Morgunblaðið - 11.02.2003, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.02.2003, Qupperneq 12
FRÉTTIR 12 ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ VERULEGAR líkur eru á að stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkur- borgar hafi brotið gegn lögum um opinber innkaup þegar hún ákvað að taka ekki lægsta tilboði í lokuðu útboði um ytri endurskoðun borg- arinnar. Þetta er mat kærunefndar útboðsmála, sem kemur fram í rök- stuðningi nefndarinnar fyrir þeirri ákvörðun að stöðva samningagerð borgarinnar um að koma ytri end- urskoðun borgarinnar í hendur endurskoðunarfyrirtækis. Lögfræðingur Deloitte & Touche, Hróbjartur Jónatansson, segir að munurinn á lægsta og næstlægsta tilboði sé um 10 millj- ónir króna með virðisaukaskatti á samningstímanum. „Í ljósi niður- skurðar borgarinnar í velferðar- málum ætti borginni að vera fengur í að taka lægsta tilboðinu með þeim augljósa ávinningi sem því fylgir,“ segir Hróbjartur. Á fundi borgarráðs 9. apríl í fyrra var lögð fram tillaga um að ytri endurskoðun borgarinnar yrði komið í hendur endurskoðunarfyr- irtækis. Deloitte & Touche hf. átti lægsta tilboðið í verkið í lokuðu út- boði sem fimm fyrirtækjum var boðið að taka þátt í. Stjórn Inn- kaupastofnunar ákvað að taka næstlægsta tilboðinu og kærði Deloitte & Touche þá ákvörðun til kærunefndar útboðsmála. Nefndin ákvað að stöðva samningagerð borgarinnar um ytri endurskoð- unina þar til endanlega hefði verið skorið úr kærunni. Þar sem nefndin hafði stuttan tíma til að taka ákvörðun í málinu lá skriflegur rök- stuðningur fyrir ákvörðuninni ekki fyrir fyrr en í byrjun þessarar viku. Í rökstuðningi nefndarinnar seg- ir að miðað við þau gögn og skýr- ingar sem liggi fyrir í málinu verði ekki séð að sá hluti tilboðs Deloitte & Touche, sem fram komi í grein- argerð, sé í beinu ósamræmi við út- boðsgögn eða að öðru leyti þannig úr garði gerður að heimilt hafi verið að hafna tilboðinu alfarið á þeim forsendum. Í kæru Deloitte & Touche er vitnað í bréf umsjónarhóps með út- boðinu sem lagt var fyrir stjórn Innkaupastofnunar. Þar segir að tilboð Deloitte & Touche geri ráð fyrir því að verktaki skili verk- kaupa að töluverðu leyti öðru verki en útboðsgögn kveði á um. Ekki í samræmi við gögn Tilboðið geri ráð fyrir því að til að verkið verði framkvæmt þurfi Reykjavíkurborg að leggja fram á þessu ári um 7.000 vinnustundir. Útboðsgögnin hafi ekki gert ráð fyrir þessum þætti. Því hafi tilboðið ekki verið í samræmi við útboðs- gögn og þær forsendur sem þar voru settar fram. Deloitte & Touche segir að tilboð fyrirtækisins hafi verið í fullu sam- ræmi við útboðsgögn, lög, reglur og góðar endurskoðunarvenjur og þar sem um lokað útboð sé að ræða sé Innkaupastofnun skylt, samkvæmt 14. grein laga um framkvæmd út- boða og 50. grein laga um opinber innkaup, að taka lægsta tilboði Deloitte & Touche. Í kæru sinni krefst Deloitte & Touche þess að tilboð fyrirtækisins verði lýst gilt og Innkaupastofnun verði gert að gera verksamning við D&T á grundvelli tilboðsins. Til vara er þess krafist að útboð borg- arinnar í hina ytri endurskoðun verði lýst ógilt í heild sinni og lagt fyrir Innkaupastofnun að efna til útboðs að nýju. Að auki er gerð krafa um að kærunefnd útboðsmála láti í ljós álit sitt um skaðabóta- skyldu Innkaupastofnunar og að stofnunin greiði Deloitte & Touche kostnað vegna kærunnar. Kærunefnd útboðsmála stöðvaði samning um ytri endurskoðun Reykjavíkurborgar