Morgunblaðið - 15.03.2002, Side 20
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
20 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
TAP Íslandssíma á síðasta ári nam
990,3 milljónum króna. Tapið árið
2000 var 492,5 milljónir. Tapið er í
takt við endurskoðaðar áætlanir fé-
lagsins, eins og fram kemur í til-
kynningu til Verðbréfaþings Íslands.
Rekstrartekjur Íslandssíma námu
1.457 milljónum króna árið 2001 og
jukust um 106% miðað við árið á
undan þegar þær námu 709 milljón-
um króna. Rekstrargjöld námu 1.865
milljónum og jukust um 85% miðað
við allt árið á undan.
Verulegs rekstrarbata gætti
seinni hluta árs. Skýrist það af aukn-
um tekjum og margþættum aðgerð-
um sem stjórnendur gripu til síð-
sumars. Tap fyrir afskriftir,
fjármagnsliði og skatta var 204 millj-
ónir á öðrum ársfjórðungi en lækk-
aði í 108 milljónir á þriðja ársfjórð-
ungi og í 38 milljónir í síðasta
ársfjórðungi, að því er fram kemur í
tilkynningunni.
„Á árinu 2002 gerir Íslandssími
ráð fyrir áframhaldandi vexti í starf-
semi félagsins og rekstrarbata.
Þannig var jafnvægi í rekstri fast-
línustarfsemi félagsins fyrir afskrift-
ir, fjármagnsliði og skatta í desem-
bermánuði sl. í fyrsta skipti frá því
starfsemi hófst. Eins og fram er
komið er lokið meginuppbyggingu
fjarskiptakerfa félagsins. Þetta veit-
ir aukið svigrúm til áherslu í mark-
aðs- og sölustarfsemi. Stjórnendur
Íslandssíma gera ráð fyrir að rekstr-
artekjur Íslandssíma hf. árið 2002
aukist um 40 til 60% miðað við árið á
undan. Jafnframt er gert ráð fyrir að
hagnaður fyrir afskriftir, fjármagns-
liði og skatta verði um 10% af veltu
árið 2002,“ segir í tilkynningu frá Ís-
landssíma.
Veltufjárhlutfall hækkaði á síð-
asta ársfjórðungi úr 0,45 í 0,60.
Hækkunina má skýra með endur-
fjármögnun skammtímalána og
greiðslu skammtímaskulda í fram-
haldi af hlutafjáraukningu félagsins.
Áfram verður unnið að því að hækka
veltufjárhlutfallið.
Viðskiptakröfur félagsins námu
474 milljónum króna í árslok. Sam-
stæðan hefur sett 78 milljónir króna
í afskriftasjóð viðskiptakrafna í var-
úðarskyni.
Tap Íslandssíma tæpur
milljarður króna
!
!
"#
# $$
#$% &
!
" #
" #
!
!
Tekju-
markmið
hafa náðst
TEKJUR deCODE, móðurfélags Ís-
lenskrar erfðagreiningar, á þessu ári
eru áætlaðar á bilinu 50–70 milljónir
Bandaríkjadala sem jafngilda um
5–7 milljörðum íslenskra króna. Þá
eru teknar með áætlaðar tekjur
bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækis-
ins MediChem, en stefnt er að því að
ganga frá kaupum á því á næstu dög-
um. Þetta kom fram á símafundi de-
CODE á Netinu í gær. Þar greindu
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar
erfðagreiningar, og Hannes Smára-
son, aðstoðarforstjóri, frá afkomu-
tölum síðasta árs og horfum fyrir ár-
ið 2002.
Kári sagði að árið 2001 hafi ein-
kennst af miklum vexti og að und-
irstöðurnar fyrir langtímaáætlanir
félagsins hafi verið styrktar á sama
tíma og metnaðarfull tekjumarkmið
hafi náðst. Hann greindi frá helstu
viðburðum ársins 2001, samstarfs-
samningum og uppgötvunum vís-
indamanna Íslenskrar erfðagrein-
ingar. Þær uppgötvanir geri
fyrirtækinu kleift að stefna að því
markmiði að nýta þær til að þróa ný
og betri lyf gegn algengum sjúkdóm-
um.
Kári sagðist vonast til að geta
greint frá nýjum samstarfssamning-
um er líður á þetta ár. Hann var
spurður á símafundinum um hve
marga nýja samstarfssamninga gert
væri ráð fyrir að fyrirtækið myndi
gera á árinu. Hann svaraði því til að
það væri ekki aðalatriðið, heldur hve
mörgum lyfjum fyrirtækið myndi
koma á framfæri er fram líða stund-
ir.
Hannes sagði að árið 2001 hafi
verið enn eitt ár öruggs vaxtar de-
CODE og að markmið um tekjur
hafi náðst. Bókfærðar tekjur ársins
hafi numið 40,3 milljónum Banda-
ríkjadala, aukist um 70% frá fyrra
ári, en gert hafi verið ráð fyrir að
þær hljóðuðu upp á 40 milljónir dala í
áætlun félagsins. Tekjuaukningin á
árinu sé staðfesting á árangri lang-
tíma viðskiptaáætlunar félagsins.
