegar. „Hryðjuverk eru erlent fyrir- bæri, ekki afganskt. Hér er um að ræða útlenda menn, frá öðrum ríkjum Asíu, sem eru vanir því að búa einir og stunda þjófnað.“ Skoðanir konungsins eru í ósam- ræmi við stefnu afgönsku bráða- birgðastjórnarinnar, sem í gær sendi um eitt þúsund afganska hermenn til Arma-fjalla til að að- stoða við það verkefni að ráða nið- urlögum al-Qaeda-liða þar. Hefur stjórnin farið fram á það við hér- aðshöfðingja í austurhluta landsins að þeir sendi liðstyrk á vígvöllinn. Sást í gær hvar tólf brynvarðar bifreiðir Norðurbandalagsmanna, þ.m.t. sex skriðdrekar, héldu af stað frá Kabúl til víglínunnar í Austur-Afganistan. Þá færðu Bandaríkjamenn sjálf- ir Cobra- og Apache-herþyrlur, sem hafa verið annars staðar í Afganistan, til Arma-fjalla en nú er allt kapp lagt á að vinna sigur í orrustunni sem þar hefur verið háð við al-Qaeda undanfarna viku. Þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi haldið því fram að búið sé að drepa meirihluta al-Qaeda-mann- anna í Arma-fjöllum sagði Abdul Matin Hassankhiel, sem kveðst hafa forráð yfir 135 af þeim 800 Afgönum sem taka þátt í hern- aðinum gegn al-Qaeda, að þúsund- ir til viðbótar gætu leynst í Paktia- héraði. Osama bin Laden í Arma-fjöllum? Sagði hann ekki útilokað að meðal þeirra væru ýmsir leiðtoga al-Qaeda. „Við hefðum ekki mætt svo harðri mótspyrnu ef þarna væri aðeins um fótgönguliðana að ræða. Það er alveg öruggt að þarna eru líka háttsettir al-Qaeda- liðar,“ sagði hann við fréttamenn í borginni Gardez, höfuðstað Paktia. Talsmenn Bandaríkjastjórnar hafa á hinn bóginn ekki viljað svara spurningum um það hvort Sádí-Arabinn Osama bin Laden, leiðtogi al-Qaeda, væri hugsanlega í Arma-fjöllum og í gær sagði Al- ain Richard, varnarmálaráðherra Frakklands, að „sterkar líkur“ væru á því að bin Laden væri all- ur. „Við höfum ekkert heyrt af hon- um í mjög langan tíma,“ sagði Richard en franski herinn tekur þátt í aðgerðum Bandaríkjahers í Paktia. Liðstyrkur sendur til Arma-fjalla Fyrrverandi konungur Afganistans segir stríðsrekstur Bandaríkjamanna „heimskulegan og tilgangslausan“ Kabúl, Gardez, Róm. AFP. AP Bandarískir hermenn svipast um eftir al-Qaeda-liðum í hlíðum Arma- fjallanna en harðir bardagar hafa geisað á svæðinu undanfarna daga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.