Morgunblaðið - 08.03.2003, Page 13

Morgunblaðið - 08.03.2003, Page 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 13 RADIOMIÐUN og Ísmar, sem eru í eigu Eykis hf., hafa sameinað rekstur sinn á sviði siglinga- og fiskileitartækja, undir nafni Radio- miðunar. Ísmar mun einbeita sér að sölu og þjónustu á tæknibúnaði fyrir landmælingar, ásamt öðrum hátæknibúnaði. Jóhann H. Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Radiomiðunar, segir að á undanförnum árum hafi lands- lagið í íslenskum sjávarútvegi breyst mikið og með sameining- unni sé verið að laga fyrirtækin að breyttum áherslum. „Útgerð á Ís- landi hefur tekið miklum stakka- skiptum á síðustu árum þar sem útgerðarfyrirtækjum hefur fækkað og til hafa orðið stærri og öflugri fyrirtæki. Þessi þróun hefur kallað eftir enn frekari hátækniþjónustu sem fyrirtækin ætla að mæta með fyrrgreindum breytingum.“ Auk sameiningarinnar og til að skerpa á áherslusviðum fyrirtækj- anna, verður hagrætt í rekstri með því að sameina alla fjármálastjórn og tengda starfsemi undir nafni Eykis. Þremur starfsmönnum var sagt upp störfum í kjölfar sameining- arinnar. Öll starfsemi fyrirtækj- anna verður á Grandagarði í Reykjavík. Radiomiðun og Ísmar sameinast F.v. Jóhann H. Bjarnason, framkvæmdastjóri Radiomiðunar og Eykis, Jón Tryggvi Helgason, framkvæmdastjóri Ísmars, og Kristján Gunnarsson, fjármálastjóri Eykis. Tölvudreifing kaupir Links TÖLVUDREIFING hf. og eigendur Links ehf. hafa undirritað samning um kaup Tölvudreifingar á öllu hlutafé Links. Hefur starfsemi Links þegar verið sameinuð Tölvu- dreifingu og hafa tveir af fjórum starfsmönnum Links hafið störf hjá Tölvudreifingu. Kaupverð er trúnað- armál en er tengt afkomu einingar- innar á þessu starfsári. Links er dreifingarfyrirtæki með raftæki fyrir heimili og GSM-síma og var velta félagsins samkvæmt ársreikningi 2002 um 154 milljónir króna. Helstu vörur Links eru sjón- varpstæki, heimabíótæki, mynd- bandstæki, DVD-spilarar, GSM- símar, ísskápar og þvottavélar. Tölvudreifing hf. er dreifingarfyr- irtæki á sviði tölvu- og hugbúnaðar, símabúnaðar og heimilistækja. Helstu vörumerki Tölvudreifingar auk áðurnefndra vörumerkja eru: Microsoft, Aopen, Creatvie Labs, Targus, ET (eigið vörumerki á tölv- um), Kingston, OKI og Intel. Velta Tölvudreifingar hf. sam- kvæmt ársreikningi 2002 nam 1.162 milljónum króna. Opin Kerfi Group eiga 66,67% hlut í Tölvudreifingu. Hlutur ríkis í BÍ seldist skjótt upp 9,11% HLUTUR ríkisins í Búnaðar- bankanum seldist á augabragði þegar opnað var fyrir við- skipti með hann í gærmorgun klukk- an 10. Arnar Arn- arsson hjá Búnað- arbankanum Verðbréf, sem sá um útboðið, segir að miðlarar hafi ekki haft undan að senda inn tilkynn- ingar um viðskipti. Klukkan 10.14 var send tilkynning inn á Kauphöllina um að salan væri yfirstaðin. Sem fyrr segir var um 9,11% hlut í bankanum að ræða, eða 493.457.979 krónur að nafnverði. Útboðsgengi var 5,05 og því voru hlutabréfin seld á 2.491.962.794 krónur. Fyrir viðskiptin átti ríkissjóður 54,91% í Búnaðar- banka Íslands, en á nú 45,8%. Eins og komið hefur fram hefur ríkið samið við hinn svokallaða S-hóp um að hann kaupi þessi 45,8% sem eftir eru. ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ Heildartap Hmark 190 milljónir TAP Hlutabréfamarkaðarins hf. (Hmark) eftir skatta á síðasta ári nam 118,8 milljónum króna og ríflega tvö- faldaðist milli ára. Óinnleyst tap af verðbréfaeign nam 71,2 milljónum króna og heildartapið á árinu 2002 var því 190 milljónum króna. Heildartap ársins 2001 nam 11,4 milljónum króna. Hreinar rekstrartekjur félagsins voru neikvæðar um 109 milljónir króna en voru neikvæðar um 41 millj- ón á árinu 2001. Rekstrargjöld félags- ins drógust saman milli áranna, fóru úr 11,5 milljónum króna í tæpar 10 milljónir. Heildareignir Hmark námu 297,4 milljónum króna, þar af voru eignir í erlendum hlutabréfum 229 milljónir króna, eignir í innlendum bréfum 18,3 milljónir króna og 49,6 milljónir handbært fé. Í tilkynningu frá Hmark í Kauphöll Íslands segir að mikil lækkun á er- lendum mörkuðum hafi haft mikil áhrif á reksturinn á síðasta ári. Hmark fjárfestir aðallega í erlendum hlutabréfum. Félagið átti hlut í 28 fé- lögum í lok árs 2002, þ.á m. í Bakka- vör Group hf. og Microsoft. Hlutafé félagsins er 126 milljónir króna og eigið fé 297 milljónir króna. Hluthafar Hmark voru 1.572 í lok árs 2002.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.