Morgunblaðið - 08.03.2003, Page 34
LISTIR
34 LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LÚÐRASVEIT verkalýðsins heldur
árlega vortónleika sína í Langholts-
kirkju nk. laugardag, 8. mars, kl.
14. Stjórnandi er Tryggvi M. Bald-
vinsson. Kynnir á tónleikunum er
Úlfar Snær Arnarson.
Svo skemmtilega vill til að þenn-
an sama dag eru nákvæmlega 50 ár
liðin frá stofnun sveitarinnar og er
því
mikið er viðhaft í tilefni þessara
merku tímamóta. Alls taka um 90
hljóðfæraleikarar þátt í tónleik-
unum. Lúðrasveitina sjálfa skipa
tæplega 40 hljóðfæraleikarar og
leikur sveitin fjölda laga, sér í lagi
íslensk lög og lög sem tengjast sögu
sveitarinnar. Auk lúðrasveitarinnar
sjálfrar kemur einnig fram á tón-
leikunum sveit skipuð um 50 eldri
félögum og leikur 4 lög. Þeirri sveit
stjórna 4 af eldri stjórnendum sveit-
arinnar og leikur sveitin 1 verk
undir stjórn hvers þeirra. Öll eiga
þessi verk það sameiginlegt að vera
ýmist samin af stjórnandanum eða
útsett af honum. Þessir stjórnendur
eru Ólafur L. Kristjánsson, Ellert
Karlsson, Jóhann T. Ingólfsson og
Malcolm Holloway.
Lúðrasveit verkalýðsins var
stofnuð 8. mars 1953 og kom fyrst
fram opinberlega 5. maí 1953 á
„Þjóðarráðstefnu gegn her í landi“
og 10. maí var farið suður í Sand-
gerði og þar spilað á samkomu fyrir
starfsfólk frystihússins. Allt frá
stofnun sveitarinnar hefur hún leik-
ið við hátíðarhöld í Reykjavík á
sumardaginn fyrsta og 17. júní. Þá
hefur lúðrasveitin skipað stóran
sess í 1. maí kröfugöngu í Reykja-
vík ár hvert á baráttudegi verka-
fólks. Árlega leikur sveitin svo við
fjöldamörg önnur tækifæri auk þess
að halda tvenna tónleika ár hvert.
Þá hefur sveitin nokkrum sinnum
farið í tónleikaferðir erlendis.
Í tilefni af 50 ára afmælinu mun
sveitin halda til St. Pétursborgar í
Rússlandi um páskana og halda tón-
leika í Rimsky-tónlistarháskólanum.
Sérstakt afmælisblað verður gef-
ið út á tónleikadaginn og dreift
ókeypis til tónleikagesta. Afmæl-
isblaðið hefur m.a. að geyma ýmis
ávörp til sveitarinnar á þessum
tímamótum auk ýmiss fróðleiks um
sögu sveitarinnar á árunum 1953 til
1970.
Að tónleikum loknum er svo af-
mæliskaffi í Langholtskirkju í boði
lúðrasveitarinnar.
Lúðrasveit Verkalýðsins.
Lúðrasveit verkalýðsins 50 ára
Afmælistónleikar í
Langholtskirkju
ÞÓ Hrein mey á leiðinni sé byggt
á amerískri unglingamynd (10
Things I Hate About You) sem sæk-
ir efni sitt í leikritið Snegla tamin
eftir Shakespeare er það í grund-
vallaratriðum önnur saga. Sem bet-
ur fer, því í stað þess að ung og
„óþæg“ stúlka sé vanin við yfirráð
karlmannsins með næsta harkaleg-
um ráðum eins og þar, er hér ung
ófélagslynd stúlka vanin við hvers-
dagslega meðalhegðun unglinga:
skemmtanir, drykkjuskap, stefnu-
mót – og ást. Miklu ásættanlegra.
