Morgunblaðið - 25.03.2003, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 25.03.2003, Blaðsíða 51
AP Ástralskur og velskur sigur. Nicole Kidman og Catherine Zeta-Jones voru valdar bestu leikkonurnar í aðal- og aukahlutverki. handritshöfundarins Ronalds Harwoods fyrir kvikmyndaaðlögun hans á endurminningum Waldysl- aws Szpilmans, Píanistans. Í þeim flokki höfðu fleiri búist við að Charlie Kaufman og ímyndaður bróðir hans Donald fengju verð- launin fyrir eitthvert frjóasta hand- rit sem kvikmyndað hefur verið lengi og varð að myndinni Aðlögun eftir Spike Jonze og einnig höfðu margir spáð því að vönduð kvik- myndaaðlögun Davids Hares á Stundunum fengi verðlaunin, en hinn reyndi Harwood hreppti hnossið en hann var tilnefndur 1983 fyrir handrit sitt að myndinni Bún- ingamaðurinn (The Dresser). Og Harwood lét falla orð sem virtust eins og mælt úr munni allra sem á staðnum voru: „Þegar ég var hérna síðast fyrir tuttugu árum sagði Shirley MacLaine (vann fyrir Terms of Endearment) að hún ætti þetta skilið. Ég vildi að ég gæti sagt það sama en get það ekki því þessi verðlaun eru aðeins einum manni að þakka, Roman Polanski.“ Sungið og dansað til sigurs Chicago tók þó stærstu verðlaun kvöldsins, besta myndin, en þetta er í fyrsta sinn síðan Oliver! sigraði árið 1968 sem dans- og söngva- mynd hlýtur þessi verðlaun. Cath- erine Zeta-Jones var valin besta leikkona í aukahlutverki en önnur verðlaun voru „minni“, fyrir klipp- ingu, búninga, listræna stjórn og hljóð. Margir veðmangarar og sér- fræðingar höfðu spáð Renée Zellweger sigri í flokknum besta leikkonan í aðalhlutverki en hún varð að lúta í lægra haldið fyrir helsta keppinautnum Nicole Kid- man sem hlaut sinn fyrsta Óskar fyrir túlkun sína á skáldkonunni Virginiu Woolf í Stundunum. Þetta voru einu verðlaun myndarinnar sem tilnefnd hafði verið til níu verðlauna. Það hefði þó getað farið verr, eins og t.d. hjá Gengjum New York-borgar, sem tilnefnd var til tíu verðlauna en hlaut engin. Aðrar niðurstöður sem sæta tíð- indum eru m.a. að japanska teikni- myndin Á vit andanna (Sen to Chihiro no kamikakushi) hafi verið tekin fram yfir Disney-myndirnar og að Conrad heitinn Hall hafi fengið sinn þriðja Óskar fyrir kvikmyndatökuna á Leiðinni til Perdition. Eminem-drengurinn sannaði síðan í eitt skipti fyrir öll að hann er óbrigðull þegar að verð- launahátíðum kemur. Flestum að óvörum var lagið hans „Loose Yourself“ úr 8 mílum valið besta lagið og tekið fram yfir lög með ris- um á borð við U2 og Paul Simon. Peter O’Toole hlaut að þessu sinni heiðursóskar fyrir framlag sitt til kvikmyndanna en þessi aðal- leikari mynda á borð við Arabíu- Lawrence hafði sjö sinnum hlotið tilnefningu en aldrei unnið. „Skammastu þín, herra Bush!“ Mikið hafði verið spáð í hvernig Hollywood myndi bregðast við stríðinu í Írak og svo fór sem margir spáðu, sýningin hélt sínu striki, var reyndar settlegri en oft áður, enginn rauður dregill og klæðaburðurinn allur með íburð- arminnsta móti. En mestar áhyggj- ur höfðu menn haft af ræðunum, hvort menn myndu nýta sér tæki- færið til þess að lýsa skoðunum sín- um á þessu ofurviðkvæma máli. Nokkrir gerðu það, flestir þó á hóf- stilltan máta með því að gefa frið- armerkið með fingrum eða óska heimsfriðar. Það vissu allir að ef Michael Moore ynni fyrir heimild- armynd sína Í keilu fyrir Columb- ine (Bowling for Columbine) þar sem þessi róttæki þjóðfélagsrýnir skýtur föstum skotum á skotvopna- dýrkun landa sinna, þá myndi hann grípa tækifærið. Moore fékk stand- andi lófatak þegar hann gekk upp á svið til að taka við verðlaununum, og allir vissu fyrir víst að nú hlyti eitthvað að gerast, og það gerðist. Hann tók alla sem tilnefndir höfðu verið í flokki heimildarmynda upp á svið með sér. „Við sem saman erum komin á sviðinu erum fólk sannleik- ans, sem lifir í uppdiktuðum heimi. Við lifum á tímum uppdiktaðra kosningaúrslita, þar sem kosinn er uppdiktaður forseti. Við lifum á tímum þegar maður tekur sig til og sendir okkur í stríð á uppdiktuðum forsendum.“ Og stjörnurnar sem ein sem allar höfðu fagnað sigri Moore innilega ýmist bauluðu eða hrópuð hvatningarorð til Moore þar sem hljómsveitin reyndi að þagga niður í honum og hann var dreginn út af sviðinu hrópandi: „Skamm- astu þín, herra Bush!“ „Þetta var svolítið fyndin sjón þarna baksviðs,“ grínaðist kynnir kvöldsins Steve Martin, að uppá- komunni afstaðinni, „að sjá bílstjór- ana hjálpa Moore aftur í skottið á limmósíunni hans.“ Hinn svefnvana Pedro Almodovar átti erfitt með að einbeita sér er hann tók við öðrum Óskarnum á ferli sínum, fyrir handrit sitt að Tal- aðu við hana, en hann hafði ekki sofið síðan á fimmtudag. Reuters Michael Moore sagði baksviðs eftir að hafa varpað bombu kvölds- ins með ummælum sínum um Bush og Íraksstríðið að einmitt slíkar uppákomur væru vitnisburður um hversu mikils virði það væri að búa í frjálsu ríki þar sem tjáningarfrelsið væri haft í heiðri. skarpi@mbl.is TENGLAR ..................................................... Lista yfir alla vinningshafa má finna á heimasíðu hátíðarinnar www.osc- ar.com/oscarnight/winners.html. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 51 Nýr og betriHverfisgötu  551 9000  kvikmyndir.com www.regnboginn.is Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12. Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 12 Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 16. HJ MBL HK DVKvikmyndir.com Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i. 16.  Kvikmyndir.com  SG DV HOURS HL MBL HK DV ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com SV MBL Þegar röðin er komin að þér þá flýrðu ekki dauðann! Frábær spennutryllir sem hræðir úr þér líftóruna. 6 ÓSKARSVERÐLAUN M.A.BESTA MYNDIN 2 ÓSKARS- VERÐLAUN NICOLE KIDMAN BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI Sýnd kl. 10.10. B.i 12 www.laugarasbio.is  RADIO X SV MBL  KVIKMYNDIR.COM SG DV  ÓHT RÁS 2 Tilnefningar til Óskarsverðlauna: Aðalhlutverk karla: Jack Nicholson. Aukahlutverk kvenna: Kathy Bates.2 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16. Eingöngu sýnd um helgar Þegar röðin er komin að þér þá flýrðu ekki dauðann! Frábær spennutryllir sem hræðir úr þér líftóruna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.