Telur líkur á að lög hafi verið brotin D&T krefst þess að lægsta tilboði fyrirtækisins í lokuðu útboði í ytri endurskoðun Reykjavíkur verði tekið UTANRÍKISRÁÐHERRA telur eðlilegt að lækka flugvallargjald í millilandaflugi til jafns við gjald sem tekið er í innanlandsflugi enda styttist í að málið verði dómtekið hjá EFTA-dómstólnum í Brüssel. Stjórnendur Flugstöðvar Leifs Ei- ríkssonar hafa lengi gert athuga- semdir við þessa skattlagningu og bent á að hún sé mjög stór liður í heildarskatt- og gjaldtöku á flug- vellinum og vart þarf að efast um að ferðaþjónusaðilar hér á landi myndu fagna lækkun gjaldsins. Samgönguráðherra og ráðherra ferðamála sér hins vegar tormerki á þessu enda yrði þá að sækja um hálfan milljarð króna í vasa skatt- greiðenda til þess að tryggja fjár- mögnun framkvæmda og viðhalds við flugvelli landsins. Hann telur fátt benda til þess að flugvallar- gjaldið bægi farþegum frá landinu en hagsmunaaðilar furða sig mjögá þeim ummælum ráðherra. Gjaldið 660% hærra í millilandafluginu Heildartekjur af flugvallargjaldi, öðru nafni flugvallarskatti, sem Flugmálastjórn innheimtir af brott- fararfarþegum í innanlands- og millilandaflugi námu um 670 millj- ónum árið 2001 en lækkuðu um 4,7% eða í 638 milljónir króna í fyrra samkvæmt nýjum bráða- birgðatölum Flugmálastjórnar. Af þessum 638 milljónum voru 587 milljónir heimtar af farþegum í millilandaflugi en 51 milljón af far- þegum í innanlandsflugi. Gjaldið á hvern fullorðinn einstakling í milli- landaflugi er 1.250 krónur og 165 í innanlandsflugi og hefur raunar verið óbreytt í krónum talið allar götur frá árinu 1991 en fjölgun far- þega í millilandafluginu hefur vegið upp á móti raunlækkun gjaldsins. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra hefur lýst þeirri skoðun að eðlilegt sé að lækka flugvallargjald í millilandaflugi til jafns við innan- landsflugið. Með því móti kæmust menn hjá hjá málarekstri fyrir EFTA-dómstólnum en Eftirlits- stofnun EFTA hefur sem kunnugt er stefnt íslenska ríkinu vegna mis- munandi gjaldtöku. Sú lausn sem utanríkisráðherra bendir á þýðir hins vegar að miðað við fjölda far- þega í milli- og innanlandsflugi í fyrra hefði gjaldið aðeins skilað um 129 milljónum króna í stað 638 milljóna, m.o.ö. hefðu tekjur Flug- málastjórnar vegna viðhalds, örygg- isbóta, framkvæmda o.s.frv. við flugvellina í landinu skerst um 510 milljónir í einu vetfangi. Ljóst er ríkið þyrfti að bæta Flugmálastjórn þann tekjumissi með einhverjum hætti og þá að öllum líkindum með beinum framlögum úr ríkissjóði; þannig hefur samgönguráðherra bent á að þennan hálfa milljarð þurfi að sækja í vasa skattgreið- enda. Þetta er þó ekki alls kostar rétt. Það eru auðvitað ekki síður Ís- lendingar en útlendingar sem greiða flugvallargjaldið. Þannig að ekki er rétt að tala um viðbótar- skattheimtu upp á hálfan milljarð. Hlutfall Íslendinga af heildarfjölda farþega sem fer um flugvöllinn í Keflavík hefur, eftir því sem næst verður komist, verið á bilinu 45-50% síðustu árin og landsmenn hafa því staðið undir hátt í helmingi af gjald- inu og viðbótarskattheimtan er ekki hálfur milljarður þar sem ríkið myndi að stórum hluta til færa höndina úr einum vasa landsmanna í annan. Annar kostur væri sá að lækka gjaldið í millilandaflugi og hækka í innanlandsflugi þannig að gjaldið væri hið sama og heildartekjurnar óbreyttar. Ætla má að til þess sé þó lítill pólitískur vilji enda hefur rekstur í innanlandsfluginu