Eins og í frumverkinu þarf allt þetta
að gerast til að yngri og „venjulegri“
systur hennar gefist kostur á því
sama. Hrein mey á leiðinni er ekki
merkilegt verk, en hreint ekki leið-
inlegt. Það sem helst vantar er
meira kjöt á beinin í samdrætti fé-
lagsskítsins og vonbiðilsins.
Þar er stiklað á helst til stóru, og
hefði verið nær að sleppa fullkom-
lega tilgangslausum tónlistarnúmer-
um úr sýningunni, þó vel væru flutt,
og gefa aðalpersónunum meira pláss
til að taka út þroska sinn í okkar við-
urvist.
Aðlögun kvikmyndarinnar að
sviðinu hefur tekist dável, og grunar
mig að þar ráði úrslitum einföld en
hugmyndarík sviðsetning Ingridar
Jónsdóttur. Það var hraði í sýning-
unni og stór leikhópurinn vel nýttur
til að skapa andrúmsloft og aðstæð-
ur. Það er líka aðdáunarvert jafn-
vægi í leikhópnum og allir skila hlut-
verkum sínum af einlægni og margir
með ágætum skoptöktum.
Þar fara fremst Sólmundur Hólm
sem örlagatöffarinn Jói Dan og Þor-
björg H. Dýrfjörð sem var hreint
frábær sem fylgihnötturinn og
Shakespearegrúppían Melkorka.
Elskendapörin tvö voru í góðum
höndum hjá þeim Kára Viðarssyni
og Herdísi Steinarsdóttur annars-
vegar og Unni Birnu Vilhjálmsdótt-
ur og Arnari Björnssyni hinsvegar.
Sýningin er prýðisskemmtun, kraft-
mikil, hugmyndarík og ekki vitlaus-
ari en margt annað, til dæmis
Snegla tamin.
Kannski er hægt að líta á Að eilífu
sem einhverskonar viðbrögð Árna
Ibsen við rómantískum kómedíum á
borð við ofangreint verk, eða alla-
vega sem athugun á því hvernig svo-
leiðis efni reiðir af í íslenskum raun-
veruleika.
Verkið lýsir samdrætti tveggja
ungra Íslendinga og leið þeirra í
gegnum hakkavél hinna tilbúnu og
aðfengnu brúðkaupssiða sem orðnir
eru kvöð á hverju því pari sem vill
játa ást sína formlega. Þetta er
sterkt verk, fyrst og fremst vegna
þess að Árni hefur kjark til að of-
skrifa ekki, segja aldrei meira en
þarf. Atburðirnir tala sínu máli og
hér er mikið efni fyrir hugmyndarík-
an leikstjóra og kraftmikinn hóp. Og
Þröstur Guðbjartsson og hans lið
gerir sér svo sannarlega mat úr
verkinu.
Hér er stór hópur að störfum og
ná allir að leggja sitt af mörkum til
að sýningin verði jafn vel heppnuð
og raun ber vitni. Í forgrunni eru
þau Telma Björg Kristinsdóttir og
Benedikt Hreinn Einarsson sem eru
prýðileg sem brúðhjónin. Þá er
frammistaða Gylfa Ólafssonar í hlut-
verki prestsins eftirtektarverð
skrípamynd.
Sýningin er keyrð áfram af mikl-
um krafti og Þresti tekst samtímis
að ná fram sterkum ýkjustíl og jafn-
framt að láta krakkana hvíla í hlut-
verkum sínum. Fyrir vikið verða
viðbrögð, tímasetningar og ætlun
persónanna sönn og skýr þó mikið
gangi á og skrípalætin séu í al-
gleymingi. Og óneitanlega léttir gal-
gopaskapurinn kvöð fágunarinnar af
leikurunum, sem er þakklátt fyrir
óvana en áhugasama leikara.
