Morgunblaðið - 15.03.2002, Qupperneq 61
ÞAÐ er lítil þurrð á blótum er
þorrinn gengur í garð, svo mikið
er víst. Íslendingar og Íslands-
vinir út um allan heim ganga
óhikað að bökkunum og er Am-
eríka þar í engu undanskilin.
Þannig hélt Íslendingafélagið í
Hampton Roads, einu úthverfa
Norfolk í Virginíuríki sitt blót á
dögunum og var mikið um dýrðir
að vanda. Súrmetið þótti ekki
amalegt til átu og skemmti fólk
sér hið besta við skraf og aðra
skemmtan.
Alíslenskir búningar voru að sjálfsögðu í heiðri hafðir.
Þorrablót í
Vesturheimi
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MARS 2002 61
Papar í kvöld
Vesturgötu 2, sími 551 8900
Matti the Maniac
Dan Cassidy og
the Irish Music Session
leika réttu tónlistina
föstudag, laugardag
og sunnudag
Allt á fullu
alla helgina
helgi heilags Patreks
Það verður ekki Írskara
Hverfisgata 26
Svalasta kráin í bænum
HARMONIKUBALL
Gömlu og nýju dansarnir - Dansleikur fyrir alla
„Heila nótt ég hoppað gæti..........“
Dansleikur laugardagskvöld frá kl. 22
í ÁSGARÐI, Glæsibæ við Álfheima.
Félagar úr Harmonikufélagi Reykjavíkur og
Harmonikufélagi Vesturlands leika fyrir dansi.
Ragnheiður Hauksdóttir syngur. Fordrykkur í boði hússins fyrir
fyrstu 150 gestina. Harmonikufélag Reykjavíkur.
Nærvera
(Proximity)
Spennumynd
Bandaríkin, 2001. Skífan VHS (90 mín.).
Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn: Scott
Ziehl. Aðalhlutverk: Rob Lowe, Kelly
Rowan og James Coburn.
DÁNARTÍÐNI innan veggja rík-
isfangelsisins í Ohio getur ekki talist
eðlileg og háskólaprófessorinn Will-
iam (Lowe), sem þar dúsir fyrir ölv-
unarakstur og manndráp af gáleysi,
telur sig vera í hættu. Í ljós kemur að
samtök aðstandenda fórnarlamba of-
beldisglæpa standa fyrir launmorð-
um á föngum og
verður William að
færa sönnur fyrir
máli sínu áður en
röðin kemur að
honum. Hér er að
mörgu leyti velt
upp áhugaverðum
spurningum um
réttlæti og refs-
ingu, í samhengi
við sorgarferli aðstandenda fórnar-
lamba ofbeldis. Mjög áleitið efni í
ljósi umræðunnar um dauðarefsing-
ar í Bandaríkjunum. Þessi áhuga-
verða og á köflum átakanlega hlið
myndarinnar lýtur þó í lægra haldi
fyrir formúlukenndum hasarnum og
einfeldningslegum úrlausnum sem
ágerast er fram í sækir. Fyrrum
táningsstirnið Rob Lowe er þó prýð-
isgóður í aðalhlutverkinu og er gam-
an að sjá gömlu kempuna James
Coburn ennþá í fullu fjöri. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Fangi
á flótta
MORGUNBLAÐIÐ hefur undan-
farið staðið fyrir svokölluðu Blað-
berakapphlaupi, en það gengur út á
að blaðberar höfuðborgarsvæðisins
keppast við að safna stigum. Þeir fá
ákveðin stig við upphaf og lok blað-
burðarins og ef þeir ljúka burði fyrir
kl. 7 fá þeir aukastig. Þeir stiga-
hæstu lenda svo í einskonar lukku-
potti sem dregið er úr mánaðarlega.
