Morgunblaðið - 08.03.2003, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 11
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri í vor til
að dveljast við frábærar aðstæður á suðurströnd
Spánar í 2, 3 eða 4 vikur á ótrúlegum kjörum.
Beint flug til Benidorm og Costa del Sol þar sem
þú nýtur þjónustu fararstjóra Heimsferða allan
tímann og á Costa del Sol verður Sigurður Guð-
mundsson með sína frábæru íþrótta- og skemmtidagskrá fyrir þá
sem vilja njóta vorsins á Spáni. Við bjóðum þér okkar bestu íbúðar-
hótel með frábærri aðstöðu fyrir farþega.
Costa
del Sol
27. apríl
frá 59.962 kr.
Frí aukavika á Benidorm*
með Sigurði Guðmundssyni
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 37.062
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára.
Flugsæti eingöngu.
Verð kr. 79.960
M.v. 2 í stúdíó, Timor Sol, 27. apríl,
24 nætur. Flug, gisting, skattar og
íslensk farastjórn.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr. 52.962
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
Timor Sol, 24 nætur. Flug ,gisting og
skattar.
Benidorm - 27. apríl
Frí aukavika*
Verð kr. 29.662
Flugsæti m.v. hjón með 2 börn, 2–11
ára. 27. apríl, með húseigendaafslætti.
Verð kr. 68.050
M.v. 2 í íbúð, El Faro, 17 nætur.
Flug, gisting og skattar.
Verð kr. 48.462
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, El
Faro, 17 nætur. Flug ,gisting og
skattar.
Costa del Sol - 27. apríl
24, 30 nætur
* Þú kaupir 17 daga og getur valið
um fría aukaviku til viðbótar.
EKKI er von á kæru frá sr.
Kristjáni Val Ingólfssyni og sr.
Jóni Aðalsteini Baldvinssyni, sem
hlutu jafnmörg atkvæði í annarri
umferð kosninga um nýjan vígslu-
biskup Hólastiftis. Hefur þetta
ekki gerst áður í biskupskjöri að
atkvæði falla jafnt, eftir því sem
starfsfólk Biskupsstofu kemst
næst. Mjótt hefur verið á munum,
t.d. er sr. Pétur Sigurgeirsson var
kjörinn biskup að hann hlaut einu
atkvæði meira en sr. Ólafur
Skúlason. Faðir Péturs, sr. Sig-
urgeir Sigurðsson, var einnig
kjörinn biskup með eins atkvæðis
mun á sínum tíma.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í gær hlutu þeir Kristján
og Jón hvor um sig 30 atkvæði,
tvö atkvæði voru auð. Alls voru 63
á kjörskrá og 62 atkvæði skiluðu
sér til kjörstjórnar. Þau þurfti að
senda í ábyrgðarpósti og rann
skilafrestur út sl. mánudagskvöld.
Hafi engin kæra borist til yfir-
kjörstjórnar innan sjö daga frá
talningu, sem fram fór á fimmtu-
dag, mun kjörstjórn vísa málinu
til Sólveigar Pétursdóttur kirkju-
málaráðherra. Hún mun gera til-
lögu um nýjan vígslubiskup fyrir
forseta Íslands, sem skipar í emb-
ættið.
Séra Kristján Valur Ingólfsson
sagði við Morgunblaðið að hann
hefði ekki átt von á þessari nið-
urstöðu, hún hefði komið sér á
óvart. Í fyrri umferð hlaut hann
flest atkvæði, eða 27, og sr. Jón
Aðalsteinn kom næstur með 18.
Kristján Valur sagðist ekki sjá
neina ástæðu til að kæra úrslitin,
það væru engar forsendur til þess
í dag.
„Ég er glaður og ánægður með
að hafa náð Kristjáni Val. Þetta
leit ekkert alltof vel út eftir fyrri
umferð,“ segir sr. Jón Aðalsteinn
um úrslitin, sem hann segir hafa
komið sér þægilega á óvart. Hann
segist ekki ætla að aðhafast neitt
frekar, ekki sé vitað til þess að
vafaatkvæði hafi komið upp á
borðið í talningunni.
Atkvæði ekki áður fall-
ið jafnt í biskupskjöri
Niðurstaðan
kom vígslu-
biskupsefnum
á óvart
Sr. Kristján Valur
Ingólfsson
Sr. Jón A.