Sviðsetningin er vel unnin hjá
Þresti og hann nær að snúa erfiðu
rými á sal Menntaskólans upp í
styrkleika. Umferðarstjórn er með
miklum ágætum og fullt af snjöllum
hugmyndum sem þessi skemmtilegi
hópur skilar vel. Að eilífu er mikil
skemmtun og ættu Ísfirðingar og
nágrannar þeirra að drífa sig á þær
fáu sýningar sem verða á verkinu.
Ástir samlyndra ungmenna
LEIKLIST
Thalía – leikfélag
Menntaskólans við Sund
Þýðing og sviðsgerð: Jóhanna Guð-
mundsdóttir, leikstjóri: Ingrid Jónsdóttir.
Austurbæ 25. febrúar 2003.
HREIN MEY Á LEIÐINNI
Þorgeir Tryggvason
Leikfélag Menntaskólans
á Ísafirði
Höfundur: Árni Ibsen, leikstjóri: Þröstur
Guðbjartsson.
Menntaskólanum á Ísafirði, 28. febrúar
2003.
AÐ EILÍFU
NÝTT leikverk, Tónleikur, verð-
ur frumsýnt í Möguleikhúsinu í
dag kl. 17. Það er sellóleikarinn
Stefán Örn Arnarson sem leikur
verkið og Pétur Eggerz leikstýr-
ir. Þeir félagar eru þaulkunnugir
hnútum hvor annars því þeir hafa
leikið saman leikritið Völuspá eft-
ir Þórarin Eldjárn ríflega 130
sinnum frá því það var frumsýnt
á Listahátíð vorið 2000.
„Stefán átti hugmyndina að
Tónleik og nefndi hana við mig í
fyrravor,“ segir Pétur Eggerz og
að þeir hafi síðan rætt hana með
hléum þar til í haust að þeir sett-
ust niður og skrifuðu handrit að
sýningunni sem er reyndar mjög
sérstakt plagg þar sem „leikar-
inn“ segir nánast ekkert í sýning-
unni. „Framvindu verksins er
hins vegar lýst nákvæmlega í
handritinu og þar er ekkert til-
viljun háð,“ segir Pétur.
„Hugmyndin að verkinu er
fengin af reynslu minni af tón-
leikahaldi,“ segir Stefán Örn en
hann hefur leikið samleik og ein-
leik á sellóið á fjölmörgum tón-
leikum. „Hlutskipti einleikarans
hér á Íslandi er dálítið sérstakt
þar sem aðstæður eru þannig að
oft gefst aðeins eitt tækifæri til
tónleikahalds eftir að undirbún-
ingur hefur staðið vikum og mán-
uðum saman. Markaðurinn er
ekki það stór að hægt sé að spila
sömu efnisskrána á mörgum tón-
leikum. Mér fannst því forvitni-
legt að velta fyrir mér hlutskipti
einleikarans á tónleikum og verk-
ið er hugsað sem tónleikar þar
sem sellóleikarinn er að leika
svítu nr. 1 í G dúr eftir Bach. Ým-
islegt fer úrskeiðis og sellóleik-
arinn missir einbeitinguna og fer
út í aðra sálma.“
Að sögn þeirra Péturs og Stef-
áns Arnar er sýningin hugsuð
fyrir almenna áhorfendur, bæði
stálpuð börn og fullorðna. „Þetta
er ekki barnasýning í þeim skiln-
ingi þó vissulega sé hún hugsuð
fyrir efri bekki grunnskóla og
framhaldsskóla. Mér finnst þarna
gefast kjörið tækifæri til að
brjóta upp hin hefðbundnu mörk
á milli tónleika og leiksýningar,
kynna hljóðfærið fyrir áhorfend-
um og möguleika þess en Stefán
Örn nýtir sér rafmögnun að
nokkru leyti. Það gæti höfðað til
unglinganna sem finnst kannski
sellóið frekar gamaldags hljóð-
færi.“
Sýningin er 40 mínútur að
lengd og verður á almennum sýn-
ingum í Möguleikhúsinu við
Hlemm en einnig er ætlunin að
bjóða hana skólum og fyrirtækj-
um. „Ég get mjög vel séð fyrir
mér að hún henti sem skemmtileg
tilbreyting í hádeginu fyrir
starfsmenn hinna ýmsu fyrir-
tækja,“ segir Pétur.
