Morgunblaðið - 15.03.2002, Síða 47
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 47
✝ Sigurrós RósaEinarsdóttir
fæddist í Reykjavík
12. apríl 1918. Hún
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Eiri að
morgni 6. mars síð-
astliðins. Hún var
einkabarn foreldra
sinna, Önnu Katrínar
Sigurðardóttur, f.
2.12. 1900, d. 30.6.
1991, og Einars Jóns-
sonar, f. 27.5. 1890, d.
20.10. 1947.
Rósa giftist í febr-
úar 1944 Brandi
Jónssyni, f. 21.11. 1911, d. 12.9.
1982, síðar skólastjóra Heyrnleys-
ingjaskólans. Brandur var sonur
hjónanna Jóns Brandssonar,
prests á Kollafjarðarnesi á
Ströndum, og Guðnýjar Magnús-
dóttur. Dætur Brands og Rósu
eru: 1) Anna Guðný, búsett í Sví-
þjóð, gift Lennart Olsson. 2) Mar-
grét, búsett í Vestmannaeyjum,
gift Sigurði Högna Haukssyni, og
á hún fjögur börn: a) Brandur,
maki Ingunn Guðlaugsdóttir og
eiga þau tvö börn, b) Einar Örn,
unnusta Sylvía Oddný Einarsdótt-
ir, c) Bergrún og d) Gísli. 3) Guð-
rún, búsett í Reykjavík, gift Herði
Þór Hafsteinssyni, og eiga þau
þrjú börn: a) Hafsteinn Þór, unn-
usta Hlín Ólafsdóttir og eiga þau
eitt barn, b) Hinrik Þór og c) Anna
Rósa.
Rósa ólst upp í Reykjavík og bjó
þar alla ævi. Hún gekk í Barna-
skólann í Reykjavík (Miðbæjar-
skólann) og stundaði nám við
Kvennaskólann í
Reykjavík. Árið
1939 fór hún til
Kaupmannahafnar
til náms við hús-
mæðraskóla og þar
kynntist hún manns-
efni sínu, Brandi
Jónssyni, síðar
skólastjóra Heyrn-
leysingjaskólans, en
hann var þá við
framhaldsnám í
kennslu heyrnar-
lausra. Drjúgan
hluta hjónabands
þeirra Rósu og
Brands var heimili þeirra í sama
húsi og skólinn og má nærri geta
að oft hefur verið mikill erill á
heimilinu þó að það ætti að heita
aðskilið frá skólanum. Nemendur
komu mjög ungir í skólann, sumir
á heimavist, og kynntust dætur
þeirra hjóna þeim því vel. Fyrir
kom, á fyrstu búskaparárum
þeirra, að börn utan af landi kæm-
ust ekki heim um jól og voru þá
jólin haldin með þeim. Rósa stóð
sem klettur við hlið Brands í starfi
hans á þessum árum. Jafnframt
því og með heimilishaldi og upp-
eldi dætranna vann Rósa löngum
utan heimilis, við verslunarstörf.
15. mars 1993, orðin veik af Alz-
heimer-sjúkdómnum, fluttist Rósa
á Hjúkrunarheimilið Eiri, þá ný-
opnað. Var hún með fyrstu vist-
mönnum sem þangað fluttust og
þar átti hún heimili æ síðan.
Útför Rósu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgr. Pétursson.)
Mamma var einkabarn foreldra
sinna og var samband hennar og
Önnu ömmu mjög náið alla tíð.
Lengi vel, eftir að Einar afi dó, bjó
amma heima hjá okkur. Ekki þótti
okkur systrunum verra að eiga „tvær
mömmur“ og notfærðum við okkur
það óspart.
Á unglingsárum mínum áttum við
mamma ekki alltaf skap saman en
það breyttist eftir því sem ég eltist og
þroskaðist.
Á erfiðum stundum í lífi mínu gat
ég leitað til mömmu og pabba, sem
tóku mér opnum örmum og stóðu
með mér.
Elsku mamma mín! Ég veit að nú
líður þér vel og að pabbi og amma
hafa tekið þér opnum örmum. Ég
kveð þig með söknuði en minninguna
um þig geymi ég í hjarta mér.
Þín dóttir,
Margrét.
Elsku Rósa amma. Ég veit að þér
líður betur á þeim stað sem þú ert
núna og hefur sameinast Brandi afa
og Önnu ömmu.
Mig langar að kveðja þig með
nokkrum minningabrotum um okkur.
Mínar fyrstu minningar eru frá því
að Brandur afi var enn á lífi og ég var
í pössun hjá ykkur. Þá vöknuðum við
afi snemma á sunnudagsmorgnum og
fórum í bíltúr sem oftast bar okkur út
að „Gömlu fjöru“, þar sem við geng-
um um og skoðuðum fjörulífið. Stund-
um fórum við líka upp í hesthús eða í
heimsóknir til frændfólks. Þegar við
komum úr þessum ferðum varst þú
alltaf tilbúin með sunnudagsmatinn.
