Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.03.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 65. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Mennt er máttur Búist við fjölmenni á námskynningu Háskóla Íslands 8 Jóhannes Geir hefur t́víeflst í málverkinu Lesbók 16 Lilja vekur viðbrögð Lukas Moodysson fjallar um hugsjónir og hörmungar Fólkið 66 LANDSÞING Frjálslynda flokksins mun um helgina ræða nýjar tillögur í sjávarútvegsmálum sem fela í sér að veiðiflotanum verði skipt í fjóra meginflokka. Með þeim er lagt til að tekið verði upp kerfi fiskveiða sem hefur, að sögn Sverris Her- mannssonar, formanns flokksins, sannað sig með afbrigðum vel í Færeyjum. Sverrir gerði grein fyrir þessum tillögum í setningarræðu sinni á Hótel Sögu í gær. „Nýjungar í stjórn fiskveiða sem Frjálslyndi flokkurinn leggur nú fyrir landsþingið er skipting veiði- flotans í fjóra meginflokka,“ sagði hann. „Í fyrsta flokki eru smábátar en þar verður kvótakerfið afnumið þegar í stað en sóknardagakerfi tek- ið upp. Í öðrum flokki eru dagróðr- arbátar. Um er að ræða línubáta, netabáta og snurvoðarbáta. Kvóta- kerfið verður afnumið þegar í stað og tekin upp sóknarstýring. Fjöldi skipa á ákveðnum veiðum verður takmarkaður. Skýrar reglur verða settar um stærð veiðarfæra og svæði, sem skip af ákveðnum gerð- um mega stunda veiðar á. Í þriðja flokki eru ísfisktogarar og línuskip. Þessi tegund skipa fái aðlögunar- tíma til að færast yfir í sóknardaga- kerfi, t.d. fimm ár. Í þessum flokki yrði fjöldi skipa takmarkaður. Í fjórða og síðasta flokki eru frysti- togarar og veiðiskip uppsjávarfisks. Þessi flokkur skipa myndi halda veiðiheimildum sínum en óheimil verslun með heimildir sín í milli eða við aðra flokka fiskiskipa.“ Sverrir útskýrði að með þessum tillögum væri lagt til að tekið yrði upp kerfi fiskveiða sem hefði sannað sig með afbrigðum vel í Færeyjum, þar sem fiskistofnar hefðu stóreflst og afkoma sjávarútvegsins blómg- ast með undraverðum hraða. „Með tillögum okkar nú er ekki verið að renna blint í sjóinn heldur byggt á ólyginni reynslu þjóðar, sem býr við sömu aðstöðu til sjávarins og Ís- lendingar nema hvað íslenska fiski- slóðin er margfalt stærri og afkasta- meiri.“ Bætti hann því við að um þessa stefnu ætlaði flokkurinn að láta kjósa um á vori komanda. Veiðiflotanum skipt í fjóra meginflokka Nýjar tillögur á landsþingi Frjáls- lynda flokksins  Landsþing/10 SVERRIR Hermannsson, formaður Frjálslynda flokksins, fékk blómvönd frá flokksfélögum sínum þegar hann hafði lokið setningarræðu sinni við upphaf landsþings flokksins í gær. Sverrir lætur af formennsku í flokknum í dag, en hann hefur stýrt flokknum frá stofnun. Guðjón A. Kristjánsson þingmaður er í kjöri til formanns. Í korti með blómvendinum þökkuðu flokksfélagar Sverri fyrir kjark, áræði og dugnað á liðnum árum. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Færðu formanninum blóm í þakklætisskyni BRETAR og Bandaríkjamenn lögðu til í gær, að Íraksstjórn verði gefinn frestur til 17. marz til að hlíta til fulls afvopnunar- ákvæðum ályktana Sameinuðu þjóðanna eða vera að öðrum kosti þvinguð til þess með hervaldi. Fulltrúar Frakklands, Þýzkalands og fleiri aðildarríkja öryggisráðs SÞ höfnuðu þessari tillögu strax, en hún er uppfærsla á ályktunardrögum sem áður höfðu verið lögð fram í ráðinu að frumkvæði Bandaríkja- manna, Breta og Spánverja. Andstæðingar tillögunnar segja, að yrði tillagan samþykkt myndi hún sjálfkrafa leiða til stríðs, og Frakkar hótuðu að beita neitunarvaldi. