Morgunblaðið - 25.03.2003, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 25.03.2003, Qupperneq 48
MÚSÍKTILRAUNUM var fram haldið sl. fimmtudagskvöld og kepptu þá ellefu sveitir um úrslita- sæti. Tónlistin var venju fremur fjölbreytt þetta kvöld því þó rokkið hafi verið í aðalhlutverkunum eins og svo oft áður var það venju frem- ur fjölbreytt og að auki boðið upp á electroboogie hiphop, stuðhiphop, spunatónlist og djass. Diluted hóf leikinn með góðri keyrslu og skemmtilegum hraða- skiptingum en annað lagið var þó best; skemmtilega drungalegt lag þar sem söngvarinn fór vel niður og gaf því þannig góðan drunga. Trommuleikurinn var vel traustur, sérstaklega í lokalagi sveitarinnar sem endaði með látum. Piltarnir í Lenu voru á öðrum slóðun, heldur léttari en þó kraft- miklir, þeirra keyrsla var bara öðruvísi, flæðandi gítarlínur og gott indie-rokk. Mjög þéttir. Annað lag sveitarinnar var vel samsett og skemmtileg og athygli vakti góður trommuleikur. Einangrun átti næsta leik og enn var skipt um gír, nú var á boð- stólum léttpoppað rokk með ágæt- um útsetningum sem tryggðu að nóg væri í gangi. Annað lag þeirra félaga var ágætt en kannski full meinlaust og góður trommuleikur í síðasta laginu gekk ekki alveg upp því það vantaði stuðning frá gít- urum, þeir voru svo skældir að það var engin döngun í þeim. Lunchbox byrjaði leik sinn með látum, geysiþétt sveit og vel undir spilirí undirbúin. Trommuleikari sveitarinnar er frábær og aðrir stóðu sig vel þó söngurinn hafi ekki fallið vel að því sem fram fór. Ann- að lag sveitarinnar var mikið stuð- lag, grípandi gott og vel spilað og það þriðja einnig gott. Dáðadrengir voru skemmtileg til- breyting frá öllu rokkinu, léttpopp- að hiphop með sérdeilis skemmti- legu undirspili, ódýrum hljóðum og töktum sem voru vel saman sett. Framlína sveitarinnar, þrír rappar- ar, er öflug og stóð sig mjög vel, trommarinn frábærlega og bassa- leikurinn traustur. Rímurnar voru mjög misjafnar, en yfirleitt góðar. Spunatónlist getur verið skemmtileg og virkað frjáls og flæðandi, en vill gleymast að í raun er mjög ákveðinn agi og skipulag á bak við sem jafnan byggist á mikilli færni þeirra sem hana flytja eða mjög góðri samstillingu tónlistar- mannanna. Kismet lék tónlist sem kom mörgum í opna skjöldu, lög sí- breytileg og ekki auðvelt að greina byggingu þeirra. Sem spunatónlist gekk þó margt vel upp en annað hvort þarf sveitin meiri aga og skýrari línur eða að sleppa alveg fram af sér beislinu og stíga skrefið að fullu inn í spunann. Fyrsta djasssveit Músíktilrauna sté á stokk eftir hlé við mikinn fögnuð margra áheyrenda. Danni og Dixieland-dvergarnir leika nokk- uð mótaðan djass með sterkum áhrifum víða að. Fín sveifla var í fyrsta lagi sveitarinnar, saxófónsóló gott og trompet enn betri, en það endaði sérkennilega. Annað lagið var aftur á móti með mjög svalri fönksveiflu og bassaleikur í því af- bragð. Þriðja lagið var mjög gott, en undirspil virkaði full hart á köfl- um. Flirt lék nokkuð hefðbundna rokktónlist, sveitarmenn þéttir og vel spilandi, en söngur full eintóna. Annað lag sveitarinnar var gott og trommuleikur þá áberandi góður og þriðja lagið líka ágætt. Still Not Fallen var kraftmesta sveit kvöldsins og stóð sig fram- úrskarandi vel, keyrslan fín og trommuleikur frábær. Tónlist sveit- arinnar er einskonar emo og hard- core blanda með áherslu á síðar- nefndu tónlistarstefnuna, en liðsmenn fara þó um víðan völl í tónlistinni sem geir hana einmitt sérdeilis skemmtilega. SLF Narfar voru þremenningar frá Selfossi, eins og nafn sveitarinn- ar ber með sér, og keyrðu á mjög þungum takti. Ofan á þann takt, sem framkallaði hjartsláttartruflan- ir þegar mest lét, kom síðan blaut- legur kveðskapur að hætti ungra pilta, gamansamir stuðtextar. Rappararnir eru öruggir