Morgunblaðið - 25.03.2003, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 25.03.2003, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 45 ENGLANDS- og bik- armeistarar Arsenal leika í kvöld annan leik sinn á tveimur dögum þegar þeir mæta Chelsea á Stamford Bridge í 8-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Chelsea náði að knýja fram annan leik eftir að liðin skildu jöfn, 2:2, á High- bury, en sigurliðið í kvöld mætir Sheffield United í undanúrslitum keppninnar á Old Trafford í Manchest- er 13. apríl. Leikurinn í kvöld verður sá þriðji hjá Arsenal á sex dögum. Ljóst er að mark- vörðurinn David Seaman verður ekki með Arsenal á Stamford Bridge í kvöld frekar en í síðustu leikjum og þá er óvíst hvort Sol Campbell geti spilað. Varn- armaðurinn öflugi hefur átt við meiðsli að stríða í hásin en Arsene Wenger, stjóri Arsenal, leggur allt kapp á að Campbell verði með og vonast til að sjúkra- þjálfarar liðsins nái að gera hann leikhæfan. Martin Keown er frá vegna meiðsla en þó svo að Pat- rick Vieira segist ekki vera 100% klár vegna meiðsla í hné segist hann ætla að spila. Seaman ekki með Arsenal LEIKMENN Chelsea mæta til leiks gegn Arsen- al fullir sjálfstrausts eftir 5:0 sigurinn á Man- chester City á laugardaginn, sem er stærsti sig- ur Chelsea-liðsins á leiktíðinni. Reiknað er með að Claudio Ranieri, stjóri Chelsea, tefli fram sama byrjunarliði og í leiknum við Manchester City sem þýðir að Eiður Smári Guðjohnsen verð- ur í fremstu víglínu með Jimmy Floyd Hassel- baink og fyrir aftan þá ítalski töframaðurinn Gianfranco Zola sem fór á kostum á „nýteppa- lögðum“ velli þeirra Chelsea-manna á laugardaginn. Marcel Desailly, fyrirliði Chelsea, verður að sætta sig við að vera utan liðsins en Ranieri vill ekki hrófla við miðju varn- arinnar þar sem þeir William Gallas og John Terry hafa náð mjög vel saman. Eina breytingin sem Ranieri gæti hugsanlega gert er að taka Emmanuel Petit inn í liðið og tefla honum fram á miðjunni í stað Jody Morrys.Eiður Smári Eiður Smári í fremstu víglínu ympíuleikunum í Barcelona árið 1992 hafi einnig haft sitt að segja hvað varðar áhuga almennings á íþróttinni. Eflaust hafa slíkir þættir einhver áhrif en þegar upp er staðið er það undir félagsliðunum komið að bjóða uppá „skemmtun“ í sínum íþrótta- húsum þar sem hver leikur skiptir öllu máli hvað varðar heildarniður- stöðuna. Í dag eru tvö bikarmót á vegum KKÍ þar sem útsláttarfyrirkomu- lagið fær að njóta sín og óvæntir hlutir geta gerst. Kjörísbikar- keppnin (deildabikarkeppnin) er frábrugðin að því leyti að þar er fyr- irfram ákveðið hvaða lið mætast (1– 16, 2–15 …) en í Doritos-bikar- keppninni er það aðeins tilviljun hvaða lið mætast. Það er jákvætt hve mörg lið taka þátt í Íslandsmóti karlaliða á yfir- standandi keppnistímabili, 12 í úr- valsdeild, 9 í 1. deild og 41 lið í fimm riðlum í 2. deild. Alls 62 lið en til samanburðar eru 14 lið sem taka þátt í Íslandsmótinu í handknatt- leik karla – sem fram fer í einni deild. Að mínu mati ættu þessar bikar- keppnir að vera nægt „krydd“ í til- veruna samhliða Íslandsmóti sem væri leikið eins og áður segir – í átta liða deild með fjórfaldri umferð. Ársþing Körfuknattleikssam- bandsins er vettvangur fyrir breyt- ingar og vonandi hafa menn kjark til þess að gera breytingar sem efla körfuknattleikinn enn frekar. Sigurður Elvar Þórólfsson Arsene Wenger, knattspyrnu-stjóri Arsenal, hrósar Wayne Rooney, hinum 17 ára gamla fram- herja Everton, í hástert, en Rooney skoraði mark Everton í 2:1-sigri Arsenal á Everton á Highbury í fyrradag. Rooney skoraði sigur- markið