verið mjög erfiður, svo ekki sé meira sagt, og slík ákvörðun er heldur vart til vinsælda fallin rétt fyrir kosningar. Þriðji kosturinn væri að láta reyna á málið fyrir EFTA-dóm- stólnum eins og samgönguráðherra hefur bent á. Umþóttunartíma hafa menn þó ekki langan því eftir því sem næst verður komist eru allar líkur á að EFTA-dómstóllinn taki málið fyrir strax í vetur og fyrir kosningarnar í vor. Alþingi þyrfti að sam- þykkja breytingar Flugvallargjald er innheimt sam- kvæmt lögum frá árinu 1987 en gjaldið sjálft og ráðstöfun þess er ákveðin í samgönguáætlun (áður flugmálaáætlun) sem samgönguráð- herra leggur fyrir Alþingi þannig að breytingar á gjaldinu þurfa að ganga í gegnum þingið. Íslensk stjórnvöld eru vissulega í klípu vegna stefnu eftirlitsstofnunar EFTA og hefur verið lögð töluverð vinna í að finna lausn enda tifar klukkan nú hratt í þessu máli. Hafa bæði samgöngu-, fjármála- og utan- ríkisráðuneytið komið að þeirri vinnu. Menn hafa m.a. horft til landa eins og Finnlands og Svíþjóð- ar þar sem um 50% munur er á sköttum í innanlands- og millilanda- flugi. Hvernig sem málin velkjast er þó ljóst að finna þarf lausn sem Eft- irlitsstofnun EFTA sættir sig við og sem jafnframt tryggir að viðhald og framkvæmdir við flugvelli innan- lands verði áfram með eðlilegum hætti. Bent hefur verið á að gjaldið sem heimt er af farþegum í milli- landaflugi í Keflavík renni að mjög litlu leyti til framkvæmda eða við- halds á flugvellinum þar og því séu farþegar í millilandaflugi að greiða niður innanlandsflugið. Þetta má vissulega til sanns vegar færa og þannig má til að mynda nefna að Keflavíkurflugvöllur fékk 64 millj- óna króna framlag í flugmálaáætlun árið 2000 eða aðeins brot af því sem Flugmálastjórn tók í gjöld af far- þegum sem um flugvöllinn fóru. Á móti hefur verið bent á það að ekki sé óeðlilegt að hlutfallslega meira renni til flugvallana innanlands þar sem flugvellirnir í Reykjavík, á Ak- ureyri og á Egilsstöðum séu vara- flugvellir í millilandaflugi og stærð þeirra og uppbygging endurspegli þessa staðreynd. Rökin eru þá þau að uppbygging á þessum stöðum komi Keflavíkurflugvelli einnig til góða. Ef ekki væri fyrir þessa velli þyrftu farþegaþotur að fljúga með mun meira eldsneyti en ella. Hvort þessi rök nægi til þess að skýra skiptingu framlaganna á flugmála- áætlun milli innanlandsvallanna og Keflavíkurflugvallar er þó önnur saga. Margir telja að lækkun flug- vallargjalds á farþega í millilanda- flugi úr 1.250 krónum í 165 krónur, eins og gildir í innanlandsflugi, muni verða til þess að fleiri flug- félög myndu ákveða að fljúga til Ís- lands sem táknar um leið að skerð- ing flugvallargjaldsins yrði hlut- fallslega minni en sem nemur lækkuninni. Erlendum ferðamönn- um myndi þá fjölga og ferðaþjón- usta eflast enn frekar, samkeppni í flugi myndi aukast og verð til neyt- enda hugsanlega lækka. Rökin eru sem sagt þau að þegar á heildina er litið myndi verða þjóðhagslegur ávinningur af því að lækka gjöldin í millilandafluginu. Hafa rætt við Easy Jet, Maersk Air og Ryan Air Samgönguráðherra sagði aftur á móti í Morgunblaðinu að hann telji fátt benda til þess að kostnaður vegna flugvallargjaldsins bægi frá farþegum. Sé það rétt er auðvitað ekki eftir neinu að slægjast við það að lækka flugvallargjaldið í milli- landaflugi. Þessa fullyrðingu sam- gönguráðherra telja hagsmunaaðil- ar sem Morgunblaðið hefur rætt við vera gersamlega út í hött og þeir undrast mjög að