á sviði og fjallhressir en óneitanlega voru textarnir þunnur þrettándi. Lack of Trust átti lokaorðin, myljandi dauðarokk, og gaman að heyra í slíkri sveit eftir langt hlé. Söngvari sveitarinnar, eða réttara sagt öskrari, hefði þó mátt vera meira á lágu nótunum, því það gaf einna viðkunnanlegastan drunga þegar hann rumdi hvað mest. Fyrir misgáning var tilkynnt að Dáðadrengir hefðu sigrað úr sal, en rétt var að Danni og Dixieland- dvergarnir höfðu sigur með átta fleiri atkvæðum. Það kemur þó ekki að sök því báðar sveitirnar komast áfram. Dómnefnd valdi svo Still Not Fallen áfram og stefnir í maraþon- úrslitakvöld föstudaginn 28. mars næstkomandi. Úr öllum áttum Músíktilraunir, hljómsveitakeppni Tóna- bæjar og Hins hússins. Þriðja til- raunakvöld haldið í Hinu húsinu fimmtu- daginn 20. mars. Þátt tóku Lack Of Trust, Flirt, Diluted, Still not Fallen, SLF Narfar, Lunchbox, Lena, Dáðadrengir, Danni og Dixielanddvergarnir, Einangrun og Kismet. Árni Matthíasson Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir Lunchbox SLF Narfar Kismet Flirt Einangrun Diluted Lack of Trust Lena TÓNLIST 48 ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið PUNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht 2. sýn fi 27/3 kl 20 gul kort 3. sýn su 30/3 kl 20 rauð kort 4. sýn fi 3/4 kl 20 græn kort 5. sýn su 6/4 kl 20 blá kort Fi 10/4 kl 20 Su 13/4 kl 20 LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þrjú ný verk eftir Katrínu Hall, Láru Stefánsd. og Ed Wubbe Lau 29/3 kl 20 Fö 4/4 kl 20 ATH: Síðustu sýningar SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson Fö 28/3 kl 20, Lau 5/4 kl 20 Fö 11/4 kl 20, Lau 12/4 kl 20 Nýja svið Þriðja hæðin Litla svið Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga. Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is Miðasala 568 8000 RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare í samstarfi við VESTURPORT Mi 26/3, sýning fellur niður. Mi 2/4 kl 20, Mi 9/4 kl 20, Lau 12/4 kl 16, Lau 12/4 kl 20 MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS VÆRI HATTUR eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne Fö 28/3 kl 20, Su 30/3 kl 20, Su 6/4 kl 20, Fö 11/4 kl 20 PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler Lau 29/3 kl 20, Lau 5/4 kl 20, Su 13/4 kl 20 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ Leikrit með söngvum - og ís á eftir! Lau 29/3 kl 14 UPPSELT Lau 29/3 kl 15 UPPSELT Lau 5/4 kl 14, Lau 12/4 kl 14 KVETCH eftir Steven Berkoff í samstarfi við Á SENUNNI Lau 29/3 kl 20, Lau 5/4 kl 20, Su 13/4 kl 20 Takmarkaður sýningarfjöldi Kvöldverður fyrir og eftir sýningar Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga, kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýningardaga. Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar. Sími 562 9700 Ómissandi leikhúsupplifun Fös 28/3 kl 21 Næst síðasta sýning Fim 3/4 kl 21 Síðasta sýningSíðustu sýningar sýnir í Tjarnarbíói Undir hamrinum „Frábær skemmtun". SA, DV. lau. 29. mars kl. 20 sun. 30. mars kl. 20 fim. 10. apríl kl. 20 fös. 11. apríl kl. 20 Frítt fyrir börn 12 ára og yngri. Miðapantanir allan sólarhringinn í s. 551 2525 eða á hugleik@mi.is Miðasala í síma 555 2222 eftir Ólaf Hauk Símonarson laugard. 29. mars frumsýning kl.14 uppselt sunnud. 30. mars 2. sýning kl.14 örfá sæti laugard. 5. apríl kl. 14 sunnud. 6. apríl kl.14 fim 27/3, aukasýning UPPSELT föst 28/3 kl.21, UPPSELT lau 29/3 kl. 21, UPPSELT föst 4/4 kl.21, UPPSELT lau 5/4 kl. 21, nokkur sæti föst 11/4 kl. 21, nokkur sæti lau 12/4 kl. 21, laus sæti fim 17/4, SJALLINN AKUREYRI lau 19/4, SJALLINN AKUREYRI föst 25/4, laus sæti "Salurinn lá í hlátri allan tímann enda textinn stórsnjall og drepfyndinn. " Kolbrún Bergþórsdóttir DV

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.