Ég minnist þess líka þegar ég, þú
og Anna amma sátum og horfðum á
Heilsubælið í Gervahverfi og hlógum
saman. Líka þegar við sátum saman í
Skipholtinu og horfðum á leiki í HM í
knattspyrnu árið 1990. Þá vildir þú
sko sýna mér að þú gætir alveg gert
eins og sumir markaskorararnir
gerðu og farið handahlaup, enda
hafðir þú æft „leikfimi“ á yngri árum.
Ég man ekki betur en að það tækist
bara bærilega hjá þér, þá sjötíu og
tveggja ára gamalli.
Ég man það líka að þegar ég heim-
sótti þig á Eir fékk ég alltaf fallegt
bros frá þér þó að þú gætir ekki tjáð
þig með orðum. Þá vissi ég að þú
þekktir mig.
Þessar minningar geymi ég á góð-
um stað í hjarta mér.
Guð geymi þig amma mín.
Þinn ömmustrákur,
Hafsteinn Þór.
Elsku amma mín. Það er með
söknuði og þakklæti sem ég kveð þig
nú. Undanfarin ár hafa verið þér erfið
ég er viss um að þú ert hvíldinni fegin.
Þú reyndist mér vel og alltaf var
hægt að leita til þín og treysta á þig.
Hugurinn reikar til baka til þess
tíma sem þið afi bjugguð á Háaleit-
isbrautinni. Alltaf var gaman að koma
til ykkar og alltaf jafnvel tekið á móti
manni. Notalegt var að sitja í eldhús-
inu og maula kandís sem alltaf var
hægt að ganga að vísum í eldhús-
skápnum. Ég skildi það ekki þá en ég
skil það núna af hverju þér fannst
sódavatn alltaf svona gott. Einnig var
alltaf gaman að koma til þín í búðina
hvort sem það var í kjallaranum á
Laugaveginum eða á horni Hverfis-
götu og Klapparstígs. Þó að það sé
sorglegt og söknuður fylgi því að
kveðja þig nú þá fylgir því einnig
ákveðinn léttir að þú sért laus úr
þeirri baráttu sem þú hefur staðið í
undanfarin misseri. Einnig er ég þess
viss að þú nýtur þín vel núna í faðmi
ástvina sem á undan eru gengnir.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V. Briem.)
Brandur Sigurjónsson.
Elsku Rósa amma. Nú, þegar ég
veit að þér líður vel og þú ert komin í
faðm Brands afa og Önnu ömmu,
langar mig að kveðja þig með nokkr-
um orðum.
Ég man að þegar ég var lítil og
kom í heimsókn til þín og Önnu ömmu
var alltaf til kandís handa mér og við
gerðum mikið af því að púsla og spila.
Ég man líka að þegar ég fékk að gista
hjá ykkur sátum við og horfðum á
sjónvarpið og þegar var kominn
háttatími lagðistu hjá mér og við
sungum saman fyrir svefninn. Og
þegar við vöknuðum fórum við fram í
eldhús og fengum okkur apríkósu-
graut í morgunmat.
Árið 1993, þegar þú fluttist á
Hjúkrunarheimilið Eir sem er hér í
næsta húsi við okkur, heimsótti ég
þig næstum daglega. Þá leið þér vel
og þú undir hag þínum hið besta. En
eftir því sem árin liðu og veikindi þín
ágerðust fækkaði heimsóknunum þó
að ég kæmi alltaf reglulega til þín.
Síðast heimsótti ég þig daginn áður
en þú kvaddir þennan heim.
Ég er þakklát fyrir að hafa þekkt
þig áður en þú veiktist og ég mun
geyma í minningunni stundirnar sem
við áttum saman.
Þín nafna,
Anna Rósa.
SIGURRÓS RÓSA
EINARSDÓTTIR &
31C= 3#44 &5 +07",8$
!
! "#
"..%
80 E %F6+
C5++ E +8) 0-0
" !+0 E 9"+, "++
0-00 E "&!+0 0 6
)"") +" --0)%
>
944
($*" 0;;
$06/
'
#
4
? 0!
)
"7
"..%
0' "
"++"9 #" "
8$ 09 0)*
9869 = '9 "
""+"9 "&4/ ,"
"&")%
!2
/
(
/ (
1
4 =3#442
&5 ,85!+%
+0 80 "++" 0"%
-
/
( 0
2 32
3#442
&5 "+%
0'"
,","%
"+ 600)* 60 *+6&
B6 *8 *+6&
= 6 *+6&%
@ 2 2
/
( / (
2#
)&,+",$*"-6""
/",6 ;<
$06/%
6/*"0-0
#+"&0,"+"0
0-00%,"+"0 80% /
"+)*%,"+"0 " 6-"
)"")%
@ 2
0 /
( /
2
43#
$06/%
'2
) +?
0' )*
6
)* 0)*
8
0"
)"") +" "&"5$"%
@ 2
/
( / (
2
3
#
0"8 ;;
"05$$%
'2 !(
3
+-&80
!"+&" 0 +"6 0
-"+8" 0" -000-0
)"") )"")"")%
4 =:#
9*$
E,",6
'
2 ! "3
4
6 0! ! "#
".A.%
"+
6-"*5
+8*5 6+ *5
:!"++0*5 :080 6+ "
!"$*5 0=" +
)"")%