í leik liðanna á Goodison Park fyrr í vetur, þá aðeins 16 ára gamall, og með því marki má segja að hjólin hafi farið að snúast hvað at- hygli fólks á piltinum varðar. „Rooney er afar hæfileikaríkur og ég sé mikinn mun á honum frá því í október þegar hann skoraði sigur- markið á móti okkur. Hann hefur þroskast ótrúlega mikið á þessum tíma og er svo sannarlega kominn í alþjóðlegan klassa. Það er undir landsliðsþjálfaranum komið hvort hann telur Rooney nógu góðan til að leika fyrir landsliðið en ég er hand- viss um að innan mjög langs tíma verður hann orðinn fastamaður í enska landsliðinu,“ sagði Wenger. Rooney hlaut náð fyrir augum Svens Görans Erikssons landsliðs- þjálfara sem eftir leikinn tilkynnti 25 manna landsliðshóp fyrir leikina við Liechtenstein og Tyrkland. Enskir fjölmiðlar höfðu fengið vísbendingu um að Eriksson ætlaði ekki að velja Rooney í hópinn og greindu laugar- dagsblöðin frá því að Eriksson ætl- aði að sniðganga efnilegasta leik- mann Bretlandseyja. En Eriksson var mættur á Highbury til að skoða Rooney og eftir leikinn ákvað Svíinn að velja piltinn í hóp sinn, enda stóð hann undir væntingum, skoraði gott mark og hélt varnarmönnum Arsen- al við efnið allan tímann. Wenger hrósar Wayne Rooney Wayne Rooney Mikill hasar var í karlaflokki þarsem ÍR-ingurinn Jón Helgi Bragason náði efsta sætinu af Birni Birgissyni, KFR, í fyrsta leiknum þar sem þeir mættust. Í næstu fjór- um sætum urðu Halldór Ragnar Halldórsson og Steinþór Jóhannsson úr ÍR, Björn úr KFR og Magnús Magnússon úr KR. Eftir harða keppni á öllum vígstöðvum náðu Magnús og Jón Helgi í úrslit og þar hafði Magnús betur, 415–392. Þetta er í annað sinn sem Magnús verður meistari, en hann sigraði einnig árið 2001. Hjá konunum mættust Dagný Edda Þórisdóttir og Elín í úrslitum, en báðar eru þær í KFR. Dagný Edda tryggði sér sæti í úrslitum þeg- ar hún lagði Sigfríði Sigurðardóttur, KR. Í úrslitaleiknum hafði Dagný Edda betur í fyrsta leik en Elín hafði betur á lokasprettinum og vann 415– 352. Elín hefur verið mjög sigursæl í keilunni og hefur tíu eða ellefu sinn- um orðið Íslandsmeistari. „Ég man ekki alveg hvort þetta er í tíunda eða ellefta sinn sem ég verð meistari, í það minnsta tíunda sinn,“ sagði hún í samtali við Morgunblaðið. Hún byrj- aði að æfa keilu 1987 og varð Íslands- meistari í fyrsta sinn árið eftir. Íslandsmeistararnir öðlast rétt til að keppa á Evrópubikarmóti einstak- linga sem fer fram í Vín í október. Magnús og Elín Íslands- meistarar Íslandsmeistararnir Magnús Magnússon og Elín Óskarsdóttir. MAGNÚS Magnússon úr KR og Elín Óskarsdóttir úr KFR urðu um helgina Íslandsmeistarar í keilu. Elín varð nú meistari fjórða árið í röð.  FYRSTA opna golfmótið á þessu ári var haldið á Hlíðarvelli í Mos- fellsbæ á laugardaginn. Það er ekki á hverju ári sem opin golfmót eru hald- in í lok mars og það á sumarflötum. En GKJ nýtti sér góða tíð og má segja að golftímabilið hefjist nokkru fyrr í ár en venja er til.  HEIMAMENN voru sigursælir því Einar Bjarni Jónsson sigraði í högg- leiknum án forgjafar á 79 höggum og í punktakeppninni með forgjöf varð Hallgrímur V. Hallgrímsson hlut- skarpastur með 40 punkta.  NEIL Mellor hinn 20 ára gamli framherji hjá Liverpool skrifaði um helgina undir nýjan samning við fé- lagið sem gildir til ársins 2006. For- ráðamenn Liverpool binda miklar vonir við Mellor í framtíðinni en pilt- ur hefur aðeins fengið að spreyta sig með aðalliði félagsins á yfirstandandi leiktíð þar sem frammistaða hans hefur vakið athygli.  