Baldvinsson
FLUGMÁLASTJÓRN mun funda
með fulltrúum Grænlandsflugs á mið-
vikudaginn kemur og verður þá farið
yfir umsókn félagsins um leyfi til
áætlunarflugs að því er kemur fram í
tilkynningu Flugmálastjórnar.
„Vegna umræðna í fjölmiðlum að
undanförnu um áætlanir Grænlands-
flugs um að hefja áætlunarflug milli
Akureyrar og Kaupmannahafnar, vill
Flugmálastjórn Íslands koma eftir-
farandi á framfæri. Umsókn flug-
félagsins um leyfi til áætlunarflugs
milli Íslands og Danmerkur barst
Flugmálastjórn fyrst í dag, föstudag-
inn 7. mars. Fyrirhugaður er fundur
með fulltrúum flugfélagsins næst-
komandi miðvikudag þar sem farið
verður yfir efni umsóknarinnar.“
Fjallað um
umsókn Græn-
landsflugs
EVRÓPUSAMBAND verkalýðs-
félaga, ETUC, hefur hvatt aðildar-
félög sín í Evrópu til aðgerða á há-
degi 14. mars nk. til að leggja
áherslu á andstöðu verkalýðsfélaga
gegn stríði og krefjast þess að leitað
verði allra friðsamlegra leiða við af-
vopnun Íraks.
Fram kemur að engar ákvarðanir
hafi verið teknar hér á landi en for-
menn stærstu heildarsamtakanna
hafi komið saman til fundar til að
ræða viðbrögð við stríðsógninni.
ETUC samanstendur af sambönd-
um verkalýðsfélaga í 34 Evrópulönd-
um og eru BSRB og ASÍ aðilar að
sambandinu. Um 60 milljónir manna
eru í ETUC.
Hvött til að
mótmæla
stríði í Írak
TÆPLEGA tvítugur maður var sekt-
aður um 60 þúsund krónur í Héraðs-
dómi Reykjaness í gær fyrir að aka
norður Hafnarfjarðarveg í Kópavogi
á 137 km hraða á klst., þar sem leyfi-
legur hámarkshraði er 70 km á klst.
Auk sektarinnar var ákærði svipt-
ur ökurétti í tvo mánuði, en hann sótti
hvorki þinghald né boðaði forföll er
málið var tekið fyrir.
Rétt þótti að hagga ekki skilorðs-
dómi sem hann hlaut í júní í fyrra-
sumar þar sem honum var gert að
sæta fangelsi í 60 daga, skilorðsbund-
ið til þriggja ára, fyrir þjófnað og
eignaspjöll. Þorgeir Ingi Njálsson
héraðsdómari kvað upp dóminn.
Sekt og öku-
leyfissvipting
fyrir ofsaakstur
SEXTÁN ára piltur var sakfelldur í
Héraðsdómi Reykjaness í gær fyrir
að slá öryggisvörð við störf sín í
Kringlunni í janúar í fyrra með þeim
afleiðingum að andlitsbein brotnuðu.
Vegna ungs aldurs ákærða var
ákvörðun um refsingu frestað um tvö
ár.
Við ákvörðun refsingar þótti dóm-
ara rétt að líta til þess að pilturinn var
ekki nema 15 ára þegar brotið átti sér
stað og að hann upplifði framkomu
brotaþola sem óréttláta í sinn garð.
Þá átti hann engan sakarferil að baki
og játaði greiðlega brot sitt.
Skaðabótakröfu öryggisvarðarins
var vísað frá dómi, en piltinum var
gert að greiða allan sakarkostnað.
Guðmundur L. Jóhannesson hér-
aðsdómari kvað upp dóminn. Verj-
andi ákærða var Sigmundur Hannes-
son hrl.
Sakfelldur
fyrir að slá
öryggisvörð
PÁLL Pétursson félags-
málaráðherra og Sól-
veig Pétursdóttir dóms-
málaráðherra fengu
fyrstu rósanælurnar,
sem seldar verða í dag,
laugardag, til styrktar
Stígamótum. Salan
hófst í gær og að söl-
unni standa Zonta-
klúbbarnir á Íslandi.
Mun ágóðinn renna til
að hefja forvarnaverk-
efni vegna vændis á
vegum Stígamóta.