Í febrúar var enn á ný sett met í
punktasöfnun þegar fleiri blaðberar
en áður náðu hámarksárangri og
voru því fjölmargir sem komu til
greina í lokaúrslitunum. Íris Hauks-
dóttir hreppti aðalvinninginn að
þessu sinni og fékk hún GSM-síma
Nokia 3310 í verðlaun. Auk þess
fengu 20 aðrir blaðberar aukavinn-
inga, bíómiða fyrir tvo.
„Ég er með Lindarhverfið í Kópa-
vogi,“ segir Íris. „Þetta eru 100 blöð
og 150 um helgar.“
Hún segir að móðir sín hafi verið
mjög dugleg að hjálpa sér við blað-
burðinn og kann hún henni miklar
þakkir fyrir. „Það er búið að vera
rosalega mikið að gera hjá mér síðan
um áramót og hún á mikinn heiður
skilinn,“ segir Íris brosandi.
Íris segist vinna þetta með skól-
anum og í ljós kemur að hún er þessi
dæmigerði Íslendingur; það er bók-
staflega allt brjálað að gera hjá
henni.
„Ég er líka í kvöldvinnu. Svo er ég
að fara að taka þátt í Ungfrú Reykja-
vík og er í félagslífinu líka; er for-
maður listanefndarinnar í fjöl-
brautaskólanum mínum. Og svo er
ég líka í líkamsrækt.“
Íris fer á fætur hálfsex eða korter í
sex. Hún viðurkennir að þessar
fimmtán mínútur eigi það til að vera
drjúgar, þetta snemma á morgnana.
„Það tekur svona fjörutíu mínútur
til klukkutíma að bera þetta út. Svo
er maður mættur stálsleginn á
morgnana í skólann.“
En hún hlýtur nú að fara snemma
í bólið?
„Nei,“ segir hún og hlær við. „Ég
fer mjög seint að sofa!“
Íris er búin að vera í þessu í þrjú
ár.
„Ég er að reyna að borga upp bíl-
inn minn með þessu,“ segir þessi lífs-
glaða stúlka að lokum og kímir.
Blaðberakapphlaupið heldur
áfram í mars með nýjum vinningum.
Morgunblaðið/RAX
Blaðberakapphlaup Morgunblaðsins
Eldsnemma á
fætur, seint að sofa
Örn Þórisson, áskriftarstjóri
Morgunblaðsins, afhendir
Írisi Hauksdóttur verðlaunin.
Í TÆPA sex áratugi
hefur verið haldið
svokallað hjónaball á
Flúðum sem er ætlað
húsráðendum sem og
burtfluttum sveit-
ungum í Hruna-
mannahreppi.
Þetta er glæsileg-
asta skemmtun árs-
ins hér í sveitinni
enda aðsókn mikil
sem hefur orðið að
takmarka í seinni tíð. Að þessu
sinni fór hjónaballið fram laug-
ardagskvöldið 2. mars og sóttu
það um 300 manns. Veislumatur
af bestu gerð var á borðum svo
sem venja er. Heimatilbúin
skemmtiatriði á léttu nótunum
sem og gamanvísur kitluðu hlát-
urtaugar. Þar var að venju gert
góðlátlegt grín að ýmsu skoplegu
sem gerst hefur meðal sveitung-
anna á árinu. Sungið var og dans-
að af miklu fjöri langt fram á
nóttina við undirleik Hljómsveitar
Friðjóns Þórðarsonar. Þótti
hjónaballsfagnaðurinn takast með
afbrigðum vel að þessu sinni. Sex-
tán manna skemmtinefnd sem
skipuð er árlega sér um hjóna-
ballið hverju sinni.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Hjónin hlógu dátt að
sprellinu á sviðinu.
Það lá vel á þeim Lofti Þor-
steinssyni oddvita (t.h.) og
Pálmari Þorgeirssyni bílstjóra.
Hjónaball á Flúðum
Glæsilegasta skemmtun ársins
Hjónaballsnefndin heldur í hefð-
ina og syngur inn næstu nefnd.