Morgunblaðið - 11.02.2003, Blaðsíða 46
ÍÞRÓTTIR
46 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
GUNNAR Andrésson komst ekki
á blað þegar lið hans Kadetten
Schaffhausen lagði Endingen,
32:22, í fyrstu umferð svissnesku úr-
valsdeildarinnar í handknattleik
sem hófst á ný um helgina eftir hlé
frá áramótum. Bjartur Máni Sig-
urðsson komst heldur ekki á blað
fyrir Endingen. Kadetten Schaff-
hausen er í fjórða sæti í deildarinn-
ar en Endingen er í næst neðsta
sæti.
HEIMSMETHAFINN í 100 m
hlaupi karla, Bandaríkjamaðurinn
Tim Montgomery, hefur afboðað
komu sína á innanhússmót sem
fram fer í Birmingham á Englandi
hinn 21. þessa mánaðar. Skipuleggj-
endur mótsins höfðu krafist þess að
Montgomery útskýrði hvers vegna
hann og unnusta hans Marion Jones
hefðu ráðið hinn umdeilda þjálfara
Charlie Francis til starfa á dög-
unum en hann er á bannlista á al-
þjóðavettvangi eftir að Ben Johnson
féll á lyfjaprófi árið 1988 á ÓL undir
hans stjórn. Montgomery og Jones
sögðu síðan Francis upp störfum
eftir að einn af styrktaraðilum Jon-
es, Nike, hafði sett sig á móti því að
hún starfaði með Francis sem hefur
margsinnis lýst þeirri skoðun sinni
að ekki ætti að lyfjaprófa í íþróttum.
FORRÁÐAMENN enska úrvals-
deildarliðsins Fulham gera sér von-
ir um að geta leikið heimaleiki sína
á Stamford Bridge heimavelli
Chelsea. Ekki hefur enn verið tekin
ákvörðun um hvað gera eigi við nú-
verandi heimavöll Fulham, Craven
Cottage, en byggingaverktakar
hafa boðið um 6,5 milljarða ísl. kr.
fyrir byggingalóðir á svæðinu sem
völlurinn stendur á og hafa nú þeg-
ar skipulagt lúsuxíbúðahverfi þar
sem Craven Cottage stendur í dag.
FULHAM hefur leikið heimaleiki
sína í vetur á Loftus Road heima-
velli Queens Park Rangers og
greiða QPR um 130 millj. ísl. kr. í
leigu. Forráðamenn Fulham og
Chelsea hafa verið í viðræðum að
undanförnu um að samnýta Stam-
ford Bridge á næstu leiktíð.
FÓLK
HELENA Ólafsdóttir hefur verið
ráðin landsliðsþjálfari kvenna í
knattspyrnu. Helena verður áfram
þjálfari kvennaliðs Vals, hún tók við
liðinu í fyrra en áður hafði hún þjálf-
að yngri flokka hjá KR en hún lék í
mörg ár með félaginu áður en hún
tók við þjálfun Vals.
Helena, sem á átta landsleiki að
baki, sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi að það hefði
komið sér á óvart að fá boð um að
gerast landsliðsþjálfari. „Þetta kom
mér virkilega á óvart og ég hafði
ekkert hugleitt þennan möguleika
fyrr en mér var boðið starfið. Eftir
nokkurra daga umhugsun og við-
ræður við fjölskylduna, ættingja og
vini ákvað ég að slá til. Valsmenn
tóku þessu líka vel og ég tek þetta
starf að mér í fullri sátt við þá,“
sagði nýráðinn landsliðsþjálfari
kvenna.
Helena tekur við starfinu af Jör-
undi Áka Sveinssyni sem stjórnar
liðinu í síðasta sinn á sunnudaginn
þegar liðið mætir Bandaríkjunum í
vináttuleik. Helena fer með landslið-
inu vestur um haf til að fylgjast með
þeim leik. „Það er gott að geta farið
með og fylgst með hvernig Jörundur
hefur unnið þetta með stelpunum.
