Morgunblaðið - 25.03.2003, Side 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 41
NÚ ER komið að því að Bandaríkja-
menn ætla að ráðast inn í Írak. Þvert
gegn vilja þjóða heims sem eru flest-
ar búnar að fá yfir sig nóg af yfir-
gangi bandarískrar heimsvalda-
stefnu.
Bandaríkin hljóta að sjálfsögðu
blessun og stuðning íslensku ríkis-
stjórnarinnar. Hundurinn geltir
þegar eigandinn sigar.
Kokhraustar og herskáar yfirlýs-
ingar íslenskra ráðherra um árásar-
stríð gegn Írak minna mig á brand-
arann um fílinn og maurana tvo.
Þannig var að maurar tveir komust
upp á kant við fíl. Annar maurinn
prílaði upp eftir hálsi fílsins sem
vitaskuld fann ekki fyrir neinu.
Gall þá við í hinum maurnum sem
stóð álengdar: Kyrktu hann, Emil!
Kyrktu hann!
Ég las í blöðunum um daginn að
íslenska ríkisstjórnin standi í kosn-
ingabaráttu til að koma íslenskum
fulltrúa í öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna.
Ég ætla að vona að þjóðir heims
beri gæfu til að koma í veg fyrir að
Bandaríkjunum bætist á þennan
hátt ein rödd til viðbótar í öryggis-
ráðið.
EIRÍKUR BRYNJÓLFSSON,
Hvassaleiti 26,
Reykjavík.
Ísland,
stríð og SÞ
Frá Eiríki Brynjólfssyni
ENGINN fæðist gallalaus, en all-
flestir fá í vöggujöf þokkalegt heil-
brigði en gera sér svo ekki grein fyr-
ir dýrmæti þess.
Allt þykir orðið
svo sjálfsagt og
reynt er að gera
allt sem auðveld-
ast. Einn daginn
stendur svo ein-
staklingurinn
frammi fyrir því
að nánast öllu er
snúið á hvolf og
hann þarf að læra
allt upp á nýtt með flestar bjargir.
Þá hefst mikil barátta við að sætta
sig við orðið hlutskipti og að allt er
ekki lengur eins sjálfsagt og áður
var. Fólk verður upp á aðra komið en
þá blasir við að enginn veit hvað átt
hefur fyrr en misst hefur. Þjóðfélag-
inu er stundum hnoðað þannig sam-
an að nógu erfitt er fyrir þann sem
telst heilbrigður að eiga við það,
hvað þá lömuðum sitjandi í hjólastól.
Sumar hverjar byggingar og stofn-
anir eru eins og minnisvarði yfir
hönnuðinum með sínum göllum
varðandi aðgengi hjólastóla þótt
bætt hafi verið úr summstaðar. Smá
athugun leiddi í ljós að einn er
skemmtistaður borgarinnar þar sem
þjónar ljúka lofsorði á þetta fólk.
Þeir segja: „Það kemur til að
skemmta sér, drekkur ekkert sull og
er ekki til vandræða“. Og til er dæmi
um að lamað eða bæklað fólk sé nán-
ast gætt undramætti, nái sér upp úr
hjólastólum og kjagi einhvernveginn
áfram – jafnvel fari að vinna. En við
það eru bætur þessa fólks miskunn-
arlaust skornar niður sem „verð-
laun“ fyrir tiltækið.
Ég hef til þessa talað um líkam-
lega lömun en til er annarskonar
lömun sem er bara hálfu verri, en
það er andleg lömun eða geðfötlun.
Þau ósköp geta hent alla hvenær
sem er. Aðkastið og ónotin sem þetta
fólk upplifir úti í samfélaginu er með
ólíkindum. Engu skiptir þótt reynt
sé að ræða þetta af skynsemi, for-
dómarnir halda sínu striki. Til er fólk
sem vill ekkert af þessu vita frekar
en af fátæktinni. Erfitt er að ímynda
sér að nokkuð lagist, a.m.k ekki á
næstunni enda þarf kraftaverk til
eftir því hvernig samfélagið er í dag.
Að vísu er til fólk sem kýs að
starfa við ummönnun þessa fólks en
yfirvöld bera alltaf við fjárskorti ef
reynt er að gera meira eða betur.