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar sögðust vilja að atkvæði yrðu greidd um tillöguna í næstu viku. En á fundi öryggisráðsins í gær, daginn eftir að George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði að Íraksdeilan væri „komin á loka- stig“, virtust fulltrúar Bandaríkjamanna og Breta eiga í erfiðleikum með að afla stefnu sinni hljómgrunns. Þrátt fyrir mikið samn- ingaþóf á bak við tjöldin síðustu vikur var ekki að sjá að þeim hefði tekizt að tryggja stuðning alls níu af hinum fimmtán aðild- arríkjum ráðsins við nýju ályktunina. Dominique de Villepin, utanríkisráðherra Frakklands, hvatti til þess að leiðtogar að- ildarríkjanna skytu á fundi í öryggisráðinu og ræddu hver væri vænlegasta leiðin til að leysa deiluna „í góðri trú á þessum vettvangi alþjóðlegs lýðræðis“. En Colin Powell, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, hafnaði strax þessari hugmynd. Sagðist hann ekki sjá neina þörf á slíkum leiðtogafundi ef lykilrík- in sem hér ættu hlut að máli hefðu lýst af- stöðu sinni af hreinskilni og heiðarleika. Fulltrúar Rússlands og Kína höfnuðu því báðir að ný ályktunartillaga um Írak yrði lögð undir atkvæði, en hótuðu ekki að beita neitunarvaldi, ólíkt Frökkum. Jákvæður tónn í skýrslu Blix Yfirmenn vopnaeftirlitsliðs SÞ í Írak, Hans Blix og Mohammad ElBaradei, fluttu nýjustu áfangaskýrslu sína um eftirlitsstarf- ið á fundi öryggisráðsins í gær. Megininn- takið var að á þeim rúmu þremur mánuðum frá því eftirlitsstarfið hófst á ný hefðu Írak- ar sýnt æ betri samvinnu. Blix sagði að hægt væri að líta svo á að samstarfið af hálfu Íraks væri orðið „virkt, ef ekki mjög virkt“. Írak fái lokafrest til af- vopnunar til 17. marz Frakkar og fleiri aðildarþjóðir öryggisráðs SÞ hafna tillögu Breta og Bandaríkjamanna Reuters Sameinuðu þjóðunum. AP, AFP.  Bush/18 VERÐ á svínakjöti til bænda hefur lækkað hratt síð- ustu daga. Norðlenska ákvað í gær að lækka verð til bænda í 120 krónur kílóið. Verðið var 150 kr. en fyrir rúmri viku greiddi Norðlenska 170 kr. fyrir kílóið. Sláturfélag Suðurlands ákvað í gær að lækka verð hjá sér úr 160 kr. í 140 krónur. Forsvarsmenn fyrirtækj- anna segja ástæðuna mikið framboð á svínakjöti. Offramboð er búið að vera á svínakjöti í nokkra mánuði. Framleiðsla umfram sölu frá ágúst til janúar er 115 tonn. Framleiðslan í janúar var 17,4% meiri en á sama tíma í fyrra, en salan jókst hins vegar aðeins um 9,7%. Í haust töldu framleiðendur líklegt að markaður- inn myndi fljótlega ná jafnvægi og verð myndi þokast upp á við. Það hefur hins vegar ekki gengið eftir. Jón Helgi Björnsson, framkvæmdastjóri slátursviðs Norðlenska, sagði að framboðið væri meira en reiknað var með. Jón Helgi sagðist ekki sjá fram á að verðið hækkaði mikið aftur nema því aðeins að dregið verði úr framleiðslu. Hann sagði að verðið á svínakjöti væri langt undir kostnaðarverði og það sama ætti við verð á kjúklingi. Framleiðendur væru að stórtapa. SS greiddi bændum 220 fyrir ári SS hefur að undanförnu greitt bændum 160 krónur fyrir kílóið af svínakjöti. Steinþór Skúlason, forstjóri SS, sagði eftir að Norðlenska tilkynnti um verðlækkun á svínakjöti í 120 kr, að SS myndi á mánudaginn lækka verðið í 140 krónur. „Á sama tíma fyrir ári greiddum við bændum 220 krónur fyrir kílóið. Það er alveg ljóst að það eru allir svínabændur í bullandi taprekstri í dag og margir eru komnir með neikvætt eigið fé.“ Verðhrun á svínakjöti Norðlenska lækkar verð til bænda í 120 kr/kg COLIN Powell, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, sem hér er á blaðamannafundi að loknum fundi öryggisráðsins í gær, lýsti því yfir að ferill Íraksstjórnar hvað varðar samstarf við vopnaeftirlitsmenn væri eftir sem áður „skrá yfir skort á samvinnu“. Sagði hann að Sameinuðu þjóðirnar „mættu ekki guggna á því“ á styðja að her- valdi verði beitt til að afvopna Íraka. Powell ekki sáttur Sýnir eftir langt hlé
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.