Ég á ekki von á neinum stökkbreyt-
ingum hjá mér en auðvitað kem ég
með mínar áherslur,“ sagði Helena
sem er ráðin fram yfir Evrópumótið
en íslenska liðið leikur einn leik í
júní, annan í ágúst og þrjá í sept-
ember eftir að Íslandsmótinu lýkur.
„Þetta stangast ekki mikið á við
deildina hér heima og starf mitt hjá
Val,“ sagði landsliðsþjálfarinn.
Helena
tekur við
lands-
liðinu
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna
KR – Njarðvík .......................................68:58
Stigahæstar hjá KR: Jessica Stomski 21,
Hanna Kjartansdóttir 16.
Stigahæstar hjá Njarðvík: Krystal Scott
29
Staðan:
Keflavík 15 13 2 1183:788 26
KR 16 9 7 986:1025 18
Grindavík 15 8 7 1063:1102 16
Njarðvík 16 7 9 1055:1123 14
Haukar 15 5 10 879:1013 10
ÍS 15 4 11 889:1004 8
1. deild karla
Höttur – Ármann/Þróttur ................... 85:92
Selfoss/Laugdælir - Þór Þ ................... 61:73
Staðan:
KFÍ 13 11 2 1185:1031 22
Reynir S. 11 10 1 976:820 20
Þór Þorl. 13 9 4 998:941 18
Ármann/Þrótt. 13 8 5 1132:1081 16
Fjölnir 13 6 7 1058:1072 12
Stjarnan 12 4 8 880:891 8
Höttur 13 4 9 892:1089 8
ÍS 13 3 10 971:1052 6
Selfoss/Laugd. 13 2 11 967:1082 4
KNATTSPYRNA
England
1. deild:
Reading – Gillingham ...............................2:1
ÚRSLIT
HANDKNATTLEIKUR
1. deild kvenna, Essodeild:
Seltjarnarnes: Grótta/KR – Fylkir/ÍR.....20
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH.................19.30
Í KVÖLD
Aðalfundur hjá ÍA
Aukaaðalfundur Knattspyrnufélagsins ÍA
fer fram í kvöld í Íþróttamiðstöðinni Jað-
arsbökkum kl. 20. Ólafur Þórðarson, þjálf-
ari meistaraflokks, Ingibjörg H. Ólafsdótt-
ir kvennaþjálfari og Þór Hinriksson,
yfirþjálfari yngri flokka, mæta á fundinn og
segja frá stöðu mála.
FÉLAGSLÍF
Geir Þorsteinsson, framkvæmda-stjóri KSÍ, sagði í samtalið við
Morgunblaðið að samþykkt leyfis-
kerfisins væri einhver stærsta og
metnaðarfyllsta breyting í sögu
knattspyrnunnar hér á landi.
„Framvegis verður ekki nóg að
vinna sér sæti í deildinni á íþrótta-
legum forsendum – aðrir hlutir þurfa
einnig að vera í lagi, svo sem vall-
araðstæður, fjármál, stjórn og skipu-
lag félagsins og réttindi þjálfara. Í
stuttu máli sagt eru gerðar stór-
auknar kröfur á hendur félögunum
um umgjörð, fjármál og faglega
stjórnun.“
Þá var tillaga milliþinganefndar
um breytingar á reglugerðum um fé-
lagaskipti og samninga leikmanna
samþykkt. Nú eru félagaskipti á
milli Íslands og annarra landa ein-
ungis leyfð frá 15. nóvember til 31.
maí og frá 15.–31. júlí. „Við ákváðum
að reglur um félagaskipti milli ís-
lenskra liða yrðu óbreyttar fyrst í
stað, enda þótt Alþjóðaknattspyrnu-
sambandið geri ráð fyrir að þær fari í
sama farveg. Við teljum hinsvegar
að það sé nokkur óvissa um fram-
haldið í þeim efnum og vildum því að-
eins taka eitt skref í einu og sjá hver
þróunin verður,“ sagði Geir. Í þess-
um lið var ennfremur samþykkt að
íslensk félög mættu gera samninga
við leikmenn á því ári sem þeir verða
16 ára, í staðinn fyrir 17 ára sem ver-
ið hefur til þessa.