ALAN Shearer framherji New- castle segir að Gianfranco Zola verð- skuldi að verða fyrir valinu sem leik- maður ársins í ensku úrvalsdeildinni. Sherarer segist hafa gefið Ítalanum atkvæði sitt en kjörinu verður lýst í næsta mánuði. Thierry Henry hjá Arsenal þykir líklegur til að hreppa hnossið en Shearer og Zola koma einnig til greina.  LEEDS United leitar nú að styrkt- araðila til að auglýsa á keppnisbún- ingi félagsins á næstu leiktíð eftir að fyrirtækið Strongbow ákvað að segja upp samningi sínum við liðið. Samningurinn er metinn á 2,5 millj- ónir punda.  ALAN Smith framherjinn óstýri- láti hjá Leeds gæti orðið næsti leik- maðurinn sem Leeds þarf að sjá á eftir. Bresk blöð greina frá því að Gerard Houllier, stjóri Liverpool, hafi sýnt áhuga á að kaupa leikmann- inn sem skrifaði undir nýjan samning við Leeds í vetur.  JOHN Harton, framherji Celtic, vill komast í ensku úrvalsdeildina á nýjan leik. Hartson, sem skorað hef- ur 48 mörk í 81 leik með Celtic, lék með Arsenal, West Ham og Cov- entry áður en hann fór til Celtic.  ARSENAL getur með sigri á Chelsea í kvöld tryggt sér sæti í und- anúrslitum ensku bikarkeppninnar í 23. sinn og jafnað met sem Everton á.  CHELSEA fer í undanúrslit bikar- keppninnar í 16. sinn í sögu félagsins nái liðið að leggja Arsenal að velli.  ARSENAL og Chelsea mætast í kvöld í 11. sinn í ensku bikarkeppn- inni. Arsenal hefur unnið 6 leiki en Chelsea 4.  ARSENAL hefur ekki tapað bik- arleik síðan 12. maí 2001 en þá tapaði liðið fyrir Liverpool, 2:1, í úrslitaleik á þúsaldarvellinum í Cardiff.  ARSENAL hefur ekki tapað í tólf síðustu viðureignum liðanna í deild og bikar. Síðasti sigurleikur Chelsea á Arsenal var 1998 en þá hafði liðið betur á móti Arsenal, 5:0, í deildabik- arnum en Arsenal tefldi fram varaliði sínu í þeim leik.  CHELSEA leikur í kvöld sinn 150. heimaleik í bikarkeppninni og fari liðið með sigur af hólmi kemst það í undanúrslit í fimmta sinn á síðustu átta árum.  ARSENAL á möguleika á að verða fyrsta lið í sögu ensku knattspyrn- unnar sem verður tvöfaldur meistari, það er enskur meistari og bikar- meistari, tvö ár í röð.  ARSENAL og Chelsea áttust við í undanúrslitum bikarkeppninnar á síðustu leiktíð og þar hafði Arsenal betur, 2:0, með mörkum fá Frederik Ljungberg og Ray Parlour.  JEAN Tigana þykir orðið afar valtur í sessi sem knattspyrnustjóri Fulham. Talið er sennilegt að hann verði látinn taka pokann sinn fyrr en síðar og fái ekki að ljúka starfsamn- ingi sínum við félagið sem rennur í lok maí. Sterkur orðrómur er uppi um að David O’Leary taki við starfi Tigana. FÓLK PETRU Paleu, forráðamaður rúmenska handknattleiksliðs- ins Fibrex Nylon Savinesti, fer óvenjulegar leiðir til þess að fjármagna kaup á nýjum leik- mönnum fyrir næstu leiktíð en þá tekur lið hans þátt í meist- aradeild Evrópu í handknatt- leik. Lið Paleu hefur tryggt sér rúmenska meistaratitilinn á þessari leiktíð og nú þegar nokkrar umferðir eru eftir hefur Paleu boðið þeim liðum sem eiga eftir að leika við væntanlega meistara að kaupa sér sigur, þ.e. leggi menn fram ákveðna upphæð þá séu liðin örugg um að leggja vænt- anlega meistara. Peningana sem koma inn, verði þeir ein- hverjir, ætlar Paleu að nota til þess að verða sér úti um mark- vörð og hornamann fyrir næsta keppnistímabil. Paleu segist gera þetta ein- göngu til þess að vekja athygli á útbreiddri spillingu sem rík- ir í knattspyrnuhreyfingunni í Rúmeníu, þar sem orðrómur hefur verið uppi um að hægt væri að kaupa sér sigur. Ekki fylgir sögunni hvort ein- hverjir hafi ákveðið að tryggja sér tilboð rúmensku handknattleiksmeistaranna. Sigur til sölu í Rúmeníu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.