Morgunblaðið - 15.03.2002, Síða 25
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 25
MANNRÉTTINDASAMTÖKIN
Amnesty International birtu í gær
skýrslu þar sem þau gagnrýna með-
ferðina á innflytjendum sem hafa
verið handteknir í Bandaríkjunum
eftir hryðjuverkin 11. september. Í
skýrslunni segir að mörgum inn-
flytjendanna sé enn haldið í laga-
legri óvissu, margir þeirra fái ekki
að hitta fjölskyldu sína og ræða við
lögfræðinga og þeir hafi jafnvel ekki
fengið upplýsingar um hvers vegna
þeim sé haldið í fangelsi.
Amnesty segir að mikil leynd hvíli
enn yfir málum fanganna og margir
þeirra njóti ekki enn „ákveðinna
grundvallarréttinda sem tryggð eru
samkvæmt alþjóðalögum“.
Í skýrslunni segir að dæmi séu um
að föngum, sem sakaðir eru um
minniháttar brot á innflytjendalög-
gjöfinni, hafi verið haldið í einangr-
un í allt að 23 klukkustundir á dag.
„Þetta virðist óþarflega harkalegt
og jafngilda grimmilegri, ómannúð-
legri og niðurlægjandi meðferð.“
Skýrsluhöfundarnir segja að
föngum hafi verið haldið í fangelsi
vikum og jafnvel mánuðum saman
án þess að þeir hafi verið ákærðir
fyrir glæpi eða brot á innflytjenda-
löggjöfinni.
Karen Kraushaar, talsmaður
bandaríska innflytjendaeftirlitsins,
INS, kvaðst ekki geta rætt niður-
stöður skýrslunnar þar sem hún
hefði ekki lesið hana. Hún sagði þó
að handtökurnar endurspegluðu þá
miklu áherslu sem bandarísk yfir-
völd legðu enn á aðgerðir til að koma
í veg fyrir fleiri hryðjuverk.
„Allir þeir sem við höfum í haldi
hafa brotið innflytjendalöggjöfina,“
sagði Kraushaar. „Við höfum sett
mjög skýrar reglur um hvernig hafa
eigi fólk í haldi og hvernig koma eigi
fram við það og við fylgjum þeim í
hvívetna.“
1.200 manns voru
handteknir
Bandarísk yfirvöld hafa handtekið
um 1.200 manns, aðallega araba og
fólk frá Suður-Asíu, í tengslum við
rannsóknina á hryðjuverkunum 11.
september. Dómsmálaráðuneytið
sagði 15. febrúar að 327 manns væru
enn í haldi og hefðu verið ákærðir
fyrir brot á innflytjendalöggjöfinni.
Meira en 100 aðrir innflytjendur
hafa verið ákærðir fyrir glæpi sem
tengjast ekki hryðjuverkunum. The
Washington Post skýrði frá því í vik-
unni sem leið að bandarísk yfirvöld
hefðu leyst hundruð Pakistana úr
haldi og sent þá til heimalandsins.
Skýrsla Amnesty byggist á viðtöl-
um við lögfræðinga innflytjenda,
fanga og ættingja þeirra, auk þess
sem höfundarnir skoðuðu tvö fang-
elsi í New Jersey þar sem innflytj-
endunum er haldið.
Meðferðin á fang-
elsuðum innflytj-
endum gagnrýnd
New York. The Washington Post.
Amnesty International birtir skýrslu
SKOSKUR áfrýjunardómstóll stað-
festi í gær dóm yfir líbýskum leyni-
þjónustumanni vegna sprengingar á
vél Pan Am-flugfélagsins sem varð
270 manns að bana. Allir fimm dóm-
arar voru sammála um að Abdel
Basset Ali al-Megrahi, 49 ára, væri
sekur og að hann væri ábyrgur fyrir
sprengjunni sem grandaði Boeing
747-vélinni yfir bænum Lockerbie í
Skotlandi 1988.
„Við erum sammála um að engin
af þeim rökum, sem sett eru fram í
áfrýjuninni, eigi sér stoð,“ sagði
Cullin lávarður, sem fór fyrir dóm-
urunum. „Með þessu er málinu lok-
ið,“ bætti hann við.
Al-Megrahi var á síðasta ári
dæmdur sekur um að hafa komið
tösku fyrir í flugvél á Möltu, sem síð-
ar var flutt yfir í vél Pan Am, flug nr.
103, sem sprakk þegar vélin var á
leið frá London til New York, yfir
Lockerbie á Skotlandi. Meintur sam-
verkamaður hans, Lamen Khalifa
Fhimah, sem einnig er Líbýumaður,
var sýknaður.
Al-Megrahi
Lockerbie-
málinu lokið