Umgjörð sýningarinnar er
hönnuð af Katrínu Þorvaldsdótt-
ur og Bjarni Ingvarsson sér um
lýsingu.
Möguleikhúsið fer nýjar leiðir
Tónleikur
á selló
Morgunblaðið/Jim Smart
Stefán Örn Arnarson í hlutverki
einleikarans.
Efnisyfirlit
Lesbókar
á mbl.is
EFNISYFIRLIT Lesbókar
Morgunblaðsins fyrir árið 2002
er nú að finna á mbl.is. Það er
vistað undir flipanum Morgun-
blaðið á pdf. formati.
STYRKJAÚTHLUTUN menningar-
málanefndar Reykjavíkur fyrir árið
2003 voru að þessu sinni 32, að upp-
hæð kr. 14,5 millj. kr., að auki 2 millj.
kr. til Jazzhátíðar í Reykjavík.
Eftirtöldum var úthlutað styrkjum:
1 millj. kr.: Björn Brynjúlfur Björns-
son/Jón Karl Helgason kvikm.gerð-
armenn, Íslensk tónverkamiðstöð og
Karlakórinn Fóstbræður. 800 þús.
kr.: Samband ísl. myndlistarmanna.
750 þús. kr.: Samarbejdsgruppen –
Vignir Jóhannsson. 500 þús. kr.:
Camerarctica - tónlistarhópur, Átak,
félag fólks með þroskahömlun, Blás-
arakvintett Reykjavíkur, Hamra-
hlíðarkórinn, Leikhópurinn Leikur
einn, Leikhópurinn Thalamus, Lista-
safn ASÍ, Ólöf danskompaní, Sinfón-
íuhljómsveit áhugamanna, Strengja-
leikhúsið, Heimilda- og stutt-
myndahátíð 2003 og Kirkjulistahátíð
2003. 400 þús. kr.: gallerí @ hlemm-
ur.is, Gallerí Skuggi og Þórður Ben
Sveinsson myndlistarmaður. 300 þús.
kr.: Contrasti - tónlistarhópur, Söng-
sveitin Fílharmónía og Ung Nordisk
Musik. 250 þús. kr.: Félag norrænna
forvarða - Íslandsdeild. 200 þús. kr.:
Arna Kristín Einarsdóttir tónlistar-
maður, Kristín Mjöll Jakobsdóttir
tónlistarmaður, Mozart hópur – Lauf-
ey Sigurðardóttir o.fl., Sigurður Hall-
dórsson tónlistarmaður, Blásarasveit
Reykjavíkur, Félag ísl. tónlistar-
manna, Mótettukórinn og Poulenc
tónlistarhópur.
Menningarmálanefnd Reykjavíkur
16,5 milljónir til
33 styrkþega
Námskeið LHÍ
NÁMSKEIÐ með myndvinnslubún-
aðinn Painter hefst 12. mars. Nám-
skeið í Photoshop er nauðsynlegur
undanfari. Notandinn getur unnið í
hin ýmsu efni t.d. olíu, vatnslit eða
krít. Einnig verður stutt kynning á
teiknimyndagerð með Painter.
Kennari er Höskuldur Harri Gylfa-
son, myndlistarmaður og grafískur
hönnuður. Námskeið í myndskreyt-
ingu II, fyrir lengra komna hefst 17.
mars. Kennd verða undirstöðuatriði
í notkun á tölvuforritunum Painter
og Photoshop við myndskreytingu
og nýjustu straumar og stefnur í fag-
inu kynnt. Kennari er Halldór Bald-
ursson, teiknari hjá Zoom.
♦ ♦ ♦