„EIMSKIP er ekki einvörðungu
flutningafyrirtæki,“ sagði Benedikt
Sveinsson, stjórnarformaður Eim-
skipafélags Íslands, á aðalfundi fé-
lagsins í gær og vísaði til þess að fé-
lagið byggðist í vaxandi mæli á
tveimur stoðum, annars vegar flutn-
ingastarfsemi og hins vegar fjárfest-
ingarstarfsemi. Hann upplýsti að nú
væri verið að renna þriðju stoðinni
undir rekstur félagsins, þ.e. sjávar-
útvegsstarfsemi. Einingarnar þrjár
verða reknar sem sjálfstæð félög
innan samstæðu Eimskipafélags Ís-
lands, Eimskip um flutninga, Burð-
arás um fjárfestingar og Útgerðar-
félag Akureyringa (ÚA) um
sjávarútveg.
„Eimskip hefur gert sér grein fyr-
ir því að á næstu árum verður aukin
samþjöppun í sjávarútvegi. Félagið
hefur haft áhuga á því að vera þátt-
takandi í þessari þróun og vera af-
gerandi eignaraðili í einu stóru öfl-
ugu sjávarútvegsfyrirtæki. Með því
er félagið áfram þátttakandi í því að
umbreyta og þróa íslenskt þjóðfélag
til aukinnar hagkvæmni alþjóðavæð-
ingar og sóknar til bættra lífskjara“,
sagði Benedikt.
Samruni ÚA og Skagstrendings
Eimskip steig fyrsta skrefið í gær
með kaupum á viðbótarhlutum í ÚA
og Skagstrendingi og er eignarhlut-
ur félagsins nú orðinn 41% í Skag-
strendingi og 55% í ÚA. Benedikt
sagði Eimskip hafa áhuga á því að
Skagstrendingur og ÚA færu í
formlegar viðræður um náið sam-
starf eða samruna. Það fyrirtæki
verði í dreifðri eign og ekkert sjáv-
arútvegsfyrirtæki hér á landi verði
með jafnmarga hluthafa og svo
mikla dreifingu á eignarhaldi. „En
við ætlum ekki að láta þar við sitja.
Við munum leggja áherslu á að efla
ÚA eða sameinað sjávarútvegsfyr-
irtæki ÚA og Skagstrendings, sem
verður með höfuðstöðvar sínar og
rekstur á Norðurlandi og víða burð-
arás í atvinnulífinu. Áhugavert er að
stækka það enn frekar með aukinni
breidd í rekstri og útrás á erlendan
markað.“
Með aukningu hlutafjár Eimskipa
í ÚA skapaðist skylda til yfirtöku á
hlutabréfum annarra hluthafa í ÚA,
þ.e. Eimskip er skylt að bjóða öðrum
hluthöfum í ÚA að kaupa bréf þeirra
á sömu kjörum en greiðslan var í
formi hlutabréfa í Eimskipafélaginu.
Tilkynnt var um að fljótlega yrði
boðað til hluthafafundar í Eimskipa-
félaginu þar sem farið yrði fram á
samþykki fyrir hlutafjáraukningu til
kaupa á hlutum annarra eigenda ÚA
og til að mæta kaupum á hlutafé í
Skagstrendingi, ef af sameiningu
ÚA og Skagstrendings yrði.
Áfram erfiðleikar í flutningum
Benedikt sagði Eimskip vera eitt
þeirra fyrirtækja sem hve harðast
hefði farið út úr efnahagsástandinu
síðastliðin tvö ár. Afkoma af flutn-
ingastarfsemi hefði verið slæm í lið-
lega tvö ár á sama tíma og verðmæti
hlutabréfa eigna félagsins hefði
minnkað. Hann sagðist ennfremur
reikna með að flutningastarfsemi
yrði áfram erfið í ár þó svo að gert
væri ráð fyrir hagnaði af rekstri.
Samkeppni yrði áfram hörð og búast
mætti við aukinni samkeppni í Evr-
ópusiglingum.
Sjávarútvegur
verður ein af
þremur stoðum
Morgunblaðið/Sverrir
Benedikt Sveinsson stjórnarformaður og Ingimundur Sigurpálsson for-
stjóri hafa fundið Eimskipafélaginu nýja stoð í rekstrinum. Starfsemin
skiptist nú í þrennt; flutninga, sjávarútveg og fjárfestingar.
!"
##
!!
"
#
"#
!$
#$"
$!
% & #!'(
&)
*&)
++
& (
,
-!!!
.
&)
/
++ " !#'
0
' ##
++1+23
-//4 -
3 3- ! $%&' (
.5+ &, 6
0&, 7
/
,
8
6
, 6
&3+, 9 .
,(
3 ,
923+
, :&0
!"#$!
3+
+9 6
7
/
:&0
6
%&' ('
)*&
+ ,
', +
)*&
'+%%
'+ Grundvallarbreytingar kynntar á
starfsemi Eimskipafélagsins