Tillaga um að komið yrði á fót
jöfnunarsjóði vegna ferðakostnaðar í
deildakeppninni var samþykkt, að
því gefnu að kostnaðurinn yrði
greiddur af ríkissjóði. „Þetta er í
raun byggðamál og tengist þings-
ályktunartillögu sem hefur verið í
gangi og snýst um byggðastyrk til
íþróttasambanda til að jafna kostnað
vegna þátttöku liða af landsbyggð-
inni. Með þessari samþykkt hefur
knattspyrnuhreyfingin sett þrýsting
á stjórnvöld um að jafna aðstæður
keppnisliða í íþróttum,“ sagði Geir.
Tillaga um breytingar á bikar-
keppni karla var felld en þar var gert
ráð fyrir að átta efstu lið deilda-
keppninnar kæmu ekki til leiks fyrr
en í 16 liða úrslitum. Um leið féll
breytingartillaga um að undanúrslit
keppninnar yrðu leikin samkvæmt
drætti en ekki á Laugardalsvelli eins
og á síðasta ári. Hinsvegar var sam-
þykkt að KSÍ myndi leggja fram til-
lögu á næsta ársþingi um að breyta
undanúrslitunum til fyrra horfs frá
og með 2004.
Tillaga um að heimila varaliðum í
meistaraflokki karla þátttöku í
deildakeppninni var vísað til milli-
þinganefndar. Hún mun meta kosti
þess og galla fyrir næsta þing og
hvort rétt sé að varaliðin fái inn-
göngu í deildakeppnina eða hvort
betra sé að reyna að efla keppni í 1.
flokki.
Morgunblaðið/Jóhann G. Kristinsson
Nýkjörin stjórn Knattspyrnusambands Íslands. Þriðja röð frá hægri: Jóhannes Ólafsson, Lúðvík
Georgsson, Jón Gunnlaugsson, Þórarinn Gunnarsson, Guðmundur Ingvarsson og Ómar Bragi
Stefánsson. Önnur röð: Einar Friðþjófsson, Björn Friðþjófsson, Jakob Skúlason, Ástráður Gunn-
arsson, Ágúst Ingi Jónsson og Kjartan Daníelsson. Fremsta röð: Eggert Steingrímsson, Halldór
B. Jónsson, Eggert Magnússon, formaður, Geir Þorsteinsson og Ingibjörg Hinriksdóttir.
Leyfiskerfið komið á í knattspyrnunni á Íslandi
„Ein stærsta
breytingin
í sögunni“
REGLUGERÐ um leyfiskerfi í
efstu deild karla var samþykkt á
ársþingi Knattspyrnusambands
Íslands síðasta laugardag. Þar
með er ekki lengur öruggt að lið
sem hafnar í öðru af tveimur
efstu sætum 1. deildar karla
leiki í efstu deild árið á eftir. Til
að það megi verða þarf það að
uppfylla ýmis skilyrði. JÓHANN Ólafsson frá Vest-
mannaeyjum lét af störfum
sem stjórnarmaður Knatt-
spyrnusambands Íslands á árs-
þingi sambandsins um sl.
helgi. Jóhann hefur lengst
allra verið í stjórn KSÍ eða í 27
ár – frá 1977.
Rafn Hjaltalín var í stjórn
KSÍ í 26 ár, 1976–2001. Aðrir
sem hafa verið yfir 20 ár í
stjórn sambandsins, eru: Jón
Magnússon í 23 ár (1953–
1975), Björgvin Schram í 22 ár
(1947–1954, 1955–1968),
Ragnar Lárusson í 21 ár
(1950–1970) og Guðmundur
Sveinbjörnsson í 21 ár (1947–
1967).
Jóhann
í stjórn
í 27 ár