ráðherra ferða- mála skuli halda slíku fram. Um það verður ekki deilt að flugvallargjald- ið eða farþegaskatturinn er eitt af því sem lággjaldaflugfélögin sem skoðað hafa möguleika á að fljúga hingað hafa sett fyrir sig. Þetta hafa þau sjálf sagt og eins íslenskir að- ilar sem átt hafa í viðræðum við þau. Þannig kom t.d. skýrt fram af hálfu lágfargjaldaflugfélagsins Go að hár kostnaður á Keflavíkurflug- velli hafi verið meginástæða þess að félagið hætti við flug hingað á liðnu sumri og kom m.a. fram í tilkynn- ingu félagsins að Keflavíkurflug- völlur væri sá dýrasti sem félagið hafði notað. Þá ræddu fulltrúar Ryan Air við íslensk stjórnvöld fyrir stuttu en félagið taldi gjöld og skatta vera töluvert hærri hér en það greiðir annars staðar í Evrópu. Fyrir liggur að stjórnendur Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar hafa rætt við þrjú lággjaldafélög, Ryan Air, Easy Jet og Maersk Air og þeir staðfesta að þessi félög hafi sett flugvallargjaldið fyrir sig. Rétt er að taka fram að flugvallargjaldið er tekið af hverjum farþega og að formi til er það hann sem greiðir skattinn. Í raun breytir sú stað- reynd litlu þegar verið er að skoða samkeppnisstöðuna. Þegar flugvall- argjaldið er kannski farið að slaga upp í eða losa meira en 10% af verði farmiða, eins og í tilviki lágfar- gjaldafélaganna þar sem verðsam- keppnin er hörð, kann gjaldið að skipta sköpum. Flugvallargjald vegur mjög þungt í heildarkostnaðinum Flugvallargjaldið er þó vissulega ekki eini kostnaðurinn sem við að lenda á Keflavíkurflugvelli en það er einkum heildarkostnaðurinn sem flugfélögin líta á. Lagt er á lending- argjald sem miðast við þyngd vélar, sérstakt öryggis- eða vopnaleitar- gjald, innritunargjald og afgreiðslu- gjald til svokallaðra flugafgreiðslu- aðila sem þjónusta vélarnar. Flug- vallargjaldið vegur engu að síður mjög þungt eða ríflega 40% af heild- ar gjald- og skattökunni. Stjórnend- ur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar hafa haldið því fram að þeir stæðu sérstaklega höllum fæti að því er snertir flugvallargjaldið en segjast á hinn bóginn standast nokkurn veginn samkeppni í hinum gjöldun- um og að afgreiðslugjöldin vegna þjónustu við vélarnar hafi lækkað mjög mikið á síðustu tveimur árum með tilkomu samkeppni á því sviði. Sóknarfærin séu því raunverulega fyrir hendi með lækkun flugvallar- skattsins. Auðvitað binda talsmenn lækkun- ar gjaldsins miklar vonir við að far- þegum til og frá landinu myndi fjölga verulega til hagsbóta fyrir að- ila í ferðaþjónustu, verslun o.s.fr.v. Lækkun þess myndi skapa auknar tekjur í hagkerfinu sem kæmu rík- issjóði einnig til góða og full ástæða sé að skoða heildarmyndina alla. Flugfélag á borð við Ryan Air flýgur til að mynda með um 25 millj- ónir farþega á ári og vissulega væri nokkur akkur í að fá slíkt félag til að fljúga til landsins. Í þessu efni gildir auðvitað að nið- urstaða tilraunar fæst ekki nema með því að framkvæmda hana. Ut- anríkisráðherra og fleiri aðilar virð- ast telja það mun vænlegri kost að láta að reyna á það frekar en dóm EFTA-dómstólsins í Brüssel. Flugvallar- skattur og ferðamenn Sóknarfæri kunna að felast í því að færa flugvallargjald í millilandaflugi niður til samræmis við innanlandsflugið. Arnór Gísli Ólafsson komst að því að þrátt fyrir hugs- anlegan fórnarkostnað er margt sem mælir með því að á það verði látið reyna. Reuters arnorg@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.