Morgunblaðið - 11.02.2003, Síða 1
STOFNAÐ 1913 40. TBL. 91. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 mbl.is
Sópranar í
Óperunni
Hulda Björk og Sesselja í
hádegistónleikaröð Listir 24
Hönnuðir í New York kynna
haust- og vetrarlínuna Fólk 51
Lokeren í
toppslagnum
Rúnar Kristinsson í draumastöðu í
belgíska boltanum Íþróttir 44
Vaðmál
í borginni
DONALD Rumsfeld, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkin og
önnur aðildarríki Atlantshafsbandalagsins
(NATO) en þau þrjú sem beittu í gær neitunar-
valdi gegn virkjun varnarskuldbindinga banda-
lagsins til handa Tyrkjum vegna hugsanlegs
stríðs í Írak, myndu halda öllum nauðsynlegum
undirbúningi áfram „utan NATO ef nauðsyn
krefur“.
Að beiðni Tyrkja voru haldnir neyðarfundir í
höfuðstöðvum NATO í Brussel í gær vegna þess
ágreinings sem uppi er innan bandalagsins um
það hvort virkja beri varnarskuldbindingar þess
til handa Tyrkjum undir núverandi kringum-
stæðum.
Bandaríkjamenn höfðu farið fram á að varnir
NATO yrðu virkjaðar vegna þeirrar hættu sem
að Tyrklandi steðjaði ef til stríðsátaka í Írak
kæmi en Frakkar og Belgar beittu með stuðn-
ingi Þjóðverja neitunarvaldi gegn því, með þeim
rökum að ótímabært væri að taka slíka ákvörð-
un; í henni fælist að gefnar hefðu verið upp á
bátinn vonir um friðsamlega afvopnun Íraka.
Ekki náðist niðurstaða á fundunum í gær og var
ákveðið að halda þann þriðja í dag, þriðjudag.
„Ekkert sem réttlætir stríð“
Jacques Chirac Frakklandsforseti las í gær
upp sameiginlega yfirlýsingu leiðtoga Frakk-
lands, Rússlands og Þýzkalands um sameigin-
legt átak þjóðanna þriggja til að afstýra stríði;
hervaldi skuli aðeins beitt er fullreynt sé að öll
önnur ráð séu þrotin. „Í dag er ekkert sem rétt-
lætir stríð,“ sagði Chirac eftir viðræður við
Vladimír Pútín Rússlandsforseta í París.
Yfirlýsingin virtist ætla að ýta enn undir þann
klofning sem kominn er upp milli evrópsku
meginlandsveldanna og Bandaríkjanna um af-
stöðuna til lausnar Íraksdeilunni. Gríska stjórn-
in, sem gegnir nú formennsku í Evrópusam-
bandinu, boðaði í gær til aukaleiðtogafundar
næstkomandi mánudag í því augnamiði að sjóða
saman sameiginlega stefnu ESB í Íraksmálinu.
Írösk stjórnvöld stigu annars eitt skrefið enn
að því að fara að kröfum vopnaeftirlitsmanna
SÞ er þau heimiluðu að U-2-njósnaflugvélum
yrði beitt við eftirlitsflug yfir öllu Írak. Tals-
menn Bandaríkjastjórnar sögðu þetta ekki
sannfærandi, en yfirmenn vopnaeftirlits SÞ
virtust hins vegar vongóðir um að meðal ráða-
manna í Bagdad örlaði á hugarfarsbreytingu til
batnaðar.
Undirbúningi fram hald-
ið „jafnvel utan NATO“
Washington, París, Bagdad. AP, AFP.
Neitunarvaldi/16–17
MIKIÐ gekk á í veðrinu við suður-
strönd landsins í gær. Reynis-
drangar virtust í mikilli baráttu
við náttúruöflin en þeir stóðu af
sér brimölduna sem fyrr. Hver
aldan á fætur annarri skall í Reyn-
isfjörunni og var eins og stórir
skaflar væru að hlaðast upp. En
þegar betur var að gáð voru þetta
magnaðar sjávarbylgjur sem stigu
dansinn í takt við veðrið við Dyr-
hólaey.
