Morgunblaðið - 15.03.2002, Qupperneq 24
ERLENT
24 FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hefur fyrirskipað rannsókn á
„óafsakanlegri yfirsjón“ bandaríska
innflytjendaeftirlitsins, INS, eftir að
flugskóli í Flórída fékk síðbúna til-
kynningu um að dvalarleyfi tveggja
af flugræningjunum nítján, sem tóku
þátt í hryðjuverkunum 11. septem-
ber, hefði verið framlengt. Flugskól-
inn fékk tilkynninguna á mánudag,
hálfu ári eftir hryðjuverkin.
Flugskólinn Huffman Aviation
International fékk tilkynningu um
að Mohamed Atta, sem er álitinn
hafa verið foringi hryðjuverkamann-
anna, og félagi hans, Marwan Alsh-
ehhi, hefðu fengið heimild til að
dvelja í landinu sem námsmenn. Til-
kynningin var aðeins staðfesting á
ákvörðun sem tekin var sl. sumar,
þ.e. nokkrum mánuðum áður en þeir
flugu farþegaþotum á turna World
Trade Center í New York.
Er þetta mikið vandræðamál fyrir
bandaríska innflytjendaeftirlitið,
sem sendi einn af embættismönnum
sínum í flugskólann á miðvikudag til
að gera skjalið upptækt, að sögn eig-
anda skólans, Rudis Dekkers.
Mistökin fordæmd
í Washington
Málið olli miklu uppnámi í Wash-
ington þar sem þingmenn og emb-
ættismenn Bush-stjórnarinnar for-
dæmdu mistökin og
lýstu þeim sem enn
einu dæminu um brota-
lamirnar á bandaríska
innflytjendaeftirlitinu.
„Ég varð dolfallinn
og ekki ánægður,“
sagði Bush á blaða-
mannafundi í fyrradag.
„Ég vil orða þetta öðru-
vísi: ég varð mjög æst-
ur. Við verðum að koma
á umbótum í INS og
leggja mikið kapp á
það.“
INS heyrir undir
dómsmálaráðuneytið
og John Ashcroft
dómsmálaráðherra fól aðaleftirlits-
manni ráðuneytisins, Glenn Fine, að
rannsaka hvers vegna stofnunin
sendi tilkynninguna svo seint. As-
hcroft gaf til kynna að þeim sem
bæru ábyrgð á mistökunum yrði vik-
ið frá.
Yfirmaður INS, James Ziglar,
sem Bush hafði skipað, vildi ekkert
segja um málið. Hann er að vinna að
áætlun um umbætur á stofnuninni
sem Ashcroft kynnti í nóvember.
Meðal annars á að að-
greina eftirlits- og
þjónustuhlutverk
stofnunarinnar og
tölvuvæða gagnakerfi
hennar til að tryggja að
ekki hlaðist upp óaf-
greidd mál eins og
gerst hefur á síðustu
árum. Nýja gagnakerf-
ið var fyrst samþykkt á
Bandaríkjaþingi árið
1996.
Atta og Alshehhi
komu í Huffman-flug-
skólann í júlí 2000 til að
sækja um inngöngu.
Atta var þá með vega-
bréfsáritun vegna viðskiptaerinda
en Alshehhi með áritun sem ferða-
maður. Flugskólinn lagði fram um-
sóknir í ágúst 2000 um að þeir fengju
dvalarleyfi sem námsmenn, eins og
reglur INS kveða á um.
Beiðnin var hins vegar ekki sam-
þykkt fyrr en um ári síðar, nokkrum
mánuðum eftir að Atta og Alshehhi
luku námi í flugskólanum. Embætt-
ismenn INS segja að líklega hafi
Atta og Alshehhi fengið tilkynningu
um samþykktina á þessum tíma en
flugskólinn hafi ekki fengið afrit af
henni fyrr en á mánudag.
Slíkar tafir regla fremur
en undantekning
Embættismenn INS lögðu
áherslu á að hvorki Atta né Alsehhi
hefðu verið grunaðir um hryðjuverk
fyrir 11. september og einn þeirra
lýsti málinu sem „misskilningi“. Þeir
sögðu að ekki væri talið að slíkar síð-
búnar tilkynningar yrðu sendar út
vegna hinna flugræningjanna
sautján en viðurkenndu að þeir væru
ekki vissir um það.
