Morgunblaðið - 08.09.2002, Page 1
MORGUNBLAÐIÐ 8. SEPTEMBER 2002
210. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Dagurinn sem
breytti öllu
10 26
Líður eins og á
tískusýningu í París
Íslensk orðabók
er sjálf viðmiðunin
22
y
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Mig langaði til að
egja sögu um eitthvað
em skipti Íslendinga
máli,“ segir Baltasar
Kormákur um kvik-
mynd sína Hafið, sem
rumsýnd verður á
östudag. Árni
Þórarinsson ræðir
við Baltasar um fjöl-
kyldudrama úr ís-
ensku kvótaplássi og
Anna Gunnhildur
Ólafsdóttir talar við
Gunnar Eyjólfsson um
ambúð sína við Þórð
Ágústsson útgerð-
rmann meðan á tök-
um stóð í Neskaups-
tað. 14
Hin óviðráðanlega sannleiksást
Sunnudagur
8. september 2002
B
ÞRIÐJUDAGINN 6. ágúst var að vanda
fjöldi fólks við Gullfoss í blíðskaparveðri,
rúmlega 18 gráða hita og hægum vindi. Höf-
undur þessarar myndar var þarna á ferðinni
og rak augun í eitthvað torkennilegt undir
fossinum. Við nánari athugun sannfærðist
hann um að þarna væri fugl, líklega álft, á
klöpp þar sem fossinn slitnar og beindi
myndavél sinni að honum og tók þá þessa
mynd með nokkrum aðdrætti.
Fuglaáhugamenn sem séð hafa myndina
furða sig á því að álftin skuli hafa komið sér
í þessar ógöngur, en hún mun hafa sést áður
í gljúfrinu, þá á klöpp nokkru neðan við foss-
inn og undir bergstálinu austan megin. Ekki
er vitað hvort eitthvað amar að fuglinum eða
hvort hann hafi misreiknað sig á flugi og
orðið að lenda niðri í gljúfrinu. Hann gæti
líka einfaldlega verið að kæla sig þarna í sól-
arhitanum!
Ljósmynd/Hálfdan Ómar Hálfdanarson
Fuglinn undir fossinum
GEORGE W. Bush Bandaríkjafor-
seti hyggst lýsa því yfir á fundi alls-
herjarþings Sameinuðu þjóðanna á
fimmtudag að Bandaríkjamenn
muni ráðast einir gegn Írak nema
leiðtogar annarra stórvelda ákveði
einnig að láta til skarar skríða, að
sögn The Washington Post í gær.
Bush hugðist ræða við Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, í sum-
ardvalarstaðnum Camp David í gær.
Írakar ráku vopnaeftirlitsmenn SÞ
úr landi 1998 en í gær sagði Amr
Moussa, framkvæmdastjóri Araba-
bandalagsins, að „miklar líkur“ væru
á því að þeim yrði leyft að snúa aftur
til landsins. Að sögn bandaríska dag-
blaðsins er það nú ríkjandi skoðun í
herbúðum Bush að tími vopnaeftir-
litsins sé liðinn og beita verði her-
valdi til að koma Saddam frá völdum.
Ráðamenn hafi þó látið sannfærast
um að hægt sé að fá SÞ til að sam-
þykkja að sendir verði á ný eftirlits-
menn til Íraks að skoða staði þar
sem grunur leikur á að verið sé að
gera tilraunir með sýkla- og efna-
vopn eða önnur gereyðingarvopn.
Neiti Írakar enn kröfu SÞ gætu lykt-
ir málsins orðið að alþjóðlegar hern-
aðaraðgerðir hæfust gegn Írökum.
Bush og Blair hafa undanfarna
daga rætt í síma við leiðtoga þeirra
þriggja þjóða, Frakka, Rússa og
Kínverja, sem einnig hafa neitunar-
vald í öryggisráði SÞ. Hafa Frakkar
og Rússar lagt áherslu á að aðgerðir
gegn Írak án samþykkis ráðsins
væru ólöglegar.
The Washington Post segir Bush setja SÞ úrslitakosti
Einhliða árás á Írak
náist ekki samstaða
Washington, Moskvu, London. AFP, AP.
PÓLSKIR sérfræðingar sem annast
undirbúning Póllands fyrir aðild að
Evrópusambandinu (ESB) segja að
viss hætta sé á því að Pólverjar – ein
fátækasta þjóð Evrópu – lendi í því
fyrst eftir inngönguna í sambandið
að greiða jafnvel meira í sameigin-
lega sjóði ESB en þeir fá úr þeim.
Þetta helgist af því að pólska
stjórnsýslan sé enn langt frá því að
geta fullnægt kröfum sem gerðar
eru til umsýsluaðila stuðningsáætl-
ana sambandsins. Einnig sé enn
langt í land með að bændur, sveit-
arfélög og aðrir aðilar geti uppfyllt
sett skilyrði fyrir styrkveitingum.
Borga
Pólverjar
með sér?
Gengur misjafnlega/18
TVEIR bræður í Flórída, 13 og
14 ára gamlir, voru á föstudag
dæmdir sekir um að hafa í fyrra
myrt sofandi föður sinn með
hafnaboltakylfu og síðan kveikt
í húsinu. Fertugur karlmaður,
Ricky Martin Chavis, er einnig
hafði verið ákærður fyrir morð-
ið, var sýknaður.
Eldri drengurinn heitir Der-
ek King en hinn Alex King. Í yf-
irheyrslum sagðist Alex hafa
átt hugmyndina en Derek hefði
framið verknaðinn. Seinna
drógu bræðurnir þann fram-
burð til baka og kenndu Chavis
um morðið. Sögðu þeir hann
hafa fullyrt að þeir myndu fá
vægan dóm.
Talið er að drengirnir geti
hlotið lífstíðarfangelsi en sam-
tímis því sem réttað var í máli
þeirra voru bræðurnir aðalvitni
í málinu gegn Chavis, sem var
kunningi fjölskyldunnar.
Föðurmorð í Flórída
Bræður
dæmdir
sekir
Miami. AFP.