Morgunblaðið/RAX
Brimalda
við Reynis-
dranga
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra
sagði á Alþingi í gær að Íslendingar teldu, líkt
og flestar aðrar aðildarþjóðir Atlantshafs-
bandalagsins (NATO) að mjög eðlilegt væri að
huga að vörnum Tyrklands ef til átaka kæmi í
Írak. „Íslenska ríkisstjórnin er þeirrar skoð-
unar að Atlantshafsbandalagið geti ekki neitað
þessu á grundvelli 4. og 5. gr. Atlantshafssátt-
málans. Þannig að okkur finnst þetta mál liggja
ljóst fyrir,“ sagði utanríkisráðherra.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs, sagði Ís-
land hafa gengið í NATO með fyrirvara um að
það myndi aldrei segja annarri þjóð stríð á
hendur. „Þessi fyrirvari er enn í gildi,“ sagði
hann. „Og hæstvirtri ríkisstjórn væri í lófa lag-
ið að vísa til hans ef hún vildi viðhalda frið-
arhefðum íslensku þjóðarinnar.“
Eðlilegt að
huga að vörn-
um Tyrklands
Svör Blix/10
SEÐLABANKI Íslands hefur ákveð-
ið að lækka stýrivexti sína um 0,5%
frá og með 18. febrúar nk. og verða
stýrivextir bankans eftir lækkun
5,30% eða lægri en nokkru sinni síðan
á árinu 1994. Þá gerir Seðlabankinn
ráð fyrir að verðbólga verði rétt rúm-
lega 2% á þessu og næsta ári. Eins
spáir Seðlabankinn því nú að hag-
vöxtur verði 1,75% á þessu ári en 3%
árið 2004. Þrátt fyrir að bankinn taki
nú í fyrsta sinn mið af stóriðjufram-
kvæmdum í spá sinni er þetta aðeins
lítillega meiri hagvöxtur á þessu ári
en bankinn spáði í
nóvember síðast-
liðnum, þegar
spáð var 1,5%
hagvexti, og sá
sami á næsta ári.
Segir Seðlabank-
inn að ástæðurnar
liggi m.a. í meiri
slaka um þessar
mundir en þá var
fyrirséður og
hærra gengi, en einnig beri að hafa í
huga að meginþungi stóriðjufram-
kvæmda verði ekki fyrr en á árunum
2005 og 2006. Seðlabankinn telur að
þrátt fyrir stóriðjuframkvæmdir
verði hægt að halda niðri þenslu í
efnahagslífinu með samspili innri að-
lögunar í þjóðarbúskapnum og að-
gerða í peninga- og ríkisfjármálum.
Bankinn segir að á heildina litið
muni ríkja nokkuð gott jafnvægi í
þjóðarbúinu næstu tvö ár samkvæmt
spánni. Spáð er að viðskiptahalli verði
langt innan sjálfbærra marka þrátt
fyrir innflutning fjárfestingarvarn-
ings vegna stóriðjuframkvæmda.
Þótt nokkur slaki verði í hagkerfinu á
næstu mánuðum, sem birtist m.a. í
því að spáð er að atvinnuleysi verði að
meðaltali 3,5% á þessu ári, verði hann
fremur lítill á árinu í heild og á næsta
ári muni atvinnuleysi minnka en
framleiðsluspenna verði þó enn mjög
lítil.
Íslandsbanki, Landsbanki og
sparisjóðirnir tilkynntu um 0,5%
lækkun óverðtryggðra vaxta í kjölfar
tilkynningar Seðlabankans í gær.
Bankar lækka vexti um 0,5%
Vextir/14
GERHARD Schröder, kanzlari Þýzka-
lands, og Joschka Fischer utanríkisráð-
herra eru nú komnir í hár saman út af
stefnu þýzku ríkisstjórnarinnar í Íraks-
málinu, eftir því sem fullyrt var í þýzkum
fjölmiðlum í gær. Er jafnvel sagt að þessi
ágreiningur vegi að kjarna stjórnarsam-
starfs jafnaðarmanna og græningja.
„Ísöld milli Schröders kanzlara og
Fischers utanríkisráðherra,“ skrifaði
æsifréttablaðið Bild. „Fischer öskrar á
Schröder!“ Bild hafði það eftir ónafn-
greindum embættismönnum að Fischer
hefði hellt sér yfir Schröder á ráðstefnu í
München um helgina fyrir að hafa lekið til
fjölmiðla upplýsingum um þýzk-franska
áætlun um afvopnun Íraka án stríðs.
Talsmenn stjórnarinnar vísuðu þessum
fregnum á bug.
Fischer og
Schröder í
hár saman?
Joschka Fischer og Gerhard Schröder.
Berlín. AFP.