Komið hefur fyrir að einstaklingur
hafi neitað meðferð eða þeirri hjálp
sem í boði er. Slíkt ástand bitnar þá á
ættingjum því sá einstaklingur sem
ekki virðir boð eða bönn er að sjálf-
sögðu ekki talinn í húsum hæfur og
ráfar um eins og hver annar útigang-
ur. Það er því ekkert grín að verða
geðfatlaður vitandi hvernig sam-
félagið tekur á móti manni.
VALDIMAR ELÍASSON,
sjúkraliði,
Nýbýlavegi 74, Kópavogi.
Líkamleg og
andleg lömun
Frá Valdimar Elíassyni
Valdimar
Elíasson
BARDAGAÍÞRÓTTIN Muay-Thai
eða Thai boxing ásamt Free fight
hefur verið milli tannanna á fólki
undanfarið og
hafa ólíklegustu
menn stokkið
fram á ritvöllinn í
fjölmiðlum og
ausið úr reiðum
skálar sinnar og
fordæmt íþrótt-
ina fyrir ofbeldi
og meiðingar.
Allt er þetta til-
komið vegna
tveggja bardaga á boxkvöldi einu
fyrir skemmstu í Laugardalshöll eft-
ir að formlegri dagskrá í ólympísk-
um hnefaleikum milli Íslands og
Danmerkur lauk. Undirritaður var á
staðnum og horfði á báða bardagana
og þótti ekki mikið koma til Frjálsa
bardagans eins og fleiri eftir að hafa
séð Thai boxið á undan.
Í þessari grein vil ég ekki taka
neina afstöðu til þeirra manna sem
telja sig hafa verið svikna af loforð-
um um að þessir bardagar færu
EKKI fram á þessu kvöldi. Um tvær
gerólíkar íþróttagreinar er að ræða,
ólympíska hnefaleika og Thai box og
á ekkert að vera að blanda þessu
saman og þá á heldur ekkert að vera
að blanda því saman að ólympískir
hnefaleikar séu í einhverri hættu eða
krísu vegna Thai boxsins sem átti
sér stað umrætt kvöld í höllinni.
Fólk verður að átta sig á því að al-
veg eins og hnefaleikar á Thai box
langa og glæsilega sögu erlendis og
mikil hefð og miklir peningar hafa
skapast í kringum íþróttina erlendis
alveg eins og í hnefaleikum. Oft eru
meiri peningar í Tælandi og annars
staðar í Asíu í Thai boxing og sér-
staklega Kick boxing en í „ferkant-
aða“ hringnum í Las Vegas. Sumir
eru að fá allt frá 40 milljónum ISK
upp í 120 milljónir ISK fyrir sigur í
mótum.
Það Thai box sem keppt var í í
höllinni var áhugamann box í svo-
kölluðum C-klassa þar sem eru þrjár
lotur og hver lota þrjár mín að lengd.
Ekki má nota/setja olboga eða hné í
andlit andstæðingsins í þessum
C-klassa.
Hlusta verður á þau rök að menn
meiðist meira í hnefaleikum en Thai
boxi alveg eins og þau rök að menn
meiðist meira í Thai boxi en hnefa-
leikum því í Thai boxi dreifast högg-
in um allan líkamann og mikið er
sparkað í fætur en í hnefaleikum er
aðaláherslan á andlitið, höfuðið og
mikið um brotnar tennur og brotin
nef.
Báðar íþróttirnar eru að slíta
barnskónum eða barnshönskunum“
hér á landi (þó lítill hópur hefur
stundað þessar íþróttir á „kantinum“
í mörg ár) ásamt fleiri bardaga-
íþróttum eins og Kick boxing, Kung
Fu boxing ofl og má alls ekki setja
allar þessar íþróttir undir sama hatt
heldur bera virðingu fyrir hverri fyr-
ir sig og kynna sér reglur og sögu
hverrar bardagaíþróttar áður en
haldið er í fjölmiðla með yfirlýsingar
og sleggjudóma.
Vissulega hafa hinar ýmsu bar-
dagaíþróttir orðið sýnilegri með lög-
leiðingu ólympískra hnefaleika en er
þá ekki betra að kynna sér þær með
hugsanlega lögleiðingu í huga en að
fordæma þær og líkja þeim við helg-
arslagsmál niðri í bæ!
GUÐMUNDUR BREIÐFJÖRÐ,
iðkandi og áhugamaður um
„Muay-Thai“.
Stöðvum múgæsinguna
gegn „Muay-Thai“!
Frá Guðmundi Breiðfjörð
Guðmundur
Breiðfjörð
Flott föt
Gott verð
Hallveigarstíg 1
588 4848