Það var Dögg Páls-
dóttir hrl. sem situr í
stjórn Zonta Inter-
national, sem afhenti
ráðherrunum fyrstu
rósanælurnar.
Rósanælur seldar til
styrktar Stígamótum
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
STUTT
Í UMRÆÐUM um fjárhagsáætlun á
fundi Bændasamtakanna lagði Har-
aldur Benediktsson m.a. til að mán-
aðarlaun formanns samtakanna,
Ara Teitssonar, yrðu hækkuð til
jafns við þingfararkaup alþing-
ismanna.
Taldi Haraldur nauðsynlegt að
greiða þeim sem störfuðu að fé-
lagsmálum fyrir bændur eðlilega
umbun fyrir; staðreyndin væri sú
að mikill tími færi í að sinna og
mikill erill fylgdi slíkum störf-
um.Var gerður góður rómur að
málinu á þinginu en formaðurinn,
Ari Teitsson, fór þá í ræðustól og
frábað sér allar launahækkanir:
„Í Guðs bænum, ekki hækka við
mig launin,“ sagði hann.
Sagðist Ari líta svo á að þar sem
hann þæði einnig laun fyrir störf í
örfáum nefndum væri hann ein-
ungis í 75% starfi sem formaður
Bændasamtakanna.
„Hvers konar kjarabarátta er
þetta eiginlega?“ heyrðist þá kallað
úr þingsalnum.
Vildi ekki
kaup-
hækkun
LÖGREGLAN á Egilsstöðum að-
stoðaði ökumann á Fjarðarheiði á ní-
unda tímanum í gærkvöldi þar sem
hann sat fastur í fólksbíl á heiðinni.
Bíllinn komst hvorki aftur á bak né
áfram sökum hálku og þurfti ökumað-
ur, sem var á leið til Seyðisfjarðar, að
snúa bílnum við og aka aftur áleiðis til
Egilsstaða. Að sögn lögreglu er mjög
hált á heiðinni og ástæða til að benda
ökumönnum á að fara helst ekki yfir
hana nema á fjórhjóladrifnum bílum.
Fastur á Fjarðarheiði
GÍSLI Marteinn Baldursson, vara-
borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna,
gagnrýndi í jómfrúarræðu sinni í
borgarstjórn á fimmtudag fyrirhug-
aða gjaldheimtu fyrir bílastæði í
Þingholtunum. Sagði hann meiri-
hluta íbúa í hverfinu á móti gjald-
heimtunni, samkvæmt könnun Gall-
up, nema breytingar verði gerðar.
Gjaldheimtan hafi verið samþykkt
þannig að íbúar geti fengið tvö íbúa-
kort á 3.000 krónur en íbúar hafi
ekki verið spurðir álits á því fyrir-
komulagi. Það væri umhugsunarvert
hvers vegna íbúar miðborgarinnar
þurfi skyndilega að borga sérstakan
miðborgarskatt til að fá að leggja
fyrir utan húsið sitt.
Gagnrýndi hann að íbúar sem búa
rétt utan gjaldheimtusvæðisins hafi
ekki verið spurðir, það sama eigi við
um kaupmenn í nágrenninu. „Niður-
staðan er sú að það er algjört yf-
irvarp hjá R-listanum að ætla að
samþykkja þetta á grundvelli meiri-
hlutavilja íbúanna. Sá vilji liggur ein-
faldlega ekki fyrir,“ sagði Gísli Mar-
teinn.
Árni Þór Sigurðsson, formaður
samgöngunefndar, sagði könnun
Gallups ekki forsendu fyrir þeirri
ákvörðun að koma á gjaldskyldu í
Þingholtunum, þó vissulega hafi ver-
ið tekið mark á þeim sjónarmiðum
sem þar komu fram. Þegar áform um
gjaldskylduna hafi verið kynnt í
hverfinu hafi fáar athugasemdir bor-
ist.
„Við töldum á grundvelli þeirra at-
hugasemda sem þrátt fyrir allt komu
væri ekki ástæða til annars en að
láta þessa tillögu verða að veruleika.
Það hefur verið upplýst að það hefur
verið haft heilmikið samráð við íbúa
á svæðinu um þessa tillögu,“ sagði
Árni Þór.
Gagnrýndi gjald-
heimtu fyrir bíla-
stæði í Þingholtunum