Brenda Keene, deildarstjóri
Airman-flugskólans í Norman í
Oklahoma, sagði að tafir á afgreiðslu
umsókna væru regla fremur en und-
antekning hjá INS. Hún hefði til að
mynda fengið tilkynningar á mið-
vikudag um vegabréfsáritanir
tveggja námsmanna sem innrituðu
sig í skólann fyrir tæpu ári. Annar
þeirra hefði lokið náminu í septem-
ber.
Airman-flugskólinn sótti einnig
um dvalarleyfi fyrir Zacarias Mouss-
aoui, sem var seinna handtekinn í
Minnesota og ákærður fyrir aðild að
hryðjuverkunum 11. september. „Ef
til vill fáum tilkynningu um dvalar-
leyfi hans í pósti á næstu dögum,“
sagði Keene.
Dvalarleyfi Atta staðfest
hálfu ári eftir árásirnar
Washington. The Washington Post.
Bush fyrirskipar rannsókn á
mistökum innflytjendaeftirlitsins
Mohamed Atta
KVENNAFANGELSI númer 15 er
þyrping húsa en eitt þeirra sker
sig úr: það er málað skærbleikt og
þaðan heyrist hjal og hlátur smá-
barna og blíðar raddir mæðra.
Barnaheimilið er verustaður 37
barna sem eiga mæður í fangelsinu
en það er í Samara, um 900 kíló-
metra sunnan við Moskvu.
Svo gæti farið að flest börnin
hverfi á brott vegna þess að stjórn
Vladímírs Pútíns forseta ráðgerir
nú umfangsmikla sakaruppgjöf til
handa mæðrum. Um 45.000 konur
eru í rússneskum fangelsum og
alls eru um 500 börn á heimilum í
tengslum við fangelsin. Konurnar
fá að heimsækja börn sín tvisvar á
dag og séu þau mjög lítil eru heim-
sóknirnar fjórar vegna brjóstagjaf-
ar. Þegar börnin verða þriggja ára
eru þau flutt á heimili fyrir mun-
aðarlausa ef enn er ár eða lengri
tími eftir af fangelsisvistinni.
Inna Kartseva er 23 ára og á eft-
ir að afplána sex ár af sjö ára dómi
fyrir brot á fíkniefnalögum, dóm
sem hún fékk um leið og eiginmað-
urinn. Svartir taumar af maskara
renna niður kinnarnar á Innu þeg-
ar hún segir frá reynslu sinni og
Viktor, þriggja mánaða syni sín-
um. Hann er fæddur í fangelsinu
og hefur aldrei séð föðurinn.
Kartseva segist vera saklaus.
„Þegar þeir settu okkur í fang-
elsi var eins og lífinu væri lokið.
Guði sé lof fyrir þetta barn,“ segir
hún. Kartseva leggur allt sitt
traust á vonina um sakaruppgjöf.
„Þau bíða eftir mér heima.“
Pútín forseti lagði í janúar til að
mæðrunum yrðu gefnar upp sakir
og er gert ráð fyrir að það verði
gert á næstu mánuðum. Sumir af
vörðunum óttast að eitt verði látið
yfir alla ganga og þess vegna geti
farið svo að algerlega óhæfar
mæður fái einnig að fara og taka
börnin með sér. Yfirmaður barna-
heimilisins, Tatjana Skvortsova,
segir að flestar konurnar séu góð-
ar við börnin sín „en sumar þarf
að draga af stað til að fá þær til að
leika við þau“. Einnig séu mörg
dæmi um að mæður geti ekki séð
um börnin vegna skorts á stuðn-
ingi heima fyrir eða húsnæð-
isleysis.
Nær engin úrræði eru til í Rúss-
landi handa fjölskyldum sem berj-
ast við afleiðingar fátæktar,
drykkjusýki og misþyrminga og er
sagt að það skýri hve mikið er um
götubörn í reiðileysi í borgunum.
„Ég get ekki tryggt að þessi börn
endi ekki í kjöllurum og á lest-
arstöðvum,“ segir Valerí Jakovlev,
starfandi yfirmaður fangelsismála
í Samara-héraði, um börn um-
ræddra mæðra.
Fangelsuðum mæðrum í
Rússlandi veitt sakaruppgjöf
Samara í Rússlandi. AP.
AP
Inna Kartseva kyssir þriggja mánaða son sinn, Viktor, en þau eru bæði í kvennafangelsi númer 15 í Samara.
JAMES Tobin, hinn kunni nób-
elsverðlaunahafi í hagfræði,
lést sl. mánudag 84 ára að aldri.
Við hann er kenndur svokall-
aður „Tobin-skattur“, sem
hugsaður er til að halda aftur af
spákaupmennsku með gjald-
eyri og hefur verið haldið mjög
á loft af andstæðingum alþjóða-
væðingar.
Tobin voru veitt Nóbelsverð-
launin 1981 fyrir athuganir sín-
ar á tengslunum milli fjármála-
markaða og
fjárfestingarákvarða heimila
og fyrirtækja en kunnastur er
hann fyrir hugmyndir sínar um
að skattleggja alþjóðlegar
gjaldeyrishreyfingar í því skyni
að draga úr spákaupmennsku
með gjaldeyri og tryggja meiri
gengisstöðugleika. Kynnti
hann hugmyndina 1971 en nú á
síðari árum hefur hún orðið að
eins konar herópi þeirra, sem
berjast gegn alþjóðavæðing-
unni. Tobin sjálfur var þó aldrei
í þeim hópi og var alla tíð mikill
boðberi frjálsra viðskipta.
James Tob-
in látinn
Washington. AFP.
PADDY Ashdown, fyrrverandi
leiðtogi Frjálslyndra demókrata í
Bretlandi, bar vitni fyrir stríðs-
glæpadómstólnum í Haag í gær.
Sagði hann að Slobodan Milosevic,
þáverandi leiðtogi Serba, hefði þeg-
ar snemma á tíunda áratugnum
gert áætlanir um að búa til júgó-
slavneskt stórríki þar sem ekki
yrðu neinir múslímar. Saksóknarar
við dómstólinn segja að Milosevic
og Franjo Tudjman, þáverandi for-
seti Króatíu, hafi gert leynilegt
samkomulag um að skipta Bosníu
upp á milli sín en þar er hátt í
helmingur íbúa múslímar.
Ashdown tekur í maí við stöðu
æðsta fulltrúa Evrópusambandsins
og annarra stofnana sem nú hafa
síðasta orðið í málefnum Bosníu.
Hann hefur um margra ára skeið
sinnt málefnum Balkanskaga og
heimsótti oft Tudjman. Ashdown
sagðist eitt sinn hafa snætt með
honum kvöldverð og hafa beðið for-
setann um að lýsa því hvernig hann
teldi að framtíð Júgóslavíu yrði.
Tudjman svaraði með því að teikna
kort á matseðil og var þar sýnd
„Stór-Króatía“ og „Stór-Serbía“ en
engin sjálfstæð Bosnía. Carla Del
Ponte aðalsaksóknari segir að ef
Tudjman hefði ekki látist 1999
myndi hann hafa verið ákærður og
sakaður um að veita Bosníu-Króöt-
um hernaðaraðstoð 1993–1994.
Auk afbrota í stríði Serba gegn
Króötum og síðar í átökunum í
Bosníu er Milosevic einnig sakaður
um að hafa skipulagt aðgerðir er
miðuðust að því að annaðhvort
myrða Kosovo-Albana eða hrekja
þá á brott. Bandaríski fræðimað-
urinn Patrick Ball segir að Milos-
evic sé sekur um stríðsglæpi og
hann noti „tilbúin gögn“ í málsvörn
sinni.
Ball var yfirheyrður af Milosevic
í gær en Milosevic segir að Ball
hafi „einfaldað með öfgafullum
hætti það flókna fyrirbæri sem
stríð er“. Ball hefur meðal annars
safnað gögnum meðal landflótta
Kosovo-Albana og albanskra landa-
mæravarða til stuðnings fullyrðing-
um sínum um glæpi Milosevics.
Ashdown
ber vitni í
Haag
Segir Tudjman
og Milosevic hafa
ætlað að skipta
Bosníu milli sín
Haag. AFP.
ÞÝSKI heimspeking-
urinn Hans-Georg
Gadamer lést í Heidel-
berg í Þýskalandi í
gær. Hann var 102 ára.
Gadamer var einn af
þekktustu heimspek-
ingum Þjóðverja á
þessari öld og helsti
málsvari svonefndrar
túlkunarfræði í heim-
speki.
Eftir Gadamer ligg-
ur fjöldi bóka og rit-
gerða, þar á meðal
Sannleikur og aðferð
(Wahrheit und Meth-
ode), sem kom fyrst út
1960 og er grundvall-
arrit í túlkunarfræði
en hefur einnig haft
áhrif í fagurfræði og
hefðbundinni þekking-
arfræði.
Hans-Georg
Gadamer allur
Gadamer